Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Portúgal
Ungmenni 1 þræla-
vinnu fyrir
heróínskammtinn
Malaga. Morgunblaðið.
LÖGREGLUYFIRVÖLD í Portúgal
hafa stöðvað starfsemi bygging-
arfyrirtækis eins sem hneppt hafði
unga eiturlyfjaneytendur í þrældóm.
Fólkið vann myrkranna á milli en
fékk í stað launa heróínskammta
þrisvar sinnum á dag. Talsmenn lög-
reglu í Portúgal skortir orð til að
lýsa aðbúnaði þeim sem eiturþræl-
arnir þurftu að sætta sig við og segja
slíka ómanneskjulega grimmd öld-
ungis óskiljanlega á ofanverðri 20.
öld.
Að sögn talsmanna portúgölsku
lögreglunnar hafði byggingarfyrir-
tækið um 30 eiturlyfjaneytendur í
„vinnu“ og hafði verið fylgst með
starfseminni í rúman mánuð áður
en látið var til skarar skríða. Fyrir-
tækið var starfrækt nærri borginni
Oporto en eiturlyfjaneytendumir
voru flestir milli tvítugs og þrítugs.
Var þeim gert að þræla frá morgni
til kvölds en fengu þess í stað þijá
heróínskammta á degi hveijum.
Hluthafar í byggingarfyrirtækinu
hafa lýst yfir hryllingi sínum og
kveðast enga hugmynd hafa haft
um starfsemina.
Verktakinn, sem er 35 ára og
hefur áður komist I kast við lögin,
er nú á bak við lás og slá. Alls voru
11 menn handteknir og lögreglan
gerði upptækt tæpt hálft kíló af
heróíni og eilítið af kókaíni auk þess
sem lagt var hald á vopn af ýmsum
gerðum.
Á þrælafæði í skjól-
lausum bröggum
Fólkið var geymt í bröggum nærri
vinnustaðnum og var flutt á degi
hveijum í bifreiðum til vinnu. Mario
nokkur Antunes, foringi í portúg-
alska Þjóðvarðliðinu sem stjómaði
rannsókn málsins og aðgerðum lög-
reglu, kvað niðurstöður rannsóknar-
innar gjörsamlega ótrúlegar:
„Hvemig getur slíkt gerst á. okkar
tímum? Ungmennin bjuggu í skálum
og máttu sætta sig við þrælafæði.
Þau sváfu í kojum og vatnið í brögg-
unum náði þeim upp í hné. Þama
var ekkert skjól að fá fyrir raka,
kulda og rigningu. Þetta vom gjör-
samlega ómanneskjulegar aðstæður.
Þrælarnir fengu smáskammta af
eitri að morgni, eftir hádegi og að
kvöldi. Þeir vom geymdir nærri
vinnustaðnum sem ekki var fjarri
skólunum þar sem þeir vom gerðir
háðir eitrinu."
Talsmaður samtaka byggingar-
verktaka í Portúgal tók í sama
streng: „Þetta er algjörlega ótrúlegt
mál. Enginn sem hefur snefíl af
mannlegum tilfínningum gæti nýtt
sér neyð fíkniefnasjúklinga með
þessum hætti og launað þeim vinn-
una með eiturskömmtum."
Réttlausir verkamenn
Forseti hagsmunasamtaka portú-
galskra byggingaverkamanna segir
að mál þetta sé aðeins til marks um
það ófremdarástand sem ríki á þessu
sviði í landinu. Þrælavinna sé viðtek-
in í þessum geira og stjómvöld geri
ekkert til að bæta kjör og réttar-
stöðu verkamanna. Rúm 70% verka-
manna í byggingarvinnu starfí með
ólöglegum hætti. Þeir séu óskráðir,
hafí enga samninga í höndunum, séu
öldungis réttlausir og með öllu
ótengdir tryggingakerfínu í Portú-
gal.
íranar óska eftir alþjóðlegri aðstoð vegna landskjálfta
2.400 manns fórust
og 200 þorp í rúst
Qaen. Reuter. _____________________
LANDSKJALFTAR I IRAN
UM 2.400 manns fórust og 6.000 slösuðust í landskjálftanum
sem reið yfir austurhluta írans á laugardag. 200 þorp
eyðilögðust í skjálftanum og 50.000 manns misstu heimili sín.
* ^ Annar skiálfti
Annar skjálfti, sem
mældist 4,8 stig á
500 km Richter, reið yfir
norðvesturhiuta
landsins í gær.
REUTERS
S Teheran
ÍRAN
Hjálparsveitir hafa reist um
9.000 tjöld á skjálftasvæðinu
og stjómvöld hafa óskað eftir
fleiri tjöldum, maWælum,
vatnstönkum, fatnaði
og bílum til að dreifa
Persa- hjólparsögnunum-
flói
Skjáiftinn
á laugardag
Mældist7,1 stigá
Richter. Stjórnvöld
í íran hafa óskað
eftir alþjóðlegri
aðstoð við
hjálparstarfið.
□
Aðal-
kort
UM 2.400 manns fórust og 6.000
slösuðust í miklum landskjálfta,
sem reið yfir austurhluta írans á
laugardag. Um 200 þorp eyðilögð-
ust í skjálftanum, sem mældist 7,1
stig á Richters-kvarða, og írönsk
stjórnvöld óskuðu eftir alþjóðlegri
aðstoð við hjálparstarfið. 50.000
manns misstu heimili sín í
skjálftanum og eignatjónið er áætl-
að sem svarar 5,4 milljörðum
króna.
Akbar Hashemi Rafsanjani, for-
seti írans, var í heimsókn í ná-
grannaríkinu Turkmenístan og
flýtti heimför sinni í gær til að fara
á skjálftasvæðin við landamærin
aðAfganistan.
íbúar þorpanna, þar sem eyði-
leggingin var mest, grétu þegar
þeir leituðu að verðmætum í rústum
húsa sinna. Stjórnin í Teheran
kvaðst ætla að greiða öllum íbúun-
um, sem misstu ættingja í skjálftan-
um, jafnvirði 12.000 króna.
Um 150 eftirskjálftar greindust
á skjálftamælum í austurhlutanum
og skjálfti, sem mældist 4,8 stig á
Richter, reið yfir norðvesturhluta
landsins í gær, en ekkert manntjón
varð. Um 1.000 manns fórust í jarð-
skjálfta þar í febrúar.
Skortur á hjálpargögnum
Gert var ráð fyrir að björgunar-
starfínu lyki í gær og Andres Fris-
mark, fulltrúi Þróunarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna í íran, sagði
að björgunarsveitirnar hefðu haft
nægan mannafla. „Þær hafa staðið
sig mjög vel, frábærlega, en vanda-
málið núna er að skortur er á birgð-
um. Mikil þörf er á tafarlausri að-
stoð.“
Alþjóðasamband félaga Rauða
krossins og Rauða hálfmánans ósk-
aði eftir 8,2 milljóna dala, jafnvirði
580 milljóna króna, aðstoð við írani
vegna jarðskjálftans. írönsk stjórn-
völd báðu einnig um alþjóðlega að-
stoð á sunnudag.
Stjórnvöld í Saudi-Arabíu, Kú-
veit, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum og Egyptalandi sögðust
hafa sent flugvélar með hjálpar-
gögn til írans. Frakkar sögðust
hafa sent 30 manna björgunar-
sveit og leitarhunda á skjálfta-
svæðið og flugvél með 39 tonn af
hjálpargögnum. Tyrkir sögðust
ætla að senda tvær flugvélar með
hjálpargögn og Bandaríkjastjórn
bauðst einnig til að aðstoða Irani
vegna skjálftans.
Um 4.300 manna hjálparsveitir
hafa reist 9.000 tjöld á skjálfta-
svæðunum og Iranir hafa óskað
eftir matvælum, lyfjum, tjöldum,
fatnaði, vatnstönkum og bílum til
að dreifa hjálpargögnum í fjallahér-
uðum sem urðu illa úti í skjálftan-
um.
Barnaþrælkun í verksmiðjum sem framleiða íþróttavarning
Sljórnvöld þrýsta á um úrbætur
London. Reuter.
BRESK stjómvöld lýstu í gær yfir
stuðningi við skýrslu, þar sem
skorað er á íþróttavöruframleið-
endur að hætta barnaþrælkun við
framleiðslu á vamingnum, svo og
að hækka laun starfsmanna og
bæta kjör þeirra. í skýrslunni, sem
hjálparstofnanir ensku og írsku
kirkjunnar gerðu, er athyglinni
einkum beint að Indlandi.
Clare Short, þróunarmálaráð-
herra í bresku stjórninni, bar lof á
skýrslu hjálparstofnananna, sagði
hana hræðilega lýsingu á ástand-
inu og að hún væri sammála tillög-
Villí
fangelsi
með kisu
Caltanisetta. Reuter.
36 ÁRA ítali, Mario Milano,
sem er grunaður um aðild að
mafíunni, hefur boðist til að
gefa sig fram við lögregluna
og afplána átta ára fangelsis-
dóm gegn því skilyrði að kött-
urinn hans, Minu, fái að vera
hjá honum í fangelsinu.
Milano hefur verið í felum
í Kanada í þijú ár og lög-
fræðingur hans sagði að lög-
regluyfírvöld á Sikiley hefðu
þegar hafið viðræður um
þetta skilyrði sakbornings-
ins.
um skýrsluhöfunda um að bæta
ástandið í verksmiðjum sem fram-
leiða íþróttavarning. Þá sagði hún
stjórnvöld vilja stuðla að bættu
siðferði hjá breskum fyrirtækjum,
sem kaupa vaming af verksmiðjum
í löndum þriðja heimsins.
í skýrslunni segir að indversk
börn allt niður í sjö ára gömul sitji
og saumi fótbolta, box- og krikket-
hanska, sem fluttir em til Bret-
lands. Allt að 30.000 böm vinna í
þessum verksmiðjum fyrir sultar-
laun og við erfiðar og oft og tíðum
hættulegar aðstæður. „Bresk fyrir-
ÍSLENSKIR umboðsaðilar, sem
flytja inn fótbolta undir þeim
vörumerkjum, sem nefnd eru í
skýrslu samtakanna Kristni-
hjálpar sem segja allt niður í sjö
ára gömul börn vera notuð til
þess að handsauma boltana,
hafa enn ekki brugðist sérstak-
lega við þeim fregnum.
Valdimar Magnússon hjá
Heildversluninni Hoffelli, sem
flytur inn bolta frá Mitre, segir
það ekki nýtt að börn á Indlandi
og í Pakistan vinni við að sauma
bolta. Hann kveðst viss um að
ekki sé einungis um að ræða
þessi tilteknu þrjú vörumerki.
Hins vegar séu það þau sem nú
tæki hafa einstakt vald til að
þrýsta á um umbætur. Samanlagt
standa þau að um þriðjungi út-
flutnings íþróttavamings sem
framleiddur er á Indlandi," segir í
skýrslunni.
Dæmi er tekið af ellefu ára gam-
alli stúlku, Soniu, sem saumar
Manchester United-fótbolta, og
fær um 7 ísl. kr. fyrir hvern, en
það eru um 2,5% af söluandvirði
boltans.
Eru fyrirtæki á borð við Mitra,
Adidas og Umbro nefnd til sögunn-
ar en þau eru sögð hafa nægilegt
eru til umræðu og við því verði
að bregðast. Hann segir Hoffell
ekki flytja inn hina umtöluðu
handsaumuðu bolta. „Aftur á
móti erum við með handsaum-
aða bolta frá Pakistan og það
getur svo sem vel verið að eitt-
hvað svipað sé uppi á teningnum
þar.“ Hann hefur sent söluskrif-
stofu Mitre í Bretlandi fyrir-
spurn um málið og kveðst ætla
að bíða með að bregðast við þar
til hann hefur fengið svar þaðan.
Sportmenn hf. flylja inn vörur
frá Adidas. Sölustjórinn þar,
Sonja Reynisdóttir, kveðst aldr-
ei hafa heyrt á það minnst að
Adidas léti indversk börn sauma
fjármagn og vald til þess að fá
framleiðendur á Indlandi til að
bæta aðstæður í verksmiðjum sín-
um. Leggja skýrsluhöfundar
áherslu á að ekki verði gripið til
aðgerða á borð við að hunsa varn-
ing sem framleiddur er í áður-
nefndum verksmiðjum, þar sem
slíkt mundi koma illa niður á því
fólki sem aðgerðimar eiga að
hjálpa. Þess í stað vilja þeir að
gerður verði samningur, svipaður
þeim sem tókst með pakistönskum
yfirvöldum, íþróttavöruframleið-
endum og hjálparstofnunum.
bolta. Hún segir mikið af Adid-
asboltunum framleitt í Frakk-
landi, en hún kvaðst einnig vita
til þess að ódýrir boltar væru
framleiddir í Pakistan.
Verslunin Ástund í Austurveri
flytur inn bolta frá Umbro. Guð-
mundur Arnarsson hjá Ástund
telur það hvorki vera vandamál
seljenda né framleiðenda að
boltarnir séu saumaðir af börn-
um, heldur fyrst og fremst neyt-
endanna sem vilja kaupa ódýra
vöru. „Þetta hefur verið vitað í
tugi ára en nú er bara verið að
nafngreina einhveija sérstak-
lega og taka þá fyrir og það er
mjög ósanngjarnt," segir hann.
Skílja ekkí
eðli ljóss
London. The Daily Telegraph.
ÞRÁTT fyrir gríðarlegar
framfarir á sviði vísinda, hafa
vísindamenn viðurkennt að
þrátt fyrir miklar rannsóknir
á eðli ljóss, séu þeir litlu nær
um það. Á ráðstefnunni „Ljós-
eind ’97“ sem haldin er í Hol-
landi í vikunni, munu breskir
vísindamenn viðurkenna að
þeir skilji ekki til fulls eðli ljó-
seindarinnar, sem er jafn-
framt algengasta eind al-
heimsins.
Vísindamennirnir, sem
starfa við University College
í London segja ljóseind hegða
sér „vel“ þegar hún streymi
t.d. úr ljósaperu. Þegar gríðar-
leg orka hafí myndast, svo
sem þegar alheimurinn mynd-
aðist, breytist eðli hennar og
verði illútskýranlegt. Þvl nán-
ar sem menn skoði ljóseindina,
því flóknari virðist hún.
Það var Albert Einstein sem
setti fram þá kenningu um
ljós árið 1905 að það væri
bylgjuhreyfíng. Vísindamenn
hafa nú komist að því að þeg-
ar óvenjumikil orka myndast,
breytist ljóseindin um stund-
arsakir, og virðist ein flækja
öreinda og andeinda. Þegar
betur er að gáð virðist ljós-
eindin minna á kvarka og
andkvarka, sem eru grunn-
eindir alls, sem haldið er sam-
an af límeindum, sem taldar
eru halda kvörkum saman.
Hefur vísindamönnum ekki
tekist að útskýra breytinguna
sem verður á ljóseindinni með
neinu þekktu stærðfræðimód-
eli.
Engin viðbrögð hjá
íslenskum umboðsaðilum