Morgunblaðið - 13.05.1997, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Kasparov þoldí ekki álagið
Reuter
GARRY Kasparov, heimsmeistari í skák, sést hér á sjónvarpsskjá hy\ja andlit sitt á meðan á sjöttu
og síðustu skákinni í einvígi hans við tölvuna „Dimmbláa“ stóð.
Vangaveltur um
hvort „Dimmblá“
sé gædd greind
New York. Reuter.
GARRY Kasparov, heimsmeistara í
skák, þraut einbeitingin er hann tap-
aði sjöttu og síðustu skákinni í ein-
vígi við ofurtölvuna Dimmbláa á
sunnudaginn. Þessi atburður þykir
sögulegur, þar sem þetta er í fyrsta
sinn, sem vél sigrar sitjandi heims-
meistara í sígildu skákeinvígi. Kasp-
arov var undir miklu andlegu álagi
allt frá því hann í annarri skák ein-
vígisins gafst upp í jafnteflisstöðu.
í sjöttu skákinni á sunnudaginn
gafst Kasparov upp eftir aðeins 19
leiki, sem leiknir voru á innan við
einni klukkustund.
í viðtalsþætti sem sendur var út
á Stöð 2 árið 1988, þegar Kasparov
var nýlega orðinn heimsmeistari og
var staddur hér á landi í tilefni stórs
alþjóðlegs skákmöts, lét hann í við-
tali við Friðrik Ólafsson stórmeistara
þau orð falla, að tölva gæti aldrei
unnið heimsmeistarann. Á sunnu-
daginn sannaðist, að honum skjátl-
aðist.
„Einn maður, hugsanlega sá bezti
í heimi, lét undan þrýstingnum, en
það hefur ekkert með það að gera
að tölvan sé ósigrandi," sagði Kasp-
arov fréttamönnum eftir viðureign-
ina. „Ég á bágt með að útskýra
hvað henti í dag,“ sagði hann.
Heimsmeistarinn baðst afsökunar
á frammistöðu sinni; sagðist
„skammast sín“, en hélt fast við þá
skoðun sína, að einvígið væri ósann-
gjamt í grundvallaratriðum vegna
þess að hann hefði ekki haft aðgang
að neinum skákum sem tölvan hefði
teflt fyrir einvígið.
Aðstandendur tölvunnar, sem
starfa fyrir IBM-tölvufyrirtækið,
fengu 700.000 Bandaríkjadali, tæp-
ar 50 milljónir króna, í sinn hlut
fyrir sigurinn. Kasparov fékk
400.000 dali, rúmar 28 milljónir
króna.
Dimmblá er endurbætt útgáfa
tölvunnar sem tapaði fyrir Kasparov
í sambærilegu einvígi í febrúar í
fyrra. Henni tókst að reyna meira á
andleg takmörk heimsmeistarans en
nokkrum mennskum keppinauti
hans hefur tekizt á undanförnum
árum. 1 skákunum sex, sem tefldar
voru á níu dögum, vann tölvan tvær
skákir, gerði jafntefli í þremur og
tapaði einni. Þannig vann tölvan ein-
vígið með 3,5 vinningum gegn 2,5.
Kasparov lýsti því yfir að einvíg-
inu loknu að hann myndi aðeins tefla
við vélina aftur ef óhlutdrægur aðili
stæði að mótinu. IBM fjármagnaði
hið nýlokna einvígi. Féð sem tölvan
vann mun renna aftur til rannsókna
innan fyrirtækisins.
Hefði átt að halda sig
við eigin skákstíl
Margir skákskýrendur, sem fylgd-
ust með viðureign Kasparovs við
tölvuna, sem getur reiknað út u.þ.b.
200.000 milljónir leikja á sekúndu,
telja að hann hefði átt að vinna síð-
ustu skákina, sem hann tapaði í 19
leikjum. Sú skoðun var algeng með-
al sérfræðinga, að Kasparov hefði
átt að halda sig við þann hvassa,
djarfa taflmennskustíl, sem hann er
vanur að beita og er þekktur fyrir
í stað hins hæga, varfæma stíls sem
hann reyndi að tileinka sér í tilraun
til að leika á tölvuna.
„Ástæðan fyrir því að Garry tap-
aði var að hann var ekki samkvæm-
ur sjálfum sér, ekki trúr sínum innra
manni og orðstír," sagði bandaríski
stórmeistarinn Ron Henley „Hann
sló sjálfan sig út af laginu með því
að reyna þessa „andtölvu-leiktækni"
og var ekki fær um að tefla af fuil-
um styrkleika."
Friðrik Ólafsson stórmeistari tek-
ur undir þetta sjónarmið Henleys.
„Ég er sammála því að þetta sé
mikið því að kenna að hann var
ekki trúr sínum skákstfl, sínum
hæfileikum og því sem prýðir hann
sem skákmann. (...) Það er á hreinu
að hann tefldi langt undir getu,“
segir Friðrik Ólafsson.
Kasparov sjálfur tók í sama streng
eftir að hann rauk frá skákborðinu
í geðshræringu. „Stærstu mistökin
sem ég gerði var að fara að ráðum
tölvusérfræðinga sem mæltu með
því að ég tefldi á þennan hátt.“
Vangaveltur um
gervigreind
Tap Kasparovs hefur hrundið af
stað vangaveltum um hvort tekizt
hafi að skapa gervigreind með tölv-
unni „Dimmblárri“. Kasparov og vís-
indamennimir, sem smíðuðu og for-
rituðu tölvuna, eru ekki á einu máli
um hvort hún sé ekkert annað en
afkastamikil reiknivél eða hvort hún
sé búin nýrri gerð greindar.
Skák er kjörið verkefni fyrir tölv-
ur þar sem hún er leikur sem bygg-
ir á þvi að ákveðinn flöldi taflmanna
eru hreyfðir eftir skýrt skilgreindum
reglum.
„Þetta er mikilvægt skref en þetta
eru ekki slík tímamót að það muni
hafa áhrif á daglegt líf almenn-
ings,“ sagði Jonathan Schaeffer,
sem fer fyrir teymi vísindamannanna
að baki „Dimmblárrar". „Dimmblá
gefur ekki tilefni til þess að ætla
að tæknin sé komin á það stig sem
höfundar vísindaskáldsagna lýsa, á
borð við HAL í kvikmyndinni „2001“
- sá tími er langt undan.“
Aðrir sérfræðingar, sem fylgdust
með einvigi mannshugans og vélar,
sögðu að þótt sigur tölvunnar breyti
ekki heiminum, gæti hann breytt
skákíþróttinni. „Vera kann að við
lærðum nýjar leikaðferðir í tafl-
mennsku af fullkomnum reiknivélum
eins og Dimmblárri," sagði Monty
Newbom, talsmaður félagsskapar
tölvusérfræðinga, sem áttu þátt í
undirbúningi einvígisins. „Tölvan
sýndi í nokkrum leikjum í þessum
skákum að hún getur fundið upp á
að tefla á vegu sem engri mann-
eskju myndi detta í hug.“
Vísindasamfélagið hefur þó enn
ekki getað komið sér saman um
hvemig skilgreina beri greind. Kasp-
arov telst til þeirra herbúða, sem
telja niðurstöðuna skipta mestu.
„Það er hægt að efna til tilraun-
ar, þar sem ég lít á stöðuna og tek
ákvörðun sem byggir á sköpunar-
gáfu, innsæi, ímyndunarafli og smá-
skammti af útreikningi," sagði
Kasparov. „Vélin lítur á stöðuna og
tekur ákvörðun, sem er sú sama, en
byggð eingöngu á útreikningum. Ef
þetta er endurtekið aftur og aftur
komumst við að sömu niðurstöðu.
Þetta er eins konar greind því út-
koman er sú sama,“ sagði heims-
meistarinn, sem lét í minni pokann
í viðureign sinni við Dimmbláa, að
eigin sögn vegna þess að hann reyndi
að skáka henni með því að tefla á
annan hátt en hann var vanur. Hann
sór þess eið að hann myndi aldrei
aftur tefla öðruvlsi en honum væri
sjálfum eiginlegt.
Sjö manna
saknað á
Everest
Wellington. Reuter.
SJÖ manna er saknað eftir að þeir
gerðu tilraun til að klífa Everest-
tind að norðanverðu en veður er
þar með versta móti miðað við árs-
tíma. Nokkrum úr hópnum tókst
að komast á tindinn, en íjallgöngu-
mennirnir hafa ekki lifað niðurferð-
ina af. Fréttir af atburðinum eru
óljósar, en svo virðist sem mennirn-
ir hafí lagt á tindinn 8. maí. íslend-
ingarnir hyggjast klífa tindinn að
sunnanverðu og bíða þess að vind-
inn efst á fjallinu lægi.
Þeir sem eru taldir af eru þrír
fjallgöngumenn frá Kazakhstan,
einn frá Kóreu, einn Þjóðveiji og
einn sherpi. Lentu fjallgöngumenn-
irnir, sem lögðu á norðurhlið Ever-
est-tinds, í fárviðri 200 metrum
fyrir neðan tindinn, að því er haft
var eftir Guy Cotter, sem er í nýsjá-
lenskum leiðangri sem bíður eftir
því að komast upp sunnan megin.
Nýsjálendinga
saknað
Cotter hafði náð sambandi við
nýsjálenska leiðangurinn sem fór
upp norðanmegin, og fluttu þeir
þær fréttir að leiðangursmenn frá
Kazakhstan hefðu farist, eftir að
nokkrir þeirra hefðu komist á topp-
inn. í frétt Jyllands-Posten í gær
sagði að manna væri einnig saknað
úr nýsjálenska leiðangrinum, en það
hefur ekki fengist staðfest. Sagði
1 þeirri frétt að tólf fjallgöngu-
manna væri saknað.
Staðfest hefur verið að sherpinn
hrapaði í norðurhlíðum Everest og
lík eins Kazakhanna sást skammt
fyrir ofan efstu búðimar norðan-
megin.
Óvíst um
Austurríkismann
Þá lagði Austurríkismaður einn
síns liðs á tindinn 8. maí, án súr-
efniskúta, um kl. 15. Það er talið
mjög seint, ekki síst vegna þess
að menn komast enn hægar áfram
án aukasúrefnis, auk þess sem
hann hefði vart komist niður í efstu
búðir fyrir nóttina. Er talið útilokað
að hann hafi lifað af svo langa
dvöl í hvassviðrinu á tindinum að
því er segir á heimasíðu Nova-leið-
angursins.
Flestir þeir sem hyggjast ganga
á Everest bíða sunnanmegin eftir
að vindinn lægi og þoku, sem lagð-
ist yfír um helgina, létti. Fyrir réttu
ári fómst átta fjallgöngumenn úr
þremur leiðöngrum í fárviðri á tindi
Everest.
Styrkjaútgerð
danskra bænda
fordæmd
Kaupmannahöfn. Morgunblaöið.
DÖNSKU landbúnaðarsamtökin eru
ósátt við að Henrik Dam Christensen
landbúnaðarráðherra hyggst beita
sér gegn því að snilldarbragð nokk-
urra jóskra bænda skili þeim millj-
ónastyrk frá Evrópusambandinu.
Sjónarmið samtakanna er að ekki
sé verið að gera neitt ólöglegt, held-
ur geri bændurnir bara eins og aðr-
ir starfsbræður þeirra í ESB.
30 bændur frá Vestur-Jótlandi
hafa tekið Salthólmann á leigu til
að auka við beitiland sitt. Hólminn
er þó ekki í nágrenni við þá, heldur
úti á Eyrarsundi fyrir utan höfuð-
borgina. Hólminn er í eyði, en var
í byggð fram á þessa öld og þá
iðulega áfangastaður ferðalanga
frá höfuðborginni. Jónas Hallgríms-
son var til dæmis í Salthólmsferð
1836 „hjá fagurri kvinnu í gulu
húsi“, reykti tvær tóbakspípur og
EVRÓPA
drakk „sosem hálfan pela af
frönsku brennivíni" eins og hann
skrifaði félögum sínum í skemmti-
pistli. Jósku bændumir hafa þó
hvorki í hyggju að drekka þar
franskt brennivín né reka búfénað
sinn á beit, heldur leigja þeir hólm-
ann eingöngu til að auka beitiland
sitt á styrkumsóknareyðublöðum til
ESB. Samkvæmt reglunum ætti
hólminn að geta fært þeim nokkra
tugi íslenskra milljóna í beitilands-
styrk.
Reuter
Jákvæðari tónn í Brown
GORDON Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands (t.v.) ræðir við
Rodrigo Rato, efnahagsmála-
ráðherra Spánar, fyrir fund
efnahags- og fjármálaráð-
herra ríkja Evrópusambands-
ins í Brussel í gær. Þetta er
fyrsti ráðherrafundur ESB,
sem Brown sækir. Fyrir
fundinn ræddi Brown við Yves
Thibault de Silguy, sem fer
með peningamál í fram-
kvæmdastjórn ESB. Á fundi
þeirra greindi hann frá því að
hin nýja ríkisstjóm Verka-
mannaflokksins hygðist nálgast
málefni Efnahags- og mynt-
bandalags Evrópu (EMU)
„með uppbyggilegum hætti“.
Brown og de Silguy ræddu
einnig um þá ákvörðun að
veita brezka seðlabankanum
meira sjálfstæði, en litið er á
slíkt sem skref í átt til EMU-
aðildar. De Silguy lét í Ijósi
ánægju með fundinn.
Verðbólga á
niðurleið í ESB
Brussel. Morgunblaðiö.
VERÐBÓLGA í aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins (ESB) mældist. á
ársgrundvelli 1,7% að meðaltali í
marsmánuði síðastliðnum og lækkaði
hún um 0,3% frá því í febrúar, að
því er fram kemur í nýrri skýrslu
Eurostat. Níu aðildarríki af 15 eru
undir þessu meðaltali en suðlægustu
aðildarríkin öll yfir því auk Bretlands.
Verðbólga virðist vera á niðurleið
í vel flestum aðildarríkjum ESB. í
Grikklandi mældist hún 5,9% í mars
en á sama tíma fyrir ári 8,6%. Sömu
sögu er að segja af Spáni og Ítalíu
en verðbólga í því fyrmefnda er nú
1,1% lægri en fyrir ári, eða 2,2% og
verðbólga á Ítalíu hefur fallið úr 4,7%
í 2,2% á undanfömum 12 mánuðum.
Verðbólga var sem fyrr lægst í
Finnlandi í mars, 0,8% og í ríkjum
Norður-Evrópu mældist hún vera á
bilinu 1,0-1,5%. Verðbólga í Bret-
landi var rétt yfír meðaltalinu innan
ESB í mars, eða 1,8%.
Verðbólga var að sama skapi 1,7%
að rneðaltali á EES-svæðinu í mars.
Á íslandi mældist hún 1,7% á árs-
grundvelli, en 3,4% í Noregi.