Morgunblaðið - 13.05.1997, Síða 37

Morgunblaðið - 13.05.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ1997 37 u ungmenna væntanlega lögfest í vor nbandsins um vinnu ungmenna er meginreglan sú að vinna barna á skólaskyldualdri er bönnuð með undantekningum og vinnu unglinga upp að 18 ára aldri eru sett ýmis takmörk. Reglur ESB um vinnu bama BÖRN (15 ára og yngri) má ekki ráða til vinnu nema í und- antekningartilvikum. Heimilt er að ráða börn til að taka þátt í menningar- eða listviðburðum og íþrótta- eða auglýsingastarfsemi. Hafi þau ekki náð 13 ára aldri skal afla leyfis Vinnueftirlitsins áður en til ráðningar kemur. Heimilt er að ráða börn 14 ára og eldri í vinnu sem er hluti af fræðilegu eða verklegu námsfyrirkomulagi og í sam- ræmi við reglur sem ráðherra setur. Heimilt er að ráða börn 14 ára og eldri til starfa af léttara tagi. Einnig má ráða 13 ára börn til starfa af léttara tagi í takmarkaðan stundafjölda á viku, s.s. garðyrkju- eða þjón- ustustörf. Takmörk á vinnu unglinga Unglinga (að 18 ára aldri) má ráða í vinnu með ákveðnum skilyrðum. Óheimilt er að ráða ung- menni í vinnu sem er talin of- vaxin líkamlegu eða andlegu atgervi þeirra. Óheimilt er að ráða ung- menni í vinnu sem getur valdið varanlegu heilsuljóni. Óheimilt er að ráða ung- menni í vinnu þar sem hætta er á skaðlegri geislun. Óheimilt er að ráða ung- menni í vinnu þar sem slysa- hætta er fyrir hendi. Óheimilt er að ráð ungmenni í vinnu sem getur stofnað heilsu þeirra í hættu vegna mikils kulda, hita, hávaða eða titrings. Heimilt er að víkja frá þess- um skilyrðum ef nauðsyn ber til vegna starfsnáms unglinga. Næturvinna óheimil Börn mega vinna 8 klst. á dag eða 40 virkar vinnustundir (að frádregnum kaffitimum) í viku ef vinna er hluti af fræði- legu eða verklegu námsfyrir- komulagi. Börn mega vinna 2 klst. á skóladegi og 12 klst. á viku á starfstíma skóla eða utan skóla- tíma. Samanlagður vinnutími (í skóla og utan skóla) má þó ekki vera lengri en 7 klst. Þó má daglegur vinnutími 15 ára og eldri vera 8 klst. Börn mega vinna 7 klst. á dag eða 35 klst. á viku þegar skólar starfa ekki. 15 ára börn mega þá vinna 8 klst. á dag og 40 klst. á viku. Virkur vinnutími unglinga er takmarkaður við 8 klst. á dag og 40 klst á viku. Heimilt er að víkja frá þessu í undan- tekningartilvikum skv. ákveðn- um reglum sem settar verða. Óheimilt er að láta börn vinna frá kl. 20 til kl. 6. Óheimilt er að láta unglinga vinna frá kl. 22 til kl. 6. Heim- ilt er að víkja frá þessu hvað unglinga varðar við ákveðin skilyrði, en þó er með öllu bann- að að vinna fari fram frá kl. 24-04. Börn skulu fá minnst 14 klst. samfellda hvfld á sólarhring og unglingar 12 klst. Á hveiju sjö daga tímabili skulu börn og unglingar fá minnst tveggja daga hvíldartima. er lagt í hendur Vinnueftirlitsins að hafa faglega skoðun á þessum þátt- um á grundvelli þeirra markmiða sem þessari tilskipun er ætlað að upp- fylla,“ segir Halldór. Reglunar ljalla einnig um vinnu unglinga og er gert ráð fyrir að þeir geti verið þátttakendur á vinnumark- aði frá 16 ára aldri svo framarlega sem um er að ræða hættulítil störf, sem geta ekki valdið heilsutjóni. Gert er ráð fyrir að Vinnueftirlitið setji reglur um þetta en Halldór bendir t.d. á að vafasamt sé að unglingum verði heimilt að vinna í frystiklefum í frystihúsum eftir að reglumar taka gildi. Meiri vinna barna í sj ávarbyggðum Atvinnuþátttaka bama og unglinga hefur minnkað mjög mikið á undan- fömum ámm. Nefnd sú sem samdi frumvarpið kannaði gögn um þátttöku bama og unglinga í atvinnulífínu, m.a. kannanir Guðbjargar Vilhjálms- dóttur sem gerð var haustið 1995, kannanir Vinnueftirlitsins svo og upp- lýsingar úr skattframtölum. I ljós kom að nær öll böm á aldrinum 13-15 ára eða 96% höfðu eitthvert starf með höndum sumarið 1995 og alls höfðu 34% haft eitthvert launað starf með höndum að vetrinum á einhveiju tíma- bili á ámnum 1994 og 1995. Böm í sjávarbyggðum vinna áberandi meira bæði að sumri og vetri en böm á höfuðborgarsvæðinu. Vinnudagurinn er lengri að sumrinu og einnig vinna þau fleiri vikur á sumrin. Þá hafa böm á landsbyggðinni fleiri störf með höndum, bæði að sumri og vetri. Áberandi var vinna bama úti á landi við fiskvinnslu. Vinnueftirlitið hafí samband við nokkur verkalýðs- félög á átta stöðum í janúar á sein- asta ári til að fá mat þeirra á vinnu- framlagi 13-15 ára bama. í ljós kom m.a. að böm fá almennt ekki vinnu í fiski fyrr en þau em orðin 14 ára gömul. „Algengast er að böm geti fengið fulla vinnu á sumrin frá 14 ára aldri. Pull vinna getur haft í för með sér talsverða yfirvinnu, á kvöldin og á laugardögum. Sums staðar er algengt að unnið sé frá kl. 8 til 22. Annars staðar tíðkast að byijað sé að vinna enn fyrr að morgni kl. 5 til 6 svo hægt sé að hætta fyrr að kvöldi. Almennt virðist mega draga þá ályktun að á þeim stöðum þar sem afli hefur verið góður er bömum frá 14 ára aldri boðin sumarvinna, jafn- vel 12-14 stundir á dag ef þau em talin geta „staðið undir“ svo mikilli vinnu. Það er mat verkalýðsfélag- anna að börnin sæki í mikla vinnu á sumrin og að þau þrýsti sjálf mjög á að fá ekki eingöngu fulla dagvinnu heldur einnig yfirvinnu," segir í skýrslu nefndarinnar til ráðherra. „Aðalatriðið er að þarna em settar reglur sem eiga að tryggja hagsmuni barna og unglinga og að framtíð þeirra og möguleikum til náms verði ekki spillt með því að ofbjóða þeim við vinnu. Á þessum forsendum verða menn að meta hvernig eðlilegt sé að staðið verði að framkvæmd regln- anna,“ segir Halldór. Aldursmörk flugmanna hækkuð? Flugmenn verða í flestum löndum að hætta störf- um sextugir en hafa t.d. hérlendis möguleika á að starfa til 63 ára aldurs. Jóhannes Tómasson kynnti sér að flugmálayfírvöld eru víða reiðubúin að hækka þennan aldur í 65 ár og kemur það brátt til framkvæmda í Evrópu. VERIÐ er að skoða hjá sam- gönguráðuneyti hvenær koma skuli til fram- kvæmda hérlendis reglu- gerðarbreyting sem heimilar flug- mönnum að starfa lengur. I dag er þeim heimilt að fljúga til sextugs en flest lönd í Evrópu hafa þegar heimilað flugmönnum að fljúga til 65 ára aldurs. Aðildarlönd Flugöryggissamtaka Evrópu, JAA, hafa samþykkt að flugmönnum verði heimilt að fljúga til 65 ára aldurs. Hafa öll ríkin heim- ilað það nema Frakkland, Spánn og Portúgal auk íslands. Hafa einstök lönd gengið lengra og heimilað 67 ára aldur sé ákveðnum skilyrðum fullnægt. Aðildarlönd JAA verða að hafa hrundið breytingunni í 65 ára aldur- inn í framkvæmd eigi síðar en 1. júlí 1999. Þá má aðeins annar flug- maður í tveggja manna áhöfn vera eldri en sextugur og flugmenn verða að sæta læknisskoðun á fjögurra mánaða fresti eftir sextugt í stað sex mánaða fram að þeim aldri. Reglur Alþjóða flugmálastofnunar- innar, ICAO, leyfa flugmönnum að starfa til sextugs og er sú regla til dæmis viðhöfð í Bandaríkjunum. Halldór Blöndal samgönguráð- herra hefur nú til skoðunar hvort þessi regla yrði tekin upp hérlendis áður en kemur að lokafrestinum. íslenskum flugmönnum hefur með sérstökum undanþágum verið heim- ilað að fljúga til 63 ára. íslenskir flugrekendur hafa gefið umsögn sína um þessa breytingu og eru flestir meðmæltir henni. Fé- lag íslenskra atvinnuflugmanna hef- ur gefið jákvæða umsögn og sömu- leiðis eru Flugráð og flugmálastjóri fylgjandi því að hækka aldurinn. Forráðamenn Flugleiða telja að breytingin eigi ekki að koma til framkvæmda fyrr en á tilsettum tíma, þ.e. 1. júlí 1999, nema því aðeins að alþjóðlegu reglunni fáist einnig breytt. Skýrir forstjóri Flug- leiða þessa afstöðu í bréfí til sam- gönguráðuneytisins. Segir hann að meðan mismunandi reglur um hámarksaldur gildi í Evr- ópu og Bandaríkjunum geri það fé- laginu erfítt fyrir um nýtingu á elstu flugmönnum félagsins sem yfirleitt fljúga á B-757 þotunum sem notað- ar eru í Bandaríkjafluginu. Meðan þeim sé ekki heimilt að fljúga til Bandaríkjanna eftir að hafa náð 60 ára aldri verði annað hvort að nýta þá eingöngu á Evrópuleiðunum sem þýði verri nýtingu eða þjálfa þá til starfa á B-737 þotunum sem einkum eru notaðar í Evrópufluginu. Sam- kvæmt samningum við FÍA er ekki hægt að þvinga flugstjóra á B-757 þotu til að færa sig á 737 og því kemur upp áðurgreindur vandi vegna minni nýtingar þeirra. Þrír flugstjórar sem orðið hafa sextugir síðustu misserin samþykktu að færa sig á 737 þotur en nokkrir hafa einn- ig neitað. Forstjóri Flugleiða leggur til í bréfinu til samgönguráðherra að aðildarlönd JAA beiti sér fyrir hækkun á aldurshámarki ICAO í 65 ár því verði það samþykkt geti Bandaríkjamenn ekki vikist undan að heimila það einnig. Jafnframt segir hann eðlilegt að ísland nýti . sér að fullu aðlögunartímann til 1. júlí 1999 nái framangreind breyting hjá ICAO ekki fram að ganga innan þess tíma. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri segir að fulltrúa Norðurlandanna hjá ICAO hafi verið falið að ýta á að aldursregla JAA verði tekin upp þar. Ljóst sé að þetta sé ekki for- gangsverkefni þar þrátt fyrir að forráðamenn ICAO hafí lýst því yfír að málið yrði skoðað þegar aðildar- lönd JAA tækju upp þessa reglu. Þá sagði flugmálastjóri ekki sjálf- gefíð að Bandaríkjamenn myndu taka upp 65 ára regluna, þeir gætu eftir sem áður óskað eftir fráviki og talið sig vinna í þágu öryggis með því að halda sig áfram við 60 ára regluna. Þá hefur Félag íslenskra atvinnu- flugmanna stungið upp á því við forráðamenn Flugleiða, þó að það tengist ekki þessu máli beint, að gerðir verði starfslokasamningar við flugmenn sem náð hafa 60 ár aldri. Með því sparist félaginu launakostn- aður þegar flugstjórar á hæstu laun- um hætta og yngri menn komi inn ' í staðinn. Arngrímur Jóhannsson, eigandiH Atlanta, segist mæla með breyting- unni, það gefi honum m.a. þann möguleika að ráða til sín reynda flugmenn, t.d. frá Flugleiðum eftir að þeir eru hættir störfum, haldi Flugleiðir sig við núgildandi reglu um 63 ára hámark. Mörgum flug- mönnum þætti slæmt að hætta í< fullu fjöri og væru reiðubúnir að starfa lengur. Gunnar Þorvaldsson, stjómarfor- maður Islandsflugs, sagðist hafa gefið jákvæða umsögn enda hefði verið ljóst á liðnum vetri að þetta gæti leyst að nokkru leyti úr þeim skorti á flugmönnum sem fyrirsjá- anlegur yar m.a. með tilkomu Flug-- félags íslands. Gunnar sagði að svona breyting hefði í sjálfu sér litla þýðingu hjá íslandsflugi, einn maður væri að vísu að nálgast aldurstak- markið en rúmur áratugur væri í að næstu menn kæmust á þann ald- ur. Sigurður Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Norður- lands, kvaðst einnig meðmæltur hækkun á starfsaldri flugmanna. Breytingin hefði þó ekki mikil áhrif hjá FN á næstu árum. Sagði hann mikilvægt að sem flest lönd hefðu sömu reglur í þessum málum, slæmt væri ef Bandaríkjamenn héldu fast við 60 ára regluna meðan mörg Evrópuríki leyfðu 65 árin. Málið hefur verið til skoðunar íí samgönguráðuneytinu og kvaðst Halldór Kristjánsson skrifstofu- stjóri telja að það yrði afgreitt bráð- lega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.