Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 47

Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ1997 47 MINNINGAR GUÐMUNDUR JÓHANNESSON + Guðmundur Jó- hannesson, fæddist 13. júní 1908. Hann lést 5. maí síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Óiínu Sig- tryggsdóttur, fædd 7.5. 1867, og Jó- hannesar Ólafsson- ar, fæddur 26.7. 1867 á Þverá Núpsdal í Miðfirði. Bróðir: Sigtryggur Jóhannesson, fædd- ur, 7.2. 1906, dáinn 10.6. 1948, kvæntur Guðrúnu Pétursdóttur, fædd 14.3. 1914, dáin 16.11. 1989. Eiginkona Guðmundar er Ólöf Aðalheiður Pétursdóttir, fædd 28.2. 1919. Börn þeirra: 1) Pétur, fæddur, 31.3. 1938, maki Sonja Nikulásdóttir og eiga þau tvær dætur. 2) Jóhanna, fædd 9.12.1939, maki Sigurður Ingólfsson, þau eiga tvo syni. 3) Þórdís, fædd 2.11. 1945, maki Sverrir Ernir Siguijónsson og eiga þau fjögur börn, en þau slitu samvistir. 4) Inga, fædd 11.9.1947, maki Magnús Kristinsson, þau eiga tvær dætur. 5) Guðlaugur, fæddur 4.3.1951, maki Kolbrún Gísladóttir og eiga þau tvær dætur. Utför Guðmundar fór fram frá Askirkju 12. maí. Mánudagskvöldið 5. maí fengum við þær fregnir að afi væri dáinn. Þó við vissum í rauninni að hveiju stefndi, varð okkur óneitanlega brugðið, því þó heilsu hans hafi hrak- að í gegnum árin, virtist hann eiga sterkt hjarta sem sló alltaf réttan takt og var ekki á því að gefast upp. Síðustu dagar hafa vakið upp minningar frá því við vorum litlar og áttum stundir hjá afa og ömmu á Njálsgötu. Þar var oft skemmtileg- ast að vera og alltaf eitthvað gott að fá. Við munum sérstaklega eftir gönguferðunum sem við áttum með afa þar sem við gengum hönd í hönd og ræddum við hann um það sem okkur lá á hjarta, eða leyfðum þögn- inni að ráða og virtum fyrir okkur það sem fyrir augu bar. Þar sem sælkeraþörfin gerði oft vart við sig heima hjá afa og ömmu, læddumst við oft inn í herbergi til afa til að athuga hvort við mættum ekki kíkja í náttborðsskúffuna hans, því þar átti hann alltaf bijóstsykur eða súkkulaði sem við höfðum mik- inn hug á að komast yfir. Vonbrigð- in urðu stundum mikil er við komum að afa þar sem hann lá sofandi með bókina sína á bijóstinu og virtist ekki vera til viðtals þá stundina. Þá stálumst við nú samt til að kíkja í skúffuna hans til að athuga hvort þar væri nú ekki örugglega eitthvað gott sem við gætum fengið þegar afí vaknaði. Þótt samverustundunum með afa hafí fækkað eftir því sem við elt- umst varð hann alltaf jafn ánægður að sjá okkur og við fundum greini- lega að við skipuðum sérstakan sess í hjarta hans. Elsku afí, við vitum að í dag líður þér vel, stundirnar sem við áttum saman munu ætíð lifa í minningum okkar um þig. Eva og Hrafnhildur. H H H H H H H H H H Erfidrykkjur H H H H H H H H H H Sími 562 0200 ^ rxiiiiniixxi Krossar d (tiði Ryðjrítt stáí - varaníegt efhi Krossomir erujramkidííir úr fivítíiúðuðu, ryðfríu stáfi. Minnisvarði sem endist um ókomna tíð. Sóikross (tóknar áííft ííf) Hceð 100 smfrájörðu. Hejðbundinn kross m/munstruðum enúurn. Hceð 100 sm jra jörðu. Hringiö í síma 431-1075 og fáið litabækling. BLIKKVERKf Dalbraut 2, 300 Akranesi. Simi 431 -1075, fax 431 -3076 + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BJÖRN GESTSSON fyrrum bóndi Björgum Hörgárdal, Víðilundi 20, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureýrarkirkju föstu- daginn 16. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á dvalarheimilið Hlíð Akureyri. Sigríður Magnúsdóttir, Magnús Björnsson, Fanney Þórðardóttir, Gestur Björnsson, Ingibjörg Kjartansdóttir, Sigrún Lára Björnsdóttir, Jón Aðalsteinsson, Kristín Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BENEDIKT RAGNAR BENEDIKTSSON fyrrverandi bifreiðastjóri, Safamýri 48, lést á hjartadeild Landspítalans 10. maí. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju föstu- daginn 16. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Brynhildur Skeggjadóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Gísli Einarsson, Lilja Benediktsdóttir, Sigurður Vilbergsson, Benedikt E. Benediktsson, Þórný Alda Kristjánsdóttir og barnabörn. + Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, JÓHANN MAGNÚS GUNNARSSON glerslípari og speglagerðarmaður, Stífluseli 8, lést á Landspítalanum föstudaginn 9. maí sl. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Bárðardóttir, Símon Gunnarsson, Eygló Andrésdóttir, Jóna Gunnarsdóttir, Jón Friðriksson, Matthias Gunnarsson, Katrín Eiríksdóttir, Dagný Gunnarsdóttir, Halldór Guðbergsson, Kristín Gunný Jónsdóttir, Gunnar Magnús Halldórsson. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir, amma og systir, ELÍN EDDA GUÐMUNDSDÓTTIR læknafulltrúi, Akraseli 4, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 10. maí. Þorsteinn Þorsteinsson, Guðmundur Þorsteinsson, Anný Hermansen, Bergljót Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Bergmann, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Elín Guðmundsdóttir, barnabörn og systkini. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNDÍS STEFÁNSDÓTTIR, Laugateigi 4, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur sunnudaginn 11. maí. Útförin verður auglýst síðar. Fríða Sigurðardóttir, Richard Ásgrímsson, Guðlaug Björgvinsdóttir, Stefán Ásgrímsson, Hulda Halldórsdóttir, Benedikt G. Ásgrímsson, Sólrún Höskuldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR, frá Strandseljum, lést á Landspítalanum sunnudaginn 11. maí. Arnór Hannibalsson, Ólafur Hannibalsson, Elín Hannibalsdóttir, Guðríður Hannibalsdóttir, Jón Baldvin Hannibalsson. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMAR STEFÁNSSON, fyrrv. sérleyfishafi, Ásvegi 11, sem lést 9. maí, verður jarðsunginn frá Ás- kirkju fimmtudaginn 15. maí kl. 15.00. Þórunn Sigurðardóttir, Helga Guðmarsdóttir, Sigfús Sumarliðason, Sigurður Guðmarsson, Árdís Guðmarsdóttir, Einar Jónasson, börn og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, RÓSA GUÐNADÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, er látin. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðbjörn Guðmundsson, Guðný Guðbjörnsdóttir, Gísli Pálsson, Guðmundur Guðbjörnsson, Guðveig Sigurðardóttir, Björn Herbert Guðbjörnsson, Ingunn Ósk Ingvarsdóttir, Róbert Þór Guðbjörnsson, Guðbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað í dag frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar JÓNU SJAFNAR ÆGISDÓTTUR Bílasalan Hraun, Kaplahrauni 2-4, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.