Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 48
t48 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MINIUINGAR MORGUNBLAÐIÐ HERDÍS FRIÐRIKSDÓTTIR + Herdís Friðriks- dóttir fæddist á Grímsstöðum í Þistilfirði 13. maí 1913. Hún lést á Hrafnistu, Hafnar- firði, hinn 5. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Friðrik Einarsson, bóndi, fæddur 11. okt. 1862, dáinn 13. febr. 1939, og seinni ' konan hans Guðrún Vigfúsdóttir, fædd 19. sept. 1888, dáin 2. apr. 1974. Með fyrri konu átti Friðrik fjögur börn. Alsystkini Herdísar voru Járnbrá, f. 21. sept. 1907, d. 11. des. 1991, Einar, f. 27. feb. 1909, d. 3. apr. 1965, Skúli, f. 31. des. 1920, d. 9. feb. 1981, Ásta, f. 8. nóv. 1923 (býr í Dan- mörku). Herdís giftist Guðmundi Pét- urssyni, vélstjóra, 7. nóv. 1942, f. 29. nóv. 1912 í Flatey á Breiðafirði. Foreldrar hans voru Sveinn Pétursson, f. 30. sept. 1890, d. 19. okt. 1973, og Elskuieg tengdamóðir mín, Her- dís Friðriksdóttir, er látin. Hún hefur nú fengið hvíldina eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Mig langar í nokkrum línum að minnast hennar og þakka fyrir þá samfylgd sem við áttum um þtjá- tíu ára skeið. Herdís var fædd á Grímstöðum í Þistilfírði 13. maí 1913 og hefði því orðið 84 ára í dag. „Það skín ^ alltaf sól á afmælisdeginum mín- um,“ sagði hún á hveiju vori. Við hin áttum oft erfitt með að trúa því, en engan afmælisdag man ég þó, að ekki sæist til sólar einhvern hluta dagsins. Það vildi svo til að ég kynntist þeim Herdísi og Guðmundi þó nokkru áður en ég hitti Friðrik son TÖMAHMUÍ AMJÁ U(T1 TOMJUA jióm m(> MimUMIiT • (JlTt llpplýsingar í s: 551 1247 Ástríður Jónsdótt- ir, f. 19. júní 1887, d. 10. okt. 1962. Börn Guðmundar og Herdísar eru: 1) Alda, f. 30. ág. 1944, gift Hartvig Ingólfssyni, börn þeirra: a) Guð- mundur Skúii, son- ur hans og sambýl- isk. hans, Sóleyjar Ragnarsdóttur, er Ragnar Leví, b) Minna, c) Ingólfur, sambýlisk. Karítas Krisljánsdóttir. 2) Friðrik Rúnar, f. 16. júlí 1947, kvæntur Hólmfríði Árnadóttur, börn þeirra: a) Frosti, dóttir hans og fyrrverandi eiginkonu, Guðrúnar Karlsdóttur, er Hólmfríður, b) Herdís, c) Frið- rik Snær. 3) Hildur, f. 3. sept. 1951, gift Dýra Guðmundssyni, börn þeirra: Orri Páll, Guðný Vala og Vilborg Ása. 4) Pétur, f. 15. sept. 1952. Útför Herdísar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. þeirra fyrst, sem ég giftist síðan. Það var austur á Bakka í Bakka- firði sumarið 1965 þar sem for- eldrar mínir leigðu sumarlangt, vegna atvinnu sinnar, hús Guðrún- ar móður Herdísar. Gamla konan var þá á förum suður eftir nær 40 ára búsetu þar. Það voru þung spor fyrir aldraða konu. Þau Guð- mundur og Herdís voru þar hjá henni að ganga frá búinu með henni. Það var lærdómsríkt fyrir mig, unglinginn, að fylgjast með hve þolinmóð og góð þau voru við gömlu konuna sem var að yfirgefa lífsstarf sitt og heimahaga til að flytjast suður tii barnanna sinna til að eyða þar ævikvöldinu. Mér er minnisstætt hve rögg- söm og dugleg Herdís var að ganga frá öllu með móður sinni. Mér er líka sérlega minnisstætt þetta fallega þykka hár sem hún hafði og hve hún hló mikið þessum dillandi hlátri sem engan enda ætlaði að taka. Þetta einkenndi hana í mínum huga alla tíð. Hárið hennar fallega, sem hún sjálf sagði svo oft að væri það eina faliega við sig, gerði hana í senn sköru- lega og eftirtektarverða, hláturinn hennar sem gat verið svo hjartan- legur út af sáralitlu tilefni og smitaði alia og ekki síst allur dugn- aður hennar. Henni féil sjaldan verk úr hendi. í mínum huga var tengdamóðir Gl/esileg KAFFIHLAÐBORÐ FALLEGIR SÁLIR 925 EL LÖFTLEiÐIK ANDAIir' MOT É í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 mín samnefnari þeirra íslensku kvenna, sem með vinnu sinni, út- sjónarsemi, hagsýni og nýtni hafa haldið lífinu í þessari þjóð. Þetta var ekki konan sem lét á sér bera í þjóðmálaumræðum eða í verka- lýðsbaráttunni, slíkt hefði aldrei hvarflað að henni. Þetta var konan sem vann heima, en heimti engin laun fyrir. Hún saumaði allt sem sauma þurfti bæði fyrir fjölskyld- una og ættingja, hvort sem um var að ræða barnsflíkur, frakka eða svefnpoka, enda útlærð saumakona úr Gefjun þar sem hún vann mörg ár eftir að hún kom suður, áður en hún giftist Guð- mundi. Hún var einstaklega nýtin með mat, alltaf var fullt hús mat- ar hvort sem um var að ræða klein- urnar hennar, slátrið eða græn- metið sem hún ræktaði. Oft hefur þurft að setja mikið í pottana, því ósjaldan voru næturgestir um lengri eða skemmri tíma, ættingjar sem erinda þurftu í bænumf Hún gerði það sem gera þurfti á heim- ili þar sem heimilisfaðirinn var til sjós mörg fyrstu hjúskaparárin þeirra. Það var ekki siður á henn- ar heimili að stökkva út í búð og kaupa það sem vantaði, það var einfaidlega útbúið, enda var hún alla tíð sérlega úrræðagóð kona. Hún sinnti uppeldi barna sinna, ræktaði frændfólk sitt og vini og var akkeri heimilisins. Hún pijónaði lopapeysur og seldi til margra ára til að drýgja tekjur heimilisins. Þetta aftraði henni þó ekki frá því að sinna hugðarefnum sínum sem líka voru bundin athafnasemi hennar. Má þar margt til nefna, alls kyns fönd- ur, útsaum, leirgerð og ekki má gleyma bókbandinu sem hún stundaði í mörg ár. Margar ómet- anlegar bækur bundnar í skinn- band eigum við eftir hana. Herdís var hispurslaus í fram- komu við fólk og lá ekki á skoðun- um sínum. Hún var stjórnsöm og ákveðin kona. Aldrei ráðskaðist hún þó með líf annarra. Mér þótti ætíð aðdáunarvert í gegnum árin hve hún virti val barna sinna, tengdabarna og barnabarna hvort sem um var að ræða menntun, starf eða annað. Hún treysti ein- faldlega og trúði á sitt fólk og stóð þétt við bak þess þegar á þurfti að halda. Hún var óendan- lega þakklát fyrir börnin sín og seinna tengdabörnin og barna- börnin. Oft undraðist hún hve for- sjónin hafði verið henni gjöful að eiga alla þessa afkomendur. „Ertu ekki hissa, Guðmundur, að allt þetta myndarfólk skuli vera komið út af okkur?“ spurði hún gjarnan þegar fjölskyldan kom saman. Það var ekki vanþakklætinu fyrir að fara hjá henni tengdamóður minni. Sumir hafa lag á að vera alltaf veitendur í lífi sínu en aldrei þiggj- endur. Herdís tengdamóðir mín var veitandi. Alltaf var hún til taks ef á þurfti að halda. Hvort sem var til að sitja yfir veiku barni, sauma flík, veita húsaskjól eða rétta fram peninga þegar á þurfti að halda. Ekki man ég til þess að hafa þurft að biðja um neitt, hjálp- in var komin og boðin áður en þurfti að biðja. Það er ekki lítils virði fyrir börn að eiga góða ömmu og afa, þess hafa börnin okkar og reyndar öll barnabörnin svo sann- arlega notið. Aldrei bað hún bónar fyrir sig svo ég muni. Hún ætlað- ist aldrei til endurgjalds af neinu tagi. Hún stóð svo sannarlega ekki ein þar sem hún átti einstakan og góðan mann, sem studdi hana í öllu, sem hún veitti öðrum. Hún var gæfusöm kona að eiga Guð- mund sér við hlið í blíðu og stríðu. Ég er þakklát henni tengdamóð- ur minni og þeim báðum fyrir allt sem þau voru mér, syni sínum og börnunum okkar þremur. Maður stendur ríkari eftir slíka samfylgd gegnum lífið. Ekki er hægt að skiljast svo við minningabrotin að ekki komi upp í hugann af hve miklu æðruleysi og jafnaðargeði hún tók því er heilsunni tók að hraka. Hún var þakklát fyrir það líf sem hún hafði átt og krafðist ekki lengri heilsu. Engan þekki ég sem af jafn mik- illi ást og umhyggju annaðist konu sína í veikindum hennar og hann tengdaföður minn. Hann á þakk- læti og aðdáun okkar allra, barna, tengdabarna og barnabarna, fyrir. Hann sér nú á bak sínum lífsföru- naut til rúmra 50 ára. Ég vil biðja góðan guð að styrkja hann og blessa á þessum erfiðu tímamót- um. Hólmfríður Árnadóttir. Elsku amma mín. Mikið vildi ég að ég hefði getað spjallað aðeins við þig áður en þú fórst. Þú hefur verið að hverfa smám saman úr þessum heimi. Líkaminn vildi ekki sleppa takinu við þetta Iíf og hann afa sem hef- ur setið við hlið þér nánast hvíldar- laust í þijú ár. Þú sagðir mér oft frá því að þú hafir ferðast alla leið á hesti frá Bakkafirði til Reykjavíkur sem ung stúlka. Þú fórst í vist eins og títt var í þá tíð og kynntist afa. Ég er skírð í höfuðið á þér. Við erum alnöfnur. Ég held að þú haf- ir verið svolítið ánægð með það og spurðir mig margoft hvort ég væri ekki ánægð með nafnið mitt. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef alltaf verið mjög hrifin af þessu nafni. Það hefði nú glatt þig mikið að heyra að ég verð að vinna í Hall- ormsstaðarskógi í sumar. Þar vannst þú sem ung stúlka og plant- aðir lerkinu sem nú stendur í Gutt- ormslundi stórt og stæðilegt sem vitni um bjartsýni fólks þess tíma. Það var þá hægt að fá upp skóg eftir allt! Núna síðustu ár hefur dofnað yfir þér og í hveiju jóla- og sumarfríi hef eg séð hvernig þú kannast minna og minna við mig. Það hefur líklega verið erfitt fyrir þig að liggja og muna ekki, reyna en geta ekki. Ég kom í heim- sókn og spurði spurninga eins og: „Hvernig hefur þú það?“, „hvað er að frétta?“ Hvernig gastu svar- að þeim spurningum þegar þú ligg- ur dag eftir dag, ár eftir ár í sama rúminu og manst minna og minna? Þegar ég kom til þín í jólafríinu lástu eins og lítill ungi í rúminu og þekktir mig ekki. Þá langaði mig mest til að skríða uppí rúm til þín og halda utanum þig því það var ekkert meira hægt að segja. Þarna varstu en það var of seint að spyija þig um gamla daga og hvernig það var að vera ung stúlka í Hallormsstaðarskógi. Ég er mikið fegin að vita að þú ert loksins laus úr líkamanum sem var svo gamall og þreyttur. Núna ertu fijáls. Ég vona að þú heim- sækir mig í skóginn í sumar. Elsku afi. Sorg þín og missir er stór, en mundu að amma er ennþá hjá þér. Hún yfirgefur þig ekki. Amma mín, það tekur mig sárt að geta ekki fylgt þér síðasta spöl- inn, en ég veit að þú ert hjá mér og að við munum hittast aftur. Þín alnafna, Herdís Friðriksdóttir. FALLEGIROG LISTRÆNIR LEGSTEINAR ^JsíensÁíiönnun h len.sn nonnun 15% AFSLÁTTUR ÁGRANÍTSTEINUM AFGREIÐSLAN OPIN KL. 13-18. SÓLSTEINAR Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin Kópavogi. Sími: 564 3555 „En af hveiju?“ sagði 8 ára dótturdóttir Herdísar þegar henni var sagt af andláti ömmu sinnar. „En af hveiju?" endurtók hún. Já, það er stundum erfitt að sætta sig við og skilja almættið þegar ást- vinir kveðja. Minningar streyma fram. Allir kaffisoparnir í eldhússkróknum í Grænuhlíð 16. Bros Herdísar sem alltaf var stutt í, svolítið feimnis- legt, dillandi hláturinn og hið já- kvæða viðmót hennar við öllum bónum s.s. á vettvangi barnapöss- unar. „Við leysum það,“ með áherslu á fyrsta og síðasta orði, var hennar viðkvæði. Ævi Herdísar Friðriksdóttur, sem við erum nú að kveðja, nær nánast yfir alla tuttugustu öldina. Hún hóf ævina í heiðarbýli á norð- austurhorni landsins í upphafi ald- ar, en endaði hana í öryggi öldrun- arheimilis nútímans á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún tilheyrir því þeirri kynslóð sem gengið hefur í gegnum mestu breytingar sem nokkur kynslóð hefur upplifað. Samt var eins og Herdís væri allt- af ósnert af öllum breytingum og hraða. Hún var alltaf eins, lét hraða nútímans sem vind um eyru þjóta og hafði nægan tíma fyrir allt og alla. Herdís var frekar hávaxin, fyrir konur af hennar kynslóð, með mikinn svip, sem lifir í afkomend- um hennar. Hún var alltaf vel til fara og klæddist gjarnan fötum sem hún saumaði sjálf. Hún hafði það gjarnan á orði að hún væri sveitakona í sér og var þannig trú sínum uppruna, en ef til vill var hún meiri höfuðstaðarfrú þegar grannt er skoðað. Guðmundur Pétursson sér á eft- ir lífsförunaut sínum til 55 ára. Slíkt hlýtur að vera erfitt. „Það er vor í lofti, en stormur þó.“ Það segir sig sjálft að á svo löngu tíma- skeiði hafa einstaklingar haft tíma til að sníða helstu agnúana af hjónabandinu og það höfðu þau svo sannarlega gert. Samhentara hjónaband og meira traust og virð- ingu er vart hægt að hugsa sér. Nú að leiðarlokum viljum við þakka þér, Herdís, fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur, og allt sem þú varst okkur. Það var mikið. Starfsfólki Hrafnistu þökkum við fyrir mjög góða umönnun. Þau urðu vinir hennar og verður ekki fullþakkað hvað þau gerðu fyrir hana. Blessuð sé minning Herdísar Friðriksdóttur frá Þistilfirði. Dýri og Hartvig. Er hún langamma núna engill? spurði fjögurra ára sonur minn er honum var sagt frá andláti langömmu sinnar. Þetta er falleg hugsun barns og slíkar hugsanir sækja á mig þegar ég lít til baka, til þeirra ófáu stunda er ég átti með ömmu minni og afa, í Grænu- hlíð. Ég var mikið hjá ömmu minni og afa sem barn. Ámma mín var þá vön að segja mér sögur af álfum og huldufólki og raula fyrir mig vísur og þulur fyrir háttatímann. Ömmu fannst gaman að segja frá því síðar að þegar hún taldi mig sofnaðan, og hætti raulinu, hafi ég vaknað upp og sagt, raulaðu meira, amma mín. Þetta hafi henni fundist svo fallega sagt þar sem hún taldi sig vita laglausa. Ég á einstaklega ljúfar minningar um hana ömmu mína og hafði af því mikla ánægju að heimsækja hana og afa minn, sérstaklega á mínum háskólaárum. Við sátum þá löng- um stundum á trékollum við eld- húsborðið í Grænuhlíð með kaffi- bolla og kleinur og ræddum um lífið og tilveruna. Elsku amma, þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Elsku afi, ég bið góðan Guð að vaka yfir þér og styrkja þig í sorg þinni. Varðveittu minninguna um góða og fallega konu í hjarta þínu. Guðmundur Skúli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.