Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 49

Morgunblaðið - 13.05.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 49 ' " + Elín Guðmunds- dóttir, seinast til heimilis í Asparfelli 12, Reykjavík, var fædd hinn 15. júlí 1908 á Hvoli í Mýr- dal, en fór tæpra tveggja ára með for- eldrum sínum að Stóra-Hofi á Rang- árvöllum og ólst þar upp. Hún andaðist 1. maí síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Eir. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Þorbjam- arson, bóndi og félagsmála- frömuður, f. 19.7. 1863 í Gísl- holti á Skeiðum, d. 18.1. 1949, og kona hans Ragnhildur Jóns- dóttir, f. 11.8. 1875 á Hvoli í Mýrdal, d. 18.12. 1953. Systkini Elínar eru öll látin. Þau voru: Ingibjörg, f. 1896, d. 1906, Jón, f. 1899, d. 1964, endurskoð- andi, oft kenndur við Nýjabæ á Elín Guðmundsdóttir, eða Ella frænka eins og hún var jafnan kölluð, var af sunnlenskum bænda- ættum. Föðurafi hennar og amma voru Þorbjörn Einarsson frá Álf- hólahjáleigu og Ingibjörg Þorkels- dóttir frá Ljótarstöðum. Sá bær er kenndur við landnámskonuna Ljót en það mun hafa þýtt björt eða ljóshærð til forna. Og svip- bjartar voru þær systur, Elín og Helga, en sú síðarnefnda hafði feikna mikið og Ijóst hár. Ekki skal þó fullyrt að þær hafi verið beinir afkomendur. Talað var um sérstakt Ljótarstaðagöngulag, vaggandi að sjómannasið, og þótt- ist Elín stundum sjá það hjá afkom- endunum, en hvort það var frá landnámsöld er heldur ekki vitað. Móðuramma og afi Elínar voru Gróa Árnadóttir á Hvoli í Mýrdal, og Jón Einarsson frá Efri-Ey í Meðallandi. Hann var náskyldur málurunum Jóhannesi Kjarval og Karli Dunganon. Ekki mun hann þó hafa málað, en þótti orðheppinn og skemmtilegur. Bemskuheimili Ellu var fjöl- mennt og annríki mikið. Afi minn, Guðmundur, var kappsamur um framkvæmdir og driffjöður í sveit- armálum, hvort sem málið snerist um að stofna búnaðar- eða bindind- isfélög, eða samtök um ijómabú og fiskirækt eða kaupfélag, þar sem hann var oftar en ekki formað- ur. Hann var af þessum sökum mikið að heiman svo umfangsmikil bústjórnin hvíldi að dijúgum hluta á herðum Ragnhildar ömmu minnar. Hún var umhyggjusöm við börn sem dvöldu lengur eða skem- ur á heimilinu, og aldraða eða ómaga eins og þá var kallað og skipt niður á bæi af sveitarfélag- inu. Kringum 1920 var óvænt gesta- koma í sveitinni. Það átti að kvik- mynda atriði úr Sögu Borgarættar- innar eftir Gunnar Gunnarsson í kirkjunni á Keldum. Árni Óla, þekktur blaðamaður á sinni tíð, fór á bæina að safna saman kirkju- gestum. Þannig komst Ella á hvíta tjaldið og vann sér inn fyrsta fimm- kallinn á ævinni. Einu eða tveimur árum síðar fermdist hún, og fór það sumar í fyrsta sinn til Reykja- víkur. Þá var margra daga ferð þangað á hestum. Enda fannst Ellu skrýtið þegar fólkið var farið að fljúga á 14 klukkustundum til Japan. Henni þótti ferðaflakk til útlanda nokkuð mikið og læddi út úr sér: „Það vinna ekki allir kaup- laust.“ Sjálf fór hún aldrei út fyrir landsteinana, nema bara í hugan- um eins og hún sagði, en hún hafði mikið yndi af að ferðast innan- lands. Áttræð var hún þegar hún átti þess kost að fara með öldruð- um til Mallorca, en hana langaði meira á Sprengisand og án þess að láta nokkum vita brá hún sér í háfjallaferð þangað norður yfir Seltjamarnesi, Björn, f. 1902, d. 1903, Hákon, f. 1904, d. 1980, hæstaréttarritari og síðar yfirborg- ardómari, Ágúst, f. 1906, d. 1981, raf- virki og bóndi á Stóra-Hofi, og Helga, f. 1909, d. 1978, forstöðukona Elliheimilisins í Hveragerði, en flutti síðar til Am- eríku. Elín var tvígift. Fyrri maður hennar var Björn Maríus Hansson, skipstjóri, f. 1898, d. 1966. Seinni maður hennar var Guðmundur Ágúst Jónsson, prentari í Reykjavík, f. 1904, d. 1978. Eiín Guðmundsdóttir verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. með áætlunarbíl og suður aftur um Kjöl. Þegar ég var barn og kom aust- ur að Stóra-Hofi þar sem mér fannst vera sól alla daga kom Helga föðursystir ævinlega þjót- andi á móti mér með útbreiddan faðminn, ljómandi af gleði. Elín var þá flutt að heiman en löngu seinna upplifði ég sömu fagnandi hlýjuna hjá henni. Og falleg voru handa- verkin hennar. Einfalt atriði eins og að hengja þvott á snúrur gat orðið svo listrænt að húsin í kring sýndust fríkka. Inni hjá henni var afar „dúllulegt" eins og ungu stelp- urnar segja. Fyrsta sem ég man var vafningsviður nældur upp um heilan stofuvegg, seinna útsaum- aðir stólar, blúndudúkar, postulíns- bollar og annað sem sannri hefð- ardömu hæfði. Líklega hefur það verið veturinn 1929 sem hún dvaldi austur í Vík í Mýrdal, var á sau- manámskeiði hjá Sigurlaugu Páls- dóttur frá Hlíð, móður Guðrúnar Ásmundsdóttur leikkonu, og kynnti sér heimilisrekstur hjá presti og sýslumanni. Yfir þessum vetri var bjart í minningu hennar, og síðan fór hún um skeið út í Vestmannaeyjar og lærði þar og/eða vann við saumaskap. Kringum 1950 opnaði hún litla matvöruverslun á Laugateig (rétt við Reykjaveg) ásamt Bimi fyrri manni sínum. Hún kallaði það „pakkabúðina“ sína því hún var með kex og kaffi, sykur og gijón en ekki nýjan mat. Seinna flutti hún sig vestur á Holtsgötu og verslaði þar fram á miðjan áttunda áratuginn. Ég hef hitt marga sem minnast þess hvað hún var glaðleg við viðskiptavinina, ekki síst margra barna mæður og börn þeirra, og var víst ekkert hrædd að skrifa hjá þeim. Hún eignaðist aldrei börn sjálf en tók miklu ást- fóstri við systurson sinn, Hauk Ingvaldsson, sem ólst upp á Stóra- Hofi. Sár var harmurinn, þegar hann féll frá innan við fertugt, en tengslin urðu sterk við dætur hans, Helgu og Þuríði, og síðan börn þeirra. Ella frænka mín hafði alveg sér- stakt málfar. Hún var of tigin í andanum til að gera lítið úr öðrum. Það var ekki bara fólk sem fékk að njóta þess. Líka vatnsföllin á Rangárvöllum. „Finnst þér fjarska ljótt af mér að segja að mér hefur alltaf þótt Ytri-Rangá fallegri en Eystri-Rangá? “ sagði hún eitt sinn. Hún ólst upp á bakka þeirrar eystri og hefur kannske talið sjálfa sig vanþakkláta. Og þegar fólk bölvaði því að nú væri rétt ein lægðin á leiðinni sagði Ella á sinn góðlátlega hátt: „Já, það er líklegt að þær gleymi sér ekki alveg.“ Stundum er sagt að Skaftfell- ingar (og máske Landeyjamenn líka) séu svo kurteisir að þeir segi helst hvorki já né nei, finnist það of afdráttarlaust. Einhvern tíma var ég að hneykslast á sjóðasukki eða bruðli með almannafé við Ellu og fékk þetta viturlega svar: „Já, þeir eru fljótir að eyða því sem þeir eiga ekki sjálfir." Ef hún vissi ekki eitthvað afsakaði hún sig með því að þær væru svo litlar, bæjar- dyrnar sínar. Dapurleg skeið úr ævi sinni vildi hún ekki rifja upp, sagði að þau væri best að leggja að hurðarbaki. Langt fram á níræðisaldur bjó hún ein, og var ótrúlega dugleg að bjarga sér sjálf, þótt sjónin sem aldrei hafði verið góð færi versn- andi. Hún þreyttist ekki á að dá- sama aðbúnað aldraðra nú á dög- um því hún mundi vel fátæktina á Rangárvöllum, örsnauða sveitar- limi og börn sem alltaf höfðu hor í nös. Sagði mér frá hjónunum sem hættu að setja salt út á grautinn sinn til að geta tekið munaðarlaust barn í fóstur. Ekki held ég hún hafi verið neitt hrædd við að deyja. Hún var alin upp við húslestra - og Nýalisma - og fannst gott að fara í kirkju, Dómkirkjuna, Breið- holtskirkjurnar og loks til sr. Auð- ar Eir í Kvennakirkjuna. Þó sagð- ist hún ekki hugsa sér Guð kyn- bundinn, heldur sem eina kröftuga heild. „Annars veit ég ekki hvort það skiptir svo miklu máli hveiju fólk trúir“ sagði hún einhvern tíma, „bara ef það er góðar manneskjur.“ Hún var svo lánsöm að geta dvalið á Hjúkrunarheimilinu Eir síðasta æviár sitt. Dótturdóttir mín á tíunda ári kom með mér í heim- sókn þangað í vetur, rétt áður en heilsu hennar hrakaði alvarlega. Elín ljómaði af gleði og sama var að segja um gestinn. Þær sátu lengi og héldust í hendur, augu beggja full af lotningu eins og þær skynjuðu eitthvað æðra þeirri jarð- nesku tilveru, sem önnur var að hefja en hin að kveðja. Eins og helgimynd geymist atvikið i huga mínum. Mig langar að þakka Birnu Sva- varsdóttur, hjúkrunarforstjóra á Eir, Sigurbirni lækni og öllu þeirra elskulega starfsliði, sem og aðilum í heimahjálp og heilbrigðisþjónustu sem komu við sögu meðan hún enn var heima, fyrir mikla og góða umönnun. Fyrir hönd okkar systra, Hildar og Hjördísar, barna okkar og barnabama, vil ég þakka henni sjálfri samfylgd og órofa umhyggju. Inga Huld Hákonardóttir. Sól rís, sól sest. Stundirnar með Ellu frænku voru sannkallaðar sólskinsstundir, bjart- ar, hlýjar og gefandi. Það var gott að koma til hennar í búðina á Lau- gateig. Sérstaklega sumarið sem ég var í minni fyrstu vist sem hún hafði útvegað mér. Eða líta til henn- ar og fá eitthvert góðgæti á leið úr sundlaugunum. Ánægjulegar stundir á Holtsgöt- unni. Við systur að leika okkur með dúkkudótið frá ömmu í Ameríku sem var geymt hjá Ellu. Minnisstæð ferðalög með henni og Guðmundi. Sérstaklega ferðin í Landmanna- laugar með þeim hjónum, einnig pabba og ömmu. Þegar ég var orðin kaupmaður og Haukur og Gunnhildur fædd var það Ella frænka, rúmlega sjötug, sem kom í vist til mín. Hún varð þeim langamma, sem og Elínar og Braga Þórs. Hver og einn var sér- stakur hjá Ellu og sköpuðust oft skemmtilegir siðir, eins og hjá Hauki. í mörg ár fór hann á Þor- láksmessu og gisti hjá Ellu frænku til að hvíla sig vel fyrir jólin. Þetta, meðal annars, hafði hún gaman af að minnast á þegar við nutum frið- sælla stunda í Asparfellinu, þar sem við sátum og rifjuðum upp liðna daga. Hún var svo minnug og ætt- fróð og sagði skemmtilegar sögur, hvort sem það var af Skaftfelling- um, heimilisfólki á Hofi eða frá ein- hveijum úr fjölskyldunni. Þakklæti er okkur systrum ofarlega í huga á þessari kveðjustund. Nú er sólin sest um sinn, en bara það að segja nafnið Ella frænka fær sólina til að skína. Helga Hauksdóttir. ELIN GUÐMUNDSDÓTTIR t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐBJARTUR FINNBJÖRNSSON loftskeytamaður, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, áðurtil heimilis á Hrannargötu 1, ísafirði, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann 10. maí sl. Þórdís S. Friðriksdóttir, Hafþór Einar Guðbjartsson, Helgi Þór Guðbjartsson, Berglind Ólafsdóttir, Rakel Adolphsdóttir. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, URSULA BUSK, lést á sjúkrahúsi í Bremen fimmtudaginn 8. maí sl. Eyjólfur Þór Busk, Henning Busk, Jens Busk, Alexander Busk. t Móðir okkar, HALLDÓRA GRÖNDAL, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi 11. maí. Inga Gröndal, . Unnur Gröndal, Helga Gröndal, Þórunn Gröndal. ■♦r t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ÁSGRfMSDÓTTIR, Öldugötu 27, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 9. maí. Sigurður Sævar Sigurðsson, Guðfinna Agnarsdóttir, Björg R. Sigurðardóttir, Þorkell Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA RAFNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 15. maf kl. 13.30. Erla Guðrún ísleifsdóttir, Högni ísleifsson, Sveina Helgadóttir, Gísli Rafn fsleifsson, Sigriður Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐLAUG VILHJÁLMSDÓTTIR (Unna) Brekkum III, Mýrdal, lést á dvalarheimilinu Hjallatúni sunnudaginn 11. maí. Halldór Jóhannesson, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.