Morgunblaðið - 13.05.1997, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 13.05.1997, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 JÓNA SJÖFN ÆGISDÓTTIR + Jóna Sjöfn Ægisdóttir fæddist í Hafnar- firði 17. júlí 1979. Hún lést af slysför- um hinn 4. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar eru Ægir Hafsteinsson og Anna Hauksdóttir. Jóna Sjöfn ólst upp í Norðurbænum í Hafnarfirði. Hún stundaði nám í Engidals- og Víði- staðaskóla og síðar í Iðnskóla Hafnar- fjarðar, þar sem hún var við hárgreiðslunám þegar hún lést. Foreldrar Önnu eru Haukur Kristjánsson, f. 2. júní 1923, d. 17. janúar 1984, og Siguijóna Sigurðardóttir, f. 8. febrúar 1919. Móðir Ægis var Kristjana Þórðardóttir, f. 8. nóvember 1918, d. 17. janúar 1985. Útför Jónu Sjafnar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ef þraut mig þjakar alla og þungir dropar falla svo veröld verði grá um dóttur bjarta og blíða sem bestu kostir prýða ég hugsa og hýma þá. (Höf. ókunnur.) Elsku, hjartans barnið mitt. Það er það skelfilegasta sem nokkra móður getur hent að missa barnið sitt. Þú varst sólargeislinn minn, þú varst það dýrmætasta sem ég átti, ég var svo stolt af þér en nú á ég ekkert eftir nema minningamar um þig, þessa einstöku dóttur mína. Mér verður hugsað til þess er ég hélt á þér sem ungbarni, þann mikla fögnuð sem þú veittir okkur foreldr- um þínum sem loksins fengu lang- þráða barnið sitt. Það var mikill erill í kringum þig, mikið af vinkon- um og þú varst barn sem alltaf hafðir svo mikið að gera. Þú varst mikill dýravinur og ég sé þig með hund og kött því þú máttir ekkert dýr sjá sem þú vildir ekki fá að eiga og nú taka þau örugglega vel á móti þér, elskan mín. Það líða um hugann minningar frá öllum þeim stundum er við áttum saman. Þú varst einstaklega vel gerð stúlka, elsku Jóna mín. Við vorum svo nánar og þú varst mér líka sú besta vinkona sem ég hef eignast, þvílík hamingja að hafa átt þig. Ég minnist þess þegar þú varst að fara út með vinum þínum eða í skólann og þú kysstir mig og sagð- ir „ég elska þig mamma“. Þú hringdir í mig jafnvel tvisvar á dag til að vita hvort ég hefði það ekki gott, hvort sem ég var heima eða í vinnunni. Þakka þér fyrir alla umhyggjuna fyrir mér, elsku bam. Ég bið góðan guð að geyma þig og umvefja þig með ást og hlýju, -.elsku hjartans gimsteinninn minn. Sé ég í sálu þér þó sértu fjarri sé þar heilan heim. Tindrar ljós við ijós angar rós við rós býr þar guðieg göfgi Góð var okkar ganga guð einn ræður hann sem hjörtun skilur. Sofðu hjartað mitt! Láfðu ástin mín! Lifðu vel og lengi! Blessi þig blómjörð blessi þig útsær blessi þig heiður himinn! Elski þig alheimur eilífð þig geymi signi þig sjálfur guð. (Jóhannes úr Kötlum.) Ástarkveðja, þín elskandi mamma. Nú hafa leiðir okkar skilið um sinn, elsku Jóna Sjöfn mín. Ég trúi því að við munum hittast aftur og það gerir mér sorgina létt- bærari. Undanfarna daga hef ég oft setið og rifjað upp allar okk- ar samverustundir og þá finnst mér ég svo rík að eiga slíkar minn- ingar með þér. Þú dvaldir talsvert hjá mér þegar þú varst yngri og við fórum saman í ferðir, bæði erlendis og hér heima. Það var oft hlegið dátt og spjallað fram á nótt. Núna fannst mér framtíðin blasa við þér. Þú varst komin í hár- greiðslunám og varst alltaf svo glöð og ánægð að það geislaði af þér. Ég fann svo vel þegar þú komst hvernig þú fylltir húsið af lífi, bros- ið þitt, hláturinn þinn og gaman- semi þín. Þetta eru allt minningar sem ég gleymi aldrei. Þú varst allt- af svo sáttfús og stundum fannst mér þú hafa þroska sem var miklu meiri en aldur þinn sagði til um. Þú hafðir alltaf svo mikla þörf fyr- ir félagsskap og vildir hafa marga í kringum þig, enda sýnir vinahóp- urinn þinn það. Elsku frænka, þau verða þung sporin sem við göngum í dag og okkur sem þykir svo vænt um þig og eigum svo erfitt með að sætta okkur við að hafa einungis minningarnar, en við vonum að sá tími komi að sársaukinn verði ekki svona mikill og minningarnar um þig ylji okkur um alla framtíð. Ég bið góðan Guð að styrkja og hjálpa mömmu þinni og pabba í þeirra miklu sorg en þú varst þeirra einkabam, svo og öllum ástvinum þínum. Á svona sorgarstundum fínnum við hvað trúin getur hjálpað okkur og nú er hún okkar haldreipi á þessum erfiðu tímum. Ég kveð þig, elsku vina mín, og þú munt ætið verða hluti af mér gegnum tíma og rúm og ég veit að þú verð- ur ein af englunum í paradís. Þín frænka, Sigríður. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. Meðan árin þreyta hjörtu hinna sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hupm vina þinna. (Tómas Guðmundsson.) Elskulega Jóna Sjöfn mín. Mig tekur það óendanlega sárt að kveðja þig hinstu kveðju, unga og fallega stúlku í blóma lífsins. Þú áttir svo stórt, ^ óskrifað blað eftir í lífsins bók. Ég hef svo margs að minnast frá okkar samverustundum. Ég man þegar ég grét gleðitárum í faðmi þínum yfir þeirri ákvörðun þinni að hefja nám í Iðnskóla Hafn- arfjarðar, þegar þú varst svo óákveðin hvert skyldi stefna, en ég lagði fast að þér að hætta ekki í skóla heldur skoða hug þinn, og þú varst fljót að finna þinn rétta farveg þegar þú valdir hárgreiðslu- námið. Ég veit að þú hefðir orðið fyrsta flokks fagmaður. Samband okkar byggðist upp á húmor sem við tvö áttum og sem ég mun sakna svo mikið og aldrei gleyma. Mig skortir orð til að lýsa sorginni sem ríkir í hjarta mínu við ótímabært fráfall þitt, sem kom eins og högg yfir heimilið okkar. Þú varst eins og sólargeisli, full af lífsgleði, geisl- andi bros og glaðvær hlátur fylgdu þér hvert sem þú fórst. Þú varst einstaklega barngóð, eftirsótt til barnapössunar og Halla dóttir mín treysti engum betur fyrir börnum en þér og saknar þín mikið. Það var eins með fullorðið fólk, þú sýnd- ir því hlýju og nærgætni og ég veit MINNINGAR að amma sem dvaldi hjá okkur dásamaði þig og þakkar þér ástúð- legt viðmót. Tvíburadætur mínar Sara og Sandra og faðir minn, minnast þín með sárum söknuði. Ég bið góðan Guð að styrkja mömmu þína og pabba og okkur öll sem syrgjum þig. Elsku stúlkan mín, Guð geymi þig- Þinn elskandi fósturpabbi, Heimir. Elsku frænka. Á þessari stundu mega orð sín lítils en minningarnar aftur á móti vega þungt. Þú varst alltaf svo kát og glöð, hjálpsöm og fórnfús. Sem litla frænka mín en stóra frænka bamanna minna upp- lifðum við margar skemmtilegar stundir saman, bæði hér á landi og í Svíþjóð. Síðasta stund sem ég átti með þér í fyrrahaust er mér minnisstæð. Þú varst að fara í bíl- próf og ég keyrði þig inn í Reykja- vík. Á leiðinni snérust samræðurnar um bílprófið. Þú varst svo kvíðin, hélst þú myndir ekki ná prófinu en ég var sannfærð um hið gagnstæða. Ég sat í bílnum og beið eftir þér þegar ég sá þig koma út um dym- ar. Þú komst gangandi svo stolt með brosið út að eyrum, og þegar þú sást mig sýndir þú mér þumalinn til merkis um að allt hefði gengið vel. Þessi og ótal aðrar minningar lifa í hjörtum okkar að eilífu. Ég kveð þig, litla fallega frænkan mín, og þakka þér fyrir allar ánægju- stundirnar sem við fengum með þér. Þín frænka, Sjöfn og fjölskylda. í dag kveðjum við elsku frænku mína, Jónu Sjöfn Ægisdóttur. Jóna Sjöfn, sem fæddist á afmælisdegi pabba síns, var einkabarn foreldra sinna og í tæp 18 ár ljósgeisli þeirra í lífínu. Mér þótti svo vænt um þessa litlu frænku mína, við áttum ýmislegt sameiginlegt, tvö einkaböm í barn- margri fjölskyldu, mæður okkar mjög nánar systur og mikill sam- gangur á milli okkar, enda átti ég það til að líta á hana sem litlu syst- ur mína. En skyndilega er allt breytt, Jóna Sjöfn er tekin frá okk- ur í hörmulegu slysi og það er erf- itt og sárt að vita að við eigum aldrei eftir að sjá hana aftur. Sökn- uðurinn eftir gullfallegu stelpunni með fallega brosið er mikill. Svo ljúf og góðhjörtuð, næm og tilfinn- ingarík og alltaf tilbúin að gefa af sjálfri sér. Hún átti auðvelt með að umgangast fólk og mynda vin- áttusambönd, er stór og góður vina- hópur til vitnis um það. En eftir standa ótal ljúfar minn- ingar um litlu stelpuna okkar. Margar sumarbústaðaferðir, Dan- merkurferðin, öll skemmtilegu að- fangadagskvöldin sem við eyddum saman og fjöldi annarra yndislegra minninga. Samt er ein minning sem er efst í huga mér, en fyrir stuttu hafði Jóna samband og bað mig um litla hjálp í sambandi við námið. Lítill greiði en það gladdi mig samt að geta aðstoðað hana á einhvern hátt. En það sem gladdi mig mest var að sjá hversu hamingjusöm hún var. Hún átti að klára grunnnámið í hárgreiðslu í vor og var að fara á samning. Lífið blasti við henni, hún var ástfangin og hafði líklega sjaldan verið eins hamingjusöm. En lífið er ekki eins og manni finnst að það ætti að vera, það sjáum við öll nú. Elsku Anna, Ægir og Heimir, ég votta ykkur mína innilegustu samúð, ég veit að harmur ykkar er mikill, en megi minningarnar um góða stúlku ylja ykkur og öllum öðrum sem eiga um sárt að binda. Siguijón Birgisson. Þann 17. júlí, fyrir rétt tæpum átján árum, kom í heiminn lítil stúlka sem síðar hlaut nafnið Jóna Sjöfn. Hún var langþráð einkabarn foreldra sinna og tilkoma hennar gjörbreytti lífi og tilveru þeirra. Það má með sanni segja að hún hafi verið sólargeislinn í lífi þeirra, geisl- andi af lífsgleði og hamingju. Fyrstu minningarnar sem við eigum um þessa litlu stúlku eru einmitt af þessum toga, glaðvær hvellandi hlátur og blítt og fallegt bros. Hnyttin tilsvör, það var arfur sem hún hlaut frá móðurömmu sinni, henni varð aldrei svarafátt hvað sem á gekk. Þegar við hefjum tilveru okkar hér á jörð er aðeins eitt sem við getum gengið út frá sem vísu. Við förum héðan fyrr eða seinna, allt háð því hvenær kallið kemur. Þegar einstaklingar sem lokið hafa sínu ævistarfi fara héðan upplifum við það sem eðlilegan hlut af lífinu, við söknum en finnum jafnframt fýrir gleði yfir því að ástvinur okkar hefur hlotið hvíld. Þannig er þessu ekki háttað þegar ungt fólk fær kallið, þá finnum við fýrir óbærileg- um sársauka sem nistir merg og bein. Við spyijum hvers vegna en fáum ekkert svar, við spyijum hver er tilgangurinn en við fáum ekki frekar svar við því. Við fæðingu var okkur öllum gefínn sá hæfileiki að geta elskað, geta glaðst og finna fyrir hamingju en jafnframt var okkur gefið það, að geta tekist á við sorgir og sársauka, hversu óbærilegur hann kann að virðast. Þegar sú stund rennur svo upp, þar sem við þurfum á öllum okkar styrk að halda, megum við ekki gleyma þessari gjöf. Hún var gefín í því augnamiði að hjálpa okkur á stund sem þessari, hjálpa okkur til að takast á ný við lífið, gleði þess og sorgir. Við sem búum hér hinum megin við hafið viljum þakka fyrir þessi ár sem við fengum að lifa með Jónu Sjöf. Við viljum þakka fyrir allar samverustundirnar og þá gleði sem þær veittu. Foreldrum hennar og öðrum ástvinum, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur með bæn, um að Guð styrki þau á þessu erfið- asta tímabili ævi þeirra. Kristján Hauksson. Sú harmafregn barst mér hingað yfir hafið sunnudaginn 4. maí, að æskuvinkona mín, hún Jóna Sjöfn, væri dáin. Mér þykir alveg hræði- legt til þess að hugsa að svo ung og falleg stelpa sé ekki lengur á meðal okkar. Spurningin „hvers vegna?“ er eflaust á vörum okkar allra, en við vitum öll að lítið er um svör. Þær eru margar minningarnar sem rifjast upp. Allt sem var brall- að við blokkina á Laufvanginum þar sem við bjuggum ásamt stórum krakkahópi. Állar ferðirnar sem við löbbuðum saman í skólann og þrátt fyrir að Jóna Sjöfn hafi sjaldan verið tilbúin, þegar komið var að því að banka upp á hjá henni, tókst okkur á einhvem hátt alltaf að koma á réttum tíma í skólann. Allt það sem við lékum okkur að, sama hvort það var dót eða eitthvað úr umhverfinu sem við tókum og gerð- um að leik. Alltaf var hægt að finna eitthvað nýtt til að leika með. Sama hvort það voru útitröppumar, strik- in á bílastæðinu eða doppótta tepp- ið í kjallaranum. Alltaf var eitthvað nýtt og spennandi að gera. En þegar við komumst á ungl- ingsár og fluttum úr blokkinni á Laufvanginum minnkaði sambandið og við vomm farnar að hittast ör- sjaldan. Nokkru áður en ég hélt utan hitti ég Jónu Sjöfn og við töluðum um það að við krakkarnir af Laufvangnum þyrftum endilega að hittast á ný. Mig óraði ekki fyr- ir að það væri í síðasta sinn sem ég ætti eftir að hitta hana. Þegar að því kemur að hópurinn kemur saman á ný verður stórt skarð í hópinn þar sem Jónu Sjöfn vantar. Við eigum öll okkar minn- ingar um Jónu Sjöfn og geymum þær við hjartastað um ókomna tíð. Elsku Anna, Ægir, ættingjar og vinir. Ég sendi ykkur mínar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur á þess- um erfiðu tímum. Mér þykir viðeig- andi á þessari stundu að vitna í orð Kahlil Gibran úr spámanninum: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú MORGUNBLAÐIÐ munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Rakel Halldórsdóttir. Elsku Jóna Sjöfn mín. Nú þegar þú ert horfin burt frá okkur öllum, veit ég eiginlega ekki hvað ég á að gera eða hvernig lífið getur haldið áfram. Vinátta okkar byijaði þegar við byijuðum í hár- greiðslu í september og strax náð- um við vel saman. Alltaf varstu brosandi og ég gat alltaf leitað til þín ef mér leið illa. Allar þær stund- ir sem við sátum, hlógum og grétum eru mér nú ofarlega í huga. Það var svo margt sem við gerðum sam- an, prakkarastnkin eru of mörg til að telja upp. Ég man alltaf eftir ferðinni sem við í hárgreiðsluhópn- um fórum saman í til Keflavíkur. Þú varst svo ánægð, allt gekk svo vel hjá þér og Geir. Þú naust lífsins svo að hamingjan skein úr andliti þínu. Ég brosi þó sérstaklega þegar ég hugsa um ferðina heim; hvað við hlógum mikið. Stuttu eftir að við hittumst fyrst, kynntirðu mig fyrir vinkonum þín- um og allar náðum við strax mjög vel saman. Elsku hjartagullið mitt. Nú þegar ég sit uppi með tómt hjarta hugsa ég til þín og allra þeirra framtíðar- áætlana sem við höfðum gert sam- an. Ég veit þú myndir segja okkar að gráta ekki, en sá missir mikið sem átt hefur mikið. Spurning eins og „af hveiju Jóna Sjöfn mín“ kem- ur oft upp í huga minn. Ég trúi því að þér líði vel og þín sé vel gætt og að þú vakir nú yfir okkur hinum og passir að allt gangi sinn vana- gang. Elsku Anna mín, Ægir, Heimir, aðrir ættingjar og vinir. Minningin um yndislega dóttur og vin mun alltaf vera í hjarta okkar því okkur má hugga þá einhver deyr, þó dauð- inn hafi hana frá okkur tekið, fær enginn hana burt úr hjarta okkar rekið. Elsku besta vinkona, hafðu það sem allra best. Þín Jóna Kristín. Elsku Jóna Sjöfn mín. Hinn 4. maí síðastliðinn fékk ég þær hörmulegu fréttir að þú værir horfin úr lífi mínu. Mig langar að minnast þín í örfáum orðum sem þó eru svo fátækleg miðað við hversu yndisleg persóna þú varst. Vinskapur okkar byggðist á miklu trausti og væntumþykju. Þú varst sú sem ég gat alltaf leitað til og treyst á. Þú varst ætíð sannur vinur og áttir mjög auðvelt með að vingast við fólk. Þú varst minn besti vinur og alltaf tilbúin að hlusta á mig þegar eitthvað var að hjá mér og gladdi það alltaf mitt hjarta að heyra í þér dag sem nótt. Einn- ig leitaðir þú alltaf til mín ef eitt- hvað var að. Þinn æðsti draumur var að verða fræg og opna förðunar- og hár- greiðslustofu handa ríka og fína fólkinu en því miður verður þessi draumur þinn ekki að veruleika. Þegar við hittumst fórst þú alltaf að tala um hversu ánægð og ást- fangin þú værir af honum Geir og alltaf minntist þú á það hversu góður hann væri við þig og hversu hamingjusöm þið væruð. Þú varst alltaf brosandi þegar ég hitti þig. Sorgin er gífurleg hjá móður sem misst hefur barn sitt og meira en það, stórkostlegan vin eins og þú og móðir þín voruð. Enginn getur lýst þeirri miklu sorg sem foreldrar þínir og aðstandendur eru í. Maður skilur ekki tilgang Guðs að taka svona unga og fallega stelpu eins og þú varst tii sín svo fljótt. Manni finnst Guð og lífið vera svo ósanngjarnt þegar svo góður vinur fellur frá. En innst inni í hjarta mínu veit ég að þér líður vel þar sem þú ert stödd núna og veit ég að þú ert og munt alltaf vera hjá mér og gæta mín. Elsku Anna, Ægir, Heimir og Geir, ég votta ykkur samúð mína og megi góður Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.