Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 51
Elsku Jóna Sjöfn mín: Þú ert
best.
Þinn besti vinur,
Óðinn Rafnsson.
Það er erfítt að trúa því að svona
ung og lífsglöð manneskja hafí yfír-
gefíð okkur, -hún sem skilur ekkert
eftir sig annað en góðar minningar.
Hlátur hennar er svo eftirminnileg-
ur eins og öll hennar framkoma sem
einkenndist af útgeislun.
Það var einn daginn að pabbi
tilkynnti okkur systrunum að hann
hafði kynnst yndislegri konu, Önnu,
og að hún ætti eina dóttur sem
okkur ætti áreiðanlega eftir að líka
við. Ég (Halla) sá hana fyrst þegar
hún kom með tvíburunum að horfa
á þegar ég var að keppa um titiiinn
Sterkasta kona íslands. Ég man svo
vel eftir því; hún var svolítið feimin
en hún var alltaf brosandi. Það lék
enginn vafí á því hversu hlý og
yndisleg manneskja Jóna Sjöfn var.
Við tvíburarnir og Jóna Sjöfn bröll-
uðum mikið og skemmtilegt saman
og fórum saman í margar ferðir
með pabba og Önnu. Þær minning-
ar eiga eftir að lifa í hjarta okkar
það sem eftir er.
Jóna Sjöfn var vinamörg og allt-
af mikið líf í kringum hana. Hún
hafði sett sér það takmark að ljúka
því námi sem hún var í, hár-
greiðslu, og hafði mikinn áhuga á
henni. Það var alveg einstakt sam-
band á milli pabba og Jónu, þau
voru góðir vinir og höfðu sama,
skemmtilega húmorinn. Jóna unni
móður sinni alveg ótrúlega mikið
og var stuttur aðskilnaður þeim oft
erfiður.
Við viljum því biðja Guð um að
gefa Önnu, pabba, Ægi og öllum
hennar nánustu vinum þann styrk
sem þarf til að vinna á þessari sorg.
Guð veri með ykkur.
Halla, Sara og Sandra.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hinn 4. maí fengum við þær
sorgarfréttir að Jóna Sjöfn, bekkj-
arfélagi okkar, væri látin.
Jóna Sjöfn var ákaflega góður
einstaklingur, hún var skemmtileg,
lífsglöð og alveg einstaklega bjart-
sýn. Hún sá alltaf skoplegu hliðina
á öllu, hvað sem á gekk. Hún vildi
öllum vel og var sannur vinur. Það
er erfítt að sætta sig við að hún
sé farin og maður eigi ekki eftir
að njóta nærveru hennar meira og
sjá hana brosa og hlæja. En við
þökkum fyrir að hafa fengið að
kynnast henni og njóta margra
góðra stunda með henni.
Kæru Anna, Ægir og Heimir,
við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð. Megi Guð styrkja ykkur í
sorg ykkar.
Kveðja frá bekkjarfélögum úr
10.AK í Víðistaðaskóla.
Pyrir hönd bekkjarfélaga í Víði-
staðaskóla,
Bára W(jöll og Dröfn.
í dag kveð ég kæra vinkonu
mína, Jónu Sjöfn, sem lést 4. maí
sl. aðeins 18 ára að aldri. Þú sem
varst svo lífsglöð en nú ertu farin
og kemur ekki aftur, ég er þér
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast þér.
Minningin um góða vinkonu lifír
í huga og hjarta mínu. Blessuð sé
minning hennar, með hjartans
þakklæti fyrir samveruna.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Ég vil votta foreldrum hennar
og vinum mína innilegustu samúð.
Anna Lydía.
í dag kveðjum við okkar kæru
vinkonu með söknuð í hjarta og um
leið viljum við þakka henni fyrir
yndislegu stundimar sem við áttum
saman, það er erfítt að hugsa sér
að hún sé farin og komi aldrei aft-
ur. Minningarnar streyma um huga
okkar á meðan við sitjum hér og
skrifum þessa minningargrein. Við
vitum ekki hvernig við getum sett
allar minningarnar á blað, vegna
þess að það er svo sárt að hugsa
til þess að hún sé farin eftir þetta
stutta líf. Við sem sáum hana fýrir
nokkrum dögum og það hvarflaði
aldrei að okkur að þetta hefði verið
okkar síðasta stund með henni.
Okkur er hugsað um hvað lífíð get-
ur verið óréttlátt að taka þessa
ungu stúlku í blóma lífsins frá fjöl-
skyldu sinni og vinum. Okkur þykir
vænt um hana og varðveitum minn-
ingarnar í hjarta okkar.
Takk fyrir vináttuna þína, faðmlög þín, all-
ar góðu stundimar, stuðninginn þinn, ein-
lægni þína, skilninginn þinn, umburðarlynd-
ið, fallegu orðin þín, fallega brosið þitt.
(Þ.Ö)
Við vottum Önnu, Ægi, Heimi,
ættingjum og vinum okkar inni-
legustu samúð á þessari sorgar-
stund.
Megi Guð blessa ykkur.
Helena og Kolbrún.
Elsku Jóna mín, ég ætla reyna
að kveðja þig með nokkrum orðum.
Þú varst skyndilega tekin úr lífí
okkar. Þú sem alltaf varst svo hress
og alltaf brosandi. Ég minnist þess
þegar ég kynntist þér fyrir 8 árum.
Ég þá níu ára og þú tíu ára. Ég var
í leikjum með vinkonu minni fyrir
utan heima, þar koma þú og vin-
kona þín labbandi, við förum að
tala saman, upp úr því urðum við
bestu vinkonur, við vorum eiginlega
óaðskiljanlegar. Við vildum vera
saman helst allan sólarhringinn.
Við áttum svo margar góðar stund-
ir. Við gátum alltaf leitað hvor til
annarrar þegar okkur lá eitthvað á
hjarta. Og leið mér alltaf svo vel
þegar ég fór frá þér. Fyrir nokkru
kynntist þú Geir og voruð þið svo
ánægð saman.
Elsku Jóna mín, það eru svo
margar góðar minningar, sem ég á
í hjarta mínu og mun ég ætíð geyma
þær þar. Ég þakka Guði fyrir að
hafa fengið að eiga þig sem vin-
konu þessi ár. Nú kveð ég þig með
söknuð í hjarta.
Elsku Anna mín, Ægir, Heimir,
Geir og fjölskylda, Guð styrki ykkur
í þessari miklu sorg.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín vinkona.
Rannveig L. Eiríksdóttir.
Elsku Jóna mín.
Mig langar til a_ð kveðja þig með
örfáum orðum. Ég minnist þess
þegar ég kynntist þér í gegnum
Ingu, litlu systur mína, þú varst
hennar vinkona og reyndar var þinn
vinahópur stór og þú varst alltaf
tilbúin að koma og passa hana Silju
Ýr dóttur mína þegar ég bað þig
og fljótt urðum við góðir vinir og
töluðum mikið saman. Þú varst svo
opin og glaðlynd og síðast en ekki
síst falleg stelpa og dóttir mín varð
strax mjög hænd að þér og þótti
svo vænt um þig. Þegar ég sagði
henni þessar sorgarfréttir, að þú
værir farin yfír á annað tilverustig,
táraðist hún og skrifaði bréf til þín
sem hún ætlaði að fara með upp
til guðs, þú varst eins og stóra syst-
ir hennar og reyndar eins og litla
systir mín, þú varst svo góð og
hjálpsöm. Oft sátuð þið Díana, vin-
kona þín, saman heima hjá mér
yfir vídeó og voruð að passa hana
Silju Ýr og aldrei vildir þú taka
fyrir pössunina.
Elsku, besta Jóna mín, ég sakna
þín sárt og mér finnst ég ætíð
standa í þakkarskuld við þig.
Guð geymi þig og varðveiti um
alla eilífð.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“
(Kahlil Gibran)
Elsku Anna, Ægir, Heimir, ætt-
ingjar, vinir og vinkonur, guð styrki
ykkur í ykkar miklu sorg.
fris Ægisdóttir.
Elsku, Jóna mín.
Þú varst alltaf svo góð við mig,
mér þykir leiðinlegt að þú skyldir
deyja, núna ertu hjá guði og guð
passar þig. Ég er búin að skýra
dúkkuna mína Jónu og við sjáumst
seinna, elsku Jóna mín.
Silja Ýr.
Elsku Jóna Sjöfn mín.
Fréttin um að þú værir dáin fékk
mig til að hugsa til áranna sem við
bjuggum á Laufvanginum. Þó svo
að við hefðum ekki haft neitt sam-
band í nokkur ár, hittumst við
stundum, oftast þegar við vorum
að skemmta okkur með vinum okk-
ar og þá voru nú oft fagnaðarlæti
og faðmast og kysst. Það er nú
ekki langt síðar við hittumst í bæn-
um og vorum að rifja upp bernsku-
árin á Laufvanginum. Manstu þeg-
ar við loksins létum verða af því
að bijóta kókflösku úti á stétt eins
og okkur var búið að langa lengi
og hlupum niður í kjallara því að
við skömmuðumst okkar svo og
vorum svo hundskammaðar á eftir?
Þegar ég datt í klifurgrindinni og
þú hljópst heim og sagði mömmu
og pabba að ég væri stórslösuð og
þegar þú rannst niður brekkuna í
kjallaranum á einum hjólaskauta
og meiddir þig. Ekki má gleyma
öllum grillveislunum sem við
skemmtum okkur svo vel í, í rat-
leikjum o.fl. Eitt er mér mjög minn-
isstætt að alltaf þegar við stelpurn-
ar komum til þin á leiðinni í skól-
ann, 15 mínútum fyrir eitt, þá varst
þú á náttfötunum, ógreidd og áttir
eftir að borða og pabbi þinn var
alltaf að reka á eftir þér, en þú
varst sko ekkert að flýta þér.
Svo varstu svo mikill hrakfalla-
bálkur og alltaf þurftirðu plástur þó
svo að ekkert blóð kæmi. Ég man
að einu sinni baðstu um plástur á
tunguna. Ég man líka eftir deginum
sem þú fékkst góminn og komst upp
að spyija eftir mér og pabbi skildi
ekkert hvað þú varst að segja því
þú gast ekki talað með góminn.
Þetta og margt fleira eru mér
Erfidrykkjur
HOTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38
llpplýsingar í síma 568 9000
dýrmætar minningar um okkar vin-
áttu og vil ég þakka þér fyrir þær.
Einnig vil ég þakka þér fyrir að
hafa alltaf sagt mér frá og varað
mig við svolitlu sem við einar vitum.
Elsku Jóna, það er svo sárt að
þurfa að skilja svona, án þess að
kveðja, en við eigum eftir að hitt-
ast aftur hinum megin.
Elsku Anna, Ægir og Heimir,
ég votta ykkur mína dýpstu samúð
og megi guð standa með ykkur í
gegnum þessa erfíðu tíma.
Kær kveðja,
Dröfn Jónasdóttir.
Elsku Jóna mín. Ég fylltist tóm-
leika og einmanaleika þegar ég fékk
þær hörmulegu fréttir að þú værir
látin, farin úr þessum grimma
heimi, svona ung og lífsglöð.
Þegar við kynntumst fyrir nokkr-
um árum náðum við strax vel sam-
an og alltaf fór vel á með okkur
og ég á óteljandi og ómetanlegar
minningar um þig og samveru-
stundir okkar, sem ég mun aldrei
gleyma heldur varðveita sem yndis-
lega gjöf alla mína ævi.
Það er ótrúlegt til þess að hugsa
að þegar við hittumst síðast óraði
hvoruga okkar fyrir því að við ætt-
um ekki eftir að sjást aftur í lif-
anda lífi. Það er svö erfítt að sætta
sig við að þú sért farin og hræði-
lega ósanngjarnt að maður verður
ósegjanlega bitur gagnvart æðri
máttarvöldum, en svo er sagt að
þeir deyi ungir sem guðimir elska.
Með þessum orðum kveð ég þig,
Jóna mín. Hvíl þú í friði. Elsku
Anna, guð gefi þér styrk og von í
gegnum þessa miklu sorg.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur,
mín veri vörn i nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S.E.)
Þín vinkona,
Sólveig Þórarinsdóttir.
Elsku Jóna Sjöfn!
Nú hefur borist yfír mikil sorg
og söknuður þar sem þú hefur yfir-
gefíð þennan heim og horfið í annan.
Við kynntumst þér þegar við
byijuðum í skólanum haustið 1996.
Þó svo við þekktum þig ekki í lengri
tíma en þetta, þá varst þú alltaf
mjög stór hluti af hópnum og þú
munt alltaf lifa með okkur. Það
hefur verið mjög erfitt að ganga inn
í kennslustofuna og sjá að plássið
þitt stendur autt og vita það að þú
átt ekki eftir að koma aftur. Þú
varst alltaf svo glöð og vildir alltaf
öllum gott. Bros þitt og gleði mun
hjálpa okkur í gegnum þessa erfíðu
stund. Góðu minningamar sem við
eigum um þig og allt það skemmti-
lega sem við gerðum saman munum
við ávallt varðveita í hugum okkar.
Elsku Anna, Ægir og Heimir,
vinir og ættingjar. Sorgin og sökn-
uðurinn er mikill en þið eigið heilan
fjársjóð af góðum minningum sem
lýsa upp myrkrið.
Elsku Jóna Sjöfn! Sú stund sem
einu sinni var kemur aldrei aftur.
Hárgreiðsludeild
Iðnskólans í Hafnarfirði.
Með sínum dauða hann deyddi
dauðann og sigur vann, <mt
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann.
Þó leggist lík i jörðu,
lifir mín sála frí;
hún mætir aldrei hörðu himneskri sælu í.
(Passíusálmar. bls. 254)
Þannig orti sálmaskáldið um sig-
ur Krists yfir dauðanum. Við kveðj-
um Jónu Sjöfn Ægisdóttur með
þessu erindi úr einum sálmi Hall-
gríms Péturssonar og vottum for-
eldrum hennar og aðstandendum,
okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd nemenda, kennara og
annars starfsfólks Iðnskólans í
Hafnarfírði,
Jóhannes Einarsson,
skólameistari.
í dag kveð ég góða vinkonu mína,
með mikinn söknuð í huga.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
...................................................................................................................................................................... ■
i! JFilk M m
i
im;
10% staðgreiðslu-
afsláttur
Stuttur afgreiðslufrestur
Frágangur á legsteinum
í kirkjugarð á góðu verði
Qranir
Helluhraun 14 HafnarQörður
Sími: 565 2707