Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MINIMINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hjartkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalang-
amma,
ELÍN SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja á
Klstufelli,
Lundarreykjadal,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 9. maí.
Börn, tengdabörn,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
+
Hjartkær eiginkona mín,
GYÐA RUNÓLFSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 30. apríl 1997.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þakka auðsýnda samúð.
Július Magnússon,
Hraunbæ 103.
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
HELGA TÓMASDÓTTIR,
Gýgjarhóli 1,
Biskupstungum,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, sunnudaginn 11. maí.
Inga Kristjánsdóttir, Guðni Karlsson
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, stjúpi okkar og
bróðir,
SVERRIR SIGURÐSSON,
vélstjóri,
Huldulandi 11,
sem lést mánudaginn 5. maí síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 14. maí kl. 15.00.
Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir,
Lóa Svavarsdóttir Maninscalco,
Margrét Svavarsdóttir,
Guðjón Sigurðsson,
Jónfríður Sigurðardóttir,
Rafn Sigurðsson
og afabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ELÍAS SIGFÚSSON
frá Vestmannaeyjum,
Dalbraut 18,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
16. maí kl. 15.00.
Guðfinna Einarsdóttir,
Erna Elíasdóttir,
Sigurbergur Hávarðsson,
Einar Elíasson,
Sigfús Þór Elíasson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar,
JAKOB BÖÐVARSSON
brúarsmiður,
Engimýri 4,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 15. maí kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásta Dúna Jakobsdóttir,
Sigurður Jakobsson.
JÓNA SJÖFN
ÆGISDÓTTIR
Elsku Jóna mín, þú átt eftir að
vera mér ævinlega ofarlega í huga
en samt verð ég að kveðja þig í
síðasta sinn. Þótt við værum nýbú-
in að ná sáttum. Það á ég eftir að
meta mjög mikils alla mína ævi.
Megi góður guð hjálpa ykkur,
Anna, Ægir, Heimir og ættingjar
og vinir, í gegnum þessa miklu
sorgarstund.
Ég man þig enn og muji þér aldrei gleyma.
Minning þín opnar gamla töfraheima.
Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu.
Brosin þín mig að betra manni gjörðu.
Bijóst þitt mér ennþá hvíld og gleði veldur.
Þín vinkona,
Linda Hafdal.
Elsku Jóna mín.
Mig grunaði aldrei að ég ætti
eftir að sitja hérna inni í stofu að
skrifa minningargrein um þig.
Ég veit að þú ert farin en innst
inni vil ég ekki sætta mig við það,
en ég veit líka að ég verð að sleppa
þér og ég hugga mig við það að
minningamar um þig verði alltaf
hjá mér.
Ef það var einhver sem ég gat
treyst á varst það þú. Ef eitthvað
var að tókst þú mér alltaf opnum
örmum og það var það sem gerði
þig svo einstaka.
Manstu þegar ég sagði þér að
ég væri að fara að flytja inn í íbúð-
ina mína, þurfti ég ekki einu sinni
að biðja þig um að hjálpa mér, þér
fannst það bara svo sjálfsagt að
þú mundir hjálpa mér og það gerð-
irðu. Þú varst hjá mér alla vikuna
og hjálpaðir í öllu sem snerist í
kringum það. Enda finnst mér þú
eiga heima hérna með mér. Þetta
kalla ég sanna vinkonu og það varst
þú svo sannarlega.
Jóna mín, þú munt aldrei deyja
í huga mér og í hjarta mínu lifa
minningamar um þig að eilífu en
nú verð ég að kveðja þig með djúp-
um söknuði í hjarta og þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig og allar góðu stundimar sem
við áttum saman.
Elsku Anna, Ægir og Heimir,
megi góður guð gefa ykkur styrk
og huggun í þessari miklu sorg og
veri með ykkur um ókomna tíð.
Vemdi þig englar, elskan mín
þá fógru augun lykjast þín;
líð þeir kringum hvílu hljótt
á hvitum vængjum um miðja nótt.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR INGIMUNDARDÓTTIR,
Bústaðavegi 89,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðviku-
daginn 14. maí kl. 13.30.
Jón Stefánsson,
Stefán Jónsson,
Ingiríður Karen Jónsdóttir,
Bryndís Jónsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir,
Sigríður Sveinsdóttir,
Þröstur Eyjólfsson,
Ágúst Ingi Andrésson,
Hailur Ólafsson,
Daníel Hafliðason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Bróðir minn og mágur,
HANNES GÍSLASON,
Engihlíð 16,
áður Reykholti
við Laufásveg,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík miðvikudaginn 14. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ástdís Gisladóttir, Kristmundur Jakobsson.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
BJÖRNS KÁRA BJÖRNSSONAR,
Háaleitisbraut 22,
Reykavík,
sem lést 2. april síðastliðinn.
Magdalena M. Ólafsdóttir,
Berglind Björnsdóttir, Eiríkur Þorsteinsson,
Birna Björnsdóttir, Scott E. Zoll,
Steinar, Ásgeir og Ross.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
GUNNARS MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR,
sem lést þann 23. apríl sl.
Guðbjörg Pálmadóttir,
Hörður Gunnarsson,
Bragi Gunnarsson, Herdís Þorgeirsdóttir,
Anna G. Gunnarsdóttir, Ragnar Danielsen.
Nei, nei, það varla óhætt er
englum að trúa fyrir þér,
engill ert þú og englum þá
of vel kann þig að lítast á.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Þín að eilífu,
Anna Sakína.
Þegar ég hugsa um þig sé ég
fyrir mér stelpu sem hægt var að
dást að og læra af.
Ég á eftir að sakna þess mest
að sjá aldrei aftur fallega brosið
þitt og heyra hláturinn þinn.
Ég vil þakka þér, Jóna mín, fyr-
ir stundir sem við áttum saman,
þær hefðu mátt vera fleiri en núna
varðveiti ég hveija mínútu sem við
áttum saman.
En nú kveð ég þig með söknuð
í hjarta og ég mun aldrei gleyma
þér svo lengi sem ég lifi.
Kæru Anna, Ægir og Heimir,
megi Guð gefa ykkur styrk til að
sigrast á þessari miklu sorg.
Nú horfmn er ástvinur himhanna tö,
heill þar nú situr við pllbryddað hlið,
í Guðsfaðmi gistir hann nú.
Samfylgd er þökkuð með söknuð í hjarta,
sefandi virkar þó minningin bjarta.
Ég kveð þig með kærleik og trú.
(Hafþór Jónsson).
Þín vinkona,
Hrafnhildur.
Þegar okkur var sagt að þú
værir farin trúðum við því ekki að
þú svona ung og falleg hefðir ver-
ið tekin frá okkur. Við sáum fyrir
okkur brosmilda andlitið þitt og
alla þá glaðværð sem streymdi allt-
af frá þér. Við gleymum aldrei
þeirri tilhlökkun og eftirvæntingu
sem fylgdi því, að þú værir að
koma til okkar í sveitina eða þegar
við komum til þín í Hafnarfjörð.
Svo loks þegar við fluttum í Hafn-
arfjörð tókst okkur að verða enn
nánari og gistum ávallt hvor hjá
annarri og hlógum langt fram á
nætur. Þú hreifst alla með hlátri
þínum og brosi og aðeins það að
heyra innilegan hlátur þinn fyllti
mann gleði og hamingju. Þér tókst
alltaf að láta mann líta á björtu
hliðarnar og vildir allt fyrir alla
gera og gefa sem mest af þinni
ótrúlegu hlýju.
Þó að þú sért nú farin frá okkur
munum við geyma í hjarta okkar
fallega brosið þitt, hlýjuna þína,
gleði og einnig allar þær stundir
sem við áttum saman hlaupandi
um tún, dansandi og syngjandi.
Við kveðjum þig nú, elskulega vin-
kona, og þökkum þér samfylgdina
á þessu ferðalagi um þessa jörð
og vitum að þér líður vel, elsku
Jóna Sjöfn. Við sendum foreldrum
þínum og ættingjum okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Við söknum þín.
Hvert örstutt spor var auðnu spor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð í þúsund ár.
(Halldór Laxness.)
Þínar vinkonur að eilífu,
Ólína og Elísabet.
Mín elskulega Jóna Sjöfn. Þegar
ég hugsa um stundirnar okkar sem
við áttum saman í Víðistaskóla
kemur ýmislegt upp í hugann.
Þótt allar samverustundirnar hafi
ekki alltaf verið dans á rósum,
gátum við ekki verið lengi ósáttar
og verið frá hvor annarri. Ég mun
aldrei gleyma árinu sem við vorum
alltaf saman og gátum varla sofið
hvor í sínu lagi. Þessar minningar
sem ég á um okkur eru verðmætar
og varveittar í hjarta mínu og
munu aldrei gleymast.
Ég bið Guð að styrkja mömmu
þína og pabba, Heimi og alla að-
standendur í þeirra miklu sorg.
Þín er sárt saknað.
Sæunn Inga.
• Fleiri minningargreinar um
Jónu Sjöfn Ægisdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.