Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ1997 53
Dimmblá sigraði
Kasparov!
KASPAROV í þungoim þönkum í viðureign sinni við Dimmbláa,
sem fór með sigur af hólmi.
SKAK
New York
SEX SKÁKA EINVÍGI
KASPAROVS OG
DIMMBLÁRRAR
OFURTÖLVAN Dimmblá gjör-
sigraði heimsmeistarann Garrí
Kasparov í sjöttu og síðustu ein-
vígisskákinni í New York á surinu-
daginn. Viðureignin var hreinlega
niðurlægjandi fyrir heimsmeistar-
ann því þegar hann gafst upp eft-
ir aðeins nítján leiki og rúmlega
klukkustundar taflmennsku stóð
ekki steinn yfir steini í stöðu hans.
Dimmblá sigraði því í einvíginu,
hlaut 3>/2 vinning gegn 2% vinn-
ingi Kasparovs.
Sigurinn er sögulegur og hefur
vakið heimsathygli enda er þetta
í fyrsta skipti sem tölva sigrar
sterkasta skákmann heims í ská-
keinvígi með hefðbundnum um-
hugsunartíma. Gríðarlegum fjár-
munum hefur verið varið til þess
að búa til skákforrit sem standast
fremstu skákmönnum snúning en
þrátt fyrir sigurinn er ekki hægt
að taka undir orð stjórnarform-
anns IBM, Louis Gerstner, að ein-
vígið hafi verið á milli sterkasta
skákstjórnanda heims og Garrí
Kasparovs!
Dimmblá er IBM RS/6000 SP
tölva og samanstendur af 32 tölv-
um sem hver um sig vinnur með
8 sérhönnuðum skákörgjörvum.
Fyrir einvígið var gefið upp að
reiknigeta tölvunnar hefði aukist
um helming frá síðasta einvígi í
200 milljónir möguleika á sekúndu
og að auki var lögð áhersla á að
bæta skákskilning tölvunnar.
Taflmennskan í einvíginu sýnir
að skákstyrkleiki tölvunnar hefur
aukist gríðarlega frá síðasta ein-
vígi. Taflmennskan í einvíginu
undirstrikaði einnig að sálfræði-
lega var staða heimsmeistarans
veik vegna mjög takmarkaðra
upplýsinga um andstæðinginn á
meðan tölvan gat rannsakað skák-
ir Kasparovs allt frá barnæsku til
dagsins í dag.
A heildina litið var einvígið
mjög athyglisvert og skemmtilegt.
Kasparov tefldi ákaflega varlega
í einvíginu, ef síðasta skákin er
undanskilin, og hefur verið gagn-
rýndur fyrir. Sú gagnrýni er að
hluta til réttmæt en lengst af
hafði Kasparov samt undirtökin í
einvíginu. Dimmblá er með hvass-
an og taktískan skákstíl og það
var lærdómsríkt að skoða hvernig
tölvan varðist með mikilli útsjón-
arsemi í erfiðum stöðum. Samt
kom það á óvart hversu lítið töl-
van lagði uppúr almennum stöðu-
þáttum í miðtöflunum, sem ennþá
er veikleiki.
Kasparov sigraði örugglega í
fyrstu skákinni en önnur skákin
olli straumhvörfum þegar Ka-
sparov gafst upp í stöðu þar sem
tölvuútreikningar sýndu síðar að
hann átti jafntefli. Ekki aðeins
beið sjálfstraust hans þar hnekki
heldur mat hann einnig viðureign-
ina þannig að tölvan hefði átt að
reikna til enda að lokastaðan
væri jafntefli og krafðist skýringa
af hverju Dimmblá hefði þá ekki
valið aðra leiki sem virtust leiða
til vinningsstöðu fyrir tölvuna. í
þremur næstu viðureignum var
Kasparov nærri því að vinna sigur
en ofurtölvunni tókst ætíð að verj-
ast. Fimmta skákin var þar af sú
skemmtilegasta í öllu einvíginu.
Skákin var spennandi og vel tefld
af beggja hálfu og í endatafli sem
flestir skákskýrendur álitu tapað
tókst Dimmblárri að finna hreint
ævintýralega björgun.
Taflmennsku Kasparovs í síð-
ustu einvígisskákinni er aðeins
hægt að skýra á þann hátt að
heimsmeistarinn hafi kiknað
undan álaginu í baráttunni við
ofurtölvuna. Kasparov var ein-
faldlega óþekkjanlegur í viður-
eigninni og beið líklega versta
ósigur sinn á öllum skákferlinum.
Sjöundi leikur svarts hefur lengi
verið álitinn vafasamur einmitt
útaf riddarafórninni á e6 og
heimsmeistarinn hafði ekkert
nýtt fram að færa sem breytti
þeim dómi og einfaldlega koltap-
aði eins og hér er sýnt.
6. einvígisskákin
Hvítt: Dimmblá
Svart: Garrí Kasparov
Caro-Kann vörn
1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rc3 -
dxe4 4. Rxe4 - Rd7 5. Rg5 -
Rgf6 6. Bd3 - e6 7. Rlf3 - h6?
8. Rxe6! - De7 9. 0-0 - fxe6 10.
Bg6+ - Kd8 11. Bf4 - b5? 12. a4
- Bb7 13. Hel - Rd5 14. Bg3 -
Kc8 15. axb5 - cxb5 16. Dd3 -
Bc6 17. Bf5! - exf5 18. Hxe7 -
Bxe7 19. c4!
b c d e » o h
Svartur gafst upp. Uppgjöfin kom
á óvart í New York en staðan er
gjörtöpuð t.d. eftir 19. - bxc4 20.
Dxc4 - Rb4 (Ekki 20. - Kb7 21.
Da6 mát) er einfaldasta vinnings-
leiðin 21. Ha4 - Rb6 22. De6+ -
Bd7 23. Dxb6! - axb6 24. Hxa8
- Kb7 25. Hxh8. Og 19. - Rb4
20. Dxf5 er auðvitað líka von-
laust fyrir svartan.
5. einvígisskákin
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Dimmblá
Reti byrjun
1. Rf3 - d5 2. g3 - Bg4 3. Bg2
- Rd7 4. h3 - Bxf3 5. Bxf3 - c6
6. d3 - e6 7. e4 - Re5 8. Bg2 -
dxe4 9. Bxe4 - Rf6 10. Bg2 -
Bb4+ 11. Rd2 - h5 12. De2 -
Dc7 13. c3 - Be7 14. d4 - Rg6
15. h4 - e5 16. Rf3 - exd4 17.
Rxd4 - 0-0-0 18. Bg5 - Rg4 19.
0-0-0 - Hhe8 20. Dc2 - Kb8 21.
Kbl - Bxg5 22. hxg5 - R6e5 23.
Hhel - c5 24. Rf3 - Hxdl+ 25.
Hxdl - Rc4 26. Da4 - Hd8 27.
Hel - Rb6 28. Dc2 - Dd6 29. c4!
- Dg6 30. Dxg6 - fxg6 31. b3 -
Rxf2 32. He6 - Kc7 33. Hxg6 -
Hd7 34. Rh4 - Rc8 35. Bd5 -
Hd6 36. He6 - Rb5! 37. cxb5 -
Hxd5 38. Hg6 - Hd7 39. Rf5 -
Re4 40. Rxg7 - Hdl+ 41. Kc2
- Hd2+ 42. Kcl - Hxa2! 43.
Rxh5 - Rd2! 44. Rf4 - Rxb3+
45. Kbl - Hd2 46. He6 - c4 47.
He3 - Kb6! 48. g6 - Kxb5 49. g7
- Kb4
a b c d e I g h
Kasparov bauð jafntefli án þess
að leika enda er jafntefli fyrirsjá-
anlegt með þráskák eftir 50. g8D
- Hdl+ 51. Kc2 - Hd2+ 52. Kbl
- Hdl+. Vinningstilraun með 50.
Hxb3+? - Kxb3 leiðir hinsvegar
rakleiðis til taps því svartur hótar
máti á dl.
Karl Þorsteins
Glæsilegur
sigur Jóhanns
Hjartarsonar
SKAK
K a u p m a n n a h ö f n
ARUNA
STÓRMJEISTARAMÓTIÐ
2.-11. maí 1997
JÓHANN Hjartarson sigraði
glæsilega á Aruna skákmótinu,
sem haldið var í Danmörku 2.-11.
maí. Hann var kominn með tveggja
vinninga forskot á næstu menn
eftir 6 umferðir og eftir það var
varla spurning um sigur hans á
mótinu. Hann fékk síðan 2 vinn-
inga úr þremur síðustu umferðun-
um og endaði með 7 '/2 vinning af
9 mögulegum. Hann vann sex
skákir og gerði þrjú jafntefli, en
tapaði engri skák. I öðru sæti, ein-
um og hálfum vinningi á eftir Jó-
hanni, varð síðan danski stórmeist-
arinn Henrik Danielsen. Margeir
Pétursson náði sér ekki á strik í
mótinu og fékk 4 ‘/2 vinning ásamt
Sune Berg Hansen. Sá skákmaður
sem hefur vakið einna mesta at-
hygli á Norðurlöndum undanfarið
ár er Svíinn Tiger Hillarp-Persson.
Að þessu sinni varð hann þó að
sætta sig við næstneðsta sætið á
mótinu og 3 vinninga. Lokastaðan
á mótinu varð þessi:
1. Jóhann Hjartarson 7 Vs v.
2. Henrik Danielsen (SM, Danmörk) 6 v.
3. Andrei Sokolov (AM, Lettland) 5 'U v.
4. Ludger Keitlinghaus (AM, Þýskaland) 5 v.
5. -6. Margeir Pétursson og Sune Berg Han-
sen (AM, Danmörk) 4 'U v.
7.-8. Jacob Aagaard (AM, Danmörk) og Erl-
ing Mortensen (AM, Danmörk) 4 v.
9. Tiger Hillarp-Persson (AM, Svíþjóð) 3 v.
10. Flemming Fuglsang (Danmörk) 1 v.
Fyrir utan hátt vinningshlutfall
Jóhanns vekur ekki síður athygli
að hann skuli vera svona langt á
undan næsta manni í svo stuttu
móti.
Einar Hjalti sigrar
á Pizzakvöldi
Pizzakvöld Hellis eru ætluð
unglingum á aldrinum 14-20 ára,
en lítið hefur verið um skipulagða
starfsemi fyrir skákmenn á þessum
aldri. Fimmta Pizzakvöld Hellis var
haldið laugardaginn 26. apríl. Efnt
var til hraðmóts og sigurvegari
varð Einar Iljalti Jensson, sem
hlaut 7 vinninga, en Davíð Kjart-
ansson varð í 2. sæti með 6 vinn-
inga.
Eiríkur Björnsson sigrar
á hraðmóti Hellis
Eiríkur Björnsson sigraði með
yfirburðum á hraðmóti Hellis, sem
fram fór 28. apríl. Hann hlaut 11
vinninga af 12 mögulegum. Guðjón
Heiðar Valgarðsson varð í öðru
sæti með 8 V2 v.
Daði Örn Jónsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsd. Félags eldri borgara,
Kópavogi
Spilaður var Mitchell-tvímenning-
ur þriðjud. 6.5. 28 pör mættu og
urðu úrslit:
N/S
Baldur Ásgeireson - Magnús Halldórsson 347
Sveinn K. Sveinsson - Guðmundur Sveinsson 337
Sæbjörg Jónasd. - Þorsteinn Erlingsson 335
HannesAlfonsson-EinarElíasson 329
Ásthildur Sigurgíslason - Lárus Arnórsson 329
A/V
Ólafurlngvareson-BjömKjartansson 447
ÞórhildurMapúsd. - Sigurður Pálsson 372
SteindórÁmason-EinarMarkússon 360
Ámi Halldórsson - Helgi Vilhjálmsson 335
Meðalskor 312.
Spilaður var Mitchell-tvímenning-
ur föstud. 9.5. 22 pör mættu, úrslit:
N/S
Eysteinn Einareson - Láms Hermannsson 269
Rafn Kristjánsson - Oliver Kristófersson 263
Þórarinn Árnason - Þorleifur Þórarinsson 232
. A/V
Ásthildur Sigurgíslad. - Láras Amórsson 276
Þórður Jörundsson - Vilhjálmur Sigurðsson 258
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðsson 237
Meðalskor 216.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 8. maí var spilað
annað kvöldið af þrem í vortvímenn-
ingi félagsins. Skor kvöldsins:
. N/S
ÁrmannJ.Lárasson-JensJensson 253
Guðrún Hinriksdóttir - Haukur Hannesson 239
Georg Sverrisson - Bemódus Kristinsson 235
A/V
Þórður Bjömsson - Birgir Öm Steingrímsson 260
Þrösturlngimarsson-EinarJónsson 257
Rapar Jónsson - Murat Serdar 240
Meðalskor 216.
Staðan eftir tvö kvöld:
Þórður Bjömsson - Birgir Öm Steingrímsson 506
GeorgSverrisson - Bemódus Kristinsson 476
Guðrún Hinriksson - Haukur Hannesson 468
Meðalskor 432.
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn í Þinghól, Hamraborg, fimmtu-
daginn 22. maí klukkan 20. Fundar-
efni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önn-
ur mál.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Síðasta keppni félagsins var
Minningarmótið um Stefán Pálsson.
Spilaður var tveggja kvölda Baró-
meter tvímenningur með þátttöku
14 para. Fyrsta kvöldið skoruðu
mest:
Þórarinn Sófusson - Friðþjófur Einarsson 27
Dröfn Guðmundsdóttir - Asgeir Ásbjömsson 19
Bjami Sigursveinsson - Njáll Sigurðsson 14
Halldór Einarsson - GunnlaugurÓskareson 12
Hæstu skorinni annað kvöldið
náðu:
Jón Gíslason—Snjólfur Ólafsson 32
Halldór Einarsson - Gunnlaugur Óskarsson 31
Bjami Sigursveinsson - Bjöm Arnarson 25
Guðmundur Mapússon - Ólafur Þ. Jóhannsson 20
Lokastaðan varð þessi:
Halldór Einarsson - Gunnlaugur Óskarsson 43
Bjami Sigursveinsson - Njáll Sigurðsson -
BjömAmarson . 39
Jón Gíslason - Snjólfur Ólafsson 36
Guðmundur Mapússon - Ólafur Þ. Jóhannsson 27
Þórarinn Sófusson - Friðþjófur Einareson 7
Bridsfélag Hafnarfjarðar þakkar
spilurum félagsins fyrir veturinn og
vonast til að sjá sem flesta í byijun
næsta vetrar. Umsjónarmanni brids-
dáiksins er þakkað fyrir gott sam-
starf undanfarinna ára.
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
Þriðjudagskvöldið 5. maí var spil-
aður tvímenningur með þátttöku 10
para. Úrslit urðu á þessa leið:
Svala Vignisdóttir - Rapa Hreinsdóttir 121
Kristján Kristjánsson - Ásgeir Metúsalemsson 119
Jónlngi Ingvarsson - ÁsmundurÁsmundsson 119
Aðalsteinn Jónsson - Gísli Stefánsson 116
Bridsfélag Breiðfirðinga
Á næstsíðasta spilakvöldi vetrar-
ins hjá Bridsfélagi Breiðfirðinga var
spilaður eins kvölds Howell tvímenn-
ingur með þátttöku 14 para 8. maí
sl. Keppnin var óvenjujöfn og mikil
barátta um efsta sætið. Jóhannes
Bjamason og Hermann Sigurðsson
stóðu uppi sem sigurvegarar í lokin,
en lokastaða efstu para varð þannig
(meðalskor 156):
Jóhannes Bjamas. - Hermann Siprðs. 174
Nicolai Þorsteins. - Sigurður Þorgeirs. 173
Guðl. Sveinsson - Mapús Sverrisson 173
Guðl. Karlsson - Mapús Oddsson 170
Spilaður verður léttur Micthell-
tvímenningur á síðasta spilakvöldi
félagsins, 15. maí, en klukkan 22
verða veitt verðlaun fyrir keppni
vetrarins og boðið upp á kaffiveiting-
l=Li£Li-LLLLr U Ll£V GLÍLKLllLLÍ L LLL-
I— l—
= HÉÐINN = |rUij
smiðja imm
Hönnun • smídi • viðgerðir • þjónusta
STÓRÁSI 6 • 210 GARÐABÆR • SÍMI SGS 2921 • FAX 565 2927