Morgunblaðið - 13.05.1997, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 57
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar
Líkamsmeiðing-
ar og eignaspjöll
Reykjavík 9. til 12. maí
UM HELGINA var tilkynnt um 9
iíkamsmeiðingar, 11 innbrot, 21
þjófnað og 21 eignarspjöll. Af-
skipti þurfti að hafa af 38 manns
vegna ósæmilegrar ölvunarhátt-
semi á almannafæri. Nauðsynlegt
reyndist að vista þrjátíu manns í
fangageymslunum.
Þá þurftu lögreglumenn 19
sinnum að fara á vettvang vegna
kvartana yfir hávaða og ónæði í
fjöleignahúsum, auk þess sem
nokkrum sinnum var kvartað
vegna hávaða í ölvuðu fólki utan
dyra að næturlagi. Átta öku-
menn, sem stöðvaðir voru, eru
grunaðir um ölvunarakstur. Níu
ökumenn voru kærðir fyrir að aka
yfir leyfilegum hámarkshraða-
mörkum.
Á flugbraut í leyfisleysi
í tólf tilvikum var tilkynnt um
sinubrennur. Slökkviliðs-, bæjar-
og borgarstarfsmenn og lögreglu-
menn fóru á vettvang og slökktu
eldana. Enn einu sinni er rétt að
ítreka að óheimilt er að kveikja
eld í sinu, auk þess sem ástæða
er til að vekja athygli á þeirri
hættu, sem slíkt getur haft í för
með sér.
Afskipti þurfti að hafa af
tveimur ungum mönnum á föstu-
dagsmorguninn þegar þeir hlupu
inn á flugbraut Reykjavíkurflug-
vallar þegar vél frá íslandsflugi
var að taka sig á loft af braut
02 með 36 farþega innanborðs.
Flugumferðarstjóri í flugtumi
þurfti að gefa flugmönnunum
skipun um að hætta við flugtak
vegna hættunnar, sem hlaust af
ferð mannanna, Þeir voru færðir
á lögreglustöð og síðan til töku
blóðsýnis.
Aðfaranótt laugardags féll
maður af svölum húss við Frakka-
stíg. Fallið var 6-7 metrar.
Rólegt var í miðborginni. Lög-
reglumenn þurftu ekki að hafa
nein afskipti af unglingum, en
allnokkur af fullu fullorðnu fólki.
Reyndar hafa unglingar ekki sést
í miðborginni í allnokkurn tíma.
Helsta vandamál samansafnaðar
fólks í miðborginni er áfengis-
drykkjan. Allt of margir drekka
illa og eru afleiðingarnar eftir
því. Þá er og áberandi hversu
margt ungt fullorðið fólk er mik-
ið drukkið þegar líða tekur á
nóttu.
Lausn á málum miðborgarinn-
ar er ekki einföld, en með ákv.
ákvörðunum, sem og samræmd-
um, víðtækum og samstiga svæð-
isbundnum aðgerðum þeirra sem
þar koma nærri málum ásamt
góðri þátttöku og ekki síst já-
kvæðum viðbrögðum almennings
er hægt að ná fram verulegum
úrbótum í miðborginni að nætur-
lagi um helgar.
Bíleigandi náði þjófi
Lögreglumenn í Breiðholtsstöð
hafa unnið með nokkra unglinga,
sem framið hafa afbrot í hverfun-
um undanfamar vikur. M.a. hafa
þeir upplýst nokkur innbrot og
þjófnaði. Þá upplýstu þeir rán, sem
framið var í Þingholtunum í nóv-
embermánuði á síðasta ári þegar
eldri kona var rænd þar veski sínu.
Um var að ræða unga pilta, sem
af tilviljun höfðu valið konuna sem
fómarlamb til að fjármagna verk,
sem þeir ætluðu að vinna.
Tónleikar í Laugardalshöll á
laugardagskvöld gengu vel fýrir
sig. Um kvöldið var kvartað yfir
ungum mönnum er óku á skelli-
nöðrum á göngustígum í Húsa-
hverfi. Rétt er að minna „skelli-
nöðrugæjana“ á að þeim er
óheimilt að aka farartækjum sín-
um á göngustígum, auk þess sem
þeir þurfa að vera meðvitaðir um
þann hávaða, sem er samfara
akstri þeirra og ónæði er af því
getur hlotist.
Snemma á sunnudagsmorgun
varð eigandi ökutækis var við að
verið væri að bijótast inn í það.
Hann hljóp út ásamt kunningja
sínum og náðu þeir einum þjóf-
anna af þremur. Lögreglumenn
fluttu hann síðan á lögreglustöð
til yfirheyrslu.
NÁMSKEIÐSMENN í rústaleitinni í Reykjanesbæ.
Hundar þjálfaðir
í rústaleit
björgunarhundasveit Ís-
lands og Björgunarsveitin Suður-
nes í Reykjanesbæ héldu nám-
skeið og æfingu í rústaleit helgina
18.-20. apríl sl. Námskeiðið var
byggt upp á fyrirlestrum og æf-
•ngum í rústum með aðaláherslu
á leit með hundum og tóku 11
hundar og þjálfarar þeirra þátt í
námskeiðinu ásamt öðrum björg-
unarsveitarmönnum.
Fyrirlesarar voru Kevin Ge-
orge frá Alberta-fylki í Kanada,
en hann hefur um þrjátíu ára
reynslu í þjálfun björgunar-
hunda, og Sólveig Þorvaldsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Almanna-
varna ríkisins.
MYNDIN var tekin þegar Þórey og Pétur Þór
fengu vinningana afhenta.
Fengu tölv-
ur í happ-
drætti
ALLIR námsmenn sem hafa að
undanfömu skráð sig í Mennta-
braut íslandsbanka hafa átt kost
á að nýta sér sérstakt tölvutilboð
hjá Tæknivali. Tilboðinu fylgdi
að bankinn myndi endurgreiða
tveimur námsmönnum tölvura-
ar, segir í fréttatilkynningu.
Fjölmargir menntabrautarfé-
lagar nýttu sér tilboðið og hafa
nöfn tveggja nú verið dregin
úr pottinum. Þau era Þórey
Árnadóttir, nemi í viðskipta-
fræði við Háskóla íslands, og
Pétur Þór Karlsson, nemi i Vél-
skóla íslands, og hafa þau bæði
fengið tölvurnar sínar endur-
greiddar.
NU ER
RÉTTI
TIL AÐ FA SER
CÖNCjJSKÓ FYRIR
stwvARIÐ.
MIKIÐ ÚRVAL AF
SFM HENTA FOLKI
A ÖLLUM ALDRÍ
VID ISLENSKAR
ADST/ÍDUR.
CILDIR
AÐEINS
ÞES5A VIKU!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
REYKjAVIK Si