Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 59

Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSIIMS ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 59 + I i 'I j I .3 i I 4 « s 4 4 4 4 4 4 4 \ 4 ( < ( ( < Villandi frétta- flutningur á Rás 1 Frá Þóvdísi Guðbjartsdóttur: OFT fiefur mér fundist frétta- flutningur Rásar 1, einkum er- lendar fréttir, orka tvímælis. Ég fæ ekki orða bundist yfir frétt sem hljómaði í hádegisfréttum mánu- daginn 28. apríl sl. Fyrst var frétt af hræðilegri meðferð á sjúkum börnum í sjúkrahúsi í Afríku síðan kom frétt af hungursneið í N- Kóreu og greint frá hugsanlegu mannáti í því landi. í beinu fram- haldi af þeirri frétt var sagt frá því að samkvæmt könnun stofn- unar hjá Evrópubandalaginu byggju flest börn í þeim 12 löndum sem könnuð voru í Evrópu við fátækt í Bretlandi og var sagt í inngangi fréttarinnar að þau byggju við „allsleysi". Þar með voru bresku börnin nánast sett á sama stall og á hryllingssvæðum í Afríku og N-Kóreu. I sjálfri fréttinni þar sem frétta- ritarinn í London tók til máls kom fram að breski fjármálaráðherrann hefði gagnrýnt könnunina harð- lega og taldi hana byggjast á mjög vafasömum forsendum. Var greint frá því að þessi stofnun Evrópu- bandalagsins hefði fundið út fá- tæktarmörkin þannig að fátækur teldist sá í Evrópubandalagslönd- unum sem hefði minna en helming meðallauna til framfærslu. Það liggur í augum uppi að slíkar for- sendur eru út í hött því þannig hljóta þeir sem búa í löndum þar sem meðaltekjur eru hærri að hafa mun meira úr að spila en hinir. Þannig segir könnunin okkur ekk- ert um hvað menn hafa í raun til framfærslu í þessum löndum en eins og menn vita skiptir skatta- kerfið og fleiri þættir hér miklu máli. Formáli fréttastofu Rásar 1 segir okkur hins vegar mikið um hugarfarið á þeim bæ. Því miður t tar SPLENDESTO seidenSticker blússur Uðuntv, er ekki hægt að treysta þannig fréttastofu. Ekki er einu sinni hægt að brosa að vinnubrögðunum því það er alvarlegur hlutur að reyna að spyrða þannig saman aðstöðu bama í Bretlandi og á hryllingssvæðum jarðarinnar, þar sem menn rífa börn úr sjúkrarúm- um og leggja sér mannakjöt til munns. Með góðri kveðju og von um skjóta birtingu. ÞÓRDÍS GUÐBJARTSDÓTTIR, Hverafold 96,112 Reykjavík ehf. TISKUVERLSUN v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 Til prófanefndar samræmdra prófa Frá Höllu Hrund Logadóttur: MÁNUDAGINN 28. apríl þreytti ég, ásamt öllum nemendum 10. bekkjar á landinu samræmt próf í stærðfræði. Flestir fóru í þetta próf vitandi það að þeir væru búnir að und- irbúa sig sem best þeir gátu og voru nemendur því frekar afslapp- aðir og rólegir. En prófið reyndist ekki vera próf í kunnáttu heldur í hraðskrift. Það var bæði allt of langt og spurningarnar snúnar þannig að jafnvel færustu nem- endur náðu ekki að ljúka þvi. Hvað á það eiginlega að þýða að lengja prófið um 9 blaðsíður frá því sem verið hefur undanfarin ár án þess að lengja próftímann? Hverslags virðingarleysi er þetta eiginlega við kennara og nemend- ur þeirra? Ég skora á prófanefnd að fella samræmda prófið í stærð- fræði úr gildi því að einkunnirnar úr þessu prófi eru ekki marktæk- ar. HALLA HRUND LOGADÓTTIR, nemandi í 10. bekk Árbæjarskóla. UNDIR- FATALÍNA Kringlunm v-' S. 553 7355 ; - kjarni malsins! Nýjung NIVEA sturtuolía - í staðinn fyrir hefóbundna sturtusópu -freyðir vel. Inniheldur náttúrulega olíu sem mýkir húðina og vinnur gegn þornun hennar. PH gildib er það sama og húbarinnar. Vib ráðleggjum öllum að prófa nýju NIVEA sturtuolíuna - árangurinn kemur á óvart. NIVEA milt sjampó fyrir allar hár- tegundir. Inniheldur náttúrulegt prótein. Með góðri fyllingu og heldur hárinu glansandi fínu í dagsins önn. PH gildið er það sama og í hársverðinum. Milt og gott sjampó sem hentar einstaklega vel til daglegra nota. Við eigum afmæli en þið, ágætu neytendur, fáið gjöfina! 50 áro 1947-1997 .fi®§ mm J.S. HIIOASON EHf 1V47 - 1W IBRINK DRÁTTAR- BEISLI Eigum fyrirliggjandi dráttarbeisli í flestar gerðir bifreiða. Rafmagnstengi einnig fáanleg. Nánari upplýsingar fást hjá sölu- mönnum okkar í síma 588 2550. BílavörubúÖin FJÖDRIN I farcirbroddi SKEIFUNNI 2,108 REVKJAVÍK SÍMI 588 2550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.