Morgunblaðið - 13.05.1997, Side 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
TÖFRATRÉ
(Daphne mezereum)
NÚ STANDA flest
tré með þrútin
brum og jafnvei
farið að sjást í
grænt laufið á
nokkrum. Stöku
trjátegundir
blómstra áður en
þær laufgast.
Þannig stendur
víðirinn núna í full-
um „blóma“ og
öspin reyndar líka.
Alfyrsta tréð sem
blómstrar hér er
þó óskylt víði og
ösp, en það er
töfratréð, sem vek-
ur alltaf undrun og
aðdáun þegar það blómstrar
eldsnemma á vorin, jafnvel fyr-
ir miðjan apríl. Töfratréð er lít-
ill runni sem verður aðeins
hálfur til einn metri á hæð.
Dökk blómbrumin mynda spíral
upp eftir greinum síðasta árs,
en blómin eru rósrauð eða jafn-
vel hvít og fylla loftið sætri
höfugri angan. Þau standa oft
svo þétt að hvergi sést í sjálfa
greinina. Þegar þau taka að
sölna eftir u.þ.b. 3 vikur frá
blómgun opnast toppbrum
greinarinnar með blaðskúf og
greinamar fá síðan blágrænt
fíngert lauf. Síðari hluta sum-
ars sjást síðan rauð ber nær
falin undir laufinu.
Hér er hætta á ferðum, því
þessi ber eru eitruð og talið
að 10-12 ber geti verið lífs-
hættuleg börnum og nefnd
dæmi um það erlendis. Því
ættu þeir sem hafa börn í garð-
inum að fjarlægja berin áður
en þau roðna. Fuglar eru mjög
sólgnir í þessi ber og virðast
þola þau með ágætum. Það á
úlfurinn hins vegar ekki að
gera því Norðmenn telja sex
ber banvænan skammt fyrir
úlf. Börkur trésins er líka eitr-
aður en bæði hann og berin
voru mikið notuð til alls konar
lækninga á liðnum öldum.
Smyrsl og te af berkinum var
t.d. notað við hálsbólgu, tannp-
ínu, tíðarverkjum og syfilis.
Plantan var líka notuð í gal-
draseyði og töfrabrall eins og
íslenska nafnið bendir til. Lat-
neska nafnið vísar beint í
goðafræðina en Daphne var
grísk gyðja sem breyttist í lár-
viðartré þegar guðinn Appolon
gerðist of nærgöngull við
hana. Seinna nafnið, mezere-
um, kemur úr
persnesku og þýð-
ir að drepa. Þessi
fallegi runni kall-
ast á norsku ty-
bast og sænsku
tived. Bæði orðin
eru dregin af
guðanafninu Týr
og tívar (guðir). Á
Norðurlöndum er
talið að hinn ógur-
legi Fenrisúlfur
hafi verið fjötrað-
ur með basttrefj-
um (tybast) þessa
litla runna. Við
minnumst þess að
goðin lögðu þrisv-
ar fjötur á Fenrisúlf. Fyrst
leysti hann sig úr Læðingi en
síðan drap hann sig úr Dróma.
Þá komu æsir með Gleipni,
fjötur sem gerður var úr sex
þáttum, dyn kattarins, skeggi
konunnar, rótum bjargsins,
sinum bjarnarins, anda fisks-
ins og af fugls hráka. Svo
magnaðan fjötur gat Fenris-
úlfur ekki slitið, fjöturinn hert-
ist eftir því sem hann braust
harðar um. Þá hlógu allir nema
Týr, hann lét hönd sína. Úlfinn
hafði grunað að brögð væru í
tafli og heimtaði að einhver
ása legði hönd sína í munn
honum meðan hann reyndi við
fjöturinn.
Þetta var norræn goðafræði,
en svo vikið sé að ættfræði
töfratrésins þá eru í ættkvísl-
inni um 70 tegundir runna eða
smátijáa og vaxtarsvæðið er
Asía og Evrópa, allt norður í
Noreg, þar sem það vex í 1250
m hæð í Jötunheimi. Tiltölulega
fáar tegundir þessarar ætt-
kvislar eru almennt ræktaðar
í görðum og töfratréð líklega
það eina sem er fáanlegt hér.
Töfratréð virðist þrífast ágæt-
lega hér á landi. Kalkríkur og
frekar rakur jarðvegur hentar
því best og það sómir sér vel
í steinhæðum eða framarlega
í beði. Það þolir nokkurn
skugga en blómgunin verður
mest njóti það fullrar sólar.
Töfratré má fjölga með græð-
lingum eða með sáningu og hér
myndar það þroskuð fræ. Fræj-
unum má sá úti eða í reit, en
þau eru oft 2-3 ár að spíra.
Fræ töfratrés eru iðulega_ á
frælista Garðyrkjufélags ís-
lands.
S.Hj.
BLOM
VIKUNNAR
35B. þáttur
Umsjón Ágústa
Björnsdóttir
I DAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í blind-
skák á Melody Amber mót-
inu í Mónakó um daginn.
Anatólí
Karpov
(2.760), FIDE
heimsmeistari,
hafði hvítt og
átti leik, en Hol-
lendingurinn
Loek Van
Wely var með
svart.
22. Bxh6! -
Dxa4 (Eftir 22.
- gxh6 23.
Dxh6 - Rf8 24.
Rg5 - Bxg5 25.
Dxg5+ - Kh8
26. De7 - Kg7
27. Dxb7 hefur
hvítur unnið
manninn til baka og á þá
vinningsstöðu.) 23. Bg5! -
Bxg5 24. Rxg5 - Rf8 25.
Dc7 - Dd7 26. Dc5 - b3
27. Db6 - Dc6 28. Dd8 -
Dc8 29. De7 - Dd7 30.
Bh7+ og svartur gafst upp,
því hann tapar drottning-
unni eða verður mát.
HVÍTUR leikur og vinnur
Með morgunkaffinu
Ast er...
þegar stubbur fær
þig til að brosa
að hverju sem er.
TM Bog. U.S. Pat. Ofl. — ali nghts reserved
(c) 1997 Los Angeles Tmes Syndeate
ÞETTA er í síðasta sinn
sem ég vara þig við.
Ef þú biður um hönd
dóttur minnar, þá
færðu hana sko...
VIÐ hverju bjóstu? Þetta er jú Rauðahafið.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bók um
læknamistök
ÞEGAR maður hefur
upplifað hörmulega erf-
iðleika þá kemst maður
ekki hjá því að sjá ýmsar
hliðar á heilbrigðiskerf-
inu. Því miður er til fólk
í læknastéttinni eins og
annars staðar sem telst
vanhæft í sínum störf-
um. Ég hef upplifað áföll
í lífinu og tel mig sjaldan
hafa fengið rétta með-
höndlun. Vissulega er til
gott fólk í læknastéttinni
eins og annars staðar en
ég skil ekki í fjöldatak-
mörkunum í læknadeild-
ina í Háskólanum. Sumir
læknar virðast trúa á
skýrslur eins og ofsatrú-
armenn trúa á Biblíuna.
Trúarofstæki er oft talið
merki um geðveilu en
hvar er veilan í lækna-
stéttinni þegar fólki er
synjað um aðstoð?
Læknir talaði um það í
Helgarpóstinum á sínum
tíma, að hann vildi
gefa út bók um
læknamistök. Hún
er því miður ekki
komin út enn en
það er kominn tími
til að þannig bók
líti dagsins ljós.
Jónas B.
Gunnarsson,
Vesturgötu 18,
Hafnarfirði.
Samræmdu
prófin
BLAÐINU er þakkað
fyrir að birta samræmda
stærðfræðiprófið. Að
mínu mati er þetta létt
og skemmtilegt próf.
Allt fjaðrafokið sem orð-
ið hefur í kringum það
er til vansa og sýnir fyrst
og fremst fram á skip-
brot kennslu- og skóla-
mála síðari ára og ára-
tuga.
Reynir Eyjólfsson,
lyfjafr.
Tapað/fundið
Reiðhjólahjálmur
tapaðist
SVARTUR og rauður,
nýr barnareiðhjólahjálm-
ur tapaðist í fjölskyldu-
garðinum sunnudaginn
11. maí. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
551-5554 eftir kl. 17.
Reiðhjól fannst
REIÐHJÓL, Mongoose,
silfurgrátt fannst í byij-
un mánaðarins við
Vesturgötu. Uppl. í síma
525-6015.
Dýrahald
Grá læða týndist
UNG, grá, einlit læða
með uppskurðarspor á
kviðnum, eyrnamerkt,
týndist laugardaginn 10.
maí í Smáíbúðahverfi.
Uppl. í síma 568-9542.
Páfagaukur
fannst í Garðabæ
PÁFAGAUKUR, hvítur,
grár og grænblár, fannst
í Garðabæ laugardaginn
10. maí. Þetta er ungi.
Uppl. í síma 565-8856.
Kötturinn Keli
er týndur
KELI er 8 ára, grábrönd-
óttur með hvíta bringu
og hvítar hosur. Hann
er ákaflega mannelskur
og heimakær. Hann er
merktur með blárri hál-
sól sem á stendur CAT,
nafni, heimilisfangi og
símanúmeri. Keli fór frá
Bakkavör 11 á Seltjam-
amesi þriðjudagskvöldið
6. maí og hefur _ ekki
komið heim síðan. íbúar
í nágrenni Bakkavarar
eru vinsamlega beðnir
að athuga hvort Keli
gæti hugsanlega hafa
lokast inni í bílskúr hjá
þeim og ef einhver veit
eitthvað um hann að láta
vita í síma 562-0137.
Víkverji skrifar...
A
IFYRRADAG birtist á forsíðu
Morgunblaðsins frétt, sem
ástæða er til að vekja athygli á.
Þar er það haft eftir samtökum,
sem nefnast Kristnihjálp og vinna
gegn barnaþrælkun, að í Indlandi
fái börn sem svarar 16 krónum
fyrir að handsauma Mitre- og
Úmbro-fótknetti, sem séu seldir á
1.750 krónur í Bretlandi. Það væri
út af fyrir sig fróðlegt að vita,
hvort þessir fótboltar eru seldir hér
en þessi frásögn vekur líka upp
aðrar spumingar.
Neytendur á Vesturlöndum
leggja eins og skiljanlegt er, mikið
upp úr því að fá vörur á sem hag-
kvæmustu verði. Alkunna er að
margvísleg iðnaðarstarfsemi hefur
flutzt til fjarlægra ríkja og eftir lok
kalda stríðsins einnig til fyrrum
leppríkja Sovétríkjanna vegna þess
að þar er vinnuaflið ódýrara. í hve
ríkum mæli erum við, neytendur á
Vesturlöndum, að auka velmegun
okkar með því að kaupa ódýrar
vörur, sem eru framleiddar á þann
hátt, sem upplýst hefur verið um
fyrrnefnda fótbolta? í hve ríkum
mæli lifum við eins og hálfgerð
sníkjudýr á fátæku fólki í öðrum
heimshlutum?
Um þetta hljótum við að hugsa
eftir að lesa frásögn á borð við
þessa af bamaþrælkun í Indlandi.
xxx
*
ISAMTALI við Morgunblaðið í
fyrradag sagði Friðjón Þórðar-
son, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra, svo frá þátttöku sinni í ríkis-
stjóm þeirri, sem dr. Gunnar Thor-
oddsen myndaði snemma árs 1980:
„Framsókn og Alþýðubandalagið
voru reiðubúin til samstarfs við
Gunnar en áður hafði hann tryggt
sér stuðning sjálfstæðisþingmann-
anna Alberts Guðmundssonar og
Eggerts Haukdals. Síðan leitaði
Gunnar til okkar Pálma um stuðn-
ing og þá þegar var orðið ljóst að
ríkisstjómin yrði mynduð, hvort
sem við yrðum með eða ekki.“
Ríkisstjórn Gunnars Thorodds-
ens hefði aldrei verið mynduð án
stuðnings þeirra Friðjóns Þórðar-
sonar og Pálma Jónssonar frá
Akri. Hann réð úrslitum.
xxx
JÓN Ásbjörnsson, sem er einn
af helztu saltfiskútflytjendum
landsins en jafnframt eigandi að
litlum fiskibát, upplýsti í sjón-
varpsviðtali um helgina, að hann
hefði fengið borgaða „dúsu“, þegar
línutvöföldun var afnumin. Þá
hefði kvóti báts hans verið aukinn
sem nam að verðmæti um 60 millj-
ónum króna og svo hefði verið um
aðra, sem höfðu stundað línuveið-
ar. Frystitogarar hafi síðan verið
að kaupa þessar veiðiheimildir upp
hér og þar.
Kvótakerfið tekur óneitanlega á
sig margvíslegar myndir.