Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 13.05.1997, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen. Á morgun mið. 14/5, síðasta sýning. KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Williams Fim. 15/5 — fim. 29/5. Sýningum fer fækkandi. FIÐLARINN Á ÞAKINU eftir Bock/Stein/Harnick 10. sýn. fös. 16/5 uppselt — mán. 19/5 (annar í hvítasunnu) uppselt — fös. 30/5 uppselt — lau. 31/5 uppselt — sun. 1/6 örfá sæti laus — mið 4/6 nokkur sæti laus — fös. 6/6 nokkur sæti laus — lau. 7/6 nokkur sæti laus — fös. 13/6 — lau. 14/6. Tunglskinseyjuhópurinn f samvinnu við Þjóðleikhúsið Óperan TUNGLSKINSEYJAN eftir Atla Heimi Sveinsson. Frumsýning mið. 21/5 — 2. sýn. fös. 23/5 — 3. sýn. lau. 24/5. Litla sviðið kl. 20.30: LISTAVERKIÐ eftir Yazmina Reza Fös. 16/5, uppselt — mán. 19/5, uppselt — sun. 25/5, uppselt — fös. 30/5 upselt — lau. 31/5 uppselt — sun. 1/6 — fös. 6/6 nokkur sæti laus — lau. 7/6 — fös. 13/6 — lau. 14/6. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13.00 - 18.00, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13.00 - 20.00 og til kl. 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti simapöntunum frá kl. 10.00 virka daga. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR, 100 ÁRA AFMÆLI MUNIÐ LEIKHÚSÞRENNUNA GLÆSILEG AFMÆLISTILBOÐ! KRÓKAR OG KIMAR Ævintýraferö um leikhúsgeymsluna. Opiö kl. 13-18 alla daga og til kl. 22 sýningardaga Stóra svið kl. 20.00: DÓMÍNÓ eftir Jökul Jakobsson. fös. 16/5, fös. 23/5, lau 31/5. Allra síðustu sýningar. Litla svið kl. 20.00: SVANURINN ÆVINTÝRALEG ÁSTARSAGA eftir Elizabeth Egloff. fim. 15/5, síðasta sýning, örfá sæti laus, fös. 16/5 kl. 23.00, aukasýning ALLRA SÍÐASTU SÝNINGAR. KONUR SKELFA TOILET-DRAMA eftir Hlín Agnarsdóttur. fös. 23/5, aukasýning, lau. 24/5, aukasýn- ing. ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR. Leynibarinn kl. 20.30 BARPAR eftir Jim Cartwright. fös. 16/5, aukasýning, örfá sæti laus. Miöasalan er opin daglega frá kl. 13.00 til 18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Auk þess er tekið á móti símapöntunum alla virka daga frá kl. 10.00 -12.00 GJAFAKORT FÉLAGSINS - VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI BORGARLEIKHÚSIÐ Sími 568 8000 Fax 568 0383 ÁFRAM LATIBÆR sun. 25. maí kl. 14, örfá sæti laus Síðustu sýningar MIÐASALA IÖLLUM HRAÐBÖNKUM ÍSLANDSBANKA ÁSAMATÍMAAÐÁRI lau. 17. maí kl. 20, örfá sæti laus lau. 24. maí kl. 20. SKARI SKRÍPÓ fós. 16. maí kl. 20. Aukasýning._ Loftkastaiinn, Seljavegi 2. Miðasala í sima 552 3000, fax 562 6775. Miðasalan er opin frá kl. 10-19. Hermóður & Háðvör og Nemendaleikhúeið eýna GLEPILEIKUR EFTIR ÁRNA IB5EN Forsýning mán. og þri. Frumsýning mið 14/5 uppselt 2. sýn. fös. 16/5 uppselt. MIDASALA í SÍMA 555 0553 Leikhúsmateeðill: A. HANSEN — basði -fyrir og eftir — HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ HERMpÐUR OG HAÐVÖR A 11 r a s í ð a s t u s ý n i n g a r ! SVANURINN María Ellingsen Björn Ingi Hilmarson Ingvar Sigurðsson í BORGARLEIKHÚSI Fim. 15/5 kl. 20, síðasta sýn. örfá sæti laus. Fös. 16/5 kl. 23. aukasýning, allra síðasta sýning. - kjarni málvins! SYSTKININ Rebekka og Frederik. Þeim fannst frábært hér. Rebekka: „Mér finnst mjög fallegt hér og mjög gaman og strák- arnir eru mjög sætir. Skemmtilegast fannst mér að sigla í kring- um Vestmannaeyjar en þá urðu sumir aðrir sjóveikir. Mér fannst líka frábært að fá að vera inná heimili hjá íslendingum, þá kynnist maður lífinu og fólkinu betur.“ FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir ALLUR hópurinn samankominn í Þorsteinslundi, bæði íslensku og sænsku krakkamir. Þar var farið í leiki og snætt nesti. Sænskir krakkar hrífast af Islandi STEFANÍA, Christina og Einar Grétar, íslend- ingarnir sem sáu um móttökurnar hér ásamt sænska fararstjóranum Lennart. 26 NEMENDUR í 6. og 7. bekk í grunnskólanum í Danike í Svíþjóð dvöldu um vikutíma hjá jafnöldrum sínum á Hvolsvelli fyrir skemmstu og ferðuðust um Suðurland. Síðast- liðið haust barst Hvolsskóla bréf frá sænska skólanum þar sem farið var fram á að þau mættu eignast ís- lenska pennavini sem þau gætu síð- an heimsótt. Vel var tekið í ósk Svíanna og um leið ákveðið að að ári gætu íslensku krakkarnir endur- goldið heimsóknina. Flestir sænsku krakkanna gistu hjá pennavinum sínum hér og því fengu þeir tæki- færi til að kynnast íslenskum fjöl- skyldum um leið og landinu. Með í för voru 6 fullorðnir, bæði kennarar og foreldrar. Ferðuðust vítt og breitt um Suðurland Einar Magnússon, umsjónarkenn- ari 6. bekkjar í Hvolsskóla, sagði að heimsókn sænsku krakkanna hefði tekist frábærlega. Allt hefði gengið að óskum, meira að segja veðrið. Hann átti ásamt þeim Stefan- íu Stefánsdóttir og Christínu Bengt- son, allan veg og vanda að móttöku Svíanna hér. Að sögn Einars ferðuð- ust þau vítt og breitt um Suðurland, fóru í uppsveitir Árnessýslu og skoð- uðu Gullfoss og Geysi, þá var farið til Vestmannaeyja, að Skógum, í Fljótshlíðina þar sem þau fengu að taka þátt í skemmtun í tilefni sumar- dagsins fyrsta og að auki skoðuðu þau fyrirtæki á Hvolsvelli. Svíarnir höfðu það á orði að þau hefðu séð jafnmikið á einni viku og venjulegir túristar á þremur vikum. „Við byijuðum í haust að safna fyrir Svíþjóðarferðinni sem fara á í að ári og nú eru krakkarnir heldur betur orðnir spenntir og verða áreið- anlega enn duglegri að safna þegar þeir hafa fengið að kynnast sænsku krökkunum." Gaman að fá að túlka Christína er sænsk og hefur búið í Fljótshlíðinni í 16 ár. Hún túlkaði fyrir ferðalangana. Taldi hún að móttökurnar hefðu heppnast mjög vel. Hún sagði að fyrir sig hefði það verið mikil upplifun að fá að sýna löndum sínum íandið sem henni þyk- ir svo vænt um. „Ég fylltist stolti því við eigum svo mikið til að sýna; bæði menningu og landslag. Danike er 800 manna bær skammt frá Gautaborg. Þar lif- ir fólk á skógarhöggi og trjárækt en á þessu svæði eru mestu skógarn- ir í Svíþjóð. Sænsku krakkarnir voru mest hissa á því hvað hægt er að sjá langt hér á landi, hvorki mengun né tré sem hindra útsýnið. Einnig fannst þeim landið ótrúlega hreint en voru hissa á því hvað lóðirnar í kringum húsin eru litlar miðað við viðáttuna í kring. Þá kom þeim einn- ig á óvart að ekki reyndist auðvelt að kaupa minjagripi hér um slóðir.“ Cristína sagði einnig að sér hefði þótt mjög gaman að fá tækifæri til að vera túlkur, þetta hefði verið erf- ið vika en mjög skemmtileg. Ótrúlegar móttökur Lennart Larsson kennari var far- arstjóri Svíanna. Aðspurður sagði hann að það hefði tekið þijú ár að undirbúa ferðalagið til íslands. Þau hefðu notið stuðnings fyrirtækja í Danike og velvilja bæjarins en fjár- magnað ferðina með ýmsu móti, s.s. markaði og dreift bakkelsi fyrir bak- ara og fleira. „Þetta er stórviðburður í Danike, að börn fái tækifæri til að ferðast til útlanda á vegum skólans. Þetta er mjög sjaldgæft í Svíþjóð en ég var búinn að ganga með hugmynd- ina lengi og sá að þessir bekkir væru vel til_ þess fallnir að fara í þessa ferð. Ástæðan fyrir því að við völdum ísland var sú að ég hafði komið hingað áður og séð að það væri tiltölulega auðvelt að koma hingað með hóp og gott að skipu- leggja ferð hingað." Þegar Lennart fór að undirbúa ferðina hafði hann samband við ferðaskrifstofu sem hringdi í Menntamálaráðuneytið hér. „Þeir bentu á þijá bæi á Suðurlandi. í fyrstu bárust engin svör en loks kom jákvætt svar frá Hvolsskóla og þeir reyndust tilbúnir að taka á móti okkur. Það var einnig heppilegt því bæjarfélögin eru álíka stór og því eigum við ýmislegt sameiginlegt. Móttökurnar hér hafa verið stórkost- legar og okkur hefur líkað mjög vel. Við erum eiginlega alveg undr- andi á þessum jákvæðu móttökum. Krökkunum finnst þau vera eins og heima hjá sér og þeir hafa verið duglegir að tala saman. Ég held að við höfum fengið miklu meira út úr þessu en við áttum von á. En það gerði líka gæfumuninn að hafa sænskan túlk.“ Lennart kvað þetta hafa mikið gildi fyrir nemendurna, gagnvart náminu. Það væri aldrei hægt að upplifa á þennan hátt með því að lesa bækur. Þau væru hugfangin af öllu því sem þau hefðu fengið að sjá og Þórður í minjasafninu á Skógum væri eftirminnilegur. „Hann söng og spilaði og talaði við okkur á sænsku og sýndi okkur þetta merki- lega safn.“ Töluðu saman á ensku Krakkarnir voru á einu máli um að þetta hefði verið skemmtileg upp- lifun. Það væri svo gaman að fá tækifæri til að kynnast krökkum frá öðrum löndum. Aðalsamskipta- tungumálið var enska en sænsku krakkarnir hafa lært ensku frá 9 ára aldri og voru mörg hver mjög sleip í henni. Danskan okkar íslend- inganna reyndist þeim hinsvegar ill- skiljanleg. Þau sem gistu á heimilum voru mjög hrifin og fannst gaman að fá tækifæri til að koma inná heim- ili í útlöndum. í SKÓLASTOFUNNI á kvöldin. Sænsku og íslensku krakkarnir léku sér saman á kvöldin, kepptu í íþróttum og fóru á diskótek í félagsmiðstöðinni. Þessir krakkar voru að undirbúa ferð á diskótekið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.