Morgunblaðið - 13.05.1997, Qupperneq 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
IB^l
1 DIGITAL
LAUGAVEGI 94
Frábær rómantísk gamanmynd sem segir sex.
Aðalhlutverk: Hinn bráðfyndni Matthew Perry („úr "
Friends“ þáttunum) og hin föngulega Salma Hayek
(,,Desperado“).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
Sýnd kl. 4.50, 6.55,
9 Og 11. B.i. 14 ára
Morgunblaðið/Halldór
Pólitísk soðgrýla
TÓNOST
Laugardalshöll
SKUNK ANANSIE
Tónleikar bresku h(j óms veitarinnar Skunk An-
ansie í Laugardalshöll. Einnig komu fram hljóm-
sveitirnar Soðin fiðla, Unun og Botnleðja. Áhorf-
endur voru nærfellt sex þúsund á tónleikunum
sem fram fóru sl. laugardag 10. maí.
BRESKA rokksveitin Skunk Anansie er um
margt merkileg og þá ekki síst fyrir það hvem-
ig hún sameinar baráttu fyrir sósíalískri lífs-
sýn og sjálfsþurftarbúskap og sókn eftir vindi,
þ.e. frægð og frama. Söngkona sveitarinnar,
sem kallar sig Skin, er orðhvöss og yfírlýs-
ingaglöð og gerir sér far um að hneyksla og
hrekkja, en syngur svo angurværa söngva um
ási og afbrýði þess á miili. Hún er og bráðgóð
söngkona og þeir sem svo heppnir voru að
hreppa miða á tónleikana komust snemma að
því að hún er lífleg sviðskona; lék á als oddi
og fór stórum á sviðinu.
Tónlist Skunk Anansie er ekki byltingar-
kennd, reyndar ekki ýkja merkileg en góð til
síns brúks, ekki síst í jafn líflegum flutningi
og hjá Skin og félögum, og gaf nýja sýn á
sveitina að sjá hversu söngkonan skemmti sér
við flutninginn, sum laganna urðu að gaman-
vísum frekar en baráttusöngvum, en ekki
leyndi sér pólitískt inntak.
íslensku sveitirnar stóðu sig með prýði,
Unun með skemmtilega losaralegri spila-
mennsku og Botnleðja með látunum; tími tii
kominn að sveitin haldi tónleika í Höllinni ein
síns liðs. Þó Botnleðja hafi hitað mannskapinn
vel upp var skipt um gír þegar aðalnúmerið
kom á svið, Skin orgaði af íþrótt: „Yes It’s
Fucking Political“ og grúinn söng með sem
mest hann mátti; því líkast að verða undir
vörubíl hlöðnum flattri keilu í Njarðvíkurskrið-
um. Hljómur var aftur á móti ekki góður,
móskulegur á köflum og í stað fjölþætts
hljómaáhlaups kom torkennileg soðgrýla þegar
mest gekk á.
Áheyrendur kunnu vel að meta framlag
Skin og félaga, að minnsta kosti framan af,
og sefjunin náði hámarki þegar Twisted kom
í mikilli hasarútsetningu. „She’s My Heroine“
var aftur á móti ekki eins vel kynnt, því þá
datt stemmningin niður og hitnaði ekki í höll-
inni aftur fyrr en kom út í „Hedonism" undir
lokin í fyrri hluta. Ekki var þó annað að merkja
en áheyrendur, obbinn stúlkur á fermingar-
aldri, kynnu hvert lag og skemmtu sér, hið
besta.
Árni Matthíasson
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
hdddigualC
frry Hynt
m, æ®; ) __ m, ■ ___ m, m>'-: '
A4MBIOIM A4MB1Q8M; A4MB1Q1M
NETFANG: http://www.sambioin.com/
□□Dolby
DIGITAL
DIGITAL
FRUMSYNUM AÐSOKNARMESTU MYNDINA I
al LONDON í DAG johnny
PACINO EIN BESTA si
GERÐ HEFUR VERIÐ!
NBCTV
MOGNUÐ!
NEWSWEEK
KRAFTMIKIL...
HEILLANDI!
Entertainment Weekly
taaeseamm
AL PACINO ER OHGUNANLEGA
GÓÐUR!!
People Magacine
FRABÆR MYND
Rolling Stone
STÖRKOSTLEG MYND ... EIN
BESTA FRAMMISTAÐA AL
PACINO!
Good Morning America
EIN ALLRA BESTA
MAFIUMYND SEM GERÐ
HEFUR VERIÐ!!
LA Weekly
Frá leikstjóra Four Weddings and a Funeral, Mike Newill og Barry Levinson (Rain IVIan, Good
IVlorning Vietnam) kemur mögnuð sönn saga meö óskarsverðlaunahafanum Al Pacino (Heat,
Scarface, Scent of a Woman) og Johnny Depp (Ed Wood, Don Juan De Wlarco) í aöalhlutverkum.
Joe Pistone tókst aö komast inn í raðir mafíunnar og starfa þar huldu höfði í þrjú ár sem Donnie
Brasco.. Ein af bestu myndum ársins!
Al Pacino hefur ekki veriö svona góöur síðan í Scarface....
LESIÐ I SNJOINN
★★★ ★★l
A,Þ Þagsljos . Dv
nSMILLA'S
Senseof
Mosimann á Grillinu
►SEAN Flanagan, matreiðslumaður hjá
hinum þekkta veitingastað Mosimann’s í
London, hóf sl. miðvikudag störf sem
gestakokkur á Grillinu á Hótel Sögu og
verður þar fram á þriðjudaginn 13. maí.
Þessa viku hefur matseðill veitinga-
staðar Mosimann í gildi í Grillinu og
gefst gestum því kostur á að kynnast
þeirri matargerð er gert hefur Mosimann
að einum þekktasta veitingamanni Bret-
lands.
Anton Mosimann er að margra mati
einn fremsti matreiðslumeistari okkar
tíma og tók hann fyrir tuttugu árum við
stöðu yfirmatreiðslumeistara Dorchest-
er-hótelsins í London. Hlaut veitingastað-
ur hótelsins þá viðurkenningu að fá tvær
Michelin-stjörnur undir hans stjórn. Und-
anfarin ár hefur Mosimann rekið veit-
ingastað undir eigin nafni í Belgravia í
London. Staðurinn er rekinn sem klúbbur
og þarf að greiða hundruð þúsunda í
ársgjald einungis til að eiga þess kost
að snæða á staðnum.
Stefnan sem Mosimann hefur skapað
í gegnum árin hefur hlotið nafnið
„Cuisine Naturelle“ eða náttúruleg
eldamennska og er þar vísað til þess að
hún byggir á einfaldleika, ferskleika
og áherslu á náttúrulegt jafnvægi allra
þátta, s.s. bragðs, litar og áferð. Á
Morgunblaðið/Ásdls
RAGNAR Wessmann, yfirmatreiðslu-
meistari Grillsins og Sean Flanagan frá
Mosimann með matseðil frá Mosimann.
undanförnum árum hefur hann jafn-
fram sótt sífellt meira til Asíu í leit að
áhrifum.