Morgunblaðið - 13.05.1997, Síða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
á atvinnu-, rað- og smáauglýsingum
sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu
Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem
eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila íyrir kl. 12 á föstudögum.
MYNDBÖND
Herinn og góða
ímyndin
Auglýsingadeild
Sími 569 11 11 * Símbréf 569 11 10 « Netfang: augl@mbl.is
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið efndu til
samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum 1995 og 1996.
í anddyri Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, hefur verið komið upp sýningu
á þeim myndum sem dómnefnd taldi bestar.
Myndefnið er fjölbreytt og gefst því kostur á að sjá brot af viðfangsefnum
fréttaritara Morgunblaðsins sem eru um 100 talsins og gegna mikilvægu
hlutverki í fréttaöflun blaðsins á landsbyggðinni.
Sýningin stendur til fimmtudagsins 22. maí og er opin á afgreiðslutíma
blaðsins kl. 8-18 alla virka daga og laugardaga kl. 8-12.
Myndirnar á sýningunni eru til sölu.
Hetjudáð
(Courage UnderFire)
Stríðsmynd
★ ★
Framleiðandi: Davies Ent./Joseph
M. Singer. Leikstjóri: Edward
Zwick. Handritshöfundur: Patrick
Sheane Duncan. Kvikmyndataka:
Roger Deakins. Tónlist: James
Homer. Aðalhlutverk: Denzel
Washington, Meg Ryan, Lou Dia-
mond Phillips og Michael Moriarty.
112 mín. Bandaríkin. 20th Cent.
Fox Home Ent./Skífan 1997. Mynd-
in er bönnuð börnum innan 16 ára.
UNDIROFURSTINN Serling
(Washington) skýtur óvart einn
af eigin skriðdrekum niður í
Persaflóastríðinu. Herinn þaggar
atvikið niður, og
felur Serling að
rannsaka dauða
flugstjóra sem
er um það bil
að verða fyrsta
konan til að
hljóta æðstu
heiðursmerki
Bandaríkjahers.
Mönnum henn-
ar ber ekki saman um þau atvik
sem leiddu til dauða hennar, og
tilraunir Serlings til að komast
að hinu sanna ýfa upp gömul sár.
Myndin fjaliar um Bandaríkjaher
og þá góðu ímynd sem hann er
alltaf að reyna að halda í undir
fölsku flaggi. Hún fjallar um þær
hetjudáðir sem hermennirnir
fremja, sem er einfaldlega það að
vera í því helvíti á jörðu sem styrj-
öld er, og þurfa að taka enda-
lausar áhættur og ákvarðanir upp
á líf og dauða. Undir slíku álagi
gerir fólk skyssur, en er þó hetj-
ur. Bandaríkjaher vill ekki gefa
orður fyrir það, heldur þarf alltaf
að falsa sögur og atburði, breiða
yfir allt, og veita orður fyrir eitt-
hvað sem aðilinn hefur ekki gert.
Allir sem hafa verið í hernum vita
að þessu er þannig farið. Hetjudáð
er afskaplega faglega og vel gerð
mynd á allan hátt. Hún er þó ekk-
ert sérstaklega skemmtileg, og
snerti mig engan veginn. Bæði
hef ég getað ímyndað mér að
þessu sé svona farið, auk þess hef
ég engan áhuga á málum Banda-
ríkjahers yfir höfuð. Því gæti þó
verið öðruvísi farið með aðra
áhorfendur. Denzel Washington
er mjög fínn leikari, og það sann-
ar hann hér aftur. Meg Ryan er
ágæt leikkona, en ég held að hún
ætti að halda sig við grínmyndirn-
ar þar sem hún er frábær. Hún
tók sig ekki nógu vel út í þessu
hlutverki. Til að vera stríðshetju-
leg öskraði hún á lágu nótunum,
en það virkaði alis ekki. Regina
Taylor sem leikur eiginkonu Serl-
ings, var alls ekki skemmtilegur
karakter, en karlarnir stóðu sig
allir vel. Engin stór sannindi af-
hjúpuð, en snyrtilegt í alla staði.
Hildur Loftsdóttir.
MYNDBÖIMD SÍÐUSTU VIKU
Keðjuverkun (Chain Reaction)k ★ Varðeldasögur (Campfire Tales)k k
Beint í mark (Dead Ahead)-k k Vörðurinn (The Keeper)k
Jarðarförin (The Funeral)-k k Verndarenglarnir (Les Anges Gardiensk
Fræknar stúlkur í fjársjóðsleit (Goid Diggers: The Secret of Bear Mountain)'k'kt/2 Reykur (Smoke)k k k 'h Eyðimerkurtunglsýki (Mojave Moon)k k Vi
Sú fyrrverandi (The Ex) k Marco Polo (Marco Polo)k k
Lokaráð (Last Resort)'/2 T ækif ærishel víti (An OccasionalHell)k k