Morgunblaðið - 13.05.1997, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 13'. MAÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Handtekinn með
4 kíló af hassi
Tillögur um þróunaraðstoð Islands
Framlag hækki
íO,15%afVÞF
MAÐUR á sextugsaldri var hand-
tekinn á Keflavíkurflugvelli seinasta
föstudag með um fjögur kíló af
kannabisefnum í fórum sínum. Mað-
urinn er erlend-
ur ríkisborgari
er og er talið
fullvíst að hann
hafi verið svo-
kallað burðar-
dýr.
Maðurinn var
úrskurðaður í
gæsluvarðhald
á laugardag til
26. maí næst-
komandi.
Þefvís
leitarhundur
Maðurinn var
að koma flugleiðis frá Kaupmanna-
höfn um hádegi á föstudag þegar
leitarhundur í eigu lögreglumanns
á Keflavíkurflugvelli sýndi farangri
hans sérstakan áhuga. í kjölfarið
var ákveðið að taka manninn til
frekari athugunar og við leit fund-
ust rúm fjögur kíló af kannabisefni
NETARALL Hafrannsóknastofn-
unar fór fram í annað sinn í síðasta
mánuði. Þá fara fram mælingar á
hrygningarstofni þorsks og var afli
báta sem tóku þátt i rallinu í ár um
20% meiri en rallinu í fyrra.
Netarallið fór fram dagana 8.-18.
•—-4ipríl sl. en veður tafði mælingar
Lífeyrissjóða-
frumvarpið
Agrein-
ingxir og
afgreiðslu
frestað
^ FRUMVARP ríkisstjómarinn-
ar um skyldutryggingu lífeyr-
isréttinda og starfsemi lífeyr-
issjóða var afgreitt úr efna-
hags- og viðskiptanefnd Al-
þingis í gær með fímm atkvæð-
um meirihlutans gegn fjórum
atkvæðum. Ákveðið hefur ver-
ið að fresta afgreiðslu frum-
varpsins til hausts.
Tveir stjórnarþingmenn
gera fyrirvara um frumvarpið,
þeir Einar Oddur Kristjánsson
og Pétur Blöndal. Skipuð verð-
ur nefnd, m.a. fulltrúum ASÍ
og VSÍ, til að fara yfir málið
í sumar. Fulltrúar þeirra segj-
ast sammála því að fresta af-
greiðslu frumvarpsins, segja
afstöðu hreyfinga sinna ljósa
og hafna tillögum meirihluta
efnahags- og viðskiptanefnd-
ar.
■ Afgreiðslu frestað/6
límd á líkama mannsins. Þefvísi
hundsins er þakkað að fíkniefnin
fundust.
„Við höfum ákveðnar grunsemd-
ir um hverjir
stóðu að þessum
innflutningi
hérlendis og
málið er í rann-
sókn,“ segir
Einar Karl
Kristjánsson,
starfandi full-
trúi hjá fíkni-
efnadeild lög-
reglunnar.
Seinast í des-
ember fundust
um tíu kíló af
kannabisefnum
í fórum hol-
lensks pars sem handtekið var á
Keflavíkurflugvelli, en einungis hef-
ur verið lagt hald á lítilræði af fíkni-
efnum þar síðan þá. Áætlað sölu-
andvirði þessa fengs sem lagt var
hald á á föstudag á fíkniefnamark-
aði hérlendis er talið nema á milli
4,5 og 6 milljóna króna.
nokkuð fyrstu dagana. Fimm bátar
tóku þátt í rallinu og voru lögð net
á þekktum hrygningarsvæðum frá
Breiðafirði og austur undir Homa-
fjörð. Vilhjálmur Þorsteinsson, fiski-
fræðingur, sem var verkefnisstjóri
netarallsins, segir að ekki liggi enn
fyrir endanlegur heildarafli en líklega
sé hann á bilinu 670-680 tonn. í
fyrra veiddust 550 tonn í rallinu og
er aukningin því um 20% á milli ára.
Mokveiði á Selvogsbanka
Vilhjálmur segir að einkum hafl
orðið vart við mun meiri afla á Sel-
vogsbanka, þar hafí verið mokveiði
og fengist allt upp í 1.700 fískar í
trossu. „Þeir árgangar sem voru
mest áberandi í fyrra voru það sömu-
leiðis nú, reyndar árinu eldri. Hins-
vegar hefur aldursgreining ekki enn
farið fram og því erfítt að fullyrða
nokkuð um það. Það er ljóst að það
er töluvert að koma inn af yngri
fiski,“ segir Vilhjálmur.
TILLAGA um skipulag miðhálend-
isins til ársins 2015 er í lokavinnslu.
Er stefnt að því að auglýsa tillöguna
síðar í mánuðinum og afgreiða hana
í árslok.
Svæðisskipulagsnefnd miðhálend-
isins lagði síðustu hönd á skipulags-
tillöguna á fundi í vikunni. Að sögn
Snæbjörns Jónassonar, formanns
nefndarinnar, verður á miðvikudag
óskað heimildar Skipulags ríkisins
til að auglýsa tillöguna opinberlega
og fáist sú heimild sé stefnt að kynn-
ingu í lok næstu viku. Tillagan muni
þá liggja frammi víðs vegar um land-
ið þannig að hægt sé að gera við
Eldur á
reyklausum
degi
UM 15 þúsund manns sóttu
hátíð Tóbaksvarnanefndar í
Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um í Laugardal á sunnudag,
en þá var reyklausi dagurinn.
Mannfjöldinn tók þátt í ýmsum
leikjum og margir horfðu agn-
dofa á eldgleypinn leika listir
sínar.
Að sögn Þorgríms Þráins-
sonar framkvæmdastjóra Tób-
aksvarnanefndar tókst
skemmtunin afar vel. Sagði
hann að yfirleitt hefði reyk-
lausi dagurinn verið haldinn á
virkum dögum, en nú hefði
verið ákveðið að bjóða til fjöl-
skylduskemmtunar um helgi.
hana athugasemdir. Yfir þær verði
síðan farið og sé stefnt að lokaaf-
greiðslu í lok ársins.
Friðun og nýting
Skipulaginu er ætlað að koma
böndum á framkvæmdir og umferð á
miðhálendinu. Var svæðisnefndin
skipuð árið 1993 og sitja þar fulltrúar
þeirra sýslna sem liggja að mið-
hálendinu. Snæbjöm sagði hins vegar
aðspurður að menn hefðu rétt til að
gera athugasemdir við skipulagstillög-
una, hvar á landinu sem þeir byggju.
Snæbjörn sagði að tillagan snerist
um hvaða svæði miðhálendisins ætti
JÓNAS H. Haralz, fyrrverandi
bankastjóri og fulltrúi Norðurlanda
í stjórn Alþjóðabankans, leggur til
í nýrri skýrslu um þróunarsamvinnu
íslands að framlög íslands til þróun-
armála verði hækkuð úr um 0,1%
af vergri þjóðarframleiðslu (VÞF) í
0,15% á næstu fímm árum. Hilmar
Þ. Hilmarsson, formaður stjómar
Þróunarsamvinnustofnunar Islands
(ÞSSI), segir að stjórnin hafi skilað
utanríkisráðherra tillögum, þar sem
tekið sé undir með Jónasi.
í skýrslunni, sem unnin er fyrir
utanríkisráðuneytið og ÞSSÍ, kemur
að friða, veija eða vernda og hvar
ætti að heimila mannvirkjagerð og
aðra nýtingu, einkum í tengslum við
ferðamannaiðnað og orkuiðnað.
Landslagsarkitektastofan Land-
mótun hefur haft umsjón með verkinu
og unnið að tillögunni, sem byggist
á þeirri grunnhugmynd að skipta
miðhálendinu upp í stórar samfelldar
landslagsheildir og belti. Miðað er við
að öll meiriháttar mannvirkjagerð á
hálendinu verði á afmörkuðum beltum
yflr Kjöl og Sprengisand, en síðan
verði myndaðar stórar og samfelldar
verndarheildir sem spanni stærstu
ósnertu víðemi landsins.
fram að Alþingi hafi árið 1971 sett
í lög að framlag íslands til þróunar-
mála skyldi nema 0,7% af þjóðar-
framleiðslu. Það markmið hafi verið
ítrekað með þingsályktun árið
1985. Framlag Islands til þróunar-
mála nemi hins vegar ekki nema
0,1% í ár, en sé um 0,4% að meðal-
tali í iðnvæddum ríkjum.
Jónas segir að hækkun framlags-
ins í 0,15% af VÞF sé því ekki
æskilegt markmið heldur markmið,
sem geti verið raunhæft.
■ Framlag íslands/11
Flak Æsu í Arnarfirði
Kafað fjór-
um sinnum
til viðbótar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að kafa fjór-
um sinnum til viðbótar niður að flaki
kúfiskskipsins Æsu á botni Amar-
íjarðar. I gær var kafað í tíunda
sinn, en ákveðið að bæta við tveimur
köfunum í dag og tveimur á morg-
un, til að rannsaka flakið betur.
Búið er að koma vírum á skelplóg
Æsu og verður hann að líkindum
hífður upp á morgun, en þó gæti svo
farið að hann næðist upp í dag. Plóg-
urinn verður vigtaður og mældur, til
að komast að því hvort hann gæti
hafa átt þátt í að skipinu hvolfdi.
Lík skipstjórans, Harðar Sævars
Bjamasonar, fannst um borð í Æsu
á föstudag og var flutt til Reykjavík-
ur á sunnudag. Kafarar hafa ekki
fundið lík Sverris Halldórs Sigurðs-
sonar, en Kristinn Ingólfsson, verk-
efnisstjóri við köfunina og fulltrúi
Siglingastofnunar íslands, sagði að
við rannsakanir kafara í fyrirhugð-
um fjórum köfunum þrengdist hring-
urinn við leitina. Hann kvaðst ekki
geta svarað því hvort enn yrði bætt
við ferðum kafara niður að flakinu,
fyndist líkið ekki í þessum viðbótar-
ferðum.
■ Skelplógur/4
-----♦ ♦■■■♦--
Smáskjálft-
ar í Oxar-
firði
JARÐSKJÁLFTAHRINUR mældust
í Öxarfirði öðru hveiju í gær og
fyrradag. Aðeins er þó um að ræða
smáskjálfta, að sögn Ragnars Stef-
ánssonar, jarðeðlisfræðings á Veður-
stofu Islands.
Stærstu kippirnir hafa mælst rúm-
lega 2 stig á Richter og eiga þeir
upptök sín úti á miðjum Öxarfírði.
Ragnar segir hins vegar orðið
frekar rólegt á Hengilssvæðinu, þar
hafí aðeins mælst 20-30 smáskjálft-
ar á dag að undanförnu en þegar
mest var fóru skjálftarnir upp í 1.200
á dag. Þó að farið sé að hægjast um
í Henglinum telur Ragnar þó ekki
hægt að segja að hrinan sé alveg
dottin niður.
Morgunblaðið/Golli
VIÐ leit fundust rúm fjögur
kíló af kannabisefni límd
á iikama mannsins.
Mikil aflaaukning í netarallinu
Um 20% aukning
frá síðasta ralli
Morgunblaðið/Þorkell
Tillaga að skipulagi mið-
hálendis kynnt bráðlega