Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 10
10 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
íslensk kona þingmadur í Svíþjóð
I vinnunni allan
sólarhringinn
ANNAR tveggja þing-
manna Gotlendinga í
sænska þinginu er ís-
lensk kona frá Stykkis-
hólmi, Ingibjörg Sig-
urðardóttir. Frá árinu
1977 hefur hún einnig
setið í fjölflokka sveit-
arstjóm Gotlands og
var hún fyrsta konan
til að fá sæti í sjö manna
yfirstjórn eyjarinnar,
eins konar bæjarráði.
Ingibjörg tók sæti í
sænska þinginu í októ-
ber 1994 en þá hafði
hún skipað þriðja sæti
lista jafnaðarmanna í
tíu ár. í þingkosningun-
um í september það sama ár hrepptu
jafnaðarmenn bæði þingsæti Got-
lendinga og var Ingibjörg þar með
orðin varaþingmaður. Þegar annar
þingmannanna, Klas Göran Larson,
fórst með farþegafetjunni Estoniu í
lok september, tók Ingibjörg sæti
hans á þinginu.
„Það var svolítið skrýtið, en svona
er nú lífið. Það heldur áfram,“ sagði
Ingibjörg í samtali við Morgunblaðið
í liðinni viku, þegar hún var stödd
hér á landi í stuttri heimsókn. Til-
efni heimsóknarinnar var stúdents-
útskrift systurdóttur hennar og átt-
ræðisafmæli móður hennar.
Fólk áttar sig ekki á að fulltrúi
Gotlands er íslendingur
„Fólk áttar_ sig greinilega ekki á
því að ég er íslendingur. I sænska
þinginu er ég fulltrúi Gotlands og
það er eins og fæstir þar hugsi út
í það að ég sé útlendingur. Það hef-
ur t.d. komið hópur frá Alþingi í
heimsókn í þingið og ég var ekki
einu sinni látin vita,“ segir hún.
Ingibjörg giftist árið 1960 Rune
Söderholm bifvélavirkja og flutti
með honum til Gotlands. Hún fór
út að skoða heiminn 17 ára, árið
1958, bjó í Finnlandi í eitt ár og
annað á meginlandi Svíþjóðar, áður
en leiðin lá til Gotlands, perlunnar
í Eystrasalti, eins og eyjan er mark-
aðssett í ferðamannabæklingunum.
Þau hjónin eiga tvær uppkomnar
dætur og tvö barnaböm.
Ingibjörg er menntuð fóstra en
nú tekur pólitíkin hug hennar allan.
Hún hafði ekki skipt sér af stjórn-
málum heima á íslandi, en þegar
hún kynntist eigin-
manni sínum tengdist
hún að eigin sögn mik-
illi kratafjölskyldu.
Hún fór að starfa með
ungliðahreyfingu
flokksins og varð
seinna virk í verkalýðs-
félagi sínu. Þannig
leiddi eitt af öðru, hún
komst inn í sveitar-
stjóm og situr nú jafn-
framt á þingi.
„Maður er á þingi
fyrir landið allt en Got-
lendingar vilja helst að
sínir þingmenn vinni
bara fyrir Gotland.
Meðal þess helsta sem
við emm að berjast fyrir er að ná
niður verðinu á flutningum milli
meginlands Svíþjóðar og Gotlands,
bæði fyrir fólk og afurðir. Um 75%
af gulrótauppskerunni í Svíþjóð
koma t.d. frá Gotlandi og það má
ekki vera dýrara að rækta gulrætur
á Gotlandi bara vegna þess að það
er dýrara að flytja þær þaðan en
t.d. frá Gautaborg til Stokkhólms.
Þá emm við einnig að beijast fyrir
fleiri atvinnutækifærum, þau eru
núna helst í ferðaþjónustu. Auk þess
blómstra nú fyrirtæki í hugbúnaðar-
gerð og upplýsingatækni, því það
er jú nokkuð sama hvar þau eru í
sveit sett þegar við höfum upplýs-
ingahraðbrautina."
Býr í vinnuherberginu í
Stokkhólmi virka daga
Starfi Ingibjargar fylgja mikil
ferðalög. Yfirleitt situr hún fundi
sveitarstjórnar heima á Gotlandi á
mánudögum og flýgur svo til Stokk-
hólms á mánudagskvöldum og heim
aftur á föstudögum. í Stokkhólmi
býr hún, eins og svo margir sænskir
landsbyggðarþingmenn, í vinnuher-
bergi sínu í þinginu. I herberginu,
sem ekki er of stórt, hefur hún að-
eins það allra nauðsynlegasta; stórt
skrifborð, stól og rúm, sjónvarp,
tölvu og lítið baðherbergi. Þannig
að segja má að hún sé í vinnunni
allan sólarhringinn.
„Það fyrsta sem ég sé á morgn-
ana þegar ég vakna er það sem teng-
ist vinnunni; tölvan og pappírsstafl-
arnir á skrifborðinu, og það er líka
það síðasta sem ég sé þegar ég fer
að sofa á kvöldin," segir Ingibjörg.
Ingibjörg
Sigurðardóttir.
Nýjar á söluskrá m.a. eigna:
Fyrir smið eða laghentan
Efri hæð og rishæð um 150 fm. Sérinng. Sérhiti. Sérþvaðstaða á
rúmgóðu baði. Þarfnast nokkurra endurbóta. Húsið stendur á
eignarlóð skammt frá Danska sendiráðinu.
Neðri hæð í tvíbýlishúsi
Sólrík neðri hæð, tvær stofur, svefnherb., eldhús og bað ásamt
tveimur rúmgóðum kjherb. Góður bílskúr með vinnuaðstöðu í
kjallara. Húsið stendur skammt frá Gróðrarstöðinni í Breiðholti.
Hjallavegur - Kleppsvegur - góð kjör
Endurnýjaðar 2ja herb. íbúðir á góðum kjörum. Vinsamlegast leitið
nánari upplýsinga.
Einbýlishús við Hrauntungu - Kóp.
Mjög gott steinhús 141,2 fm auk geymslu m.m. Góður bílskúr 33,6
fm. Ræktuð lóð. Sólverönd. Heitur pottur. Tilboð óskast.
Á vinsælum stað í Keflavík
Vel byggt steinhús, hæð og kj. 152 fm. Bílskúr 50 fm. Kj. var áður
séríbúð. Skipti á eign (Rvík/nágr. æskileg.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
á skrá. Margskonar eignaskipti möguleg.
Sérstaklega óskast góðar eignir miðsvæðis í borginni.
Rúmgóð húseign óskast í gamla bænum eða nágrenni. Margt kemur
til greina.
• • •
Opið í dag kl. 10-14
3ja-4ra herb. fbúð með bflskúr
óskast. Margt kemur til greina.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
FRETTIR
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
MEÐ Norröna komu 370 farþegar og þeim
tilheyrðu 147 farartæki.
Morgunblaðið/Halldór St.
FRAMANDI aðstæður mættu ferðamönnum
er þeir lögðu á snævi þakta Fjarðarheiðina.
Norðan-
kuldi
mætti
Norrönu
Seyðisfirði. Morgunblaðið.
Á SEYÐISFIRÐI er það tvennt
sem einkennir mannlíf bjartari
mánuði ársins framar öðru. Ann-
ars vegar er það koma vorsins
þegar Hjörtur í Shell-sjoppunni
byrjar að selja mjúkan ís eftir
vetrarhvíldina og hins vegar er
það sumarkoman þegar farþega-
feijan Norröna kemur í fyrstu
ferð ársins.
Þegar feijan lagðist að
bryggju á fimmtudaginn varð
andrúmsloft svo sannarlega sum-
arlegt, í það minnsta evrópskt.
Hitinn var þó rammíslenskur, um
5 stig. Snjór var ekki nema í
miðjar hlíðar fjallanna en ferða-
fólkið í sumarleyfum var misvel
búið undir ferðina yfir Fjarðar-
heiði. Viðvörun hafði þó verið
gefin út um borð í ferjunni um
hálku á Fjarðarheiði vegna snjó-
komunnar daginn áður.
Vegagerðin hafði viðbúnað frá
því klukkan hálfsex um morgun-
inn til þess að tryggja að ferða-
menn kæmust klakklaust yfir
Fjarðarheiðina. Með feijunni nú
komu 370 farþegar á 147 farar-
tækjum og utan fóru 365 farþeg-
ar á 100 farartækjum.
Ný aðstaða fyrir farþegamót-
töku og tollaafgreiðslu hefur
verið byggð á Fjarðarhöfn og var
hún í nokkurs konar prufu-
keyrslu við móttöku fyrstu far-
þeganna nú. Hún verður form-
lega tekin í notkun í næstu viku.
Nokkrir þingmenn Austurlands
ásamt Þorsteini Pálssyni dóms-
málaráðherra fylgdust með
komu feijunnar og ræddu við
forráðamenn feijurekstursins og
lög- og tollþjónustunnar.
Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Austafars, um-
boðsaðili Smyril-Line hér á landi,
sagði að bókanir fyrir sumarið
nú væru þokkalegar og betri en
í fyrra. Hann var að vonum glað-
ur yfir því að nú sæju menn fram
á bætta aðstöðu fyrir móttöku
ferðamanna við höfnina. Jónas
sagði næsta verkefnið vera að
klára landganginn. Það verkefni
mun kosta um 10 miUjónir króna.
Aðspurður um hvemig ráðherra
hefði tekið undir umræður um
þann áfanga sagði Jónas:
„Hann tók vel í öll okkar mál.
Hann hefur mikinn skilning á
þessu og ekki síður þingmennim-
ir. Það er allt jákvætt. Svo er bara
að vona að þetta gangi eftir.“
Menntamálaráðherra um breytta forgangsröð tungumála
Verðum að taka mið
af nyjum kröfum
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra kveðst telja eðlilegt að menn
endurskoði afstöðu sína hvað varðar
forgangsröð í kennslu erlendra
tungumála, í Ijósi tillagna stefnu-
mótunarnefndar um endurskoðun
aðalnámskráa, þar sem þær séu
gerðar á mjög traustum forsendum.
Rikisstjórnin hefur nú þegar sam-
þykkt að enska verði tekin fram
yfir dönsku sem fyrsta erlenda
tungumál og byrjað að kenna hana
í fimmta bekk i stað sjöunda áður,
en dönskukennsla hefjist í sjöunda
bekk.
Menntamálaráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hefði alltaf verið talsmaður þess að
dönskunni væri gert hátt undir
höfði í íslenska skólakerfinu. Hann
segir Dani hafa metið mikils póli-
tískan áhuga Islendinga á því að
halda áfram að kenna dönsku sem
fyrsta erlenda tungumál þegar
umræða um það kom upp á Alþingi
fyrir þremur árum.
„En það er alveg ljóst að það er
ekki með nokkru móti unnt að
rökstyðja að þær tillögur sem nú
hafa verið lagðar fram og samþykkt-
ar dragi úr gildi dönskunnar í ís-
lenska skólakerfínu, þvert á móti.
Ef menn vilja að dönskunámið sé
markvisst mæla öll rök með því að
þessi leið sé farin,“ segir hann.
Vegna ummæla um að með þeirri
skipan sem nú hefur verið ákveðin
sé verið að gefast upp fyrir enskum
og amerískum menningaráhrifum
segir menntamálaráðherra.
„Við gerð nýrra aðalnámskráa
grunn- og framhaldsskóla er höfuð-
áhersla lögð á islenska þjóðmenn-
ingu, sögu og tungu. Eg tel þá
áherslu vera meira virði í menning-
arlegu tilliti gagnvart erlendum
áhrifum en það hvort enska eða
danska sé fyrsta erlenda tungumál-
ið. Þá ber einnig að hafa það í
huga að við íslendingar fylgjum
hreintungustefnu en Danir ekki.
Enginn getur sakað mig um að
vilja ganga á svig við sögulegar og
menningalegar hefðir, en þær mega
hins vegar ekki verða okkur ijötur
um fót þegar lagður er grunnur að
menntun þeirra sem hefja skóla-
göngu við upphaf 21. aldarinnar. Nú
eru gerðar allt aðrar kröfur um al-
þjóðlega framgöngu en var á mínum
skólaárum. Enskan hefur hlotið við-
urkenningu sem alheimsmál og án
góðrar kunnáttu í henni dagar menn
uppi. íslenska skólakerfíð á að taka
mið af því geri menn til þess nútíma-
legar kröfur," sagði Bjöm.
„Þegar tillögur eins og þessar
koma frá stefnumótunarnefndinni,
að viðbættu því faglega starfi sem
unnið hefur verið innan ráðuneytis-
ins á þessu sviði, og allt hnígur í
þessa átt, þá verða menn líka að
endurskoða eigin afstöðu, eins og
ég hef gert í þessu máli. Ég tel að
það sé gert á mjög traustum og
öruggum forsendum, sem miða að
því að hlutur dönskunnar minnki
ekki á grunnskólastiginu."
Aðspurður hvort þessi áherslu-
breyting muni hugsanlega hafa
áhrif á viðhorf Dana og þann fjár-
hagslega stuðning sem þeir hafa
veitt dönskukennslu hér á landi að
undanförnu, kveðst ráðherrann ekki
gera ráð fyrir því.
Gerð námsefnis taki mið af
nýrri aðalnámskrá
Ráðherrann segir það óréttmæta
gagnrýni sem fram hefur komið frá
formanni Félags dönskukennara að
gengið hafi verið fram hjá tungu-
málakennurum við ákvarðanatök-
una, þar sem i stefnumótunarnefnd-
inni hafi m.a. verið tungumálakenn-
arar. Auk þess starfi sérstakur for-
vinnuhópur með þátttöku tungu-
málakennara að undirbúningi að-
alnámskráa. Á hinn bóginn séu
sumar ákvarðanir vegna aðalnám-
skrárgerðar þess eðlis að stjórnvöld
verði að taka af skarið.
I
I
I
I
.
I
i
I
I