Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDÁGUR 7. JÚNÍ 1997 25
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Eru sjálfsvíg aðeins
framin í geðveikisástandi eða
kemur slíkt einnig fyrir hjá fólki í
góðu andlegu jafnvægi?
Svar: Meiri hluti sjálfsvíga er
framinn af fólki með geðræn
vandamál. I geðveiki hafa tengslin
við raunveruleikann rofnað eða
brenglast að verulegu leyti og það
er aðeins hluti fólks sem fremur
sjálfsvíg sem þannig er ástatt um.
I rannsókn Guðrúnar Jónsdóttur
geðlæknis sem hún gerði á sjálfs-
vígum sem urðu á árunum
1962-73 (Læknablaðið 1977)
kemur fram að þeir sem sjálfsvíg
frömdu höfðu verið greindir með
einhvern geðsjúkdóm í tæpiega
60% tilvika, þar af geðveiki í 26%,
hugsýki eða persónuleikaröskun í
11% og ofnotkun áfengis og vímu-
efna í 22% tilvika. í 41% tilviki var
ekki vitað til að viðkomandi hefði
haft einkenni um geðsjúkdóm.
Nýlegar erlendar rannsóknir
benda til þess að þunglyndi, hvort
heldur sem það flokkast undir
geðveiki eða hugsýki, sé um 40%,
ofnotkun áfengis og persónuleika-
röskun tæpur fjórðungur hvort,
en fólk án einkenna um geðræn
vandamál sé 10-15%.
Þunglyndi eða övænting er ein
algengasta orsök sjálfsvíga. I
djúpu þunglyndi sér sjúklingurinn
ekki lengur tilgang með lífi sínu
og sjálfsálit hans er mjög lítið.
Fólk er oft mjög þunglynt og í
sjálfsvígshættu þótt það sé ekki
geðveikt í þröngum skilningi.
Þunglyndið gæti þá flokkast undir
hugsýki eða stafað af tímabundn-
um áföllum sem valda sársauka og
örvæntingu.
Þegar um eiginlegt og verulegt
þunglyndi er að ræða er sjúkling-
urinn óvirkur og framtakslaus.
Hann kann að vera með sjálfs-
vígshugmyndir, en lætur þær ekki
endilega uppi. Þó er brýnt að hafa
á honum alla gát því að sjálfsvíg
ber oft óvænt að. Með lyfjameð-
ferð er leitast við að létta á geð-
lægð sjúklingsins og þá er oft
hættan mest á sjálfsvígi, þegar
þunganum er að létta af honum,
hann verður meira vakandi fyrir
umhverfi sínu og finnur sárar til
ástands síns. Hann verður virkari
í hugsun og athöfnum og er því
líklegri til að grípa til örþrifaráðs
eins og sjálfsvígs. Þess vegna þarf
að hafa vakandi auga fyrir ástandi
sjúkiinga sem eru á leið upp úr
þunglyndi sínu og styðja þá og
hjálpa til að tala um vanlíðan sína.
Sjálfsvíg eru ekki alltaf framin í
þunglyndi. Sérstaklega getur það
átt við um ungt fólk í sjálfsvitund-
arkreppu eða undir snöggum geð-
hrifum. Það getur átt til að grípa
til þess að skaða sjálft sig af hvat-
vísi einni saman og ef úr verður
sjálfsvíg má stundum skoða það
frekar sem slys en ásetning.
Sjálfsvígstilraunir sem ekki
heppnast eru margar og oft var
þeim auðvitað ekki ætlað að
heppnast heldur voru þær hróp á
hjálp þess sem ekki kunni annað
ráð til að tjá örvæntingu sína.
Alltaf skyldi taka slíkt alvarlega
og koma til móts við hjálparbeiðn-
ina.
En það eru líka til sjálfsvígstil-
raunir þar sem fullur ásetningur
liggur að baki, en misheppnast.
Einkum á þetta við um langvar-
andi þunglyndissjúklinga. þegar
svo er má alltaf gera ráð fýrir að
sjúklingurinn reyni aftur og nái
markmiði sínu. Erfitt getur verið
að koma í veg fyrir slíkt, en mikil-
vægt er að ekki að-
eins sé höfð full
gát á sjúklingi í
slíkum hugleiðing-
um, heldur ekki
síður að ná til hans
og hjálpa honum
til að ræða sjálfs-
vígshugmyndir
sínar. Það hjálpar
alltaf sjúklingnum
að draga sárar til-
finningar sínar
fram í dagsijósið
og tala um þær.
Eins og fram
hefur komið er
nokkur hópur
fólks, sem ekki
virðist hafa átt við
geðræn vandamál
að stríða, sem
fremur sjálfsvíg.
Liggja þá oft til
þess ytri ástæður
svo sem ólæknandi
sjúkdómur, æru-
missir eða fjár-
hagslegt hrun. Þá
getur það verið
köld og yfirveguð ákvörðun að
taka h'f sitt, þar sem engin önnur
viðunandi lausn er í sjónmáli. í
mörgum slíkum tilvikum má gera
ráð fyrir að einsýni eigi stóran
þátt í ákvörðuninni, en þá er átt
við að viðkomandi einstaklingur
sjái aðeins einn möguleika í stöð-
unni þótt í reynd geti þeir verið
margir. Sjóndeildarhringurinn
hefur skerst vegna áfallsins og
viðkomandi er fastur í einni hugs-
un.
í grein Harðar Þorgilssonar
sálfræðings í Sálfræðibókinni
(Rvík 1993) kemur fram að helstu
áhættuþættir fyrir sjálfsvíg séu
sársauki eða örvænting, hvatvísi
og einsýni. Hættan sé mest á
sjálfsvígi þegar allir þessir þættir
eru í hámarki.
Á árunum 1962-1973, sem
rannsókn Guðrúnar Jónsdóttur
tekur til, var tíðni sjálfsvíga á ís-
landi svipuð og á hinum Norður-
löndunum og í miðjum hópi Evr-
ópulanda. Sjálfsvíg karla voru
þrisvar til fjórum sinnum fleiri en
kvenna og helst það hlutfall enn.
Hins vegar hefur sjálfsvígum
greinilega farið fjölgandi eftir 1980
og hefur vakið athygli hve margt
kornungt fólk grípur til þessa úr-
ræðis. Engin einhht skýring er á
þessari þróun en tilgátur eru uppi
um að þjóðfélagsbreytingar sem
fela í sér meira rótleysi, aukna
vímuefnanotkun, og minni stuðn-
ing og fjölskyldutengsl kunni að
eiga sinn þátt. Hafa verður þó í
huga að hvert sjálfsvíg er einstakt
og á sér sínar orsakir sem ekki er
alltaf auðvelt að ráða í.
•Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem þeim
liggur á hjaria. Tekið er á móti
spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í sima 569-1100 og
bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok, Fax: 569-1222. Ennfremur
símbréf merkt: Gylfi Ásmundsson,
Fax: 560-1720.
LÍFEYRISSJÓÐUR VESTFIRÐINGA
Brunngötu 7, 400 (SAFIRÐI, SÍMI 456 3980, 456 4233 - Skrifstofan er opin kl. 8-17
Upplýsingar um starfsemi á árinu 1996
Lífeyrissjóður Vestfirðinga hefur starfað frá 1970 og
aðildarfélög hans eru verkalýðsfélög á Vestfjörðum að
frátöldum Verkalýðsfélagi Bolungarvíkur og verka-
lýðsfélögum á Ströndum. Greiðandi sjóðfélagar á árinu
1996 eru 3.348 vegna landvinnu og 1.384 vegna
sjómennsku.
Frá upphafi hafa 17.966 félagar greitt iðgjöld til sjóðsins.
Meðalaldur sjóðfélaga er 38 ár 61,0% eru karlar og
39,0% konur.
Tryggingafræðileg úttekt
Talnakönnun h/f hefur gert tryggingafræðilega úttekt á fjárhagsstöðu sjóðsins miðað
við árslok 1996. Áfallnar skuldbindingar miðað við 3,5% ársvexti eru að fjárhæð
6.529,- millj. kr. Hrein eign skv. ársreikningi án núvirðingar er að fjárhæð 7.769,-
millj. kr. eða um 1.240,- millj. kr. hærri. Staða með núvirðingu er 2.120 millj. kr. hærri
en áfallin skuldbindin. Ef litið er til framliðarréttar eru skuldbindingar samtals að
fjárhæð 13.907,- millj. kr. og eignir með endurmati og áætlun um framtíðariðgjöld
eru 15.275,- millj. kr. eða 1.368.- millj. kr. hærri en áætlaðar skuldbindingar.
Stjórn sjóðsins 1996:
Pétur Sigurðsson
Jón Páll Halldórsson
Bjarni L. Gestsson
Ingimar Halldórsson
Framkvæmdastjóri:
Guðrún K. Guðmannsdóttir.
Fjárfestingar ársins 1996 í þús. kr.
Hlutf.
Verðbréfaeign 31.12.96 í þús. kr.
Hlutf.
Efnahagsreikningur 31.12.96 í þús kr. Húsbréf 184.683 9,20% Húsbréf 1.014.770 13,30%
Veltufjármunir 1.426.020 Húsnæðisbréf 264.918 13,10% Skbr. húsnæðisstofnun 1.409.441 18,40%
Skammtímaskuldir - 52.685 Byggðastofnun 45.160 2,20% Byggðastofnun 254.931 3,30%
Hreint veltufé 1.373.335 Ftíkissjóður 387.492 19,20% Ríkissjóður 1.297.501 17,00%
Fastafjármunir Bankar og sparisjóðir 468.369 23,20% Bankar og sparisjóðir 1.396.134 18,70%
Skuldabréf 7.142.381 Eignaleigur 103.141 5,20% Eignaleigur 278.450 3,60%
Hlutabréf/hlutdeildarskírt. 67.183 Sveitarfélög 182.141 9,10% Sveitarfélög 566.176 7,40%
Varanlegir rekstrarfjármunir 12.071 Fyrirtæki 150.422 7,50% Fyrirtæki 355.823 4,60%
Næsta árs/gjaldf. afb. - 804.000 Sjóðfélagar 39.531 1,90% Sjóðfélagar 214.132 2,80%
Langtímaskuldir - 22.369 Önnur skuldabréf 69.513 3,40% Stofnlánasjóðir 285.509 3,70%
Hlutabréf 85.342 4,20% Önnur skuldabréf 69.513 0,90%
Hrein eign til greiðslu lífeyris 7.768.601 Hlutdeildarskírteini 36,901 1,80% Hlutabréf 423.084 5,50%
Hlutdeildarskírteini 64.250 0,80%
Yfirlit yfir breytingar á hreinni eign
til greiðslu lífeyris fyrir árið 1996 Samtals 2.017.613 100,00% Samtals 7.629.714 100,00%
Fjármunatekjur nettó 621.742
Iðgjöld 433.720
Lffeyrir - 143.161 Lffeyrisgreiðslur 1996 f þús kr. fjöldi Kennitölur Árið 1996
Kostnaður - 25.415 Ellilífeyrir 54.382 404 Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum 33,00%
Matsbreytingar 143.735 Örorkulífeyrir 62.897 201 Kostnaður sem hlutfall af iðgjöldum 5,90%
Hækkun á hreinni eign 1996 1.030.621 Makalífeyrir 20.317 175 Kostnaður sem hlutfall af eignum 0,40%
Hrein eign 01.01.1996 6.737.980 Barnalffeyrir 5.565 91 Raunávöxtun m.v. vísit. neysluverðs 8,90%
Starfsmannafjöldi 3
Hrein eign til gr. lífeyris í árslok 7.768.601 Samtals 143.161 763