Morgunblaðið - 07.06.1997, Side 26

Morgunblaðið - 07.06.1997, Side 26
LAUGARDAGUR 7. JUNI1997 FOTSPORUM BITLANNA MORGUNBLAÐIÐ ÞÆGILEGT andrúmsloft rík- ir í Háskólabíói þegar blaða- maður heimsækir Olaf Gauk og félaga á einni af lokaæfíngunum. Allt virðist vera að smella saman, enda er mikilli undirbúningsvinnu lokið. Hljómsveitin, sem sam- anstendur af sinfóníusveit, rokksveit og söngvurum, spilar fjögur lög sem flestir þekkja: Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band, With a Little Help from My Friends, Lucy in the Sky With Diamonds og Good Mom- ing Good Moming. Að því loknu er smáhlé, sem Ólafur Gaukur nýtir til að spjalla við blaðamann við lítið borð fi'ammi. - Petta hefur verið mikil vinna, ekki satt? „Þetta er mest forvinna, miklar skriftir. Þegar ég er búinn að skrifa og fyrstu tvær æfingarnar eru bún- ar finnst mér vinnan eiginlega vera búin. Vinnulagið er eins og tíðkast erlendis, forvinnan sldptir öllu. Þeg- ar mætt er á staðinn á allt að renna mjúklega í gegn. Maður veit að þetta er klárt fólk sem stendur sig þegar á hólminn er komið.“ Mátulega Tstahds s Ein írægasta plata sögunnar, Sgt. Pepper’s Lonely liearts Club Band með Bítlunum, kom út fyrir 30 árum, 1. júnt 1967. ívar Páll Jónsson spjallaði við Ólaf Gauk sem stýrir Sinfóníunni í flutningi á. verkinu í Háskölabíói. ? ÓLAFUR Gaukur einbeittur á æfingu í Háskólabíói. Morgunblaðið/Ásdís stressaður - Er erfitt að stjórna sinfóníu- hijómsveit? „Það er samhæfingin milli sinfón- íunnar og rokkhljómsveitarinnar sem er hvað erfiðust. Það er tölu- verður vandi að halda takti og alls ekki gefið mál.“ - Ertu stressaður? „Ég er alltaf mátulega stressað- ur. Ég veit það ekki, ég hef alltaf haft einhvern innbyggðan kraft sem ég verð að leysa úr læðingi til að koma hlutunum saman. Sam- hæfing hljómsveita hefur verið mér lífsstarf, þannig að þetta er ekkert nýtt.“ - Þú ert því væntanlega feginn að hafa farið á sínum tíma til Bandaríkjanna til að læra að semja kvikmyndatónlist? „Jú, biddu fyrir þér, maður. Ég væri steindauður annars, andlega." - Hvað fannst þér um Bítlana og tónlist þeirra á sínum tfma? „Manni fannst tónlistin strax sér- kennileg. Þeir rufu ýmsar hefðir, svo sem að hafa tvo gítara, bassa og trommur. Þeir bættu við tónlistina, settu hitt og þetta inn í. Ég reikna með að það hafi að miklu leyti verið verk George Martins, án þess að ég vilji gera lítið úr hlut Bítlanna sjálfra. Ég er alveg viss um að þeir voru sérkennilegir músíkantar og höfðu sínar „original" hugmyndir." - Lærðir menn töldu þetta ekki vera fína tónlist. „Nei, menn vilja alltaf setja mæli- stokka á allt. En það eru bara mannlegir mælikvarðar. Þegar maður finnur sjálfan sig og getur orðið heiðarlegur í sköpun sinni má manni svo sem vera sama þótt ein- hverjir karlar séu að setja mæli- stokk á eitt eða annað. Ekki síst ef maður selur plötur.“ Jaðrar við snilld - Hefur álit þitt á tónlist Bítl- anna breyst ígegnum tíðina? „Ég þekkti hana alltaf töluvert, en ég get ekki neitað því að hún hef- ur orðið mér kærari með árunum, eftir að ég fór að kafa í hana. Það jaðrar margt við snilld og þetta var mikil bylting. Byltingar eru nauð- synlegar og þær hafa orðið í öllum greinum. An þeirra verður engin framþróun. Að hugsa sér, þetta eru mörg hundruð lög. Kannski er ekki hægt að segja að þau séu hvert öðru betra, en öll eru þau frambærileg og yfir helmingur mjög góður. Svo ekld sé minnst á afburðalögin sem standa upp úr eins og toppurinn á ísjakanum. Þau eru mörg, ekki bara tvö eða þrjú, heldur fimmtán eða tuttugu. Það má segja að Bítlamir hafi átt verulegan þátt í að búa til nútíma popptónlist. Þeir gerðu það nánast einir síns liðs.“ - Hvað varst þú að gera árið 1967? „Ég var að vinna fyrir mér sem tónlistarmaður með hljómsveitinni minni, Sextett Ólafs Gauks. Ég er ekki einn af þeim sem muna hvar Sergeant Pepp- er’s Lonely He- arts Club Band (Lennon-McCartney) McCartney: söngur, bassi, aðalgítar. Lennon: röddun. Harri- son: röddun, gítar. Starr: trommur. Lagið var tekið upp í Abbey Road-hljóðverinu eins og hin lög plötunnar, 1.-2. febrúar og 3. og 6. mars 1967. McCartney samdi það sérstaklega til að vera byrjunarlag plötunnar og að margra mati er það frekar rýrt, þótt það þjóni tilgangi sínum vel. With a Little Help Frum My Friends (Lennon-McCartney) Stam söngur, trommur, tamborína. McCartney: bakrödd, píanó, bassi. Lennon: bakrödd, kúabjalla. Harri- son: aðalgítar. George Martin: Hammond-orgel. Annað lag eftir McCartney, samið f tímapressu í lok mars og tekið upp 29. og 30. mars 1967. McCartney heimsótti Lennon með hljóma lags- ins I farteskinu og saman settust þeir við pfanóið og sömdu textann, sem er samansettur úr setningum sem sumar duttu út úr vinum þeirra sem staddir voru í sama herbergi. Lagið hét upphaflega Bad Finger Boogie. Lucy in the Sky Wlth Dlamonda (Lennon-McCartney) Lennon: tvöfaldur söngur, aðalgítar. McCartney: röddun, orgel, bassi. Harrison: röddun, aðalgítar, kassagítar, tambúra. Starr: trommur, maracas. Eitt af draumkenndari lögum Lennons. Margir héldu að með textanum væri veriö að lofa of- skynjunarlyfið LSD, sem Lennon notaði mikið á þessum tfma. Upp- hafsstafir orðanna í titlinum gefa það f skyn: Lucy in the Sky With Diamonds. Lennon hélt því hins vegar fram að titillinn ætti rætur að rekja til teikningar sem sonur hans Julian kom með heim úr skólanum. Getting Better (Lennon-McCartney) McCartney: tvöfaldur söngur, bassi. Lennon: bakrödd, aðalgftar. Harri- son: bakrödd, aðalgítar, tam- búra. Starr: trommur, conga-tromm- ur. Þetta lag McCartneys minnir í hljómi og tiifinningu á annað lag hans, Good Day Sunshine. Eftir að hafa samið laglínuna bauð hann Lennon í heimsókn til að yrkja textann. Að vissu leyti er dimmara yfir textanum en laglínunni, enda skín kaldhæðni Lennons í gegn: „It’s getting better all the time, it can’t get no worse.“ þegar hann var að lagfæra bónda- bæ sinn í Skotlandi. Lagið er ekki dæmigert McCartney-lag og and- rúmsloft þess er mjög sérstakt. She’s Leaviny Hnme (Lennon-McCartney) McCartney: tvöfaldur söngur, bak- rödd. Lennon: tvöfaldur söngur, bak- rödd. Strengjasveit. Enn eitt McCartney-lagið. Textinn fjallar um kynslóðabilið, stúlku sem flýr að heiman. Móðirin les orðsend- ingu frá dóttur sinni sem yfirgaf heimilið eldsnemma morguns. Þau spyrja sig hvað farið hafi úrskeiðis í uppeldinu: „What did we do that was wrong, we didn’t know it was wrong.“ Margir telja lagið hjartnæm- asta lag Bftlanna. ar. Harrison: munnharpa. Starr: trommur, tamborína, munnharpa. Martin: harmónfum-orgel, orgel, klukkuspil. Mal Evans og Neil Aspinall: munnharpa. Lennon samdi text- ann upp úr vegg- spjaldi frá 1843 sem hann rakst á í forn- munabúð í Kent 31. janúar þetta ár, þegar Bítlamir voru að taka upp kynningarmyndband Strawberry Fields Forever. Vegg- spjaldið var auglýsing fyrir fjölleika- sýningu. Mikil vinna fór í að fram- kalla stemmningu sem minnti á fjöl- leikahús og Lennon var ánægður með þann hluta lagsins. Hann var hins vegar ekki ánægður með laga- smíðina, taldi hana yfirborðskennda. fyrir Belng fnr the Benefit of Mr. Ktte! Wtttiln Ynu Wlthnut You (Lennon-McCartney) (Harrison) lagið á harmóníum-orgel heima hjá vini sínum Kiaus Voorman (sem teiknaði kápu Revolver-plötunnar), eftir kvöldverð þar sem umræöuefn- ið var andleysi nútímalffs. Harrison var á kafi í indverskri tónlist á þess- um tíma og útsetningin ber þess greinileg merki. When l’m Sixty-Fnur (Lennon-McCartney) McCartney: söngur, píanó, bassi. Lennon: bakrödd, gftar. Harrison: bakrödd. Starr: trommur, bjöllur. Ró- bert Burns, Henry MacKenzie og Frank Ready: klarinett. McCartney samdi lagið áriö 1966, þegar faðir hans varð 64 ára. Laglð er ólíkt öðrum lögum á plötunni, ber „nostalgíu" merki og hljómar líkt og söngleikjalag frá þríðja áratugnum. Lovely Rita (Lennon-McCartney) Lennon: tvöfaldur söngur, McCartney: bassi, gít- orgel. Flxiny a Hole (Lennon-McCartney) McCartney: tvöfaldur söngur, aðal- gítar, bassi. Harríson: bakrödd, tvöfaldur aðalgítar. Lennon: bakrödd. Starr. trommur, maracas. Mart in: harpsfkord. Höfundinum, McCartney, datt titillinn í hug Harríson: söngur, sftar, kassagftar, tambúra. Óþekktir indverskir tónlist- armenn: dilruba, svarmandal, tabla, tambúra. Neil Aspinall: tambúra. Strengjasveit. Harrison lagði mikla vinnu f þetta eina lag sitt á plötunni. Hann samdi McCartney: söngur, pfanó, bassi, greiða og blað. Lennon: bakrödd, „munnlegt slagverk", kassagftar, greiða og blað. Harríson: bakrödd, kassagftar, greiða og blað. Starr: trommur, greiða og blað. McCartney hafði gaman af að semja texta sem sögðu sögu. Lennon sagði seinna um þessa tilhneigingu vinar síns: „Þessar sögur af leiðinlegu fólki sem gerir leiðinlega hluti - bréfberum og ritur- um. Ég hef ekki áhuga á lögum sem fjalla um þriðja aðila. Ég vil yrkja um mig, vegna þess að ég þekki sjálfan mig best.“ a

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.