Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 36
36 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
AÐSENDAR GREIIMAR
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Vinnudagur grunnskóla-
nemenda eftir einsetningn
og lengdan skóladag
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum 16. sept-
ember sl. að setja á laggirnar starfs-
hóp á vegum Fræðslumiðstöðvar til
að skoða og gera tillögur um skipan
skólastarfs eftir einsetningu og lög-
boðna lengingu skóladags. Verkefni
hópsins var m.a. að setja fram hug-
■ myndir um vinnudag nemenda frá
morgni og fram á miðjan dag, bæði
hvað varðar skólastarf og tóm-
stundir og hugmyndir
um matarmál og hvíld-
arhlé í hádegi.
Þá skyldi hópurinn
koma með hugmyndir
um tengsl grunnskóla
við starf íþróttafélaga,
tónlistarskóla og starf-
semi ÍTR, auk hug-
mynda um breyttan
vinnutíma kennara.
Starfshópinn skip-
uðu: Brynja D. Matthí-
asdóttir frá Kennara-
félagi Reykjavíkur,
Hildur Hafstað frá
Skólastjórafélagi
Reykjavíkur, Kristín
Jónasdóttir frá SAM-
FOK, Sigfús Ægir
Árnason frá ÍTR
Sigrún
Magnúsdóttir
Sigursveinn
Magnússon frá Samtökum tónlist-
arskóla i Reykjavík og Gerður G.
Óskarsdóttir, fræðslustjóri, sem
stýrði starfi hópsins.
Stefnumörkun
eru fram í skýrslu starfshópsins og
athuga hvort þeir geti hugsanlega
breytt einhveiju í starfsemi sinni
innan núverandi íjárhagsramma til
að undirbúa lengdan skóladag.
Einnig eru foreldraráð grunnskóla
borgarinnar hvött til að kynna sér
efni skýrslunnar.
Fræðsluráð mun fara vandlega
yfir hugmyndirnar fram að næstu
ijárhagsáætlunargerð og leggja þá
fram tillögu til næstu
þriggja ára um skipu-
lag vinnudags nem-
enda í skólum borgar-
innar.“
Tillögur að
starfsdegi
árið 2000
1. Stundaskrá:
Settar voru fram
tvær mismunandi til-
lögur um stundaskrá
eftir einsetningu skóla.
Önnur gerir ráð fyrir
skólastarfi frá þvi að
morgni og fram til kl.
14 og síðan komi fijáls
tómstundastarfsemi
nemenda. Hin gerir ráð
fýrir því að skólinn bjóði öllum nem-
endum, a.m.k. í 1.-7. bekk, upp á
tómstundastarf inni í töflu og geti
þá sumir nemendur farið á þeim
tíma í starfsemi utan skóla, s.s.
tónlistarskóla eða íþróttaæfingar.
Fræðslustjóri kynnti lokaskýrslu
starfshópsins fyrir fræðsluráði 21.
apríl sl. Hann lagði áherslu á að
skýrslan væri hugmyndabanki um
fyrirkomulag vinnudags nemenda á
nýrri öld. Formaður fræðsluráðs
bókaði eftirfarandi:
„Fræðsluráð Reykjavíkur þakkar
starfshópnum um vinnudag nem-
enda eftir einsetningu og lengdan
skóladag frábær störf og mikla
vinnu að hugmyndabanka og fram-
tíðarsýn að skipulagi vinnudags
nemenda. Þá er það mjög mikilvægt
að tengja þessa framtíðarsýn að
endurskipulagningu skólahúsnæðis
borgarinnar. Fræðsluráð gerir sér
grein fyrir að skólabyggingar svo
og hefðir og siðir innan skóla borg-
' arinnar eru mismunandi, þess
vegna er mikilvægt að skólunum
verði gert kleift að móta skóladag-
inn hver á sínum stað í samráði við
Fræðslumiðstöð. Fræðsluráð beinir
þeirri áskorun til grunnskólanna í
Reykjavík, einkum þeirra sem þeg-
ar eru einsetnir, að skoða gaum-
gæfilega þær hugmyndir sem settar
2. Hádegishlé og matur:
Lagt er til að allir nemendur í
1.-7. bekk eigi kost á næðisstund
með kennara í hádegi þar sem er
matast og leikið sér. Einnig að þeir
eigi kost á að kaupa matarpakka í
skólanum. Unglingar kaupi sér
samlokur o.fl. í sölulúgu í skólanum.
3. Tómstundastarf:
Reglubundið tómstundastarf
verði stóraukið og tengslin við ÍTR.
Það verði skylda og hluti af stunda-
skrá í 1.-4. bekk (þ.e.a.s. viðbót
við lögbundinn tímafjölda). Val í
5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Nám-
skeiðin standi allt skólaárið og verði
annaskipt.
4. íþróttir:
Tengsl við íþróttafélögin eru sett
fram með þrennum hætti, en allir
sammála um að hafa nána og reglu-
lega samvinnu milli skóla og
íþróttafélaga.
5. Tónlistarskólar:
Settar eru fram fimm mismun-
andi hugmyndir um tengsl við tón-
listarskóla og eflingu tónmennta-
kennslu í skólum.
NÝ
UNDIR-
FATALÍNA
fSf
I
PCIlímogfúguefni
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
PARTAR
BÍLAPARTASALA
KAPLAHRAUNI 11 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SIMI 565 3323 ■ FAX 565 3423
EIGUM FYRIRLIGGJANDI
NÝJA OG NOTAÐA
VARAHLUTI f FLESTAR
GERÐIR BÍLA
HÚDD - BRETTI - STUÐARA
HURÐIR - LJÓS - GRILL
AFTURHLERA - RÚÐUR
6. Skólabyggingar:
Ekki eru gerðar tillögur um
breytingar á viðmiðum um skóla-
byggingar, þar sem húsnæðisþörf
skólanna hefur m.a. verið metin út
frá 6-7 stunda vinnudegi nemenda
og matarhléi.
7. Vinnutími kennara:
Fagnað er ákvæðum í nýjum
kjarasamningi um að samnings-
tíminn verði notaður til að endur-
skoða núverandi fyrirkomulag á
vinnutíma kennara.
8. Mannafli:
Gert er ráð fyrir að starfsmönn-
um í skólum fjölgi við lengdan
skóladag, einkum til að sinna mat-
armálum, gæslu og leik með börn-
um í frímínútum og öðrum störfum.
Lögð er áhersla á að efla starf
„skólaliða“.
Markviss vinnubrögð
Það er mikilvægt að vinnubrögð
séu markviss, að safna upplýsingum
og skoðunum sem flestra, síðan er
það stjórnenda hveiju sinni að taka
ákvörðun um hvaða leiðir skuli fara.
Við úthlutun úr þróunarsjóði
grunnskóla Reykjavíkur hlutu
Þegar fjölskyldur vita
af börnum sínum örugg-
um í skólanum frá
morgni fram á miðjan
dag, segir Sigrún
Magnúsdóttir,
skapar það ákveðna
festu og aga.
Engjaskóli, Breiðagerðisskóli og
Æfingaskólinn styrki til að þróa
ákveðna þætti vegna einsetningar
og lengingar skóladags.
Undanfarin tvö ár hefur bygg-
inganefnd skóla í samvinnu við
byggingadeild borgarverkfræðings
og skólayfirvöld unnið að undirbún-
ingi fimm ára áætlunar um einsetn-
ingu allra skóla í Reykjavík. Aldrei
fyrr hefur verið unnin langtima-
áætlun um uppbyggingu skóla-
mannvirkja borgarinnar.
Hönnuðir og verktakar hafa oft
kvartað yfir því að vita einungis
með árs fyrirvara um fyrirhugaðar
framkvæmdir borgarinnar. Það er
von mín að þessi markvissu vinnu-
brögð leiði til þess að hagkvæmari
tilboð berist. Einnig er rétt að benda
á að uppbygging allra skólanna
kallar á margar vinnufúsar hendur
og er því mjög atvinnuskapandi.
Fræðsluráð og borgarráð sam-
þykktu áætlunina samhljóða.
Reykjavíkurborg bætti við fimm
kennslustundum fyrir næsta skóla-
ár fram yfir það sem grunnskólalög
gera ráð fyrir. Lenging skóladags-
ins verður því að fullu komin til
framkvæmda árið 2000.
Það er bjargföst trú mín að með
einsetnum skóla og lengdum skóla-
degi með góðu hádegishléi nemenda
verði mikil breyting til batnaðar
fyrir börn og foreldra þeirra í
Reykjavík.
Þegar fjölskyldur vita af börnum
sínum öruggum í skólanum frá
morgni fram á miðjan dag, skapar
það ákveðna festu og aga og von-
andi eykur það einnig umferðarör-
yggi barna og unglinga mikið þegar
þau verða ekkert á ferðinni frá kl.
8-14 á daginn.
Tilviljanir ráða ekki lengur för
heldur stefnufesta og samtaka-
máttur til að skapa börnum okkar
betra umhverfi til náms.
Höfundur er formnður
fræðsluráðs.
ÓLIÞÓR
ÓLAFSSON
+ Óli Þór Ólafs-
son fæddist í
V estmannaeyjum
30. mars 1942.
Hann lést á heimili
sínu á Selfossi að-
faranótt mánu-
dagsins 2. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Ólafur Jónsson,
skipasmiður, f. 15.
maí 1908 í Lamb-
húshólskoti í Vest-
ur-Eyjafjalla-
hreppi, og kona
hans Sigríður Sig-
urðardóttir, saumakona, f. 18.
september 1913 í Ey í Vestur-
Landeyjum, dáin 27. janúar
1969. Þau hjónin eignuðust þijú
börn og var Óli Þór yngstur
þeirra systkina. Eldri voru Sig-
ríður, f. 29.11. 1935, d. 27.7.
1968, og Margrét, f. 29.7. 1939,
sem býr i Vestmannaeyjum.
Áður átti Sigríður son, Sigurð
Matthíasson, fæddan í Vest-
mannaeyjum í febrúar 1932,
dáinn í júlí 1934. Óli Þór kvænt-
ist Ingunni Hofdisi Bjarnadótt-
Nú þegar vorið stendur í blóma
og sól er hæst á lofti hefur kær
vinur og mágur Óli Þór Ólafsson
kvatt þennan heim eftir langa og
erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm
sem lagt hefur svo margan mann-
inn að velli. Á slíkri kveðjustund
langar okkur til að þakka honum
ánægjuleg kynni og samverustund-
ir í_ gegnum tíðina.
Ég kynntist Óla Þór í Vest-
mannaeyjum þar sem hann bjó fýr-
ir gos, en hann reyndist síðan eiga
eftir að verða mágur minn er hann
kvæntist systur minni, henni Hof-
dísi. Ég bjó tímabundið á heimili
þeirra í góðu yfirlæti er ég starfaði
í Eyjum sem ungur maður, en Óli
Þór var Vestmannaeyingur í húð
og hár. En eftir náttúruhamfarirn-
ar 1973 flutti fjölskyldan á Selfoss
og þá hófust góð kynni þar sem
aldrei hefur borið skugga á. Óli
Þór var lærður skipasmiður og
húsasmíðameistari og eftir að hann
fluttist á Selfoss störfuðum við
saman við trésmíðar hjá SG Ein-
ingahúsum.
Óli Þór var mjög fróður og víðles-
inn maður og kom maður aldrei
að tómum kofunum hjá honum
hvað svo sem bar á góma, enda
var hann alæta á bókmenntir, hvort
sem var um fræðibækur, fornbók-
menntir eða afþreyingarbækur að
ræða. Ef hlustað var á spurninga-
þátt í sjónvarpi eða útvarpi var Óli
Þór oftast með rétt svar og yfir-
leitt búinn að svara öllum spurning-
unum á undan keppendunum.
Einnig hafði Óli Þór góða söngrödd
og lagði stund á söngnám í nokkur
ár. Oft var lagið tekið saman enda
fjölskyldan mikið fyrir söng og tón-
list. Synirnir hafa allir lagt stund
á músík og eiga þeir ekki lengt að
sækja þær gáfur.
Að leiðarlokum þökkum við sam-
fylgdina og óskum Óla Þór góðrar
heimferðar með von um að hann
hafi nú verið leystur þrautunum
frá.
Hofdísi, Ólafi Árna og Gunnari
sendum við okkar dýpstu samúðar-
kveðjur, og minnum þau á að
stundum getur dauðinn verið líkn
þeim sem þjást.
Óli Þór var örugglega hvíldinni
feginn.
Blessuð sé minningin um góðan
dreng.
Viðar og fjölskylda.
Það var í byijun júní á bjartri
vornótt að tilvonandi tengdafaðir
minn Óli Þór kvaddi þennan heim
eftir mikil veikindi og fékk nýtt
hlutverk á nýjum stað, í nýjum
heimi. Ég efast ekki um að það var
ur 8. ágúst 1964.
Ingunn Hofdís ér
fædd 29. júní 1944 á
Blönduósi. Foreldr-
ar hennar eru hjón-
in Bjarni Kristins-
son, f. 28. apríl 1915,
d. 18. febrúar 1982,
og Jónína Kristjáns-
dóttir, f. 25. nóvem-
ber 1925. Ingunn
Hofdís á níu systkini
á lífi. Synir Óla Þórs
og Ingunnar Hofdís-
ar eru: 1) Ólafur,
fæddur 15. ágúst
1967. 2) Sigurður
Arni, fæddur 10. júní 1974. 3)
Gunnar, fæddur 27. maí 1976.
Óli Þór lauk sveinsprófi í
skipasmíði 6. júlí 1963. Hann
lauk burtfararprófi í húsasmíði
frá Iðnskólanum í Vestmanna-
eyjum 1967. Árið 1973 fékk
hann meistararéttindi í skipa-
smíði. En eftir það starfaði
hann lengst af sem húsasmiður
á Selfossi og víðar.
Útför Óla Þórs fer fram frá
Selfosskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
vel tekið á móti honum og núna
veit ég að honum líður vel.
Fyrir rúmu ári hitti ég Óla Þór
fyrst, þá vorum við Árni, sonur
hans, að byija saman. Ég var að
sjálfsögðu feimin að hitta tengda-
foreldrana, en það var svo sannar-
lega óþarfi. Óli var mikill aðdáandi
íslendingasagna og kunni þær nán-
ast utanað og á þessum tíma hafði
ég einmitt verið að ljúka við að
lesa Njálu. Þær fáu mínútur sem
ég spjallaði við Óla Þór og Hofdísi
í minni fyrstu heimsókn fór mestur
tími í að ræða um Njálssögu. Eftir
þetta spjall hugsaði ég með mér
að þarna hefði ég lært meira í Njálu
en nánast allan veturinn í skólanum
og hét því að þessa sögu yrði ég
að lesa aftur til að bæta framlag
mitt í umræðuna og ganga í augun
á tengdó.
Óli var víðlesinn maður og ég
gat alltaf leitað til hans þegar
heimalærdómurinn var að hrella
mig, það skipti ekki máli hvort það
var danska, íslenska, enska, upp-
eldisfræði eða hljóðfræði, hann var
vel að sér í þessu öllu. Tónlistin
átti hug hans allan og var hann
mikill söngmaður. Því miður heyrði
ég hann aldrei syngja en ég mundi
gefa mikið fyrir það að hafa verið
á Þjóðhátíð í eyjum ’91 þegar hann
söng fyrir mörg þúsund manns í
dalnum.
Óli Þór var alltaf til í spjall, það
var sama hvað við töluðum um,
hann sagði alltaf skemmtilega frá
og hann elskaði að segja kisusög-
ur, kisurnar voru bestu vinir hans.
Elsku Óli minn, ég á eftir að
sakna þín mikið og það verður tóm-
legt án þín, en núna líður þér vel
og það er það sem skiptir máli.
Ég þakka Guði fyrir þann stutta
tíma sem ég fékk með þér, hann
var mér mjög dýrmætur. Tengda-
dóttir þín kveður þig að sinni þar
til við hittumst næst.
Elsku Hofdís, Óli, Árni og Gunn-
ar, ég votta ykkur mína innstu
samúð og megi Guð styrkja ykkur
í þessari miklu sorg.
Fanney Snorradóttir.
Elsku Hofdís, Ólafur, Árni
Gunnar, afi, mamma og Jónína.
Megi Guð gefa ykkur styrk í sorg-
inni. Guð blessi ykkur og varðveiti.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stefánsson)
Þórhildur, Jóna Björg,
Sigríður og Hrefna Valdís.