Morgunblaðið - 07.06.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 47
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
MESSUR Á MORGUN
Opið bréf til sveitar-
stjóra um allt land
Frá Sigríði Örm
Arnþórsdóttur og
Elínu Antonsdóttur:
FÉLAG húsbílaeigenda og Flakkar-
ar fara þess á leit við sveitarfélög
og ferðamálafulltrúa um allt land
að þau hvetji aðila í ferðaþjónustu
til að huga betur að þjónustu við
húsbílafólk.
Fólk á húsbílum ferðast yfirleitt
mun meir og oftar um landið hvert
sumar en hinn almenni íslenski
ferðamaður sem fer kannski í eitt
til tvö tjaldferðalög á ári. Mörg
dæmi eru um það að félagar í hús-
bílafélögum fari í lengri og skemmri
ferðir hverja einustu helgi sumars-
ins, og eru að langt fram á haust.
Á vegum Félags húsbílaeigenda eru
skiplagðar 7 ferðir í sumar og þar
af ein 8 daga ferð um sunnanverða
Vestfirði. í fyrra var farin 8 daga
ferð um Austurland, sumarið þar
áður var farið i 8 daga ferð
allt norður í Ingólfsijörð á
Ströndum. Aðrar ferðir eru
styttri vítt og breitt um land-
ið. Einnig eru margar lengri
og skemmri ferðir skipulagð-
ar á vegum Flakkara.
Flestir húsbílar státa nú
af ferðasalernum, en það
skortir mjög á að aðstaða sé
á tjaldsvæðum til losunar úr
þeim. Við sendum ykkur hér
með teikningu af algengri
útfærslu á losunarvaski fyrir
ferðasalerni, og á niðurfalli
til tæmingar á skolptapki, en
sífellt fleiri eru með skolp-
tank til að taka við upp-
vöskunarvatni og vantar víð-
ast niðurfall til tæmingar á
þeim. Metnaður okkar er að
ganga vel og snyrtilega um
landið okkar og því er brýnt
að fólk í ferðaþjónustu taki
sig á hvað þetta varðar.
Húsbílaeign fer stöðugt
vaxandi og eru félagar í Fé-
lagi húsbílaeigenda nú um 500 tals-
ins, og hátt á annað hundrað félagar
eru í Flökkurum. Þá eru ótaldir þeir
sem ekki eru í húsbílafélögum. Hinn
almenni húsbílafélagi er að lágmarki
15 gistinætur á tjaldstæðum yfir
sumartímann og það gera yfir tíu
þúsund gistinætur. En margir fara
mun oftar og mörg dæmi eru um
að húsbílafólk sé á ferðinni hverja
einustu heigi sumarsins.
Það er liður í starfi ferðamálafull-
trúa að lengja ferðamannatímann,
en eftir 1. sept. komum við víða að
lokuðum tjaldsvæðum. Þá er fram-
undan einn fallegasti tími ársins,
haustið með sínum margbreytilegu
litum í náttúru landsins. Við viljum
hvetja fólk í ferðaþjónustu til að
lengja opnunartíma tjaldsvæða alla
vega til fyrsta október.
Húsbílafólk sem kemur erlendis
frá er góðu vant frá sínum tjald-
svæðum, þar er aðstaða til losunar
á ferðasalernum og skolptönkum en
einnig er boðið upp á rafmagns-
staura fyrir 220w. I raun er þetta
nauðsynlegt til að tengja bæði ís-
skápa, ljós og til annarrar rafmagns-
notkunar. Vöntun á þessu kemur
fram í því að menn eru að gang-
setja bíla sína í tíma og ótíma til
að hlaða geyma, hefur það í för með
sér hávaða- og útblástursmengun
sem enginn kærir sig um og allra
síst mengunarvaldurinn. Þessi skort-
ur á þjónustu við húsbíla hlýtur að
koma erlendu húsbílafólki í opna
skjöldu.
Það væri líka öllum til góðs að
skipta tjaldsvæðum, hafa sérflatir
fyrir hinn almenna íslending og
sérflatir fyrir ferðamenn í hópferð-
um. Þessir hópar ferðast á mjög ólík-
an hátt. Fólk í hópferðum er oft
með stífa dagskrá og gengur
snemma til náða og fer snemma á
fætur, jafnvel fyrir kl. 6 á morgn-
ana. Hinn íslenski ferðamaður er í
fríi, vill vaka lengi og þá jafnvel
sofa til klukkan 9 eða 10 á morgn-
ana. Það er því auðséð að hagsmun-
ir þessara ferðalanga stangast á og
þeir trufla hver annan. Með skipt-
ingu tjaldsvæða væru þessi vanda-
mál úr sögunni.
Verðlag á tjaldsvæðum er annað
mál sem við viljum fá til umræðu.
Ekkert samræmi virðist vera í því
hvað fólk fær fyrir peningana sína.
Húsbílafólk þarf til dæmis að borga
fullt gjald þótt öll aðstaða sé í bílum
eins og salerni. Sé boðið upp á aukna
þjónustu svo sem aðgang að þvotta-
vélum, greiða gestir sérstaklega fyrir
þessa þjónustu, ásamt því að greiða
hærra tjaldsvæðagjaid! Það er okkar
krafa að við borgum eingöngu fyrir
þá þjónustu sem við notum.
Væri tekið tillit til okkar þarfa
myndum við að sjálfsögðu með glöðu
geði borga fyrir það. Það er reynsla
okkar af húsbílafólki á feðalögum að
þar sem verðlag er sanngjarnt nýtir
fólk sér ótakmarkað aðra þjónustu
sem þarf að greiða fyrir, en þar sem
verðlag þykir hátt heldur fólk að sér
höndum og heldur áfram í næsta
áfangastað hið fyrsta.
Það er því hvatning Félags hús-
bílaeigenda og Flakkara til fólks í
ferðaþjónustu; lækkið verðið á næt-
urgistingu og þið fáið mun meiri
innkomu í öðru því sem þið hafið
upp á að bjóða. Okkur þætti ekki
ósanngjarnt að fá eitt verð fyrir bíl-
inn en ekki að borga fyrir hvern
fullorðinn sé tekið tillit til þess hve
lítið við notum þá þjónustu sem
mest mæðir á tjaidsvæðum en það
eru salemin.
Við viljum í þessu tilfelli nefna
sem dæmi að við gistum eina nótt
hjá ágætum aðila í ferðaþjónustu á
Suðuriandi í fyrra, hann lækkaði
verðið verulega fyrir okkur eða í 300
kr. fyrir bílinn. Menn voru ánægðir
og versluðu það mikið hjá honum í
lítilli verslun sem hann er með á
svæðinu að hann hafði á orði að
þetta væri eins og um verslunar-
mannahelgi. Þegar við fórum voru
allir ánægðir, bæði ferðafólkið og
ferðabóndinn.
Aukin þjónusta við húsbílafólk er
aðkallandi. Hún er þáttur í sjálf-
sagðri framþróun á tjaldsvæðum, og
nýtist einnig þeim vaxandi fjölda
sem ferðast með tjaldvagna og felli-
hýsi, því þeir eru svipað útbúnir og
húsbílar og þurfa því viðlíka þjón-
ustu. í samanburði við tjaldsvæði
erlendis þurfa aðilar í íslenskri ferða-
þjónustu að taka sig á. Ef ísland á
að verða það ferðamannaiand sem
stefnt er að og geta tekið við vax-
andi fjölda innlendra sem erlendra
ferðamanna verða aðilar í ferðaþjón-
ustu að vera í stakk búnir til að
taka vel á móti ferðafólki á hvern
hátt sem það ferðast. Hver króna
sem lögð er í að bæta aðstöðu kem-
ur til með að skila sér margfalt til
baka.
FÉLAG HÚSBÍLAEIGENDA,
Sigríður Arna Arnþórsd. formaður,
Borgarholtsbraut 42, 200 Kóp.
FLAKKARAR, Félag húsbílaeig.
Elín Antonsdóttir formaður,
Hraunholti 4, 600 Akureyri.
Guðspjall dagsins:
Hin mikla kvöldmáltíð.
(Lúk. 14.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.15. Sr. Gylfi Jóns-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Pavel Manasek. Sr.
Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Messa kl.
11. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkra-
húsprestur, messar. Organisti
Jón Stefánsson. Félagar úr Kór
Langholtskirkju syngja. Kaffisopi
á eftir. Sóknarprestur.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna
sumarleyfa er minnt á guðsþjón-
ustu í Áskirkju.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Hildur
Sigurðardóttir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Göngu-
guðsþjónusta kl. 10. Ath. breytt-
an messutíma. Gengið á Akra-
fjall að lokinni guðsþjónustu.
Kvöldverður að lokinni sundferð
að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.
Mæting til messu í gönguskóm
og galla.
KIRKJA HEYRNARLAUSRA:
Messa í Grensáskirkju sunnudag
kl. 14. Táknmálskórinn syngur
undir stjórn Júlíu Hreinsdóttur.
Sr. Miyakó Þórðarson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Altarisganga. Organ-
leikari Kristín G. Jónsdóttir.
Fermd verður í guðsþjónustunni
Svandfs Lilja Egilsdóttir, Túngötu
3, ísafirði. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson, héraðsprestur, þjónar.
Samkoma Ungs fólks með hlut-
verk kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Organisti Lenka Mátéová. Prest-
arnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti Hörður
Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Vegna fram-
kvæmda í Hjallakirkju og sumar-
leyfa starfsfólks kirkjunnar erfólki
bent á helgihald og þjónustu í
Breiðholtskirkju eða öðrum kirkj-
um í Kópavogi. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Kópavogskirkju
syngur. Organisti Örn Falkner.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Valgeir Ástráðsson préd-
ikar. Guðsþjónustunni verður út-
varpað beint. Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdótt-
ir prédikar. Félagar úr Skagfirsku
söngsveitinni flytja tónlist undir
stjórn Björgvins Valdimarssonar.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Pavel Smid.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar
í forföllum safnaðarprests.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur sunnudaga kl. 10.30, 14
og 20 (á ensku). Laugardaga og
virka daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87:
Messa sunnudag kl. 10 á þýsku.
Laugardag og virka daga messa
kl. 7.15.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30.
Messa virka daga og laugardaga
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa sunnudaga kl. 8.30.
Messa laugardaga og virka daga
k| g
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu
7: Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
KLETTURINN: Kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam-
koma sunnudag kl. 20. Ath. breytt-
an samkomutíma. ívar Sigurbergs-
son prédikar. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag
kl. 20. Altarisganga öll sunnu-
dagskvöld. Prestur sr. Guðmund-
ur Örn Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA Sjómannaheimilið:
Samkoma á morgun kl. 17.
KFUM og KFUK við Holtaveg:
Almenn samkoma á morgun kl.
20. Ragnhildur Ásgeirsdóttir tal-
ar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæna-
stund kl. 19.30. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Miriam Óskarsdóttir
talar.
VÍDALÍNSKIRKJA: Kveðjuguðs-
þjónusta sr. Braga Friðrikssonar
kl. 14. Hallveig Rúnarsdóttir
syngur einsöng. Jóhann Stefáns-
son leikur á trompet. Kór Vídal-
ínskirkju syngur. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur. Organisti Úlrik Ólason.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sum-
arferð verður farin til Þingvalla á
morgun sunnudag. Brottför með
rútu kl. 11 frá kirkjunni. Gengið
um Þingvöll frá Leynistíg. Sr.
Heimir Steinsson leiðir gesti um
Þingvöll og til guðsþjónustu í
Þingvallakirkju kl. 14. Komið heim
kl. 16. Leiðsögumaður sr. Þór-
hallur Heimisson. Takið með
nesti.
HVERAGERÐISPRESTAKALL:
Guðsþjónusta á Heilsustofnun
NLFÍ kl. 11. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 14. Sóknar-
prestur.
STRANDARKIRKJA, Selvogi:
Helgistund sunnudag kl. 14. Sr.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
Grindavík, þjónar fyrir altari og
sr. Svavar Stefánsson, Þorláks-
höfn flytur hugleiðingu. Organisti
Siguróli Geirsson og kirkjukór
Grindavíkur leiðir söng. Svavar
Stefánsson.
SKÁLHOLTSPRESTAKALL:
Messa í Skálholtsdómkirkju kl.
11. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestm.eyjum:
Almenn guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson
þjónar. Altarisganga. Messukaffi.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl.
14. Aðalsafnaðarfundur að
messu lokinni.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Páll Eyjólfsson og
Laufey Sigurðardóttir leika á gítar
og fiðlu. Organleikari Ingunn Hild-
ur Hauksdóttir. Sr. Heimir Steins-
son.
Fermingar 8. júní
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Ath. breyttan tíma.
Björn Jónsson.
Ferming í Stóra-Laugardals-
kirkju kl. 10.30. Prestur sr.
Sveinn Valgeirsson.
Fermd verða:
Árni Grétar Jóhannesson,
Móatúni 7.
Ársæll Níelsson,
Skógum.
Bjarni Sigmar Guðnason,
Túngötu 39.
Haukur Sigurðson,
Innstu-Tungu I.
Hjalti Þór Heiðarsson,
Túngötu 13.
Ingibjörg Ósk Þórhallsdóttir,
Móatúni 5.
Nansy Rut Helgadóttir,
Móatúni 11
Ninja Dögg Torfadóttir,
Lækjarbakka.
Kristbjörg Sunna Jensdóttir,
Mýrartungu 1, Reykhólahr.
Vilhjálmur Arnórsson,
Arnórshúsi, Króksfj.nesi.
Ferming í Snóksdalskirkju kl. 14.
Prestur sr. Óskar Ingi Ingason.
Fermdur verður:
Svavar Magnús Jóhannsson,
Hlíð, Hörðudal.
Ferming í Súðavíkurkirkju kl.
14. Prestur sr. Magnús Erlings-
son. Fermd verða:
Aldís Ýr Ólafsdóttir,
Seljalandsvegi 72.
Guðjón Bjarni Hálfdánarson,
Álfabyggð 1.
Kristín Ulfarsdóttir,
ArnarflÖt 9.
Kristrún Guðmundsdóttir,
HOLTSPRESTAKALL: Helgi-
stund með altarisgöngu verður í
Flateyrarkirkju sunnudaginn 8.
júní kl. 11. Kaffi á eftir. Sr. Gunn-
ar Björnsson.
Frikirkjan
í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14.
Ferming í Brjánslækjarkirkju,
Barðaströnd kl. 14. Prestur sr.
Sveinn Valgeirsson.
Fermd verða:
Davíð Þorgils Valgeirsson,
Hvammi.
Jódís Brynjarsdóttir,
Efri-Rauðsdal.
Ferming í Reykhólakirkju kl. 11.
Prestur sr. Bragi Benediktsson.
Fermd verða:
Anna Björk Þorgeirsdóttir,
Hellisbraut 42, Reykhólum.
Birgitta Jónasdóttir,
Hellisbraut 22, Reykhólum.
Odda.
Ragnar Freyr Vestfjörð,
Holtagötu 11.
Sigríður Fanndís Jónbjörnsdóttir,
Álfabyggð 2.
Skúli Bergmann Jónasson,
Holtagötu 5.
Valves Gunnarsson,
Hrafnabjörgum.
Ferming í Kolfreyjustaðar-
prestakalli kl. 11. Prestur sr.
Carlos A. Ferrer.
Fermd verður:
Sigríður Fanney Guðjónsdóttir,
Miðgarði 15a, Egilsstöðum.
Organisti er Pavel Smid.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir
þjónar í forföllum
safnaðarprests.
Allir velkomnir.