Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 11 FRÉTTIR SIGURÐUR VE siglir út úr höfninni í Bodö í Noregi í fyrrakvöld. Morgunblaðið/Helgi Ágústsson SIGURÐUR Einarsson, útgerðarmaður Sigurðar VE í Vestmanna- eyjum, leysir landfestar skipsins á bryggjunni í Bodö. Ríkisstjórnin ræddi deiluna við Norðmenn vegna Sigurðar VE Beðið eftir formlegu svari norskra stjórnvalda ENGIN viðbrögð hafa borist frá norska utanríkisráðuneytinu við hörðum mótmælum íslenskra stjórnvalda vegna töku síldveiði- skipsins Sigurðar VE. Er búist við að formlegt svar berist á allra næstu dögum. Ríkisstjórnin fór yfir málið á fundi sínum í gærmorgun. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að hörð viðbrögð íslenskra stjórnvalda vegna málsins séu mjög eðlileg. „Það sem er óeðlilegt er þessi furðulega taka skipsins, enda sér maður af viðbrögðum norskra út- gerðarmanna og sjómanna að þeir botna hvorki upp né niður í málinu og láta hafa eftir sér að þeir von- ist til þess að það sé einhver meiri glæpur hjá-skipstjórnarmönnunum í þessu máli en hafi komið fram opinberlega," segir Davíð. „Óheppilegt atvik“ Helgi Ágústsson, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, kvaddi Nils 0. Dietz, sendiherra Noregs, á sinn fund í ráðuneytinu í hádeginu I gær, þar sem hann ítrekaði mótmæli íslenskra stjórn- valda vegna málsins. Dietz sendiherra sagði í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn að að norsk stjórnvöld mundu svara íslendingum svo fljótt sem kostur væri á. „Norðmenn vilja leggja áherslu á að eiga góð samskipti við íslendinga á öllum sviðum og það á að sjálfsögðu við um fisk- veiðimál. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta á mörgum svið- um sjávarútvegsmála varðandi síld og fleiri tegundir. Við þörfnumst hvors annars. Á næstu árum standa fyrir dyr- um viðræður um ýmis mál, m.a. um síldveiðar, þar sem fleiri þjóðir koma að, þar á meðal Evrópusam- bandið. Það er von okkar í Noregi að þetta óheppilega atvik muni ekki koma í veg fyrir áframhald- andi samstarf þjóðanna og að við náum að þróa það samstarf áfram,“ segir sendiherrann. Aðspurður um áhrif harðrar gagnrýni Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra í garð Norðmanna vegna málsins á samskipti þjóð- anna sagðist Dietz ekki vilja leggja dóm á skoðanir íslenska forsætis- ráðherrans. Helgi Ágústsson sagðist hafa í samtali við sendiherrann lýst yfir vonbrigðum með tilboð lögreglu- yfirvalda í Noregi um sáttagjörð, sem væri í fyllsta máta ósann- gjarnt. Fór hann einnig yfir hvern- ig skeytasendingar frá Sigurði VE hefðu gengið fyrir sig og lýsti óánægju íslendinga með að ekki væri tekið tillit til þeirra skýringa sem hefðu komið fram í málinu af hálfu skipstjórans og lögmanna. „Afgreiðsla þessa máls er í hæsta máta óeðlileg," segir Helgi. Sigurður á veiðar á ný Sigurður VE sem lét úr höfn í Bodö í fyrrakvöld sigldi rakleiðis á veiðar og er væntanlegur á miðin í Síldarsmugunni á alþjóðlegu haf- svæði í dag en þar eru fleiri ís- lensk skip fyrir við veiðar. Sigurð- ur Einarsson útgerðarmaður sagði að veiði væri treg og óvíst væri hvenær skipið kæmi til hafnar en það var að ljúka sínum seinasta veiðitúr á vertíðinni þegar norska strandgæslan tók skipið og dró það til Noregs. Kvaðst hann ekki vita hvort Sigurður færi aftur inn fyrir lögsögumörk Jan Mayen í leit að síld. Peter Gyllestad, fiskistofustjóri í Noregi Hissa á harkaleg- um viðbrögðum Bodö. Morgunblaðið. „EG er hissa á harkalegum við- brögðum íslendinga vegna töku nótaskipsins Sigurðar VE. Það hljóta að vera sameiginlegir hags- munir íslendinga og Norðmanna að skynsamlega sé staðið að nýt- ingu norsk-íslenska síldarstofns- ins. Það er grundvallaratriði að réttar upplýsingar séu gefnar um afla og veiðisvæði. Þessar upplýs- ingar bárust ekki frá Sigurði VE,“ segir Peter Gyliestad, fiskistofu- stjóri í Noregi, í samtali við Morg- unblaðið. Morgunblaðið hitti sjávarút- vegsráðherra Noregs, Karl Erik Schiött Pedersen, að máli í Bodá og spurði hann álits á harkalegum viðbrögðum íslenskra stjórnvalda vegna töku Sigurðar VE. Ráðherr- ann vildi ekkert tjá sig um málið. Sagði það lögreglumál og vísaði auk þess á fiskistofustjóra. Gyllestad segist ekki tilbúinn að tjá sig beint um mál Sigurðar þar sem það sé nú dómsmál og það sé dómstóla að skera úr um það. „Það er þó ljóst að við lítum á það sem alvarlegt brot á lögum og regl- um um veiðar í lögsögu Jan Mayan sé tilkynningaskyldu ekki fullnægt og afladagbók ekki færð með full- nægjandi hætti. Um það eru mörg dæmi og benda má á töku tveggja skoskra skipa í síðustu viku því til staðfestingar.“ Nú liggur fyrir að norsk yfirvöld hafa samþykkt að íslensku skipin færi íslenska afladagbók við þessar veiðar. Breytir það engu? „Það skiptir ekki máli hvernig bókin lítur út heldur hvað í hana er fært. Þær upplýsingar sem við fórum fram á voru ekki færðar inn og það ræður úrslitum. Ég á erfitt með að meta pólitískar afleiðingar þessa máls en trúi ekki öðru en að íslendingar og Norðmenn geti staðið saman um skynsamlega nýtingu norsk-íslensku síldarinn- ar,“ segir norski fiskistofustjórinn. Bréf norska sjávarútvegsráðuneytisins Eðlileg viðbrögð við brotum SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ fékk í gær bréf frá norska sjáv- arútvegsráðuneytinu þar sem fram kemur að það sé álit ráðuneytisins að viðbrögð norsku strandgæsl- unnar og lögregluyfirvalda í Bodö í Sigurðarmálinu hafi verið eðlileg við alvarlegum brotum. Utanríkis- ráðuneytið hefur hins vegar ekki enn fengið viðbrögð við hörðum mótmælum sem send voru til Nor- egs sl. laugardag. Bréfið felur í sér viðbrögð við mótmælum íslenska sjávarútvegs- ráðuneytisins sem send voru til Noregs á mánudag. í mótmæla- skeytinu var útskýrt hvaða tækni- legu skýringar eru á því að tvær tilkynningar Sigurðar VE-15 um komu og brottför úr Jan Mayen lögsögunni bárust ekki til Noregs. í svarbréfi norska sjávarútvegs- ráðuneytisins er ekkert farið ofan í þessi atriði og ekki eru sett fram viðbrögð við þeim vömum sem ís- lensk stjórnvöld hafa haldið uppi í málinu. Einungis er lýst þeirri skoðun ráðuneytisins að eðlilega hafi verið staðið að málum og að Sigurður hafi gerst brotlegur. I bréfi íslenska sjávarútvegs- ráðuneytisins segir að leysist Sig- urðarmálið ekki muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir sam- starf þjóðanna í fiskveiðimálum. Norska sjávarútvegsráðuneytið segist vona að svo verði ekki og óskar eftir góðu samstarfi við ís- land í sjávarútvegsmálum. { norska utanríkisráðuneytinu er verið að undirbúa formlegt svar við bréfi utanríkisráðuneytisins sem sent var til Noregs á laugar- dag. Svars er að vænta í dag. Margir norskir fjölmiðlar fjalla um töku Sigurðar VE 15 við Jan Mayen Viðbrögðum Davíðs líkt við „eldgos íslenskrar reiði“ Norðmenn harma að takan skuli gerð að pólitísku máli NORSKA dagblaðið Nordlys gerir viðbrögð íslendinga við því að norska strandgæslan skyldi færa Sigurð VE til hafnar í Bodo að höfuðatriði í frétt blaðsins í dag og í fyrirsögn er talað um „eldgos íslenskrar reiði“ hjá stjórnvöldum hér á landi. Norska utanríkisráðu- neytið kvaðst í gær harma að ís- lensk yfirvöld skuli hafa gert töku skipsins að „pólitísku máli“. I Nordlys eru yfirlýsingar Dav- íðs Oddssonar, forsætisráðherra íslands, raktar orð fyrir orð. Sagði að „hið munnlega eldgos Davíðs gegn Noregi“ hefði verið á allra vörum á íslandi í gær. í blaðinu var rifjað upp að oft hafi hvöss orð verið látin fjúka frá því að Smugudeilan hófst árið 1993. Ekki síst hafi Jón Baldvin Hannibalsson verið ómyrkur í máli þegar hann var utanríkisráðherra. Blaðið hafði hins vegar eftir íslenskum blaða- mönnum í gær að með yfirlýsing- unum vegna nótaskipsins hefði verið gengið harðar fram en áður. Ónefndur heimildarmaður Morgunblaðsins í Noregi kvaðst telja að þar gerðu menn sér ekki almennilega grein fyrir því hve hörð viðbrögð íslenskra stjórnvalda hefðu verið við því að skipið var tekið, en frétt Nordlys tæki af all- an vafa um það. Sagd; að sama gangi yfir Norðmenn í annarri frétt Nordlys í dag sagði að Davíð Oddsson hefði farið offari með yfirlýsingum sínum. Norskir bátar hafí einnig verið teknir og dæmdir til að greiða sekt- ir að upphæð allt frá 150 þúsund til 300 þúsund norskra króna (1,5 til þriggja milljóna íslenskra króna) vegna lögbrota. Norskir útgerðar- menn og sjómenn telji slíkt smá- muni og ekki sé hægt að segja að norska strandgæslan og lögreglan hafi gengið harðar fram gegn ís- lendingum, en í mörgum öðrum málum. Þetta var haft eftir Audun Marák, formanni í einum samtaka norskra útgerðarmanna, og sagt að hann hafi verið að tala um „síld- arstríðið" milli íslands og Noregs. Sagt var að Marák væri hissa á óvenju hörðum viðbrögðum íslend- inga og þá einkum hótunum Davíðs Oddssonar um að þessi deila geti bitnað á norskum nótabátum þegar þeir hefji loðnuveiðar við Jan Mayen og í íslenskri lögsögu. Niðurstaða Maráks er sú að haldi fram sem horfi muni deilan bitna jafnt á ís- lenskum sem norskum sjómönnum. Samkvæmt frétt dagblaðsins Aftenposten síðdegis í gær harmaði norska utanríkisráðuneytið að taka skipsins væri orðin að pólitísku máli. Ekki pólitískt mál? „Við lítum ekki á þetta sem ut- anríkismál, sem varði sambandið milli Noregs og íslands. Þetta er alfarið lögreglu- og stjórnsýslu- mál,“ hafði norska fréttastofan NTB eftir Ingvari Havnen, blaða- fulltrúa utanríkisráðuneytisins, í gær. „Utanríkisráðuneytið harmar að íslensk yfirvöld skuli hafa gert töku íslenska nótaskipsins að póli- tísku máli.“ í Aftenposten var vísað til þess að Davíð Oddsson hefði sagt að málið væri pólitískt og til þess tek- ið að sendiherra íslands í Noregi, Eiður Guðnason, sem verið hefði í fríi, hefði slegið för sinni til Noregs á frest vegna málsins. Havnen sagði að mótmælum íslendinga yrði svarað þegar ráðu- neytið hefði kynnt sér málið. í frétt Aftenposten er haft eftir Kristbirni Árnasyni, skipstjóra Sig- urðar VE 15, að hann hafi engu haldið leyndu fyrir norskum stjórn- völdum og þeir hafi vitað allt um ferðir skipsins og athafnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.