Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 25
AÐSENDAR GREINAR
Um vægi atkvæða
LÍTIL frétt í Mbl.
laugardaginn 7. júní
vakti athygli mína. Þar
var greint frá nýjum
vinnustaðasamningi
sem gerður var af til-
stilli Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur
annars vegar og
Vinnuveitendasam-
bands íslands hins
vegar vegna starfs-
manna Hagkaups á
Eiðistorgi. Þar kom
fram að VR og VSÍ
hefðu gert um það sér-
stakan samning að at-
kvæði þeirra sem
hefðu atkvæðisrétt
hefðu mismunandi mikið vægi eftir
því hve langan vinnudag þeir ynnu
og væri þetta gert að danskri fyrir-
mynd. Þeir sem ynnu undir 20
stundum á viku hefðu 20% vægi,
þeir sem ynnu 20-30 stundir í viku
hefðu 25% vægi, þeir sem ynnu
30-40 stundir á viku hefðu 75% og
þeir sem ynnu meira en 40 stundir
á viku hefðu fullt atkvæðisvægi
samkvæmt skýringu starfsmanns
VR. Nú er það svo að um af-
greiðslu kjarasamninga gilda lög
um stéttarfélög og vinnudeilur nr.
80/1938. Hagkaupssamningurinn á
Eiðistorgi er kjarasamningur í
skilningi þeirra laga þar sem hann
var gerður með tilstilli stéttarfélag-
anna. í 3. mgr. 5. gr. laganna seg-
ir meðal annars að taki kjarasamn-
ingur einungis til hluta félags-
manna eða starfsmanna fyrirtækis
sé heimilt að ákveða í samningnum
að þeir einir séu atkvæðisbærir um
hann, enda komi þar skýrt fram
hvernig staðið verði að atkvæða-
greiðslu. Þetta ákvæði verður ekki
skilið þannig að stéttar-
félagi og vinnuveitend-
um sé heimilt að skerða
atkvæðavægi einstakra
starfsmanna og grund-
valla skerðinguna á
vinnuframlagi fólksins.
Hvaðan kemur mönn-
um vald til að reikna
rétt þess sem vinnur
fulla 40 stunda vinnu-
viku sem 75% rétt eða
þess sem vinnur hálft
starf sem 20% rétt?
Þetta gengur mér
illa að skilja í ljósi
þeirra alþjóðlegu
skuldbindinga sem Is-
land er aðili að, sam-
þykktar Alþjóðavinnumálastofnun-
arinnar nr. 87 um félagafrelsi og
verndun þess og samþykktar sömu
stofnunar nr. 98 um beitingu
grundvallarreglnanna um réttinn til
að stofna félög og semja sameigin-
lega. Stéttarfélög hafa hingað til
lagt á það ríka áherslu að jafnræði
gildi meðal félagsmanna. Þar á
meðal að reglan um að hver maður
hefði jafnan atkvæðisrétt, hvort
sem væri til ákvarðanatöku innan
félags eða við afgreiðslu samninga.
Þau hafa í reynd talið sér skylt að
hlíta jafnræðisreglu stjómsýslulag-
anna gagnvart félagsmönnum sín-
um sem segir að óheimilt sé að
mismuna aðilum við úrlausn mála
á grundvelli sjónarmiða byggðum á
kynferði, kynþætti, litarhætti, þjóð-
erni, trúarbrögðum, stjórnmála-
skoðunum, þjóðfélagsstöðu, ætterni
eða öðrum sambærilegum ástæð-
um. Það að vísa í danskan rétt á
hér ekki við og ber þess merki að
menn hafi ekki hreina samvisku. í
fréttinni kemur einnig fram að þótt
Stéttarfélög eru ekki og
verða aldrei, segir Lára
V. Júlíusdóttir, hlið-
stæð hlutafélögum þar
sem fjármagnið ræður
atkvæðavæginu.
þessari hlutfallsreglu hefði ekki
verið beitt hefði samningurinn verið
samþykktur allt að einu. Það að
taka þetta fram sýnir líka óhreint
mjöl í pokahorni. í þessu tilviki var
verið að gera vinnustaðasamning
sem fól i sér verulega skerðingu í
kjörum fyrir hlutavinnufólk. Þá er
búin til regla með tilstilli stéttarfé-
lagsins sem skekkir vægi hópsins
innbyrðis við ákvarðanatökuna. Ég
vona að þetta sé einsdæmi, slys sem
verði ekki endurtekið og stéttarfé-
lög láti ekki undan þrýstingi at-
vinnurekenda að skerða kjör félags-
manna sinna með því að skekkja
atkvæðisrétt þeirra. Atkvæðisréttur
félagsmanna í stéttarfélögum um
kaup og kjör er hluti af mannréttind-
um, réttur sem verður ekki af þeim
saminn á þennan hátt. Á verkafólk
von á því í framtíðinni að farið verði
að reikna áhrif þess við atkvæða-
greiðslu kjarasamninga innan stétt-
arfélagsins út frá vinnuframlagi
þess? Verður næsta skrefíð að reikna
atkvæðisrétt út frá framlegð eða
tekjum? Stéttarfélög eru ekki og
verða aldrei hliðstæð hlutafélögum
þar sem fjármagnið ræður atkvæða-
væginu. Þessu verða forystumenn
félaganna að átta sig á.
Höfundur er lögmaður.
LáraV.
Júlíusdóttir
Að falla en halda velli
MEÐ samþykkt
miðlunartillögu er á
Vestfjörðum nú lokið
einni lengstu og harð-
vítugustu vinnudeilu
hérlendis á síðari átr-
atugum.
Það er vissulega
íhugunarefni hvernig á
því stendur að við virð-
umst, a.m.k. á þeim
punkti landsins, vera
að hverfa aftur til
fyrstu ára stéttabar-
áttu á íslandi, þegar
menn glímdu á bryggj-
unum; verkfallsverðir
fóru ekki af fötum vik-
um saman og í at-
vinnurekendum, sem í þann tíð
skörtuðu fremur harðkúluhöttum
en fjallajeppum, sá alþýðan arðræn-
ingjann sjálfan.
Nú undanfarin ár höfum við búið
við síendurteknar þjóðarsáttir.
Skólabræður úr hagfræðideildinni
hérna vestur á Melum koma sér á
kvöldstund saman um hver skuli
vera ásættanlegur skerfur launþega
af þjóðarkökunni og stéttaátök á
vinnumarkaði og þess kyns ulla-
bjakk höfðum við afgreitt á rusla-
haug sögunnar í eitt skipti fyrir öll.
Við töldum okkur nefnilega hafa
staðið að því saman að vinna okkur
út úr kreppu og efnahagslegri lægð.
Og það tókst að lokum og á okkur
brast það góðæri sem talsmenn rík-
isstjórnarflokkanna dásama nú á
alla lund og tala um sem eigið sköp-
unarverk. En þegar okkur birti aft-
ur fyrir augum blasti við nokkuð
breytt þjóðfélag. Hvort það er betra
eða verra en það sem áður var fer
þó líklega mest eftir því af hvaða
kögunarhóli skyggnst er um.
Eg sá til dæmis nú nýverið í blöð-
um að hlutabréfaeign einstaklinga
næmi nú u.þ.b. 60 milljörðum. Þess-
um böggli fylgdi að vísu það skamm-
rif að skuldir heimilanna hefðu auk-
ist um tvo milljarða á mánuði sl. ár.
Eignir heimilanna
höfðu sem sé aukist um
ámóta upphæð og nam
skuldaaukningunni. Af-
koma heimilanna í
landinu var m.ö.o.
nokkuð góð.
Það er hinsvegar
hætt við því að sá hóp-
urinn sem nú rær lí-
fróður til þess að
bjarga heimilum sínum
frá uppboðum og fjár-
hag sínum frá hruni sé
ekki sami hópurinn og
sá sem gleðst yfir hrað-
vaxandi hlutafjáreign
sinni.
Sá trillukarl sem
reynir af fremsta megni að sjá fjöl-
skyldu sinni farborða með því að
draga físk á leigukvóta sér góðærið
að líkindum öðrum augum en hinn
sem fengið hefur að gjöf kvóta upp
á milljónatugi.
Þó Vestfirðingar hafi
tapað orustunni, segir
Sigríður Jóhanns-
dóttir, er það þó í sjálfu
sér sigur að hafa lagt
til orustu.
Það gerðist nefnilega samhliða
því að menn einbeittu sér að því
að veijast kreppu og erfiðleikum,
meðan launamenn samþykktu að
láta sér nægja sultarlaun og dregið
var úr skattheimtu á fyrirtæki til
þess að styrkja þau til góðra verka,
að inn um bakdyrnar læddist vax-
andi græðgi peningaaflanna.
Dyggilega studdir af ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar sem ýmist kallaði
til liðs við sig Alþýðuflokkinn eða
Framsókn tókst þeim að breyta ís-
lensku þjóðfélagi í þjóðfélag
stéttaátaka; þjóðfélag kreppuár-
anna. Hér varð til í fyrsta sinn um
áratugaskeið raunveruleg fátækt
og jafnframt reis upp stétt nýríkra
nýfijálshyggjumanna sem aldrei
virðast fá nóg.
í deilunni á Vestfjörðum sjáum
við glöggt ósvífni kvótaeigendanna
þegar þeir hóta því að fara burt
úr byggðarlaginu með lífsbjörg
fólksins ef það ekki sættir sig við
hvaða smánarkjör sem þeim þókn-
ast að bjóða. Með því að veita til-
tölulega fámennum jeppaklúbbi
einkarétt á nýtingu fiskimiða lands-
ins er í raun búið að selja honum
sjálfdæmi um lífskjör almennings.
Þessi leið liggur ekki til aukinnar
hagsældar heldur er þetta leið mis-
réttis og kúgunar.
Þótt verkamenri á Vestfjörðum
hafí nú neyðst til þess að drekka
úr hóffarinu með því að samþykkja
miðlunartillögu sem tæpast er um-
talsvert betri en hin sem felld var
á dögunum þá hefur barátta þeirra
þó sýnt okkur hinum „sem kyrrir
og tvílráðir stöndum" að það er
ekki öll nótt úti enn.
Ég vil hér votta þeim virðingu
mína því í langri og harðri baráttu
þessara fámennu verkalýðsfélaga
við sameinað vald atvinnurekenda
og ríkisstjórnar þar sem þau nutu
svo grátlega lítils stuðnings þeirra
sem þó kallast félagar þeirra voru
úrslitin líklega fyrirfram ráðin.
En þótt hér hafi tapast orusta
er það þó í sjálfu sér sigur að hafa
lagt til orustu því í þeim verknaði
eru skýr skilaboð til ríkisstjómar
og atvinnurekenda um að enn finnst
hér fólk sem er ekki tilbúið til þess
að fallast á sátt um þá stefnu mis-
réttis sem ríkisstjórnin hefur fylgt.
Sigur þeirra felst einnig í þvi að
þeir hafa nú lagt okkur hinum þá
skyldu á herðar að bera kröfur
þeirra sameiginlega fram til sigurs
í næstu lotu.
Höfundur er alþingismaður.
Sigríður
Jóhannsdóttir
SUNNLENDINGAR
Vegna mistaka við prentun símaskrárinnar 1997 féll út
símanúmerið á tannlæknastofunni á Austurvegi 9, Selfossi.
Þorsteinn Pálsson
TANNLÆKNIR
Austurvegi 9, Selfossi
Sími 482 1338 - Fax 482 3405
Páll Jónsson
TANNLÆKNIR
Austurvegi 9, Selfossi
Sími 482 1338 - Fax 482 3405
■ ----------1
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur
ÖÓuntu
tískuverslun
H V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 >
PARTAR
BÍLAPARTASALA
KAPLAHRAUNI 11-220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 565 3323 • FAX 565 3423
EIGUM FYRIRLIGGJANDI
NÝJA OG NOTAÐA
VARAHLUTI í FLESTAR
GERÐIR BÍLA
HÚDD - BRETTI - STUÐARA
HURÐIR - UÓS - GRILL
AFTURHLERA - RÚÐUR
Efst
á óskalista
brúðhjónanna!
mest selda heimilisvélin í 50 ár
9 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu, rauðu og gráu
• Fjöldi aukahluta
• Islensk handbók fylgir með uppskriftum
• Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
9 Sérstök brúðkaupsgjöf:
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðu nafni
sínu og brúðkaupsdegi
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf
Einar
hf
Borgartúni 28 * 562 2901 og 562 2900