Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 17 Reuter í GÆR var 1997 dúfum sleppt í Hong Kong í tilefni af því að Bretar munu afhenda Kínverjum borgina 1. júlí. Dúfurnar sem flugu til Kína áttu að tákna samruna Hong Kong og Kína. Spenna fer vax- andí í Hong Kong Hong Kong. Reuter BRETAR munu afhenda Kínverjum Hong Kong 1. júlí næstkomandi. Undirbúningur stendur nú sem hæst vegna hátíðahalda í tilefni af afhendingunni sem mun binda enda á 156 ára yfirráð Breta í borginni. Hong Kong sem Bretar unnu af Kínveijum í hinum svokölluðu Óp- íumstríðum á nítjándu öld mun upp frá því verða kínverskt sjálfstjórn- arfylki. Spenna hefur farið vaxandi í Hong Kong undanfarna mánuði. Á undanförnum árum hafa Bretar, undir forsæti Chris Patten, ríkis- stjóra, lagt áherslu á lýðræðisþróun í borginni m.a. með kosningum til löggjafaþings árið 1995. Aðgerðirn- ar hafa reitt kínverska ráðamenn til reiði og Hong Kong-búar óttast aðgerðir þeirra til að snúa þróun- inni við. Stjórnvöld í Peking hafa þegar ákveðið að löggjafaþingið verði leyst upp strax eftir valdatökuna og valið nýtt löggjafaþing sem mun leysa það af hólmi. Nýja þingið, valið af kínverskum ráðamönnum, saman- stendur af 60 stjómmála- og við- skiptamönnum sem allir eru hliðholl- ir Kínastjóm. Samkvæmt áætlun Kínastjómar munu fulltrúar nýja löggjafaþingsins sverja embættiseið sinn í framhaldi af afhendingarathöfninni, 1. júlí. Fréttaskýrendur segja Kínveija vilja nota tækifærið til að fá blessun er- lendra leiðtoga á hinu nýja þingi. Bandaríkin hafa þegar lýst því yfir að þau hyggist sniðganga þing- setninguna. Bretar hafa enn ekki svarað því hvort Tony Blair, forsæt- isráðherra, komi til Hong Kong i tilefni afhendingarinnar. Svo virðist sem hann bíði frekari útskýringa Kínveija á því hvaða hlutverki hið nýja þing muni gegna í hátíðarhöld- unum áður en hann taki ákvörðun. Demokrataflokkur Hong Kong, sem hlaut flest atkvæði í kosning- unum árið 1995, höfðaði á þriðjudag dómsmál til að fá úr þvi skorið hvort hið nýja þing geti talist lögmætt. Lögfróðir menn telja litla möguleika á að flokkurinn fái þingið dæmt ólögmætt en málshöfðunin getur bæði tafið yfirtöku þess svo og varp- að skugga á hátíðahöldin. Viðskiptajöfurinn Tung Chee-hwa sem verður hæstráðandi í Hong Kong eftir valdatöku Kínveija hefur hvatt íbúa Hong Kong til að leggja niður andspyrnu gegn Kínastjóm. Einnig sagðist Tung vera tilbúinn til að víkja úr stöðunni ef til grund- vallarágreinings kæmi. Er yfirlýsing hans talin benda til þess að ágrein- ingur sé þegar kominn upp á milli tilvonandi valdhafa Hong Kong. Reuter Breytingar hjá British Airways BRESKA flugfélagið British Airways kynnti í gær þriggja ára áætlun um breytingar á öllum þáttum rekstrarins. Voru af því tilefni sýnd tvö dæmi um nýtt útlit flugvéla félagsins, Concordeþotu og Boeing 747-400, og þótti sumum nóg um litagleðina. Þá var gagnrýnt að breski fáninn er ekki lcngur hluti af merkingu véla félags- ins. Áætlunin hljóðar upp á breytingar fyrir sem svarar 700 milljörðum islenskra króna og felur í sér ný einkenni fyrir félagið, nýja þjónustu, nýjar flugvélar og aukna þjálfun starfsfólks, svo eitthvað sé nefnt. Bæta á 43 flugvélum við flotann, 29 Boeing 747-400, níu Boeing 777 og fimm Boeing 757. Þá verður gífurlegum fjár- hæðum varið til að þróa nýjar flugleiðir, aukna þjónustu og bjóða upp á nýjungar, auk þess að leggja nýjar áherslur í þjón- ustu við viðskiptavini. Bæta á aðstöðu við flughöfn félagsins á Kennedy-flugvelli í New York, og endurnýja innrit- unaraðstöðu á Heathrow-flug- velli í London. Þá á að auka þjónustu frá öðrum flugvelli í London, Gatwick. Leita á eftir fleiri samstarfs- samningum á borð við þann sem flugfélagið hefur nú við Am- erican Airiines og bjóða upp á flug til fleiri áfangastaði víðs- vegar í heiminum. Smellubuxur Laugavegi 23 - Sími 551 5599 Bildt segir Svía eiga á hættu að einangrast Hefur áhvffenur af samkomulaffi NATO og Rússa SVÍAR eiga á hættu að einangrast í friðar- og öryggismálum í Evrópu ef marka má orð Carls Bildts, leið- toga stjórnarandstöðuflokks hægri manna í Svíþjóð, í samtali við dag- blaðið Dagens Nyheter. Segir Bildt þar að samkomulag Atlantshafs- bandalagsins (NATO) við Rússa hafi breytt stöðunni það mikið að Svíar verði að endurskoða sam- skiptin við bandalagið. Bildt lýsir í viðtalinu eftir „skýrri og hárri rödd Svíþjóðar í umræð- unni um Evrópu“. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur lýst yfir því að hann þekki hina nýju leiðtoga Evr- ópu, en Bildt aðeins þá gömlu. Þessu svarar Bildt því að Persson „virðist haldinn einhvers konar Bildtduld“. Bildt kveðst vilja hefja umræðu um þau skilyrði, sem séu fyrir að- ild að NATO í núverandi stöðu. Aðild sé hins vegar ekki nauðsynleg í fyrstu umferð stækkunar banda- lagsins, en ráðgert er að bjóða nokkrum fyrrverandi Varsjár- bandalagsríkjum aðild á leiðtoga- fundi NATO í Madríd í júlí. Vill sérstakt sendiráð Hins vegar verði menn að hafa tekið afstöðu þegar þar að komi að önnur umferð stækkunarinnar fari fram. Bildt telur þá tillögu stjórnarinnar að sendiherra Sví- þjóðar í Belgíu hafi málefni NATO einnig á sinni könnu ófullnægjandi og bætir við að það ætti að vera sjálfsagt að hafa sérstakt NATO- sendiráð. Að auki væri eðlilegt að fyrsta skrefið yrði að hafa vamar- málafulltrúa bæði í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel og hernað- arhöfuðstöðvunum í Mons. Naumur sigur Tékklandsstj órnar Prag. Reuter. SAMSTEYPUSTJÓRN miðju og hægriflokkanna í Tékklandi, undir forsæti Vaclavs Klaus, vann nauman sigur í atkvæðagreiðslu um traustsyfirlýsingu á tékk- lenska þinginu í gær. Fékk stjórn- in 101 atkvæði af 200 í neðri deild þingsins. Stjórnarflokkarnir hafa samtals 100 sæti í neðri deild, og í at- kvæðagreiðslunni í gær nutu þeir stuðnings óháðs fulltrúa, Jozefs Wagners, sem er formaður fjár- veitinganefndar þingsins. Hann gerði það að skilyrði fyrir atkvæði sínu að neðri deildin fengi að greiða atkvæði um einkavæðingu hlutar ríkisins í bönkum og al- menningsþjónustufyrirtækjum sem fjármálaráðuneytið hefur þeg- ar lagt til. Klaus fór fram á atkvæða- greiðslu um traustsyfirlýsingu við stjórn sína, sem hefur átt undir högg að sækja undanfarið. Mark- mið stjórnarinnar eru að minnka enn ríkisútgjöld um 20 milljarða tékklenskra króna, eða sem svarar rúmum 43 milljörðum íslenskra króna á fjárlögum þessa árs. IWLEtm i FIMMTUDAGINN 12. JUNI KL. 20.00 Arnold Östman ÓPERUTÓNLIST eftir: Mozart, Schubert, Rossini, Gounod, Verdi og Tchaikovsky SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255 MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.