Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 35
SKÓLASLIT
Morgunblaðið/Halldór
UM 1.000 manns voru við brautskráningu úr Kennaraháskóla
íslands í Hallgrímskirkju.
Brautskráning úr Kennaraháskóla íslands
Fjölmenni við
útskriftarathöfn
ÞANN 7. júní sl. fór fram braut-
skráning kandidata frá Kenn-
araháskóla íslands. Athöfnin, sem
að venju var haldin í Hallgríms-
kirkju, var óvenjufjölmenn en þar
voru um 1000 manns. 118 kandí-
datar voru brautskráðir úr al-
mennu kennaranámi til B.Ed.-
prófs en fyrr á þessu skólaári
hafa 67 kandídatar verið braut-
skráðir. Brautskráning fer að öllu
jöfnu fram þrisvar á ári, í októ-
ber, í febrúar og í júní, og er
vorútskriftin þeirra fjölmennust.
A síðastliðnu ári fór einnig fram
brautskráning í ágúst en þá var
brautskráður fyrsti hópurinn sem
lýkur B.Ed.-gráðu með fjarnámi.
B.Ed.-gráða er skipulögð sem
3ja ára nám og auk hinna 118 sem
luku almennu kennaranámi þá
lauk einn starfandi kennari námi
í nýrri valgrein og bætti þannig
30 einingum við fyrra nám sitt.
Þá brautskráðust 19 kandidatar
úr námi í uppeldis- og kennslu-
fræðum fyrir framhaldsskóla-
kennara. Það nám er til 30 ein-
inga en dreifist jafnt á 2 ár þar
sem það er tekið samhliða starfi.
5 kandídatar voru brautskráðir
með meistaragráðu, M.Ed.-
gráðu, í uppeldis- og kennshi-
fræðum. Nám til meistaragráðu
er 60 eininga framhaldsnám, það
dreifist á nokkur ár þar sem það
er yfirleitt stundað jafnhliða
staírfi.
Við brautskráningu voru veitt
verðlaun úr Minningarsjóði As-
geirs Björnssonar. Verðlaunin
eru árlega veitt fyrir kennslurit-
gerð sem þykir sérstaklega at-
hyglisverð og vel unnin. Að þessu
sinni hlutu verðlaunin Jóna Björk
Siguijónsdóttir og Reynir Þór
Sigurðsson. Lokaritgerð þeirra til
B.Ed.-prófs, „Á ég að gæta bróður
míns?“ fjallar um hvemig tekið
er á samkynhneigð í námsefni
grunnskóla.
Kennaraháskólanum bárust
góðar gjafir frá afmælisár-
göngum sem fögnuðu 40, 50 og
60 ára kennaraafmæli en fjöldi
þessara kennara var viðstaddur
brautskráningu og þáði boð skól-
ans að henni lokinni.
JÓNA Björk Siguijónsdóttir og Reynir Þór Sigurðsson hlutu
verðlaun fyrir lokaritgerð sína um það hvernig tekið er á sam-
kynhneigð í námsefni grunnskóla.
Morgunblaðið/Kristján
KAMPAKÁTIR svæðisleiðsögumenn að lokinni útskrift sem fram fór
á veitingastaðnum Við Pollinn. F.v. Eggert Siguijónsson, Birna Frið-
riksdóttir, Magnús D. Ásbjömsson, María Jespersen, Sævar Sigurðs-
son, Herdís Gunnlaugsdóttir, Róbert Sigurðsson, Juliane Kauertz,
Claudia Lobindzus, Kristín Sigfúsdóttir og Ragnheiður Gestsdóttir.
Á myndina vantar Bjöm Sverrisson og Anke-María Steinke.
Leiðsögumenn útskrifaðir
NÁMSKEIÐI fyrir svæðisleiðsögu-
menn á Norðurlandi eystra lauk
nýlega á Akureyri og voru 13 leið-
sögumenn útskrifaðir. Námskeiðið
var haldið undir handleiðslu Leið-
söguskóla íslands í Kópavogi en
bóknámskennsla fór fram í húsnæði
Menntaskólans á Akureyri.
Mikill skortur hefur verið á svæð-
isleiðsögumönnum á Norðurlandi
eystra og sóttu ferðaþjónustuaðilar
það stíft að fá námskeið sett upp
fyrir norðan. Námið hefur staðið
yfir frá því í septemberlok á síðasta
ári og áherslan lögð á bóklega þátt-
inn fram að áramótum. Eftir áramót
var m.a. ferðast um svæðið með
nemendur, frá Skagafirði austur í
Öxarfjörð og Mývatnssveit.
Ferðaþjónustuaðilar aðstoðuðu
við námskeiðshaldið og m.a. voru
allar ferðir um svæðið í boði Sérleyf-
isbíla Akureyrar. Einnig komu starf-
andi leiðsögumenn að námskeiðinu.
Skólaslit Tónlistarskólans í Reykjavík
20 nemendur brautskráðir
BRAUTSKRÁÐIR nemendur vorið 1997 ásamt skólastjóra,
Halldóri Haraldssyni.
TÓNLISTARSKÓLANUM í Reykja-
vík var slitið 30. maí sl. í Háteigs-
kirkju í 67. sinn. Við upphaf athafn-
ar lék Lindberg-kvintettinn, skipað-
ur nemendum úr blásaradeild skól-
ans, Þijá forna dansa eftir Ferenc
Farkas. Skólastjórinn, Halldór Har-
aldsson, flutti ræðu um helstu at-
burði skólaársins. Að því loknu af-
henti hann burtfararprófsnemendum
skírteini sín. Að þessu sinni braut-
skráðust 20 nemendur með 21 loka-
próf, en einn nemandi lauk tvenns
konar prófum. Fjórir nemendur luku
tónmenntakennaraprófí, fjórir loka-
prófi frá tónfræðideild, sjö blásara-
kennaraprófi, einn söngkennara-
prófi, einn píanókennaraprófi, þrír
burtfararprófi og einn einsöngsprófi.
Ýmsir góðir gestir sóttu skólann
heim og héldu fyrirlestra, námskeið
eða tónleika. Prófessor Reinhard
Ring frá Tónlistarskólanum í Hanno-
ver leiðbeindi nemendum í spuna og
rytmik, hinn þekkti fiðluleikari og
konsertmeistari, Sidney Harth, hélt
námskeið fyrir strengjakennara og
nemendur, Gregory A. Myers hélt
fyrirlestur um búlgarska nútímatónl-
ist og kona hans, Anna Levy héit
tónleika með píanóverkum rúss-
neskra tónskálda, Atli Heimir Sveins-
son hélt fyrirlestur um sönglagið og
Sigvalda Kaldalóns, hinn þekkti bas-
saklarínettleikari, Harry Spamaay,
hélt fyrirlestur um tækni hljóðfæris
síns með tóndæmum og að lokum
héldu þeir Paul Griffiths og Sean
Gregory, kennarar frá Guildhall
School of Music and Drama í Lond-
on, námskeið í spuna og tónlistarm-
iðlum sem endaði með þátttöku 12
ára nemenda í Æfingadeild KHÍ.
Aukin samvinna
við erlenda skóla
Samvinna við skóla erlendis hefur
haldið áfram og eflst. Tveir nemend-
ur frá hinum Norðurlöndunum, einn
frá Finnlandi og einn frá Svíþjóð
stunduðu nám við Tónlistarskólann
í Reykjavík, einn nemandi frá Tón-
listarskólanum stundaði nám við
Tónlistarháskólann í Kaupmanna-
höfn og einn nemandi stundaði nám
sem Erasmus-nemandi við Salford
College á Englandi.
í október tók skólinn þátt í stofn-
un Samtaka tónlistarskóla í Reykja-
vík, STÍR, sem stefnir að öflugra
samstarfi tónlistaskólanna í Reykja-
vík á ýmsum sviðum. í mars stóð
skólinn að forkeppni að Tónlistar-
keppni Norðurlanda eða NordSol ’97
á vegum Norræna tónlistarháskólar-
áðsins sem Tónlistarskólinn í
Reykjavík er aðili að og var Pálína
Árnadóttir, fiðluleikari, valin fulltrúi
íslands í lokariðli keppninnar, sem
fer fram dagana 9.-13. júní nk. í
Þrándheimi, sem á þúsund ára af-
mæli á þessu ári.
45 tónleikar yfir veturinn
Tónleikahald var með mesta móti,
en haldnir voru alls 45 tónleikar
yfir veturinn, þar af 14 opinberir.
Hljómsveit skólans hélt tvenna tón-
leika, þeir síðari með einsöngvara-
prófi og tónverkum tónskálda í tón-
fræðadeild, þrennir tónieikar
strengjasveita skólans og tónieikar
með kór skólans. Þá fluttu nemend-
ur skólans óperuna „Amahl og næt-
urgestirnir," eftir Menotti í tónleika-
formi rétt fyrir jól í umsjá Sieglinde
Kahmann Björnsson og sá hún einn-
ig um tónleika á vorönn með atriðum
úr ýmsum óperum í sal skólans að
Laugavegi 178, „Stekk“.
Júbílantasjóður
í lok skólaslita gáfu nemendur
þeir sem brautskráðust frá skólanum
bókasafni skólans magnara ásamt
heymartólum. Fyrir munn 10 ára
júbílanta talaði Kristrún Björnsdóttir
sem gaf skólanum fyrir þeirra hönd
peningagjöf sem stofnfé að sjóði
júbílanta sem gæti orðið skólanum
stuðningur á ýmsum sviðum. Orð
fyrir 30 _ára júbílöntum hafði Jón
Hlöðver Áskelsson, tónskáld og fyrr-
verandi skólastjóri Tónlistarskólans
á Akureyri, sem hélt sköruglega
ræðu og afhenti skólanum myndar-
lega gjöf nemenda og júbílanta og
skilaði kveðjum frá Hólmfríði Sigur-
jónsdóttur, fyrrum yfirkennara og
skólastjóra Tónlistarskólans í
Reykjavík, sem á 50 ára útskriftar-
afmæli á þessu vori.
ÚTSKRIFTARNEMAR Fjölbrautaskóla Akraness á vorönn ásamt Herði Helgasyni, skólameistara,
og Birnu Gunnlaugsdóttur, aðstoðarskólameistara.
Skólaslit Fjölbrautaskóla Vesturlands
Brautskráð í 20. sinn
FJÖLBRAUTASKÓLA Vestur-
lands á Akranesi var slitið í
tuttugasta sinn 23. maí sl. Þá
voru brautskráðir 73 nemendur
af 19 námsbrautum, þar af 42
stúdentar.
686 nemendur stunduðu nám
við skólann í vetur, þar af 41 í
Stykkishólmi og 28 í framhalds-
deildinni í Snæfellsbæ. Auk stúd-
entanna 42 luku 9 nemendur iðn-
námi, 3 af uppeldisbraut, 2 af
sjúkraliðabraut, 2 af viðskipta-
braut, 2 af starfsbraut, 2 af vél-
stjórabraut 1. stigs og einn nem-
andi af fyrri bluta tæknibrautar.
5 nemendur luku rafsuðubraut
sem boðið var upp á í öldunga-
deild í vetur og 5 nemendur luku
grunndeild verknámsbrautar. Þá
lauk 21 nemandi ársnámi í Reyk-
holti en skólinn hefur verið rek-
inn þar í 2 ár sem tilraunaverk-
efni Fjölbrautaskóla Vesturlands
um ársnám. Óvíst er hvaða starf-
semi verður í Reykholti næsta
skólaár en starfshópur vinnur
að tillögum um það.
Að sögn Harðar Helgasonar,
skólameistara, gekk skólastarfið
vel í vetur. Starfsemi skólans er
mjög fjölbreytt og félagslíf nem-
enda gott. Að vanda voru veittar
fjölmargar viðurkenningar fyrir
námsárangur og félagsstörf.
Þrír nemendur; Eiríkur Jónsson,
Hrefna María Eiríksdóttir og
Hannes Þjóðbjörnsson þóttu
standa sig best og fengu þau
fjölda viðurkenninga. Athyglis-
vert er að þessir þrír nemendur
fá viðurkenningar bæði fyrir
námsárangur og félagsmála-
störf.
Nemendur sem útskrifuðust
frá skólanum á haustönn 1986
og vorönn 1987 voru viðstaddir
brautskráninguna nú og færðu
skólanum að gjöf vegglistaverk
eftir einn úr þeirra hópi, Lárus
Guttormsson.