Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Grjótvörn við Hafnargarðinn Skagaströnd - Þessa dagana fara fram miklir gijótflutningar úr Hvammkotsbruna á hafnarsvæðið. 8000 rúmmetrar af grjóti verða fluttir þessa 15 kílómetra leið til notkunar í gijótvörn við gamla hafn- argarðinn sem er að hruni kominn. Setja á gijótvörn vestan við hafn- argarðinn og fyrir enda hans. Mikið hefur runnið undan botni karsins sem myndar fremsta enda garðsins og voru menn farnir að óttast að endinn mundi brotna af garðinum og berast inn í höfnina. Með fyrir- hugaðri grjótvörn verður komið í veg fyrir slíkt auk þess sem brim- vörnin fyrir höfnina mun batna til muna. Einnig kom fram, við líkanstil- raunir, að ölduhreyfmg í höfninni mun minnka mikið og lægi fyrir báta verður því öruggara. Innsigling í höfnina mun þrengast nokkuð en verður samt, eftir að framkvæmdum lýkur, um 200 metra breið. Þá er áætlað að setja upp einhvers konar viðvörunarmerki á blindskerið Brún- kollu sem er sunnanvert við innsigl- inguna. Verkið hefur tafist nokkuð vegna gjaldþrots verktaka sem tók það að sér í upphafi og átti að ljúka því síðastliðið haust. Var það boðið út aftur og samið við nýjan aðila um miðjan mars. Var gengið til samn- inga við Rögnvald Arnason frá Sauð- árkróki en hann bauð 17,5 milljónir í að Ijúka verkinu og á því að vera lokið í september í haust. Gijótið sem fer í vömina er flokk- að í nokkra stærðarflokka en síðan verður gengið í að koma því á sinn stað þegar lokið er við að flytja það allt á flokkunarstaðinn. Systurnar hætta rekstri leikskólans Stykkishólmi - Ólafur Hilmar Sverrisson bæjarstjóri og systir Suzanne Beens undirrituðu 30. maí sl. fyrir hönd St. Fransiskuss- reglunnar samning þar sem kveð- ið er á um að Stykkishólmsbær yfirtaki rekstur leikskólans sem systurnar hafa starfrækt í fjölda- mörg ár. Systurnar á St. Fransiskus- spítalanum í Stykkishólmi hafa rekið leikskóla fyrir börn á leik- skólaaldri með styrk frá Stykkis- hólmsbæ. Nú óska þær eftir að hætta rekstrinum og að Stykkis- hólmsbær taki við. Rekstur leikskóla í samvinnu við sveitarfé- lagið hefur staðið frá 1982. Samningurinn sem nú var undir- ritaður tekur gildi hinn 1. ágúst nk. Áður ráku systurnar barna- heimili og tóku börn af höfuð- borgarsvæðinu í sumardvöl. Að sögn Ólafs Hilmars mun bærinn leigja húsnæðið þar sem leikskólinn hefur verið, en það er í eigu reglunnar. Litlar breyt- ingar mun fylgja þessari yfir- töku. Hann vildi koma á fram- færi innilegu þakklæti til systr- anna frá bæjarbúum fyrir dygga þjónustu og fórnfúst starf þeirra. Þær hafa haft góð áhrif á marg- an Hólmarann þegar hann var að stíga sín fyrstu skref á þroskabrautinni og fengið gott veganesti. Ólafur vildi sérstak- lega þakka systur Lovísu fyrir hennar störf, en hún lætur nú af störfum eftir að hafa starfað við leikskólann í Stykkishólmi frá árinu 1969. Af þessu tilefni mættu fulltrúar St. Fransiskusreglunnar bæði frá Róm og Brussel. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason FRÁ undirritun samnings (f.h.) Margrét Thorlacius hjúkrunarforstjóri, Ólafur Hilmar Sverris; son bæjarstjóri, systir Suzanne Beens frá Brussel og systir Rene, príorína í Stykkishólmi. í aftari röð: Róbert Jörgensen, framkvæmdastjóri sjúkrahússins, Micaela Garriz, yfirgjaldkeri í Róm, Jeanne van Beek, gjaldkeri í Brussel, og Jolanda D. Elleman, aðalráðgjafí í Róm. Upplýsingamiðstöð Suðurlands Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir FUNDARGESTIR á héraðslæknafundi nutu góðviðris um leið og þeir fjölluðu um mikilvæg mál. Fundað í vorblíðu Egilsstöðum - Héraðslækna- fundur var haldinn í Hótel Vala- skjálf á Egilsstöðum. Fundur- inn var annar tveggja sem haldnir eru árlega. Sól skein glatt þennan dag og var fundur- inn að hluta til fluttur út í Sel- skóg þar sem er aðstaða fyrir útileikhús og sleiktu fundar- menn sólskinið undir dagskrá um málefni héraðslækna. Fundinn sóttu starfandi hér- aðslæknar, 8 talsins, yfirmenn í heilbrigðisráðuneytinu og full- trúar landlæknisembættisins. Þorbergs- Maga bíður færis Vaðbrekku, Jökuldal - Að sauð- burði loknum, þegar gróður er kominn vel á veg, er ánum sleppt á fjall með lömbunum sinum. Þar til gróður er kominn bíða æmar heima við hús. Svo er einnig með Þorbergs-Mögu á Vaðbrekku. Hún bíður eftir því, ásamt lömbunum sínum tveimur, að vera sleppt á Qall. Maga virðist vera nokkuð eftirvæntingarfull en lömbin láta sér fátt um finnast og fá sér fegr- unarblund meðan þau bíða. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Mikil umferð fyrstu vikuna Selfossi - Sjöunda starfsár Upp- lýsingamiðstöðvar Suðurlands á Selfossi hófst 25. maí, en hún er nú til húsa í Fossnesti við Austur- veg. Hlutverk upplýsingamið- stöðvarinnar er að aðstoða inn- lenda og erlenda ferðamenn, upp- lýsa þá um allt það sem gæti komið að gagni í ferðum þeirra um landið, eínkum þó Suðuriand. Gestir voru á fímmta hundrað fyrstu vikuna, bæði íslendingar og erlendir ferðamenn. Það segir mikið um þá þörf sem er fyrir þessa þjónustu. Starfsmenn Upplýsingamið- stöðvar Suðuriands eru tveir í sumar. Upplýsingamiðstöðin er opin alla daga vikunnar. Laugaskóla slitið Morgunblaðið/Sig. Fannar. GUÐMUNDUR Torfi Heim- isson, starfsmaður Upplýs- ingamiðstöðvar Suðurlands. Búðardal - Laugaskóla í Dalasýslu var slitið í 52. sinn föstudaginn 30. maí. Laugaskóli er heimavistarskóli fyrir grunnskólanemendur úr sveit Dalasýslu, auk barna í 8. 9. og 10. bekk frá Bæjarhreppi í Standasýslu. Nemendur voru 57 í vetur og hafa að sögn skólastjóra Kristjáns Gísla- sonar, aldrei verið færri. Börnum í sveit fækkar stöðugt og horfur eru á færri nemendum næsta vetur. Skólahald var með hefðbundnum hætti í vetur og ekki nein forföll vegna veðurs. í vor voru haldnar skólabúðir að Laugum fyrir nemendur úr 7. bekk sam- starfsskólanna á Vesturlandi og tókst vel. Framhald verður á þeirri starfsemi næsta ár. Fram kom í ræðu skólastjóra að næsta vetur yrði aðeins kennt ann- an hvern föstudag m.a. til að mæta sparnaði við gæslu og mötuneyti. Á Laugum hefur verið kennt flesta frídaga sem ber upp á virka daga og þannig næst tilskilinn tími í kennslu. Föstudagarnir yrðu einnig notaðir sem skipulags- og vinnu- dagar kennara og til að mæta for- eldradögum og þess háttar. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir KRISTJÁN Gíslason, skóla- sljóri Laugaskóla, flutti ræðu. Eftir ræðuhöld og verðlaunaaf- hendingar fyrir góðan árangur í námi og íþróttum var gestum boðið að skoða handavinnu og smíði nem- enda og þiggja að lokum veislu- kaffi í boði skólans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.