Morgunblaðið - 11.06.1997, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Akureyrarbæ veitt lán
til byggingar 24 íbúða
Mikíl eftirspurn
eftir félags-
legum íbúðum
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
STEFNT er að því að byggingu 72 íbúða við Snægil á Akureyri
Ijúki sumarið 1999. Framkvæmdir eru í fullum gangi og verða
20 íbúðir afhentar í næsta mánuði.
MIKIL eftirspurn er eftir félags-
legum íbúðum á Akureyri. Guð-
ríður Friðriksdóttir, forstöðumaður
Húsnæðisskrifstofunnar á Akur-
eyri segir að hjá skrifstofunni liggi
150 umsóknir um félagslegar íbúð-
ir og er stærsti hópurinn að leita
eftir kaupum á íbúðum. „Leigu-
markaðurinn á Akureyri er mjög
erfiður núna og því er ásóknin
meiri í félagslegar íbúðir."
Húsnæðisstofnun ríkisins hefur
veitt Akureyrarbæ framkvæmdal-
án úr Byggingasjóði verkamanna
til byggingar eða kaupa á 24 íbúð-
um, 16 félagslegum eignaríbúðum,
2 félagslegum leiguíbúðum og 6
félagslegum kaupleiguíbúðum.
Húsnæðisnefnd Akureyrar sótti
um heimildir fyrir 33 íbúðum.
Húsnæðisnefnd gerði samning
við Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks hf. fyrir rúmu einu og hálfu
ári, um skipulag og hönnum á alls
72 íbúðum í 18 húsum í Snægili
2-36 í Giljahverfí III. Gísli Kristinn
Lórenzson, formaður nefndarinn-
ar, segir að heimild Byggingasjóðs
verði nýtt til áframhaldandi fram-
kvæmda í Snægili.
íbúðir í Snægíli vinsælar
Guðríður segir að íbúðirnar í
Snægili séu sérlega vinsælar enda
Giljaskóli og leikskólinn Kiðagil í
næsta nágrenni. „íbúðirnar eru
mjög hentugar og foreldrar sjá það
sem mikinn kost að þurfa ekki að
senda börn sín yfir umferðargötur
á leið í skólann."
Byggingarfyrirtækið Hyrna hf.
átti lægsta tilboðið í byggingu 36
félagslegra íbúða í níu fjögurra
íbúða fjölbýlishúsum við Snægil, í
útboði í apríl á síðasta ári. Fyrir-
tækið er að ljúka framkvæmdum
við 5 húsanna, samtals 20 íbúðir
og verða þær afhentar í næsta
mánuði. Framkvæmdir við 16 íbúð-
ir til viðbótar eru komnar í gang
og þá hefur húsnæðisnefnd samið
við Hyrnu um byggingu 8 íbúða
til viðbótar án útboðs.
Verklok í júlí 1999
„Þessu til viðbótar hyggst hús-
næðisnefnd selja Hyrnu 2-3 hús
á svæðinu, með 8-12 íbúðum, sem
fyrirtækið selur á fijálsum mark-
aði. Þetta gerum við til að hægt
verði að ljúka við byggingareitinn
sem fyrst,“ segir Gísli Kristinn.
í samningi húsnæðisnefndar og
Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks hf. um skipulag og hönnun
svæðisins var gert ráð fyrir að
húsin risu á sex árum og var áætl-
aður heildarkostnaður við allt verk-
ið um hálfur milljarður króna.
Guðríður segir stefnt að því að
hefja byggingu 16 íbúða til viðbót-
ar á næsta ári og að uppbyggingu
svæðisins verði lokið í júlí árið
1999.
Stofnframlag
til grunnskóla
19 milljónir króna
Bæjarráð
mótmælir
Á FUNDI bæjarráðs á
fimmtudag var lagt fram bréf
frá félagsmálaráðuneytinu,
þar sem greint er frá úthlutun
stofnframlags til Akureyrar-
bæjar á árinu 1997, af fjár-
veitingu til framkvæmda við
grunnskóla í sveitarfélögum
sem hafa fleiri en 2000 íbúa.
Úthlutunin nemur 19 milljón-
um króna.
Bæjarráð mótmælir þeim
reglum sem viðhafðar hafa
verið við úthlutunina, þ.e.
viðmiðun við normkostnað en
ekki raunkostnað. Bæjarráð
gerir fýrirvara um upphæðina
og fer fram á að reglumar
verði teknar til endurskoðun-
ar.
Sundurliðun stofnfram-
lagsins er þannig; að 1,6 millj-
ón króna fer til breytinga á
eldra húsnæði Glerárskóla,
2,6 milljónir króna vegna
hönnunar nýrrar kennsluálmu
við Síðuskóla og fleira og
14,8 milljónir króna vegna I.
áfanga Giljaskóla.
Vel heppnað
danslistamót
VEL heppnuðu danslistamóti
lauk með glæsilegri danssýn-
ingu í íþróttahöllinni á Akur-
eyri sl. sunnudag. Þátttakend-
ur á námskeiðinu voru nem-
endur 12 ára og eldri frá skap-
andi dansskólum víðs vegar af
landinu, samtals á annað hund-
rað manns.
Nemendur notuðu helgina
til að þjálfa sig í hinum ýmsu
greinum danslistarinnar og
nutu leiðsagnar reyndra kenn-
ara. Danssýningin í mótslok
var fjölbreytt og skemmtileg
og kunnu áhorfendur vel að
meta það sem fyrir augu bar.
Á myndinni eru dansarar frá
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Listdansskóla íslands að sýna
listir sínar.
Morgunblaðið/Kristján
EIRÍKUR Jóhannsson, útibússljóri Landsbankans á Akureyri
t.v. og Jóhannes Ófeigsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs,
undirrita samninginn. Fyrir aftan þá standa tveir af leikmönnum
meistaraflokks, Jón Helgi Pétursson og Hreinn Hringsson.
Landsbankinn styrkir Þór
KNATTSPYRNUDEILD Þórs og
Landsbanki íslands, Akureyri,
hafa gert með sér samning um
bankaviðskipti og markaðsmál.
Samningurinn er til tveggja ára
og verður Landsbankinn á Akur-
eyri aðalstyrktaraðili knatt-
spyrnudeildar Þórs.
Einnig mun merki Landsbank-
ans prýða keppnistreyjur meist-
araflokks karla á þeim tíma.
Samningurinn felur í sér meðal
annars afslátt af æfingagjöldum
hjá þeim sem eru í klúbbum
Landsbankans eða koma til með
að ganga í þá í sumar, þ.e. Sport-
klúbbinn, Gengið og Námuna.
Einnig mun knattspyrnudeild-
in geta nýtt sér Sumarútvarp
Frostrásarinnar fyrir auglýsing-
ar eða sérstaka þætti, í boði
Landsbankans. Loks munu leik-
menn meistaraflokks karla
ásamt leikmönnum yngri flokka
taka þátt í markaðsátaki bankans
og kynna vörumerki hans.
Nám í iðjuþjálfun
hefst næsta haust
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
tillögu Björns Bjamasonar
menntamálaráðherra um að nám
í iðjuþjálfun hefjist við Háskólann
á Akureyri í haust. Nemendur í
iðjuþjálfun hafa fram að þessu
þurft að fara til útlanda til að afla
sér menntunar.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar fel-
ur ekki í sér að fjárframlög til
háskólans verði aukin vegna þessa
nýja verkefnis, en menntamálaráð-
herra sagði að þetta yrði skoðað
betur síðar í tengslum við almenn-
ar fjárveitingar til skólans.
Styrkir starf skólans
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri var að von-
um ánægður með samþykktina og
Námskrá liggur
fyrir og tugir
nemenda bíða eftir
að hefja nám
taldi hana mjög framsýna af ríkis-
stjórnarinnar hálfu.
„Þetta styrkir starf Háskólans
og er nýtt nám á háskólastigi hér
á landi sem mikil þörf er á. Við
skiljum þann fyrirvara að sam-
þykktin feli ekki í sér aukin fjár-
framlög til skólans. Með hagræð-
ingu í okkar starfsemi getum við
hafíð þetta nám í haust. Síðan
treystum við á að ríkisvaldið komi
til móts þann aukna nemendafjölda
sem af þessu leiðir, rheð auknum
fjárveitingum."
Þorsteinn segir að námskráin
liggi fyrir og tugir nemenda bíði
eftir því að hefja nám. Á næstu
dögum verður námið auglýst og
segir Þorsteinn stefnt að því að
hefja kennslu í iðjuþjálfun við Há-
skólann á Akureyri þann 25. ágúst
nk. „Við höfum undirbúið að ráða
fyrst í stað stundakennara til að
sinna þessu og í framhaldinu er
stefnt að fastráðningu þeirra,“
sagði Þorsteinn.
Hann sagði ennfremur að Björn
Bjamason menntamálaráðherra
ætti hrós skilið fýrir skjót við-
brögð. Tillagan hafi verið kynnt
honum í lok maí og verið sam-
þykkt í dag (í gær).
Bætt aðkoma fyrir farþega skemmtiferðaskipa
Morgunblaðið/Björn Gíslason
FRAMKVÆMDIR við Torfunefsbryggju eru á lokastigi. í gær
var verið að helluleggja a og koma fyrir flotbryggjunni.
Fram-
kvæmdir á
lokastigi
FRAMKVÆMDIR á vegum
Hafnasamlags Norðurlands á
svæðinu norðan Torfunefsbryggju
eru á lokastigi. Undanfarnar vikur
hefur verið unnið þar að dýpkun,
byggingu gijótgarðs og landveggs
fyrir nýja farþegabryggju. Einnig
við gatnagerð, gerð göngustíga og
gróðursetningu.
Upphaflega var ráðgert að ljúka
verkinu í gær en ljóst að fram-
kvæmdum seinkar um viku og er
stefnt að því taka mannvirkið í
notkun 18. júní. Byggður hefur
verið 40 metra langur gijótgarður
og dýpkað innan hans niður á
þriggja metra dýpi. Heildarkostn-
aður við framkvæmdir á svæðinu
og kaupin á flotbryggjunni er áætl-
aður um 14-15 milljónir króna.
Flotbryggjan er hugsuð fyrir
farþegabáta skemmtiferðaskipa,
sem stöðugt fjölga ferðum sínum
til Akureyrar. Um leið batnar að-
koma gesta sem koma að landi
með farþegabátum þeirra
skemmtiferðaskipa sem þurfa að
liggja á Pollinum.
Fyrsta skemmtiferðaskip sum-
arsins kemur til Akureyrar í dag.
Það heitir Vistamar, er 7500 tonn
að stærð og kemur hingað frá
ísafírði og Reykjavík. Alls hafa
verið boðaðar komur 37 skemmti-
ferðaskipa í sumar.