Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 21

Morgunblaðið - 11.06.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 21 Nýrtónn TONLIST Gerdarsafni PÍANÓTÓNLEIKAR Ami Heimir Ingólfsson. Verkefni eftir Bach-Busoni, Olivier Messiaen, Atla Heimi Sveinsson og R. Wagner- Liszt. Gerðarsafn 9. júni. HER upplifði maður sannarlega nýjan tón hjá ungum píanista sem heldur sína fyrstu einleikstónleika hér á landi, eins og kynnt er í efnis- skrá. Fyrir sjálfa efnisskrána fær Árni einnig „kredit“, en frágangur efnisskrárinnar er mjög vandaður, nokkuð sem stundum vantar tölu- vert á þegar um tónleika í Gerðar- safni er að að ræða. Ovenjulegt er að ungur maður sem er að kynna sig sem píanóleik- ari skuli velja sem viðfangsefni svo tii eingöngu nútímaverk, engin fing- urbijótaverk sem hægt er að slá í gegn með, eða falla ella, engan Beet- hoven, engan Mozart, engan Chopin, heldur ekki hreinan _og ómengaðan Bach. Reyndar hóf Árni tónleikana með útsetningu Busonis á einum sálmforleiknum úr Orgelbuchleini Bachs, Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ. Árni málaði forleikinn dökk- um litum, sem vafalaust hefur einn- ig verið ætlan Busonis, teygði á öll- um hendingum, sem einnig er líklegt að hafi verið stíll Busonis, píanistiskt á það að heita og eftirláta verður það áheyrandanum hvort annar leik- máti hefði hentað betur þessum klassísku perlum Bachs. En nú kom að þeim hluta efnisskráinnar sem útskýrði efnisvalið óvenjulega. Ur einu þekktasta píanóverki Messia- ens, Vingt Regards sur l’Enfant-Jes- us, (Tuttugu hugleiðingar um Jesú- barnið) lék Árni þrjáþætti. í þessum þrem þáttum sem Árni lék, koma ekki áberandi mest fram þau meðui sem Messiaen er hvað þekktastur fyrir, hindua-ryþma, poly-ryþma og polymodal og margar aðrar fléttur, sem eigna má Messiaen einum, en litirnir - eins og regnbogar - Jýsa andrúmsloftið og þar tókst Árna upp. Honum auðnaðist að Iaða fram anda Messiaen. Jafnvægi og vald yfir áslætti á píanóið eru skilyrði fyrir að Messiaen skili sér og _ því valdi og þeirri tilfinningu bjó Árni yfir, minnkaðar ferundir og stækk- aðar þríundir skiluðu sér sem á perlubandi væru yfir til áheyrenda. Og grípandi var síðasta atriðið, þar sem Messiaen skrifar einkonar hljómfræðidæmi, með klassískum upplausnum o.s.frv., lýsandi því þeg- ar við göngum til altaris og Jesú- barnið sefur með okkur nálægt hlið- um himins „opnar þau síðan inn í garð sköpunarinnar og flýtir sér að faðma okkur í allri birtu sinni.. Víst heyrir maður fyrir sér Messiaen við orgelið í Trinitat-kirkjunni og leika af fingrum fram, því sannar- lega hljómar Le baiser de l’Enfant- Jesus eins og improvisasjón og snill- ingur sem Messiaen gat gert slíkar eilífar. Árni á margfaldan heiður Morgunblaðið/Árni Sæberg Nútímaverk nær Árni að túlka af sannfæringu og inn- sæi, segir m.a. í umsögninni. fyrir flutning þessara þriggja þátta. Geta skal þess að Árni lék þættina þijá utanbókar. Atli Heimir átti fyrsta verk eftir hlé, Agnus Dei, sem er einn þáttur úr fyrirhugaðri messu sem hann hyggst skrifa fyrir píanó. Árni Heim- ir frumflutti þetta verk á tónleikum á Akureyri í síðustu viku og hafði áður leikið það á tónleikum í Oberlin- tónlistarháskólanum. íhugull þáttur með kunnum leikbrögðum. Þrátt fyrir að verkið byggist á nótunum ÁG(nu) DE(i), sem koma fram í upphafi verksins varð undirrituðum þátturinn dálítið langdreginn, en forvitnilegt verður að heyra píanó- messuna í heild sinni. Enn tvær útsetningar Busonis á tveim sálmforleikjum úr Litlu orgel- bókinni, Nun komm, der Heiden Heiland og In dir ist Freude. Hið fyrra leikið í stíl Busonis, In dir ist Freude naut sín miður í miklum hljómburði salarins og verður Árna ekki þar um kennt, þótt heppilegra hefði kannske verið að spara hægri pedalann meira en gert var. Árni lauk tónleikunum með útsetningu Liszts á ástaróði ísoldar yfir_ líki Tristans úr óperunni Tristan og ísold eftir Wagner. Hér spilar Liszt á upphafnar tilfinningar, ástríður og ofsa, sem og í öðrum fjölmörgum útsetningum sínum á atriðum úr óperum Wagners. Ekki er hægt að ætlast til af rúm- lega tvítugum manni að öllu sé hér hægt að koma til skila. Engu skal spáð um það hversu efnilegur píanó- leikari sé hér á ferð, til þess hefðu þurft að koma til einhveijir gömlu sjjámannanna. En nútimaverk nær Árni að túlka af sannfæringu og innsæi sem er ekki öllum ungum píanistum sjálfgefið. Árni mun á förum til Harvard- háskólans til doktorsnáms í tónvís- indum og er honum óskað góðs gengis og til hamingju með eftir- minnilega tónleika í Gerðarsafni. Ragnar Björnsson J. Anthony Lukas látinn EINN þekktasti blaðamaður Bandaríkjanna, J. Anthony Lukas, framdi sjálfsmorð á fimmtdag að talið er. Hann var 64 ára gamall. Lukas fannst Iátinn í íbúð sinni á Manhattan. Hann lauk nýlega við að skrifa bók, sem fjallar um morð- réttarhöld með pólitískri undiröldu í vesturhluta Bandaríkjanna í lok síðustu aldar. „Hann hafði verið niðurdreginn frá því hann lauk við bókina,“ sagði umboðsmaður hans, Amanda Urban, í samtali við dag- blaðið The New York Times. „Hann taldi sjálfum sér trú um að hún væri ekki nógu góð, sem var fárán- legt vegna þess að hún var snilldar- verk.“ Lukas fékk Pulitzer-verðlaunin fyrst árið 1968 fyrir grein í The New York Times um „Tvo heima Lindu Fitzpatrick”. Linda Fitz- patrick var barin til bana ásamt elskhuga sínum í East Village á Manhattan, vafasömu hverfi, þar sem allt flóði í eiturlyfjum. Þremur árum síðar fylgdi Lukas greininni eftir með bókinni „Ekki skjóta, við erum börnin ykkar“ þar sem kyn- slóðabilinu var lýst með því að skoða líf Fitzpatrick og níu annarra ung- menna. Árið 1986 vann hann til Pulitzer- verðlaunanna öðru sinni, þá fyrir bókina „Common Ground". I bók- inni er því lýst hvernig dómsúr- skurður um að skylt væri að aka skólabömum milli hverfa til að tryggja blandaða skóla setti Boston á annan endann og hafði áhrif á líf fjölskyldna í borginni á sjöunda og áttunda áratugnum. Handverk/hönnun PEYSA nr. 2. IISi OG HÖNNIJN Ilandvcrk & hönnun PEYSUR Elísabet Thoroddsen. Opið mánud.-föstud. 11-17. Laugardaga 12-16. Til 14. júní. Aðgangur ókeypis. HÚSNÆÐIÐ vinalega í Torfunni, þar sem listhúsið Úmbra var um ára- bil, hefur nú skipt um hlutverk, þó það verði áfram í og með rekið sem sýningarsalur. Starfsemin verður í raun með líku sniði og áður að því undanskildu að þar mun einvörðungu vera til sýnis handverk og hönnun og er samnefndur félagsskapur að baki rekstrinum og er jafnframt með ráðgjafaþjónustu á staðnum. Gefur það út fréttabréfið Handverk & hönn- un og er Guðrún Hannela Henttinen ábyrgðarmaður þess. Einhvern veginn fór fyrsta fram- kvæmd félagsskaparins á staðnum framhjá okkur listrýnum blaðsins, en það var sýning á skartgripum Elísa- betar Ásberg, en það verður fylgst með starfseminni í framtíðinni, eink- um ef hún verður með líflegra sniði. Borðleggjandi er að handverk og hönnun hafa miklu hlutverki að gegna í nútímaþjóðfélagi og virðast menn gera sér æ ljósari grein fyrir því hér á landi. Má nefna að málþing um handverk og listhandverk, mennt- un og atvinnu í samvinnu við Heimil- isiðnaðarfélag íslands var haldið í Norræna húsinu í nóvember sl. og voru þar fluttir markandi fyrirlestrar í þéttskipuðum salnum, en alls munu 120 manns hafa tekið þátt í því. Sökum þess að fjarri því allir sem vildu höfðu tök á að sækja þingið verða nokkrir fyrirlestranna birtir í fréttabréfinu og sá fyrsti er skerfur Margrétar Jónsdóttur leirlistakonu á Akureyri í aprílhefti þess. Margrét er ein af okkar reyndari leirlistar- mönnum og fjallar opinskátt um líf sitt í leir í meira en 15 ár, en það hefur ekki verið neinn dans á rósum frekar en margra annarra í þessari stétt. Það er alveg rétt að handverk og listiðnaður hafi ekki verið sérlega hátt skrifaður hér á landi og gjarnan lagður að jöfnu við föndur og dútl, en hér höfum við þó af meiri arfleifð um giidan heimilisiðnað að ausa en mörgum mun ljóst. En þessi öld hef- ur framborið yfirgengilegt flóð ódýrs fjöldaframleidds vamings sem spillt hefur upprunlegri sjónrænni mynd- hefð og rýrt virðingu fyrir ekta hand- verki. Alltof lengi var alltof lítið gert til að hamla gegn því í þessu þjóðfé- lagi, og veita skapandi og blóðríkum kenndum útrás, sem er svartur blett- ur í uppbyggingu þjóðreisnar. - Áð þessu sinni er í húsnæðinu sýning á peysum úr íslenzkri úrvals lambsull og jurtalituðu ullarbandi ásamt ýmissi annarri vinnu. Er hér að verki Elísabet Thoroddsen, og er þetta frumraun hennar á opinberum vettvangi. Svo sem segir, hafa sex peysur á sýningunni sama megin- þema, íslenzka peysufatakerlingu í mismunandi útfærslum. Gerandinn sækir þannig til íslenzkra hefða og menningar í hönnun sinni og er hér mjög upptekin af afmörkuðum þætti hennar. Einnig nokkuð takmörkuðum og lokuðum jafnframt því sem ekki er langt á föndurvettvanginn, því hér virðist grunnmenntun ábótavant þótt pijónið kunni að vera óaðfinnanlegt. Mynstrið á peysunum fylgir einfald- lega ekki alltaf lögun þeirra né útlits- hönnun og virkar þá sem sjálfstætt ferli frekar en að vera samofíð þeim mikilvægu grunnþáttum. Undan- tekning er þó hin formhreina peysa nr. 2 auk þess sem „Peysufatakerling VI“ er skemmtilega skondin í út- færslu. Hér eru þannig hæfíleikar fyrir hendi og sviðið opið að vinna úr þeim. Bragi Ásgeirsson GOÐ)R Fjölbreytt úrval af vönduöum fataskápum á frábœru verði t* .160.- Aöeins í Húsgagnahöllinni Breidd 120 cm Hœö 203 cm Dýpt 55 cm HÚSGAGNAHÖLUN Beyki OQ hvítt Bddshöfai 20-112 Rvn< - S:5108000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.