Morgunblaðið - 11.06.1997, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Upplýsingar Norðmanna um loðnuveiðar tortryggðar
25 þúsund tonna
munur á aflatölum
VERULEGT misræmi hefur komið
í ljós á milli aflatalna um veiðar í ís-
lensku lögsögunni sem norsk loðnu-
veiðiskip tilkynntu Landhelgisgæsl-
unni á síðustu loðnuvertíð og þess
afla sem opinberir aðilar í Noregi
gefa upp að veiðst hafi við ísland á
vertíðinni. Er mismunurinn nálægt
25 þúsund tonnum.
Gáfu upp 60 þúsund tonn en
Gæslan skráði 85 þús.
Að lokinni sumar- og haustvertíð
í fyrra gáfu opinberir aðilar í Nor-
egi upp að norsk skip hefðu alls
veitt 59.897 tonn af loðnu í íslensku
lögsögunni, 100.837 tonn í græn-
lensku lögsögunni og 45.252 tonn á
Jan Mayen-svæðinu. Skv. upplýs-
ingiim sjávarútvegsráðuneytisins
bera aflatilkynningar norskra skipa
til Landhelgisgæslunnar hins vegar
með sér að skipin hafi alls veitt um
85 þúsund tonn í íslensku fiskveiði-
lögsögunni á vertíðinni.
I vetur óskaði sjávarútvegsráðu-
neytið eftir skýringum Norðmanna
á þessu misræmi en skv. upplýsing-
um blaðsins eru stjórnvöld ekki
ánægð með þau svör sem Norð-
menn hafa veitt.
Norðmenn mega ekki veiða
meira en 60% af hámarksafla sínum
innan íslenskrar lögsögu. Reglur
kveða á um að norsku loðnuskipin
eigi að tilkynna Landhelgisgæslu
komu sína inn í íslensku fiskveiði-
lögsöguna og þeim ber að tilkynna
um afla á hverjum degi meðan þau
eru inni á svæðinu. Loks ber þeim
að senda tilkynningu þegar lögsag-
an er yfirgefin ásamt upplýsingum
um afla um borð sem er veiddur í
íslensku lögsögunni.
Ráðherrar og embættismenn
lýstu yfir í kjölfar töku Sigurðar
VE í lögsögu Jan Mayen að stór-
herða bæri eftirlit með norskum
skipum á loðnuvertíðinni sem hefst
l.júlí.
Grunsemdir og hert eftirlit
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Árni Kolbeinsson, ráðuneytis-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
segja að grunsemdir hafi verið um
að Norðmenn hafi tilkynnt um afla
á Jan Mayen svæðinu sem hafi í
reynd verið veiddur innan íslensku
lögsögunnar. Davíð segir að ástæða
sé til tortryggni í þessum efnum og
full ástæða sé til að krefja Norð-
menn skýringa á mismunandi afla-
tölum.
■ Mikið misræmi/26
Nýjar niðurstöður TIMSS-
rannsóknarinnar kynntar
Islendingar langt
undir meðallagi
ÍSLENSKIR nemendur í 3.
bekk grunnskóla hafna í 23. sæti
af 24 og nemendur í 4. bekk í 24.
sæti af 26 í stærðfræði í hinni
fjölþjóðlegu TIMSS-rannsókn
sem kynnt var samtímis í öllum
þátttökulöndunum í gær. I nátt-
úrufræðigreinum er staðan litlu
skárri, en þar eru nemendur 3.
bekkjar í 20. sæti af 24 og 4.
bekkur í 20. sæti af 26. Heildar-
frammistaða íslenskra nemenda
í 3. og 4. bekk í báðum greinum
er langt undir alþjóðlegu meðal-
tali.
Að sögn dr. Einars Guð-
mundssonar, verkefnisstjóra
TIMSS-rannsóknarinnar á Is-
landi, eru niðurstöðumar í nátt-
úmfræði í 3. og 4. bekk svipaðar
þeim sem fram komu í 7. og 8.
bekk í fyrsta hluta rannsóknar-
innar sem birtar vora í desem-
ber síðastliðnum en heldur lak-
ari í stærðfræði.
Nemendur í Singapúr og
Kóreu standa sig best í stærð-
fræði og í náttúrufræði era nem-
endur í Kóreu efstir. Neðstu
sætin skipa, ásamt Islendingum,
sem fyrr lönd á borð við Iran,
Kúveit, Kýpur, Portúgal, Grikk-
land og Tæland.
Einar segir niðurstöðumar
valda vonbrigðum og augljóst sé
að ekki sé hægt að sitja aðgerða-
laus gagnvart þeim. Nú sé kom-
inn tími til að hefja endurreisn
þessara greina í íslensku skóla-
kerfi.
■ íslenskir nemendur/4
Reykjaneshryggur
Nær helm-
ingi minni
afli í ár
KARFAAFLI íslenskra skipa á
Reykjaneshrygg var um síðustu
mánaðamót nær helmingi minni ef
miðað er við sama tíma á síðasta
ári. í lok síðasta mánaðar höfðu ís-
lensk skip á Reykjaneshrygg land-
að um 15.362 tonnum af karfa. A
sama tíma á síðasta ári höfðu hins-
vegar borist um 28.499 tonn á land.
Alls voru 40 íslenskir togarar á
Reykjaneshrygg í fyrra þegar mest
var, en í ár hafa 27 togarar landað
afla af Hryggnum.
Leyfilegur heildarafli Islendinga
á Reykjaneshrygg er 45 þúsund
tonn. I fyrra veiddust samtals
45.867 tonn og var veiðum þá hætt
um miðjan júní. Aflabrögð hafa ver-
ið léleg allt frá því að veiðamar
hófust fyrr í vor og sagði Kristján
Elíasson, stýrimaður á Sigli SI, í
gær að botninum hafi verið náð nú
eftir sjómannadag.
■ Afli á Reykjaneshrygg/lC
Japönum öheimilt
að kaupa hvala-
afurðir frá Islandi
JAPÖNSK lög banna Japönum
að kaupa hvalaafurðir af öðrum
ríkjum en þeim sem era í Alþjóða
hvalveiðiráðinu. Munu þeir því
ekki kaupa slíkar afurðir af ís-
lendingum.
Island tekið af lista
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að íslensk stjórnvöld
hafi nýlega spurst fyrir um þetta
atriði hjá japönskum yfirvöldum
og fengið það staðfest. í bréfi
fiskimáladeildar japanska land-
búnaðarráðuneytisins segir að ís-
land hafi verið tekið af lista yfir
þau lönd sem Japan sé leyfilegt
að flytja inn hvalaafurðir frá.
Hafi það verið ákveðið í septem-
ber 1992 eftir að íslensk stjórn-
völd ákváðu að segja landið úr
hvalveiðiráðinu í júní það ár.
Hins vegar segir í bréfi
japönsku yfirvaldanna að þau
hafi áhuga á samvinnu við Islend-
inga á alþjóðavettvangi til að tala
máli sjálfbærrar nýtingar á auð-
lindum hafsins.
Þykkvabæjar frosnar
EKKI var fagurt um að litast í
kartöflugörðum í Þykkvabænum
eftir norðaustan rok og frost um
síðustu helgi.
„Við þessar aðstæður fer hluti
af landinu af stað og það fýkur
einfaldlega ofan af kartöfiun-
um,“ segir Sigurbjartur Pálsson
bóndi í Skarði.
„Þetta seinkar örugglega upp-
skeru í því landi sem hreyfðist,“
segir hann. „Ekki má þó halda að
það eigi allstaðar við. Verstu
sögpur sem maður heyrir eru að
fokið hafi ofan af liðlega helm-
ingi af niðursetningu. Svo er
tjónið óverulegt hjá sumum öðr-
um.“
Það er engin nýlunda að fjúki
ofan af kartöflum, að sögn Sigur-
bjarts, en sfðan gerðist nokkuð
sem hann telur allt að því ein-
stakt. „I kjölfarið fylgdu tvær
nætur í röð með brunagaddi þeg-
ar allt var meira og minna
berrassað," segir hann.
„Seinni nóttina var frostið 5,5
gráður. Menn geta vart gert sér í
hugarlund hvaða afleiðingar það
hefur. Svo virðist sem kartöfl-
urnar hafi þó ekki skemmst, þ.e.
farið í drullu. En hvort þær eiga
eftir að jafna sig verður tíminn
að leiða í ljós.“
Bændur eru ekki tryggðir
gegn tjóni sem þessu, en þeir eru
aðilar að Bjargráðasjóði „Hugs-
anlegt er að bætur komi þaðan.
Það verður ekki fyrr en í haust
þegar menn sjá raunverulega
hvert tjónið er, m.a. með hliðsjón
af heildaruppskeru í Iandinu."
Afli Sigfurð-
ar VE úr
kvóta Is-
lendinga
„KJARNI málsins er sá að Sigurð-
ur VE veiddi úr þeim kvóta sem Is-
land hefur í síld á alþjóðlega haf-
svæðinu við Jan Mayen,“ sagði
Helgi Ágústsson ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins aðspurður
um ásakanir norsku strandgæsl-
unnar á hendur skipstjóra Sigurð-
ar um veiðiþjófnað.
Helgi Ágústsson sagði að afli
Sigurðar VE á þessum slóðum
kæmi til frádráttar kvóta Islend-
inga og væri því alrangt hjá Norð-
mönnum að tala um veiðiþjófnað í
þessu sambandi. Ráðuneytisstjór-
inn sagði að skipstjórinn hefði gert
fullkomlega grein fyrir þeim 400
tonnum sem hann veiddi og hefði
aflanum verið landað á Akureyri.
Skipstjórinn hefði hins vegar ekki
haft afrit af skeytinu þegar skipið
var fært til hafnar í Noregi.
■ Beðið eftir/U
■ Viðbrögðum Davfðs/11
■ Hissa á/11
-------♦ ♦ ♦------
Krían yfir-
gefur hreiður
Ólafsvík, Morgunblaðið.
EKKI festi snjó hér á Snæfellsnes-
inu í hretinu um helgina en nóg var
samt. Greinilegt er að kríuvarpið
mikla í Rifi hefm- orðið fyrir áfalli
því stórir hópar fugla yfirgáfu
hreiður sín og leituðu sér skýlli
staða.
Kúrðu fuglamir þar í rokinu með
nefið uppí vind eins og þotur á
fiugvelli. Eftir að hlýnaði má þó sjá
að karlfuglinn er reiðubúinn að
gera sitt til þess að bæta skaðann
en í heild er hjörðin hijóðari og
kyrrlátari en vant er um þennan
atorkumikla fugl.