Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rúmlega fertugur maður úrskurðaður
í gæsluvarðhald eftir tvær árásir
Stakk tvær stúlkur og
særði aðra lífshættulega
Morgunblaðið/Kristinn
ÁRÁSARMAÐURINN stakk 17 ára stúlku með hnífi í Hafnarstræti,
hijáp síðan fyrir hornið á Eimskipafélagshúsinu, norður eftír Póst-
hússtrætí og stakk þar tvítuga stúlku sem særðist lífshættulega.
Hálftími frá
hnífstungu að
skurðaðgerð
TVÍTUG stúlka særðist lífshættu-
lega þegar maður lagði til hennar
með hníf í miðbænum aðfaranótt
sunnudags. Maðurinn hafði
nokkrum mínútum áður lagt með
hnífnum til sautján ára stúlku en
meiðsli hennar voru ekki alvarleg.
Maðurinn, sem er i-úmlega fertugur
og hefur ekki komið við sögu lög-
reglu áður, var í gær úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 29. október. Guð-
mundur Guðjónsson yfirlögreglu-
þjónn rannsóknadeildar vildi ekki
tjá sig um aðdraganda þessara at-
vika meðan rannsókn stæði yfir.
Árásirnar voru gerðar um klukk-
an 5 aðfaranótt sunnudagsins. Mað-
urinn og félagi hans lentu í átökum
við ungt par fyrir utan kaffihúsið
Café Au Lait í Hafnarstræti. Mað-
urinn otaði skyndilega hnífi að
stúlkunni, sem er 17 ára, og lagði til
hennar. Hún fékk sár á bringuna en
við skoðun á slysadeild kom í ljós að
það var ekki djúpt.
Eftir árásina hljóp maðurinn í
burtu eftir Hafnarstræti og fór
norður Pósthússtræti. Þar mætti
hann öðru pari. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu lagði hann einnig til
stúlkunnar, sem er tuttugu ára, og
gekk hnífsblaðið inn í hjarta hennar.
Parið komst að miðborgarstöð lög-
reglunnar í Tollhúsinu en maðurinn
elti þau með hnífinn á lofti. Lög-
reglumenn komu parinu undan og
yfirbuguðu manninn.
Að sögn Guðmundar Guðjónsson-
ar þekkti maðurinn ekki stúlkurnar.
Guðmundur sagði síðdegis í gær að
þar sem rannsókn málsins væri ný-
hafin væri ekki hægt að tíunda nán-
ar hvort einhver aðdragandi hefði
verið að árásunum eða hvort tilræð-
ismaðurinn hefði verið undir áhrif-
um áfengis eða annarra efna. Guð-
mundur sagði Ijóst að eldri stúlkan
hefði verið í mikilli lífshættu enda
gekk hnífurinn í hjarta hennar.
Lögreglan krafðist í gær gæslu-
varðhalds yfir manninum til 29.
október og var fallist á þá kröfu fyr-
ir héraðsdómi. Ekki var farið fram á
gæsluvarðhald yfir félaga hans. Enn
er unnið að rannsókn málsins og til-
drögum þess. Þau virðast ekki ljós
eins og fyrr getur.
AÐEINS leið um það bil hálftími
frá því að stúlkan hlaut hníf-
stungu í hjartastað í Pósthús-
stræti og þar til hún var komin á
skurðarborð á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur í Fossvogi. Sigur-
geir Kjartansson, skurðlæknir á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, og
Hörður Alfreðsson, hjartaskurð-
læknir á Landspítala, gerðu þar
að sári hennar.
Sigurgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið að litlu hefði mátt
muna að ekki tækist að bjarga
lífi stúlkunnar. „Hún var lífs-
hættulega særð. Þetta var ein
hnífstunga, hrein stunga beint
inn í hjartað. Gollurhúsið fylltist
af blóði.“
Sigurgeir sagði að áverkar á
hjarta væru misalvarlegir eftir
hvar þeir lentu og stúlkan hefði
verið heppin að því leyti að lagið
kom ekki í taugakerfi hjartans
heldur á svæði sem ekki breytir
miklu um hjartsláttinn.
Sigurgeir sagði að áverkar
eftir ofbeldisverk og hnífstung-
ur hefðu færst mikið í vöxt á
undanförnum árum en þó væri
ekki hægt að segja að aðgerðir
vegna slíkra tilfella væru veru-
legur þáttur í starfi skurðlækna.
Alvarlegur áverki
sem ekki þoldi bið
Um það að aðgerðin var
framkvæmd af læknum af
Sjúkrahúsi Reykjavíkur og
Landspítala í sameiningu, sem
kallaðir voru út hvor í sínu lagi,
sagði hann að það væri sjald-
gæft en þarna hefði verið um að
ræða alvarlegan áverka sem
ekki hefði þolað bið. „Ég býst
við að það hafi vakað fyrir lækn-
um slysadeildar að tryggja að
hjálp bærist sem fyrst. Þarna
var um að ræða samstarf spítala
í reynd,“ sagði Sigurgeir Kjart-
ansson. Eins og fyrr sagði leið
einungis hálftími frá því að
stúlkan var stungin og þar til
skurðaðgerðin hófst en auk Sig-
urgeirs og Harðar tók Bergþóra
Ragnarsdóttir svæfingalæknir
þátt í henni.
Stúlkan liggur enn á gjör-
gæsludeild en er vel vöknuð og
virðist hress, að sögn Sigur-
geirs, sem telur góðar horfur á
að hún nái fullum bata.
Tilnfískur
til gdð-
gerðar-
starfsemi
í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
TÚNFISKUR, sem Heimaey VE
fékk í trollið í síðustu viku, var
boðinn upp og seldur hjá Fisk-
markaði Vestmannaeyja í gær.
Heimaey fékk fiskinn í botntroll á
40 faðma dýpi átta mílur suður af
Ingólfshöfða.
Oalgengt er að trollbátar fái
túnfisk hér við land enda er þetta
fyrsti túnfiskurinn sem boðinn er
upp hjá Fiskmarkaðnum í Eyjum
en þetta er þó ekki í fyrsta sinn
sem túnfiskur fer á uppboð hjá
fiskmarkaði hér á landi því í sum-
ar var einn fiskur seldur hjá
Fiskmarkaði Homafjarðar.
Páll Rúnar Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðarins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að talsverður áhugi hefði verið á
fiskinum og ágætt verð fengist
fyrir hann þó að hann sjálfur
hefði viljað sjá verðið fara hærra.
Hann sagði að Fiskbúðin Sæ-
björg hefði keypt fiskinn fyrir
Hagkaup þannig að trúlega yrði
hann boðinn þar til sölu.
Fiskurinn sem vó 225 kíló var
seldur á 351 krónu kílóið þannig
að heildarverðmæti hans var
tæpar 79.000 krónur fyrir utan
virðisaukaskatt. Páll sagði að
áhöfn og útgerð Heimaeyjar
hefði ákveðið að gefa andvirði
fisksins til deildar Krabbameins-
félags íslands í Vestmannaeyjum
og tæki Fiskmarkaðurinn þátt í
þeirri gjöf með því að taka ekkert
í sinn hlut vegna sölu físksins.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
SKIPVERJAR á Heimaey, Sigurjón Ingvarsson og Tómas Isfeld, við
túnfiskinn.
Kvef og hálsbólga
snemma á ferð
KVEF og hálsbólga hafa herjað
nokkuð á höfuðborgarsvæðinu og
sagði Lúðvík Ólafsson, héraðslækn-
ir í Reykjavík, að þessar pestir
væru óvenjusnemma á ferðinni.
Undir það tók Sigurbjörn Sveins-
son, heilsugæslulæknir í Breiðholti,
sem var á vakt í gærkvöld.
Lúðvík Ólafsson kvaðst ekki geta
nefnt tölur um hvort meira væri um
þessar pestir nú í haust en áður,
skýrslur væru ekki teknar saman
fyrr en um næstu mánaðamót, en
kvefpestir herjuðu jafnan á lands-
menn á haustin. Sigurbjöm Sveins-
son tjáði Morgunblaðinu að kvef-
veira væri að ganga og væri fólk
með hita, særindi í koki, barka- og
berkjubólgu, hósta og gæti stund-
um tekið allt að 10 daga að losna við
þessar pestir.
„Þetta er annars vegar pest með
miklum kvefeinkennum og særind-
um í hálsi og hins vegar miklum
hálsbólgueinkennum og valda þau
síðamefndu kannski frekar hita,“
sagði Sigurbjörn. Hann sagði erfitt
30 börn verða í
öllum hlutverkum
LOFTKASTALINN hefur fengið
sýningarrétt á söngleiknum Bugsy
Malone, eftír Alan Parker, sem
gerði heimsfræga bíómynd upp úr
leikritínu á áttunda áratugnum.
Stefnt er að því að frumsýna verk-
ið í janúar.
Bugsy Malone er skopleikur um
bannárin í Bandaríkjunum og ger-
ist m.a. á næturklúbbum Chicago,
þar sem bófaflokkar ráða lögum
og lofum. Er söngleikurinn sér-
stakur fyrir þá sök að börn eru í
öllum hlutverkum.
Baltasar Kormákur leikstýrir
verkinu. Hann segir að gert sé ráð
fyrir að um 30 börn muni koma
fram í söngleiknum og dansa, leika
og syngja. „Þetta er ekta mafíósa-
saga en það sem gerir hana svo
skemmtilcga er að hún er ein-
göngu leikin af börnum," segir
hann. Birt verður auglýsing á
næstunni, þar sem öllum níu til 15
ára börnum, sem áhuga hafa á að
taka þátt í sýningunni, verður boð-
ið að koma í prufu í Loftkastalan-
um.
Tónlist og dans er í fyrirrúmi í
að greina hvort hér væri um að
ræða tvo veirustofna, einkenni virt-
ust þó mismunandi, og kvaðst hann
hafa orðið var við þessar prestir
óvenjusnemma.
„Þetta byrjaði strax í ágúst en ég
hef ekki haft neinar spurnir af inflú-
ensu ennþá og ekki rekist á fólk
með hrein inflúensueinkenni en hún
Bugsy Malone. Lögin úr bíómynd-
inni hafa notið mikilla vinsælda en
öll tónlist er eftir Paul Williams.
Jón Ólafsson mun sjá um tónlistina
í uppfærslu Loftkastalans og hefur
einnig verið ákveðið að gefa út
geisladisk með lögunum fyrir jól.
Arni Páll Jóhannsson mun sjá um
leikmyndina.
„Þetta verður stærsta sýningin
hjá okkur í ár enda er mikið um-
stang í kringum þetta," segit'
Baltasar Kormákur.
byrjaði óvenjusnemma í fyrra líka.“
Sigurbjörn sagði að þeir sem
hefðu hita skyldu halda sig heima
og væri hósti orðinn langvarandi og
þrálátur væri rétt að leita læknis.
Þeim sem væru hitalausir ætti að
vera óhætt ef þeir færu vel með sig-
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir sagði brátt líða að því
að farið yrði að bólusetja gegn in-
flúensu. Hennar yrði oft ekki vart
fyrr en um áramót en hún hefði þó
síðustu tvö árin komið fyrir ára-
mótin. Þar sem bólusetning entist
ekki nema í um sex mánuði væri
álitamál hvenær rétt væri að hefja
bólusetningu en undirbúningur
væri hafinn.
Bugsy Malone í Loft-
kastalanum í janúar