Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þessi tenging við
Suðurlandsbraut
verður lögð af
'BfÍLDSHÖFÐI* D
Vesturiandsvegi
norður Sæbraut
Sláufur yíkkaðar eins
ikið ogkosturer.til að
aðlðgunarreinar
□ riSTQTÖ'' ;
iðvarvegi
Tejngipgaf Raf!
austurVesturlandsvei
verður lögð af. Farii
PÁLL Skúlason, rektor Háskóla
íslands, segir engin rök hníga að
því að skólagjöld muni bæta
kennslu við Háskólann eða að
tryggt sé að með innheimtu þeirra
hafi Háskólinn meira fé til ráðstöf-
unar. Þetta kemur fram í viðtali
við rektor í kynningarriti Félags-
stofnunar stúdenta, sem er að
koma út.
„Ég hef ekki séð neinar rann-
sóknir sem sýna að Háskólinn verði
betri með skólagjöldum. Og ég ef-
ast um að þjónustugjöld séu skyn-
samleg leið til að leysa fjárhags-
vanda Háskólans," segir Páll í við-
talinu.
„Stjórnvöld hafa hvatt Háskól-
ann til að óska eftir skólagjöldum,
sem mér virðist vera leið þeirra til
að skjóta sér undan sinni eigin
ábyrgð," segir Páll. „Háskólinn er
þjóðskóli og lokaákvörðun í
stærstu málum hans er í höndum
Alþingis. Einu rökin sem háskóla-
menn gætu séð réttiæta skólagjöld
væru að þeir væru sannfærðir um
að þeir væru að gera skólann betri.
Það eru hins vegar engin rök sem
sýna að svo verði. Og það er held-
ur ekki tryggt að þar með hefði
Háskólinn meira fé til ráðstöfunar.
Þegar skrásetningargjaldið var
hækkað fyrir nokkrum árum var
fjárveiting til skólans lækkuð sem
þeim nemur," segir Páll.
í viðtalinu segir háskólarektor
skólann ekki hafa nægilegt svigrúm
til að styðja frumkvæði nemenda
og kennara, og það komi harðast
niður á rannsóknanáminu.
Fyrirtæki og fleiri aðilar
styrki rannsóknanám
Vítt og breitt um Háskólann séu
mörg spennandi verkefni sem bíði
þess að vera hleypt af stokkunum
en Háskólinn hafi ekki efni á að
borga kennurum til að vinna með
nemendum. Sumir kennarar séu að
vinna kauplaust með rannsóknar-
nemendum. „Ég vil að gert verði
verulegt átak í því að hafa samband
við fyrirtæki og fleiri aðila, til dæm-
is sveitarfélögin, til að styrkja rann-
sóknanámið,“ segir Páll m.a. í við-
talinu.
Daglega fara um 90 þúsund
bílar um nýju mannvirkin
SÍÐASTI áfangi umferðarmann-
virkja á Vesturlandsvegi var tek-
inn í notkun I gær og lauk þar
með formlega framkvæmdum,
sem hófust með byggingu Höfða-
bakkabrúar árið 1995. Kostnaður
við lokaáfangann er 330 milljónir
en heildarkostnaður verksins er
1,3 milljarðar. í ávarpi Helga
Hallgrímssonar vegamálastjóra
kom fram að um 90 þúsund bílar
aka um gatnamótin daglega og
því væri um þýðingarmikla fram-
kvæmd að ræða fyrir borgina.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sagði að áfanginn væri
nauðsynlegur og mikilvægur fyrir
umferð í borginni og drægi auk
þess úr hættum í umferðinni.
Vegamálastjóri sagði að áfang-
inn væri sá síðasti í þriggja ára
framkvæmdaátaki, sem næði frá
vegamótum Suðurlandsvegar um
Höfðabakka með nýjum gatna-
mótum, breikkun Ártúnsbrekku,
nýrri brú á Elliðaár og nýrri brú
á gatnamótunum við Sæbraut og
tengivegum. „Þessi spotti er ekki
langur en mjög þýðingarmikill í
vegakerfi borgarinnar og lands-
ins,“ sagði hann. „Þetta er aðal
leiðin inn og út úr borginni til
allra landshluta og gegnir auk
þess miklu hlutverki í vegakerfi
höfuðborgarsvæðisins, þar sem
90 þúsund bílar fara um daglega
en það svarar til þess að allir bíl-
ar á höfuðborgarsvæðinu aki
þarna um á hvtérjum degi.“
Biðraðir, takmarkað
rými og slys
Helgi sagði að markmiðið með
framkvæmdinni væri að ráða bót
á fylgifiskum mikillar umferðar,
sem væru biðraðir, takmarkað
umferðarrými og slys. Benti hann
á sambýli vegar og Elliðaárdals,
náttúruperlu Reykjavíkur, og
sagði að ákvörðun um að brúa
Elliðaár aðallega við austari far-
veg og loka dalnum að öðru leyti
með fyllingum hafi verið tekin
árið 1970 í sparnaðarskyni.
„Kannski hefði þetta verið gert
öðruvísi ef umræðan hefði verið
uppi í dag en þetta var stefna sem
var mótuð þá og þessar fram-
kvæmdir núna fylla upp í þá
mynd, sem þá var dregin upp,“
sagði hann.
Vegamálastjóri sagði að þó
vegurinn sé ekki langur hafi
framkvæmdin verið flókin en
verkefnið var samvinnuverkefni
Reykjavíkurborgar og Vegagerð-
arinnar. Sagði hann verkefnið
hafa gert miklar kröfur til hönn-
uða og verktaka og nefndi hann
sérstaklega erfiða aðstöðu við að
byggja mannvirki, þar sem tug
þúsundir bíla ættu leið um. „Ég
held að óhætt sé að segja að hönn-
uðum og verktökum hafi tekist
mjög vel að ráða bót á þeim
o 'T’r^r'
^ S\ <
1 <
LP &
Ný umferðarmannvirki
á Vestulandsvegi
œsæs Veghlutar sem lagðir eru af
Vegir sem nú eru fyrir hendi o
Nýbyggingar í þessum áfanga
—o
o o
0
% o,
íd’od'cte £ <= r-“
■ e 'C3 ea ;;cQ
-o
_____umBíldshöfða
Morgunblaðið/Golli
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra klippti á borðann við
vígslu síðasta áfanga umferðarmannvirkja á Vesturlands-
vegi, Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri og Dagný Liya Sig-
urðardóttir, 11 ára, sem rétti fram skærin og hlaut að laun-
um bút af borðanum.
Landsbergis
við setningu
Alþingis
VYTAUTAS Landsbergis, forseti
þingsins í Litháen, verður í opin-
berri heimsókn á íslandi dagana
29. september til 2. október í boði
Ólafs G. Einarssonar, forseta Al-
þingis.
Vytautas Landsbergis mun á
meðan á heimsókninni stendur m.a.
hitta að máli Ólaf Ragnar Gríms-
son, forseta íslands, Davíð Oddsson
forsætisráðherra, Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra og utanríkis-
málanefnd Alþingis.
Þá mun Landsbergis verða við-
staddur setningu Alþingis 1. októ-
ber og I framhaldi af henni mun
hann flytja opinberan fyrirlestur á
vegum Háskóla íslands í hátíðarsal
skólans kl. 16.30. Fyrirlesturinn
nefnist á ensku „From Domination
to Co-Operation: European Devel-
opment and Lithuanian Contribut-
ion.“
Landsbergis er auk þess að vera
forseti þingsins, leiðtogi stærsta
stjómmálaflokks Litháens, Föður-
landssambandsins, sem hefur 70
þingmenn af 141 á litháíska þing-
inu. Landsbergis er þekktur fyrir
forystu sína I sjálfstæðisbaráttu
Litháa og var m.a. um skeið for-
seti landsins. Landsbergis verður í
framboði til forseta Litháens á
þessu ári.
ar á höfuðborgarsvæðinu en
nokkru sinni fyrr ef tekið væri
mið af þeim fjármunum sem ríkið
legði til vegagerðar.
„Þessi áfangi var nauðsynlegur
og mikilsverður bæði til þess að
greiða fyrir umferð í borginni og
til að draga úr hættu í umferð-
inni,“ sagði hann. „Við skiljum
um leið og við horfum á mann-
virkin og ökum um þau að maður
er kannski öruggari en áður að
komast leiðar sinnar ef maður á
annað borð ratar um alla þessa
sveiga og allar þessar brýr í þessu
nútímalega mannvirki."
Loforð um Gullinbrú
Ráðherra minntist þess að fyrir
skömmu hafi hann ásamt borgar-
stjóra opnað göngubrú yfir Miklu-
braut og að borgarstjóri hafi þá
gefið sér tvær limrur og minnt á
að enn ætti eftir að föndra við
Gullinbrú og greiða fyrir umferð.
Notaði hann tækifærið og svaraði
borgarstjóra og sagði:
Hættu að gráta, góða frú,
gættu að mínum ráðum.
Eg skal gefa þér Gullinbrú
í Grafarvoginn bráðum.
vandamálum og að árekstrar við
umferðina hafi verið ótrúlega litl-
ir,“ sagði hann.
Greiðir fyrir
umferð
í máli Halldórs Blöndal sam-
gönguráðherra kom fram að um-
ferðarmannvirkin væru dæmi um
að á síðustu árum hefði meira fé
verið varið til gatna- og vegagerð-
Léstí
vinnuslysi
MAÐURINN, sem lést í
vinnuslysi í vélsmiðju við
Funahöfða á föstudag, hét
Ólafur Sigfússon.
Ólafur heitinn var 64 ára
gamall vélfræðingur, til
heimilis að Hjálmholti 2 í
Reykjavík. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og fimm upp-
komin börn.
Páll Skúlason háskólarektor
Engin rök sýna að skóla-
gjöld bæti Háskólann
i
i
>
>
>
>
>
>
>
>
>
\
i
\
\
\
i