Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 6
V veer >iMHMaT<i38 :$s irjoAouumM
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997___________________________________________
FRÉTTIR
Fyrirhugaður flutningnr lungnadeildar Vífilsstaðaspítala
Vinnnlag- heilbrigðisyfir-
valda átalið harðlega
STJÓRN Sambands íslenskra
berkla- og bijóstholssjúklinga,
SÍBS, átelur harðlega vinnulag
heilbrigðisyfirvalda vegna breyt-
inga á starfsemi Vífilsstaðaspítala,
en fyrirhugað er að setja þar á
laggirnar hjúkrunarheimili og
flytja þjónustu fyrir lungnasjúkl-
inga á Landspítala. Haukur Þórð-
arson, formaður stjórnar SÍBS,
segir að það sé afskaplega óljóst
hvernig hægt verður að halda uppi
þeirri þjónustu sem Vífilsstaðir
hafa boðið upp á fyrir lungnasjúkl-
inga við ótryggar kringumstæður
á Landspítalalóðinni.
Samkvæmt samkomulagi heil-
brigðis- og fjármálaráðherra og
borgarstjóra er gert ráð fyrir að
lungnadeildin flytjist frá Vífilsstöð-
um á Landspítala og í staðinn verði
sett þar upp hjúkrunarheimili. Ráð-
gert er að þessar breytingar komi
til framkvæmda 1. nóvember. I
bréfi stjórnar SÍBS af þessu til-
efni, sem sent hefur verið heil-
brigðis- og fjármálaráðherra og
borgarstjóra, áskilur stjómin sér
allan rétt til að fylgjast með fram-
kvæmd breytinganna og er ætlast
til þess að réttindi og hagur sjúkl-
inganna verði í engu skertur frá
því sem nú er. Þá segir að í greinar-
Öljóst hvernig halda á uppi þjónustu
fyrir lungnasj úklinga á Landspítalalóð
gerð sem fylgir samkomulaginu
séu sýnilegar staðreyndavillur sem
veiki trúverðugleika forsendnanna.
Snúið við í greinargerðinni
Haukur sagði að í greinargerð-
ínni kæmi fram að lungnadeildin á
Vífilsstöðum væri fyrir 20 rúm.
Það væri ekki rétt því um væri að
ræða deild fyrir 30 rúm. Þá kæmi
einnig fram að á Vífilsstöðum væri
hjúkrunardeild með 30 rúmum.
Það væri einnig rangt því á hjúkr-
unardeildinni væru ekki nema 20
rúm. Þannig væri þessu snúið við
í greinargerðinni.
Haukur sagði að undanfarin ár
hefðu verið um þijátíu sjúkrarúm
fyrir lungnasjúklinga á Vífilsstöð-
um. Þar hefðu einnig verið reknar
göngudeildir fyrir lungnasjúklinga
og ofnæmissjúklinga. Talað væri
um að flytja lungnadeildina á
Landspítalann, án þess að hægt
væri að sjá hvar hún ætti að fá
inni. Rætt væri um að við flutning
hjúkrunarsjúklinga af Landspítal-
anum myndu losna einhver rúm,
en þau yrðu væntanlega úti um
allt hús. Þannig væri það vægast
sagt óljóst hvar ætti að hola þess-
ari starfsemi niður á Landspítalan-
um, enda hefði þar verið þröngt.
Þá væri heldur ekki hægt að ráða
af greinargerðinni hvaða örlög
göngudeildunum tveimur væru fyr-
irhuguð.
Haukur sagði að með þessum
breytingum væri verið að rýra
þjónustukosti lungna- og ofnæmis-
sjúklinga verulega. Þessi starfsemi
á Vífilsstaðaspítala hefði orðið til
fyrir tæpum þijátíu árum og þró-
ast ákaflega vel. Starfsemin hefði
verið ákaflega mikilvæg fyrir
þennan hóp sjúklinga sem þyrfti
að geta lagst inn með litlum fyrir-
vara. Það hefði verið hægt á Vífíls-
staðaspítala. „Það hefur heyrst í
mörgum lungnasjúklingum að þeir
kvíða framtíðinni ef þetta fer á
þennan veg,“ sagði Haukur.
Hann sagði að hvorki hefði verið
haft samband við starfsfólk á Víf-
ilsstöðum né sjúklingana sjálfa um
þessar breytingar. „Það er verið
stefna þjónustu við lungnasjúkl-
inga og ofnæmissjúklinga í mikla
óvissu með þessum breytingum svo
vægt sé til orða tekið," sagði Hauk-
ur ennfremur.
Dómsmál vegna nýju upplýsingalaganna
Deilt um hvort
styrkveitingar
njóti bankaleyndar
FYRSTA dómsmálið sem spinnst
af upplýsingalögunum, sem tóku
gildi um síðustu áramót, var flutt
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Iðnlánasjóður stefndi Einari S.
Hálfdánarsyni, héraðsdómslög-
manni, til að hnekkja úrskurði úr-
skurðamefndar um upplýsinga-
mál. Nefndin hafði kveðið upp
þann úrskurð að samkvæmt upp-
lýsingalögunum ætti sjóðsstjórnin
að verða við beiðni Einars um upp-
lýsingar um þá styrki sem Iðnlána-
sjóður hefði veitt á árunum 1990-
1996.
Samkvæmt 5. grein laga um
Iðnlánasjóð skal veija 10% af iðn-
lánasjóðsgjaldi í að greiða fyrir
hagrannsóknum í þágu iðnaðarins
og aðgerðum sem stuðla að þjóð-
hagslega hagkvæmri iðnþróun í
landinu. Stjórn sjóðsins er falið að
ráðstafa fénu í samráði við Samtök
iðnaðarins. Þá er í 8. grein laganna
um sjóðinn kveðið á um framlög
sjóðsins til nýrra útflutnings- og
þróunarverkefna og til rannsókna
í iðnaði.
Úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál hafði hafnað þeim sjónarmið-
um stjómar Iðnlánasjóðs að
ákvæði laga um bankaleynd ættu
að taka yfir þessar styrkveitingar
en sjóðsstjórnin byggir málið á
þeim sjónarmiðum fyrir dómi.
Einar S. Hálfdánarson óskaði
upplýsinganna fljótlega eftir ára-
mót og úrskurðamefndin fjallaði
um það á fyrstu mánuðum ársins.
Einari var stefnt fyrir réttarhlé en
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst
ekki á beiðni um flýtimeðferð máls-
ins og var það flutt í gær og er
dóms að vænta 7. október.
Prófkjör í Reykjavík
Hilmar Guðlaugsson
gefur ekki kost á sér
HILMAR Guðlaugsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hef-
ur ákveðið að draga sig í hlé og
gefa ekki kost á sér í prófkjöri
flokksins vegna borgarstjórnar-
kosninganna en það verður haldið
24. og 25. október.
Hilmar var í 4. sæti á lista
flokksins við síðustu borgarstjórn-
arkosningar.
í yfírlýsingu frá Hilmari af
þessu tilefni segir: „Ég undirritað-
ur hef ákveðið að gefa ekki kost
á mér til þátttöku í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins vegna borgar-
stjórnarkosninganna í maí 1998.
Ég hef starfað að borgarmálum
síðan 1974, ýmist sem vara- eða
aðalborgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins. Að mínu mati er mál
að linni og yngra fólki gefið tæki-
færi og þar með möguleikar á
kjöri til borgarstjórnar í Reykja-
vík.“
Morgunblaðið/Guðlaugur Wfum
TRYGGVI Konráðsson ásamt Oddi Haraldssyni og Konráði
Gunnarssyni uppi í einu af lyftumöstrunum.
Skíðalyfta á
Snæfellsjökul
Ólafsvik. Morgunblaðið.
VERIÐ ER að leggja síðustu hönd
á frágang skíðalyftu á Snæfells-
jökli. Ferðaþjónusta Spjófells á
Amarstapa með Tryggva Konr-
áðsson í fararbroddi hefur unnið
að því síðasta ár að setja upp
skiðalyftu á jöklinum. Hún er 800
metra yflr sjávarmáli í suðurhlíð
jökulsins og er um 400 metra löng.
Þessi staður er talinn geta orð-
ið hin mesta skiðaparadis. Útsýnið
er stórkostlegt og sést vel til allra
átta. Frá skíðalyftunni verður
hægt að skíða um allan jökulinn
að sunnanverðu og miðað við
snjóalög undanfarinna ára er
hægt að ljúka skíðadegi með því
að skiða niður í byggð. Nú er lítið
annað að gera en að bíða eftir
snjónum og kvaðst Tryggvi von-
ast til að við fyrstu snjóa yrði
hægt að gangsetja lyftuna.
MORGUNBLAÐIÐ
Aurskriða
lokaði
vegi
AURSKRIÐA féll á veginn
um Barðaströnd í fyrrinótt
og var vegurinn lokaður af
þeim sökum þartil Vegagerð-
in hafði opnað veginn að nýju
í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar á
Patreksfirði barst henni til-
kynning klukkan hálfeitt í
fyrrinótt um að aurskriða
hefði fallið á veginn á móts
við bæinn Hamar. Þegar var
haft samband við Vegagerð-
ina sem sá um að opna veg-
inn snemma í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar er ekki
vitað til þess að neitt annað
tjón hafi orðið af völdum aur-
skriðunnar.
Deila grunnskóla-
kennara
Fundur
boðaður
RÍKISSÁTTASEMJARI hef-
ur boðað samninganefndir
grunnskólakennara og sveit-
arfélaganna á fund nk.
fimmtudag. Þá verða liðnar
þrjár vikur frá síðasta fundi
deiluaðila.
Kjörgögn vegna atkvæða-
greiðslu um boðun verkfalls
í grunnskólunum 27. október
verða send út í dag. Atkvæða-
greiðslu lýkur 1. október og
verða atkvæði talin 6. októ-
ber.
15 teknir
með fíkni-
efni
TVEIR karlmenn voru hand-
teknir í vesturbæ borgarinnar
um helgina og fundust á þeim
efni sem talið er að séu amfet-
amín, hass ög LSD.
Mennirnir voru vistaðir í
fangageymslu lögreglunnar,
sem vinnur að frekari rann-
sókn málsins.
Á laugardag voru 13
manns handteknir þegar lög-
regla fann ætluð fíkniefni í
síðbúinni veislu í austurborg-
inni. Töluvert fannst af efn-
um á staðnum og í framhaldi
af leit þar gerði lögreglan
þrjár húsleitir annars staðar.
Þar fannst meira af efnum.
Batnandi
líðan eftir
slys
LÍÐAN 14 ára pilts, sem
varð fyrir bíl í Kópavogi á
mánudag í síðustu viku, fer
batnandi samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu.
Pilturinn, sem var á reið-
hjóli, varð fyrir bíl á mótum
Nýbýlavegar og Þverbrekku.
í gær var hann ekki kominn
til meðvitundar, en hann var
ekki lengur talinn í lífshættu
og ástand hans var stöðugt.