Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Leikskólagjöld ekki hækkuð að sinni, hugsan- lega endurskoðuð síðar Morgunblaðið/Ásdís REYKJAVÍKURBORG hefur ekki uppi áform um að hækka leikskóla- gjöld, að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra og Árna Þórs Sigurðssonar, formanns stjórnar Dagvistar bama. Þau úti- loka þó ekki að að sveitarfélögin kunni að endurskoða gjaldskrá leik- skólanna í framtíðinni m.a. vegna nýgerðra kjarasamninga við leik- skóiakennara. „Hvort þetta kallar á endurskoð- un á gjaldskrá þegar fram líða stundir veit ég ekkert um. Það er eitthvað sem sveitarfélögin almennt þurfa að skoða. Þegar við geram kjarasamninga sem era í takt við það sem almennt er á vinnumark- aði þá megum við búast við að fá það til baka í gegnum útsvarið. Þegar við geram samninga sem eru umfram þetta meðaltal þarf að brúa það bil einhvern veginn. Það er hægt að gera það með því að draga einhvers staðar saman eða með því að skoða gjaldskrár. Á þessu stigi er ekki verið að velta fyrir sér hækkun á gjaldskrá," sagði Ingi- björg Sólrún. Ekki hefur verið reiknað út ná- kvæmlega hver kostnaðarauki Reykjavíkurborgar er af samningn- um á næsta ári. Hann er hins veg- ar lægri en sá kostnaður sem borg- in kemur til með að bera af samn- ingi við Sókn. Ástæðan er sú að meirihluti starfsfólks leikskólanna er í Sókn. Sóknarsamningurinn fól í sér um 19% hækkun á þremur áram. „Þessi samningur leikskólakenn- ara hefur nokkum kostnaðarauka í för með sér. Þarna er um að ræða umönnunar- og uppeldisstörf sem að mínu mati hafa verið vanmetin. Það kostar sitt að leiðrétta slíkt.“ Þörf á að efla fagmenntun í leikskólum Árni Þór sagði að sá kostnaðar- auki sem Reykjavíkurborg hefði af samningi við leikskólakennara kæmi á nokkrum áram og það væri því ekki ástæða til að ijúka til og hækka leikskólagjöld. Hann sagði að sú stefna hefði verið mörk- uð að láta Ieikskólagjöld fylgja verð- lagi og því mætti búast við hækkun gjaldanna af þeim sökum 1. júlí á næsta ári. „Það er mikilvægt að efla fag- menntun í leikskólum. Við teljum að þessi kjarasamningur sé skref í þá átt. Á vegum stjórnar Dagvistar barna hefur verið unnið að tillögum um bætt sérfræðistarf inni í leik- skólum. Ég á von á að tillögumar komi fram á næstu vikum og reynt verði að taka mið af þeim í fjár- hagsáætlun fyrir næsta ár,“ sagði Árni Þór. Ingibjörg Sólrún sagði að í fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyr- ir árið 1997 hefði ekki verið tekið tillit til launabreytinga enda hefði ekki verið vitað hvað þær yrðu mikl- ar. í næsta mánuði myndi borgar- ráð fá í hendur upplýsingar um hvað launahækkanir kostuðu ein- stakar stofnanir borgarinnar og fjárveitingar til þeirra myndu taka mið af því. Ingibjörg Sólrún sagði erfitt að segja fyrir um hvort samningurinn við leikskólakennara kæmi til með að greiða fyrir samningum við grannskólakennara. Kjarasamning- ar þessara tveggja hópa væru ólík- ir og vinnufyrirkomulag ólíkt. Leik- skólakennarar væra inni á leikskól- unum frá kl. 9-17. Störf kennara væra ekki að eins miklu leyti skipu- lögð inni í skólunum sjálfum. „Þama vegur þyngst hvort það næst samkomulag um breytta vinnutilhögun. Ég held að það sé nauðsynlegt að ná fram einhveijum áföngum í því núna. Það getur skap- að svigrúm fyrir bætt kjör kennara vegna þess að þá má ná betra skipu- lagi og meiri hagræðingu í skóla- starfí," sagði Ingibjörg Sólrún. Hannes Þorsteinsson, sem sæti á í samninganefnd grannskólakenn- ara, sagði að leikskólakennarar hefðu í samningi sínum náð fram kjarabótum án þess að þurfa að leggja eitthvað á móti. Hann sagð- ist vona að launanefnd sveitarfélag- anna tæki mið af þessu í viðræðum við grunnskólakennara og drægi til baka kröfur um að kennarar fjár- mögnuðu að hluta til sjálfir þá launahækkun sem þeir ættu að fá. Ef það gerðist mætti segja að samn- ingur leikskólakennara greiddi fyrir samningum við grunnskólakennara. Karl Björnsson, formaður launa- nefndar sveitarfélaganna, sagði erf- itt að segja til um áhrif samnings leikskólakennara á kjaradeilu grannskólakennara og sveitarfélag- anna. Þetta væru mjög ólíkir samn- ingar og því gæti samningur leik- skólakennara ekki orðið fyrirmynd að samningi við grunnskólakenn- ara. Kynning á samningi leikskóla- kennara hefst _ í dag og stendur næstu daga. í framhaldi af því verða gjeidd atkvæði um samning- inn og er reiknað með að niðurstaða úr atkvæðagreiðslunni liggi fyrir um miðjan október. Tæplega 1.000 leikskólakennarar eru á kjörskrá. Æfingar fyrir þig Æfíngabekkir Hreyfingar, Ármúia 24, sími 568 0677 Ath. breyttan opnunartíma Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9-12 og kl. 15-20, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-12 Getur eldra fólk notið góðs afþessum bekkjum? Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun. Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk. Guðrún ingvarsdóttir Ég hef stundað æfingabekkina í rúmt ár og hafa þeir hjálpað mér I baráttunni við slit- og vefjagigt. Auk þess sem vöðvar hafa styrkst og vöxtur lagast. Allt er þetta jákvætt og gott innlegg í heilsubankann. Ég vildi að ég hefði kynnst þessu æfingakerfi miklu fyrr. Við erum einnig með göngubraut, þrekstiga og tvo auka nuddbekki. Svala Haukdal Ég hef stundað æfmgabekkina meira og minna síðan 1989. Vegna þrálátra bakverkja og vökvasöfnunar, átti ég erfitt meo að stunda leikfimi. Síðan ég byrjaði hef ég verið laus við verki og ég fæ alla þá hreyfingu og slökun sem ég þarf. Hjá Æfingabekkjum Hreyfingar fæ ég einnig einkaþjálfun, persónulegt viðmót og yndislegt umnverfi. Ég hvet allar þær konur sem geta, ao kynna sér æfingakerfið, það er fyllilega þess virði. Frír kynningarlími • Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki, öxlum eða handleggjum? • Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum? • Vantar þigaukíx“ blóðstreymi og • Þá hentar okkar þér Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar vel fólki á öllum sem ekki hefur dað einhverja sþjálfun í íangan á. Sjö bekkja ngakerfið liðkar, styrkir gcykur blóðstreymi til öðvana. Hver tími á góðri slökun. Morgunblaðið/Þorkell INGÓLFUR V. Gíslason, starfsmaður á skrifstofu jafnréttis- mála, og Knut Oftung, starfsmaður norska jafnréttisráðsins. 80% norskra feðra taka fæðingarorlof „MÉR sýnist það sama gilda um íslenska og norska feður, að þeir vinni allt of mikið þegar börnin þeirra eru ung. Við verðum að þora að forgangsraða á annan hátt en við höfum gert hingað til. Það er líka mikilvægt að feður styðji hvern annan í því að velja öðruvísi á þessu skeiði lífs síns því það kemur bara einu sinni og þetta eru mikilvæg ár,“ segir Knut Oftung, sérfræðing- ur í jafnréttismálum í Noregi, sem er staddur hér á landi þessa dagana til þess að kynna sér starfsemi Jafn- réttisráðs á íslandi. Sjálfur starfar hann hjá norska jafnréttisráðinu og var fulltrúi Nor- egs í norrænni karlanefnd og ritari nefndarinnar sem samdi tillögur til aðgerða um karla og jafnrétti sem ráðherrar jafnréttismála á Norður- löndum samþykktu í Riga nýlega. 4 vikna feðrakvóti - ekki lengri tími en sumarfrí Oftung er ekki síst þekktur fyrir þátt sinn í breytingum sem gerðar voru fyrir tveimur árum í Noregi á löggjöf um fæðingarorlof. Þær breytingar hafa leitt til byltingar á töku fæðingarorlofs karla í Noregi. í Noregi er fæðingarorlof nú 42 vikur á fullum launum eða 52 vikur á 80% launum. Fjórar vikur af þess- um 42 eða 54 vikum eru sérstaklega ætlaðar föðurnum og eru ekki yfir- færanlegar á móðurina. Knut Oft- ung segir þessa tilhögun mælast mjög vel fyrir og að nú taki um 80% norskra feðra fæðingarorlof, margir þeirra jafnvel lengri tíma en hinn lögboðna mánuð. Áður en hinn svo- kallaði feðrakvóti var tekinn upp hafi hins vegar aðeins 2-3% feðra tekið sér fæðingarorlof. Aðspurður hvernig vinnumarkað- urinn hafi tekið þessari nýbreytni segir hann það hafa gengið sárs- aukalaust. „Vissulega var nokkur umræða uppi um það hvernig vinnu- markaðinum myndi takast að leysa úr þessu en þegar til kom áttuðu menn sig á því að fjórar vikur væru ekki meira en venjulegt sumarfrí. Og það er jú nokkuð sem allir taka á hveiju ári,“ segir Knut Oftung.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.