Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 11 FRÉTTIR wtcmtMi ÍNA með stórlaxinn fyrir utan veiðiheimilið í Árnesi. Fékk boltalax í Laxá ÍNA Gissurardóttir veiddi 22 punda lax á Presthyl í Laxá í Aðaldal fyr- ir fáum dögum og er það stærsti lax sem Morgunblaðið hefur haft spurnir af að kona hafi dregið á land á því veiðitímabili sem nú er að Ijúka. „Eg var úti á báti á Presthyl með eiginmanni mínum, Halldóri Skaftasyni, og var nýbúin að veiða 10 punda lax. Við vorum að velta því fyrir okkur hvort við þyrftum nokkuð að róa í land til að landa honum og ákváðum að taka hann úti í ánni. Það var gaman að honum enda djöflaðist hann mikið allt í kringum bátinn. Svo kom þessi stóri og þá var ekki spurning, við sögðum hvort upp í annað að nú yrðum við að fara í land. Þetta tók hátt í klukku- tíma og ég réð ekki við neitt, laxinn ýmist lagðist eða tók út línu eins og hann vildi og svo var komið mikið slý á línuna þannig að ég bjóst alveg eins við því að hann færi bara af. En þetta gekk upp og það var mjög skemmtilegt, því við höfðum rétt áður misst annan sem var sennilega enn stærri í Grá- straumi," sagði ína í samtali við blaðið. Laxinn, sem vó 22 pund, hængur, tók maðk. Verður laxinn svo stoppaður upp? „Nei, biddu fyrir þér. Ég læt ekki stoppa upp fyrr en ég er búin að fá 30 punda lax. Þessi fiskur er kominn í reyk.“ Alls hafa veiðst um 300 laxar á Nesveiðum í Laxá sem er meira en í fyrra. Af þessum 300 löxum veidd- ust 98 í þremur síðustu hollunum, eða á níu dögum. Halldór Skaftason sagði í samtali við blaðið í gær, að hann hefði veitt í Laxá árlega frá 1965 og hann hefði ekki séð ána jafn líflega síðan 1978, er feikna- veiði var í ánni. „Það er greinilegt að áin er á uppleið aftur eftir mögru árin. Það var mikiil lax þarna, miklu meira en við reiknuðum með miðað við það sem hefur verið að gerast þarna í sumar,“ segir Halldór. Uppsagnir sérfræðinga á samningi við Tryggingastofnun Enginn fundur í tæpan mánuð LEIÐIN á tind Everest er brött og varasöm. Aukafyrir- lestur um Everest VEGNA fjölda áskorana munu Ever- estfararnir halda aukafyrirlestur um ævintýraför sína á hæsta fj’all heims sl. vor. Fyrirlesturinn verður haldinn í Borgarleikhúsinu í kvöld, þriðjudag, og hefst kl. 22. Fyrirlesarar í kvöld eru íslending- arnir þrír sem fóru á Everest í vor, Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon. Á fyrir- lestrinum er blandað saman mynd- skyggnum, lifandi frásögn og ein- stæðum myndbandstökum frá fram- andi slóðum og ævintýralegu ferða- lagi. Greint verður frá aðdraganda og undirbúningi ferðarinnar, fram- andi menningu í Nepal og stórkost- legri gönguleið í aðalbúðir við rætur Everest. Sagt verður frá hæðaraðlögun fjallagarpanna, alvarlegum veikind- um þeirra, óveðrum og bið eftir rétta tækifærinu til að leggja á tindinn. Lokst er greint frá erfiðri baráttu í fimmtu búðum í 8.000 metra hæð og lokst 13 tíma ferðalagi upp á tind Everest. ENGINN samningafundur hefur verið haldinn í deilu sérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins frá því seint í ágústmánuði. Annar fundur hefur ekki verið boðaður og segir formaður samninganefndar Læknafélags íslands óvíst hvenær af honum verði. Uppsagnir þvagfærasérfræðinga á samningi þeirra við Trygginga- stofnun tóku gildi um síðustu mán- aðamót, en auk þeirra hafa sérfræð- ingar í þremur öðrum greinum sagt upp samningi sínum við Trygginga- stofnun sem einstaklingar. Flestar uppsagnirnar taka gildi nú um mánaðamótin, en einnig nokkrar í nóvemberbyrjun. Um er að ræða háls-, nef-, og eyrnalækna, bæklun- arlækna og skurðlækna og ná upp- sagnirnar til þorra sérfræðinga í fyrrnefndu hópunum þremur. Áður hafði Læknafélag íslands, ELDUR kom upp í kjallara húss við Háteigsveg um klukkan 1 að- faranótt sunnudags. Slökkviliðs- menn björguðu íbúa hússins út um glugga á efri hæð, en hann komst ekki út þar sem eldurinn hafði læst sig í stiga hússins. Þegar slökkviliðið kom á vett- vang var íbúi á efri hæð úti í glugga. Mikill reykur var í húsinu og tölu- verður eldur í geymsluherbergi í kjallara. Eldurinn hafði borist fram fyrir hönd sérfræðinga sem starfa eftir samningi við Tryggingastofn- un íslands, sagt upp þeim samningi frá 1. apríl síðastliðnum. Ákveðið var þó að starfa eftir samningnum þar til nýr hefði verið gerður. Málið í hnút Guðmundur I. Eyjólfsson, for- maður samninganefndar Læknafé- lags íslands, sagði að í viðræðunum væri deilt um ýmisiegt, svo sem einingaverð, einingamagn og sér- stakar hækkanir sem sérfræðingar vildu fá fram fyrir skurðlækna. Þá vildu sérfræðingar einfalda allt kerfið. Viðsemjendur þeirra segðu þeim hins vegar að lesa fjárlögin, en þar stæði að það ætti að minnka út- gjöld til sérfræðiþjónustunnar um 70 milljónir króna. Málið væri þann- ig allt í hnút. á gang og í stiga sem liggur upp á hæðina. Slökkviliðið reisti stiga, sem var við húsið, upp að gluggan- um og hjálpaði íbúanum út. Húsið er þriggja hæða steinhús og urðu töluverðar skemmdir á því af völdum elds, reyks og vatns. Ibúanum, sem var einn í húsinu þegar eldurinn kom upp, varð ekki meint af. Lögreglan vinnur að rannsókn á upptökum eldsins. Bjargað út um glugga Októbersprengja Heimsferöa París 2 fyrir 1 13. og 20. okt. frá kr. 12.140 ' boði 30 hvorrj ft sæti erð Þetta er tækifæri sem þú færð ekki aftur til að kynnast þessari ógleymanlegu heims- borg, París. í samvinnu við hið franska flugfélag, sem flýgur íyrir Heimsferðir til Parísar geturn við nú boðið samtals 60 sæti á hreint ótrúlegum kjörum. Þú bókar tvö sæti til Parísar, borgar aðeins fyrir eitt og býður þínum uppá- halds ferðafélaga. Og hjá Heimsferðum getur þú svo valið um góða gististaði á hreint frábærum kjörum í heimsborg- inni og nýtur þjónustu Heimsferða allan tímann. 12.140 Verð kr. Verð á flugsæti m.v. annað sætið frítt með flugvallarskatti, 13. eða 20. okt. Flug út á mánudegi, heim á fimmtudegi, 3 nætur. 3.100 Verð kr. Gistinótt í París, verð pr. mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat, Hotel Paris — Rome. 3.800 Verð kr. Gistinótt í París, verð pr. mann á Hotel Lebron. 3.900 Verð kr. Gistinótt í París, verð pr. mann á Hotel Galerie. ( HEJ IMSFERí jir': Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.