Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
HJÓLAÐ undir slá í úrslitum hjólreiðakeppni grunnskóla.
Sigursælir hjóla-
kappar frá Akranesi
ÞRÁTT fyrir rok og rigningu
stóðu keppendur sig með prýði í
úrslitakeppni hjólreiðakeppni
grunnskóla 1997, sem haldin var
við Periuna í Reykjavík á laugar-
daginn.
I fimm efstu sætunum urðu eft-
irtaldir: í fyrsta sæti Eyþór Frið-
riksson og Bjarki Þór Guðmunds-
son, Grundaskóla á Akranesi, í
öðru sæti Snæþór Amþórsson og
Guðmundur Þór Sigurðsson, Dal-
víkurskóla, í þriðja sæti Emil Þór
Guðmundsson og Guðrún Hulda
Pálsdóttir, Selásskóla, í fjórða
sæti Ragnar Hjaltested og Ingi-
björg Einarsdóttir, Fossvogs-
skóla, og í fimmta sæti Davíð
Björgvinsson og Elvar Herjólfs-
son, Stóru-Vogaskóla. Morgun-
blaðið sió á þráðinn til sigurveg-
aranna Eyþórs og Bjarka Þórs á
Akranesi, sem sögðust lítið hafa
æft fyrir úrslitin. „Ég var nú eig-
inlega ekkert búinn að hjóla í
sumar. Ég hef bara verið í golfi,“
sagði Eyþór. Bjarki sagðist held-
ur ekki hafa æft neitt sérstaklega
mikið. „En við hjólum alltaf í
skólann," bætti hann svo við.
Eiginlega ætti maður
að nota hjálm
í keppninni voru allir með reið-
hjólahjálm, enda skylda. Að-
spurður hvort hann notaði hjálm
dags daglega sagðist Eyþór ekki
alltaf geraþað. „Það eru voða
fáir í mínum árgangi sem nota
hjálm núna. En það fengu allir
hjálm gefins þegar við vorum í
sjö ára bekk.“ Bjarki sagðist
stundum nota hjálm en samt ekki
alltaf. „En eiginlega ætti maður
nú að gera það, eftir það sem
maður hefur verið að heyra í
fréttunum um þessi reiðhjóla-
slys,“ sagði hann svo.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Uppsögn blikksmiðs
dregin til baka
Ný vél í flota
Flugleiða
NÝ ÞOTA bættist í flugflota Flug-
leiða fyrir síðustu helgi, en þá kom
hingað til lands Boeing 737-300
fraktvél sem félagið hefur tekið á
leigu til þriggja ára. Að sögn
Margrétar Hauksdóttur hjá upp-
lýsingadeild Flugleiða hefur vélin
verið leigð áfram til Svíþjóðar þar
sem hún verður í póstflutningum
fram í miðjan mars á næsta ári,
en þá kemur hún hingað til lands
í fraktflug. íslensk áhöfn verður
á flugvélinni í Svíþjóð og öll tækni-
leg þjónusta fer fram á henni á
vegum Flugleiða og var hún yf-
irfarin við komunatil landsins.
UPPSÖGN blikksmiðs, sem sagt
hafði verið upp störfum í lok ágúst,
hefur nú verið dregin til baka og
er gert ráð fyrir að hann hefji störf
á ný að loknu fæðingarorlofi 1. nóv-
ember næstkomandi.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
sem hafði sagt manninum upp störf-
um eftir að hann tilkynnti að hann
hygðist taka níu vikna fæðingaror-
lof, vildi ekki ræða ástæður upp-
sagnarinnar við Morgunblaðið. Hann
sagði þær persónulegt mál milli sín
og_ starfsmannsins.
í símbréfi, sem fyrirtækið sendi
lögfræðingi Félags blikksmiða síð-
degis á föstudag, en barst lögfræð-
ingnum ekki í hendur fyrr en í gær-
morgun, er tilkynnt að uppsögnin
hafi verið dregin til baka og því
geti starfsmaðurinn mætt til vinnu
1. nóvember. Lögfræðingurinn hafði
áður gefið fyrirtækinu tíu daga frest
til þess að draga uppsögnina til baka.
Morgunblaðið/Þorkell
INGI Bæringsson, ráðgjafi hjá SÁÁ, skýrir frá sameiginlegu
forvarnaverkefni SÁÁ og sveitarfélaga.
því hvernig starfinu miðaði á hveij-
um stað fyrir sig. Voru þeir sam-
mála um að það hefði farið vel af
stað, þó að það væri mislangt komið.
Þekkingunni ekki fylgt eftir
Fram kom að veikleikar þess
forvarnastarfs sem hingað til hefði
verið boðið upp á hefðu einkum
verið þeir að starfið hefði beinst að
afmörkuðum þáttum, eins og t.d.
fræðslu til unglinga um vímuefni
og hættur samfara neyslu, og að
utanaðkomandi sérfræðingar hefðu
komið og farið án þess að skilja
eftir þekkingu sem hægt væri að
fylgja eftir. Þá væri einnig gjarnan
um að ræða afmarkaðar uppákom-
ur eða átaksverkefni, en þess á
milli væri lítið gert.
Samstarf sveitarfélaganna fimm
og SÁÁ hófst um síðustu áramót
og að sögpi Einars Gylfa Jónssonar,
deildarstjóra forvarnadeildar SÁÁ,
eru fleiri sveitarfélög á leiðinni inn
í samstarfið. Hann segir mikilvægt
að kraftarnir séu samhæfðir heima
í héraði. Jafnvel þó að fagleg ráð-
gjöf og sérhæfð aðstoð sé fengin
að utan verði framkvæmdin í hönd-
um heimafólks á hvetjum stað, sér-
fræðingarnir að sunnan komi ekki
sem frelsandi englar sem öllu
þjargi.
Áður en verkefnið hófst gerði
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands úttekt á stöðu mála á hveijum
stað og þegar fram líða stundir
verður staðan metin aftur. Mun
þetta verða í fyrsta sinn sem fram
fer faglegt mat á árangri forvarna-
starfs hér á landi.
Þróunarnefnd Alþjóðabankans
Greiðslubyrði fá-
tækustu ríkja
endurskoðuð
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sat í gær 56. fund þró-
unarnefndar Alþjóðabankans í
Hong Kong. Halldór hefur forystu
fyrir hönd Norðurlanda og Eystra-
saltsríkja í þróunarnefndinni, sem
mótar meginstefnu bankans í að-
stoð við þróunarlöndin, og er skipuð
24 ráðherrum hátt á annað hundrað
ríkja.
Halldór, sem í gær sat bæði al-
menna og lokaða fundi, sagðist í
samtali við Morgunblaðið vera mjög
ánægður með niðurstöðu fundanna.
Þeir hafi gengið vel og niðurstöður
þeirra orðið með svipuðu sniði og
Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin
hafi verið búin að koma sér saman
um.
„Á fundunum fjölluðum við m.a.
um þá nýju áherslu sem Alþjóða-
bankinn og Alþjóðagjaldeyrisstofn-
unin leggja nú á að vinna gegn
spillingu," sagði Halldór. „Þá var
rætt um að efla samstarf milli Al-
þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins á fjármálamörkuðum þar
sem það hefur valdið vandræðum
að undanförnu að Alþjóðabankinn
hefur ekki verið nægilega vel það
undir búinn þegar upplausn hefur
orðið á þeim. Einnig var ákveðið
að styrkja stöðu MICA, Alþjóðlegu
fjárfestingarábyrgðarstofnunarinn-
ar sem tekur ábyrgð á fjárfesting-
um í þróunarlöndunum, með fram-
lögum sem samsvara einum millj-
arði Bandaríkjadala eða rúmum 70
milljörðum íslenskra króna.
Síðast en ekki síst náðist sam-
komulag um það hvernig standa
skuli að niðurfellingu skulda og
endurskipulagningu á endurgreiðsl-
um skuldugustu ríkja. Það hefur
verið nokkurt deilumál hvemig að
því skuli staðið. Á fundinum í dag
náðist síðan samkomulag sem var
þannig að við gátum vel sætt okkur
við það. Samkomulagið gengur út
á það að Alþjóðabankinn og -gjald-
eyrissjóðurinn taki á sig skyldur í
samræmi við útlán sín og að aðrir
aðilar sem hafa lánað til þessara
þjóða taki á sig að fella niður skuld-
ir. Þessar aðgerðir miða að því að
viðkomandi ríki geti staðið undir
endurgreiðslum en það gengur að
sjálfsögðu ekki upp þegar greiðslu-
byrði er á þriðja hundrað prósent
af úflutningstekjunum eins og við
á um nokkur þessara landa.
Það var mjög aðkallandi að koma
þessu í lag þannig að þessi ríki
geti farið að vinna sig upp úr þeirri
miklu lægð sem þau eru í,“ sagði
utanríkisráðherra.
í dag hefst svo aðalfundur Al-
þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins þar sem Halldór situr sem
fulltrúi íslands. Fulltrúi Finna mun,
að þessu sinni, tala fyrir hönd Norð-
urlandanna og Eystrasaltsríkjanna.
Forvarnaverkefni SAA og sveitarfélaga
Fimm sveitarfélög
stilla saman strengi
FIMM sveitarfélög víðs vegar um
landið, Akranes, Húsavík, Egils-
staðir, Vestmannaeyjar og Mos-
fellsbær, eru nú í samstarfi við for-
varnadeild SÁÁ um að þróa víðtækt
forvarnastarf þar sem leitast er við
að forvarnirnar nái til sem flestra
þátta sem haft geta áhrif á vímu-
efnaneyslu unglinga.
Þannig er reynt að stilla saman
strengi allra þeirra sem sinna mál-
efnum barna og unglinga í sveitar-
félögunum. Er þá ekki einungis átt
við fagfólk, eins og t.d. starfsmenn
heilsugæslu og barnavernd-
arnefnda, lögreglu, kennara og sál-
fræðinga, heldur einnig ófaglært
starfsfólk á ýmsum sviðum sem
umgengst börn og unglinga í sínu
daglega starfi og þekkir hugarheim
þeirra fullt eins vel og þeir sem eru
í hinu beina fræðslu- eða uppeldis-
hlutverki. Má þar t.d. nefna ganga-
verði í grunnskólum, starfsfólk
sundstaða og íþróttahúsa, dyraverði
skemmtistaða og afgreiðslufólk í
söluturnum og myndbandaleigum.
Vita hver kaupir áfengi
fyrir krakkana
Ingi Bæringsson, ráðgjafi hjá
SÁÁ, bendir sérstaklega á mikilvægi
þess að þetta fólk gefí upplýsingar
til réttra aðila um það sem miður
fer. Þar sem það verði í starfi sínu
vart við hræringar meðal unglinga
þegar þær gerast og viti oft betur
en foreldramir og kennaramir t.d.
hver kaupi áfengi fyrir krakkana,
sé afar mikilvægt að þær upplýs-
ingar komist alla leið.
Verkefnið var kynnt á blaða-
mannafundi hjá SÁA í gær og vora
þar einnig mættir verkefnisstjórar
sveitarfélaganna, sem greindu frá