Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 19
Hæsta tilboð
sem sögur
fara af í
Frakklandi
París. Reuter.
FRANSKI fjármálamaðurinn
Francois Pinault hefur boðið 30
milljarða franka í fjármála- og eign-
arhaldsfélagið Worms & Cie, eða
410 franka á hlutabréf, og er það
hæsta tilboð sem gert hefur verið
í fyrirtæki í óþökk þess í kauphöll-
inni í París.
Eignarhaldsfélag Pinaults, Art-
emis, kveðst vilja auka umsvif sín
með því að hasla sér völl á vett-
vangi fjármálaþjónustu. Helzta eign
Artemis nú er 43% hlutur í smásölu-
fyrirtækinu Pinault-Printemps-
Redoute.
Talsmaður Artemis sagði að Art-
emis og Worms hefðu ekkert sam-
komulag gert með sér, en Pinault
mundi hafa samband við stjórn
Worms. Worms vildi ekkert segja
um tilboðið, sem er hærra en 28
milljarða franka tilboð smásölufyr-
irtækisins Promodes í Casino og
hluthafann Rallye.
Meðal eigna Worms eru trygg-
ingafélagið Athena Assurances,
sykurfyrirtækið Générale Sucriere
og pappírsfyrirtækið Aijo Wiggins
Appleton.
Auk Pinault-Printemps-Redoute
á Artemis hlut í Chateau Latour-
vínfyrirtækinu, Samsonite-ferða-
töskufyrirtækinu í Bandaríkjunum
og skíðahóteli í Colorado. Meðal
þeirra sem fjármagna tilboð Artem-
is eru fjórir stórir bankar: Crédit
Agricole-Indosuez, Crédit Lyonnais,
ING Barings og JP Morgan.
------♦---------
Yfirmenn
Nikko segja
afsér
Tókýó. Reuter.
FORSTJÓRI og stjórnarformaður
japanska verðbréfafyrirtækisins
Nikko Securities Co Ltd munu lík-
lega segja af sér og axla ábyrgð á
hneyksli vegna meintrar greiðslu
til fyrirtækjafjárkúgara að sögn
japansks viðskiptadagblaðs.
Takuya Iwasaki stjórnarformað-
ur og Kichiro Takao forstjóri munu
biðjast lausnar vegna ásakana um
að verðbréfafyrirtækið hafi innt af
hendi greiðslur til fyrirtækjakúgar-
ans Ryuichi Koike að sögn blaðsins
Nihon Keizai Shimbun, sem hermir
að reynt sé að fínna nýja yfirmenn.
Koike er einn höfuðpaur j apansks
fjármálahneykslis, sem þijú önnur
af fjórum helztu verðbréfafyrir-
tækjum Japans hafa flækzt í og
stór viðskiptabanki að auki.
Leit var gerð 18. september í
skrifstofum Daiwa Securities Co
Ltd og því haldið fram að fyrirtæk-
ið hefði greitt Koike 67,28 milljónir
jena eða 551.000 milljónir dollara.
Koike hefur þegar verið handtek-
inn fyrir hlutdeild í mútumáli, sem
Nomura Securities Co Ltd, Yamaic-
hi Securities Co Ltd og Dai-Ichi
Kangyo Bank Ltd eru flækt í.
------♦ ♦ ♦-----
RuckíHann-
overkaupir
Skandia
Hannover. Reutcr.
ÞÝZKA endurtryggingarfélagið
Hannover Rúckversicherungs-AG
ætlar að veija 245 milljónum marka
eða 1,06 milljörðum sænskra króna
til að kaupa sænska tryggingarfé-
lagið Skandia International Insur-
ance Company (SIIC), endurtrygg-
ingararm Skandia hópsins.
Kaupsamningurinn var undirrit-
aður um helgina samkvæmt til-
kynningu frá Hannover Rúck.
Yfir 200 manns á viðskiptadegi íslendinga í Barcelona
Islensktspænskt
verslunarráð stofnað
Barcelona. Morgunblaðið
UM 200 manns frá um 80 íslensk-
um og spænskum fyrirtækjum
voru viðstaddir stofnun íslensks-
spænsks verslunarráðs í Barcelona
í gær á sérstökum viðskiptadegi
sem haldinn var á vegum íslenska
sendiráðsins í París. Meðal gesta
á stofnfundinum voru þeir Davíð
Oddsson, forsætisráðherra og Jordi
Pujod, forseti Kataloníu.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
sendiherra í París, hafði frum-
kvæði að stofnun hins nýja versl-
unarráðs. Viðskiptaumsvif íslend-
inga á Spáni hafa aukist mikið hin
síðari ár. Fimm íslensk fyrirtæki
starfrækja nú skrifstofur á Spáni
og segir Sverrir Haukur að líkur
séu á að viðskiptatengsl íslendinga
Fimm íslensk fyrir-
tæki starfrækja
skrifstofur á Spáni
og Spánveija muni aukast enn um
ókomin ár.
Fjölmennasti
fundurinn
Stjórn hins nýstofnaða íslensk-
spænska verslunarráðs er skipuð
þeim Sigurði Helgasyni, forstjóra
Flugleiða, Úlfari Steindórssyni, frá
Union Islandia, dótturfyrirtæki
SÍF, Hjörleifi Ásgeirssyni, frá Ice-
landic Iberia, dótturfyrirtæki Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
Sigurði Gísla Pálmasyni, stjórnar-
formanni Hofs sf., Eduardo Arm-
engol, frá Armengol, S.A., Mario
Rotllant frá Copeskco Sefrisa,
Juan Videla frá Pescados Videla
og Joaquin Armesto frá íslensku
umboðssölunni.
Aðsókn að viðskiptadeginum fór
fram úr björtustu vonum og þótti
dagurinn heppnast ákaflega vel.
Er líklegt að þetta sé fjölmennasti
fundur sem haldinn hefur verið
erlendis til að efla íslensk við-
skiptatengsl. Flestir fundarmanna
komu úr röðum fiskframleiðenda
og dreifingaraðila á Spáni, en einn-
ig var nokkuð um fólk úr ferða-
þjónustu, frá heildverslunum og
öðrum útflutningsfyrirtækjum.
Spá lægra
írsku pundi
Dyflinni. Reuter.
ÍRSKI bankinn IIB (Irish Int-
ercontinental Bank) spáir
verulegri lækkun írska punds-
ins og írskra vaxta til 1999.
Bankinn telur að vextir
muni lækka úr 6,75% nú í 6%
um jóiin og spáir mikilli lækk-
un næsta vor. Því er spáð að
vextir verði 5% að meðaltali
1998.
írska pundið selst nú á 2,65
mörk og spáð er að það muni
lækka I um 2,60 mörk um
jólin og verði að meðaltali
2,47 mörk 1998.
Spáin byggist á því að ír-
land verði ekki aðili að evr-
ópsku myntbandalagi, EMU,
sem Bretland verður ekki í
og taka mun til starfa í jan-
úar 1999.
Bankinn leggst gegn því
að gengi írska pundsins verði
hækkað.
Lýslng hf. var fyrst tll að bjóða BlLASAMNINGA sem eru nýjung f
fjármögnun á bílakaupum og hafa ekkl boðlst áður á Islandi.
BÍLASAMNINGAR Lýsingar hf. eru sveigjanlegri en önnur
grelösluform viö blfrelöakaup og gefa mlkla mögulelka.
Lýsing hf. er I eigu eftirtalinna aðila:
r ,
* *
SUÐUDLANDSBRAUT 22 • SÍMI 533 1500 • FAX 533 1505
...þegar þú tekur ákvörðun um greiöslutilhögun.
Með BÍLASAMNINGI Lýsingar hf. getur þú endurnýjað bílinn þinn á þriggja
ára fresti án þess að greiða lokaafborgun en áfram greitt sömu lágu
mánaðargreiðslurnar.
Sveigjanlegri greiðsluform
Möguleiki á framlengingu samnings
Greiðsludreifing á allt að 48 mán.
Jafnar mánaðargreiðslur
Engir ábyrgðarmenn
Leigutaki verður þó að vera orðinn 25 óra