Morgunblaðið - 23.09.1997, Side 20

Morgunblaðið - 23.09.1997, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ _______UR VERINU_____ „Demantssíld af stærstu gerð“ Síldveiði að glæðast fyrir austan SVO virðist sem síldveiðin úti fyrir Austurlandi sé að glæðast, en að- eins fjögur skip voru á síldarmiðun- um í fyrrinótt, Amey KE, Húna- röstin SF, Sunnubergið GK og Vík- ingur AK. Þijú skipanna lönduðu slöttum til manneldisvinnslu í gær eftir veiði næturinnar og héldu strax út aftur af löndun lokinni. Síldin verður flökuð og fryst. Arney landaði 350 tonnum á Djúpavogi, Húnaröstin SF landaði 250 tonnum hjá Borgey á Höfn og Sunnubergið landaði 140 tonnum hjá Tanga á Vopnafirði. Dræmt fyrstu dagana „Við áttum í bileríi í nokkra daga og emm því að koma úr fyrsta túr eftir það,“ sagði Jón Axelsson, skip- stjóri á Húnaröstinni, í samtali við Verið í gær. „Veiðin hefur verið mjög dræm þessa fyrstu daga ver- tíðarinnar. Erfitt er að spá um framhaldið þó maður voni að það fari að fást einhver tonn núna. Reynsla fyrri ára hefur sýnt að veiðin byijar um þetta leyti árs og um mánaðamótin verði kominn kraftur í veiðarnar. Síldin er á leið- inni austur eftir, þjappar sig þar saman í torfur og fer að éta og fita sig.“ Jón sagði síldina, sem landað hafi verið í gær, mjög stóra og fall- ega, demantssíld af stærstu gerð enda sé það gjaman svo að stóra síldin sýni sig fyrst. Þetta sé því svipað og verið hafi undanfarin ár. Skipin fjögur halda sig nú á Breið- dalsgrunninu og í Berufjarðarál, en upp úr mánaðamótum má búast við að síldin fari að ganga norður eftir með Austfjörðunum. Húnaröstin var á útleið upp úr hádeginu í gær og stefndi Jón á svipaðar slóðir. Jón sagðist vera hæfílega bjartsýnn á áframhaldandi góða veiði, en mjög erfítt væri að spá um það hvemig síldin hagaði sér frá degi til dags. Það gæti ver- ið mokveiði á miðvikudegi en ekk- ert á fímmtudegi. „Eins og er, er síldin frekar dreifð, en rétt áður en hún kom upp, var hún vaðandi. Hún var bæði stökkvandi og á mikilli ferð.“ Að sögn Jóns, eru takmörk sett á það hversu mikið skipin geta komið með að landi í einu ef vinna á síld- ina til manneldis. Sömuleiðis þurfi hráefnið að vera sem ferskast. Síldarskip á heimleið frá Noregi Mjög fljótir að ná kvóta sínum Nokkur löndunarbið er í Noregi ÍSLENSKU nótaveiðiskipin, sem fengu leyfí til veiða í norskri lög- sögu að þessu sinni, hafa verið að mokveiða og em þijú þeirra búin að ná kvótum sínum og eru nú á landleið. Samheijaskipið Þorsteinn EA, sem fyrst hóf veiðarnar, náði sínum kvóta aðfaranótt laugar- dagsins. Það lagði af stað áleiðis heim á laugardagskvöld og er vænt- anlegt til löndunar í Neskaupstað í dag. Bræla til að byrja með Vegna brælu gátu skipin ekki athafnað sig á miðunum fyrr en upp úr hádegi á sunnudag og náði þá Beitir NK að fylla sig á aðeins fímm tímum. Hann er nú einnig á heimleið og er væntanlegur til lönd- unar hjá Síldarvinnslunni á morgun. Á hádegi í gær tilkynnti Hólma- borgin SU það til Fiskistofu að hún væri á landleið með 770 tonn. Hún kemur væntanlega til með að landa á Eskifirði. Þrettán íslensk nótaskip fengu leyfi til síldveiða innan lögsögu Noregs og skipta þau tíu þúsund tonna heildarafla jafnt á milli sín. 770 tonn koma í hlut hvers þeirra og eru aflaheimildirnar óframselj- anlegar. Auk Þorsteins og Beitis fengu veiðileyfí Gullberg VE, Júpít- er ÞH, Víkurberg GK, Bergur VE, Bjami Ólafsson AK, Hólmaborg SU, Þórshamar GK, Sighvatur Bjarnason VE eða Kap VE, Antares VE, Jóna Eðvalds SF og Elliði GK. Nokkur þessara skipa eru enn ekki lögð af stað eða eru á leiðinni á miðin. Stefnt er að manneldisvinnslu Finnbogi Jónsson, forstjóri Sfld- arvinnslunnar, sagði í samtali við Verið í gær að stefnt yrði að því að vinna sem mest af síldinni í manneldi, en vart hafí orðið tals- verðrar átu í síldinni og því ekki ljóst á þessari stundu hversu stór hluti það yrði. Það ráðist m.a. af því hversu vel aflinn hafi verið kældur. Löng sigling Að sögn Finnboga var leitað eft- ir löndun í Noregi, en vegna langr- ar löndunarbiðar í Noregi reyndist ekki unnt að koma aflanum til vinnslu þar vegna mikillar veiði norskra skipa. Eini möguleikinn fyrir íslendingana hafí verið sá að sigla skipunum um 600 sjómílna leið suður með Noregsströndum þar sem hægt hefði verið að koma afl- anum í bræðslu. Horfíð hafí verið snarlega frá því. Eins gott hafí þótt að sigla 700 sjómílna leið til Islands og freista þess að vinna aflann til manneldis. íslensku skipin hafa verið að veiðum við Norður-Noreg, 70,18 gráður norður og 13,25 austur og sum skipin nokkru vestar. Heim- stímið tekur um það bil þijá sólar- hringa. Sala á M&M bönnuð í fríhöfninni Verði sölu ekki hætt mun sælgætið gert upptækt BÚIÐ er að banna sölu á M&M sælgæti í komuverslun fríhafnar- innar á Keflavíkurflugvelli. Engu að síður er sælgætið enn selt í frí- höfninni. Að undanförnu hafa gám- ar með M&M sælgæti, sem Bónus og Sláturfélag Suðurlands hafa ætlað að flytja inn til landsins, ver- ið stoppaðir í tolli. Sala á M&M er ekki leyfileg, þ.s. í sælgætinu eru efni sem eru bönnuð samkvæmt gildandi aukefnalista. Að sögn Magnúsar Guðjónsson- ar, framkvæmdastjóra heilbrigðis- eftirlits Suðumesja, var sala á þessu sælgæti bönnuð í komuverslun frí- hafnarinnar í bytjun sumars og á nú einungis að vera hægt að fá M&M sælgæti í brottfararverslun fríhafnarinnar. Þegar Magnús er spurður hvort aðgerða sé að vænta frá heilbrigðis- eftirliti Suðurnesja þar sem ekki hafi verið farið að eftir úrskurði þess segir hann það augljóst mál. „Við munum grípa til þeirra ráð- stafana sem lög heimila okkur þ.e.a.s. gera vöruna upptæka eða loka versluninni." Guðmundur Karl Jónsson, for- stjóri fríhafnarinnar, segir að til- mæli hafí borist frá heilbrigðisyfir- völdum um að hætta sölu á M&M sælgæti í komuverslun fríhafnar- innar. Hann segir hins vegar að í reglugerð um fríhöfnina frá 1981 komi fram að fríhöfnin megi selja allar þær vörur sem tíðkast að selja í fríhöfnum erlendis og þess vegna sé M&M enn til sölu. „Fríhöfnin er ekki innflytjandi heldur farþegar. Við hættum á tímabili að selja M&M kúlur en þá voru þær bara keyptar erlendis og salan færðist því úr landi." Seldu M&M kúlur fyrir 80 milljónir - Seljið þið mikið magn af M&M kúlum? „Eftirspumin er töluverð og á síðasta ári seldum við umrætt sæl- gæti fyrir um 80 milljónir," segir Guðmundur Karl. - Hafíð þið fengið frekari við- varanir á sölu M&M? „Við höfum fengið bréf frá utan- ríkisráðuneytinu þar sem erindi heilbrigðiseftirlitsins um að sölu sé hætt er sent áfram til okkar.“ Nýr aukefnalisti fyrir árslok? Farið er samkvæmt gildandi auk- efnalista en unnið hefur verið að tillögum að nýjum aukefnalista," segir Sigurbjörg Sæmundsdóttir, deildarstjóri hjá umhverfísráðu- neytinu. „Drög að breytingum á reglugerð um aukefni í matvælum ásamt drögum að nýjum aukefna- lista hafa verið send til umsagnar. Umsagnarfresturinn rennur út um mánaðamótin næstu og þessi drög eru byggð á þremur tilskipunum Evrópusambandsins, m.a. tilskipun um litarefni í matvælum. í drögun- um hefur ekki verið vikið frá ein- stökum efnisatriðum tilskipana en tekin endanleg afstaða þegar um- sagnarfrestur er liðinn.“ - Þýðir þetta að brátt verður innflutningur leyfður á M&M sæl- gæti? „Ég get ekki sagt um hvernig nýr aukefnalisti kemur til með að líta út endanlega.“ - Hvenær tekur nýr aukefnalisti gildi? „Ráðuneytið hefur hug á að reyna að ljúka þessu máli fyrir árs- lok. Óvíst er hvort það er mögulegt þar sem nokkur atriði eru ófrágeng- in innan Efta.“ M&M kúlurnar stoppaðar í tolli Gámar frá Bónusi og Sláturfélagi Suðurlands með M&M sælgæti hafa að undanförnu verið stoppaðir í tolli. Að - sögn Reynis Haraldssonar, deildarstjóra hjá tollstjóranum í Reykjavík, fer tollembættið eftir lögum númer 24 frá árinu 1936. Þar kemur meðal annars fram að óheimilt sé að búa til eða flytja inn í landið í þvi skyni að hafa á boð- stólum, selja eða láta af hendi mat- vöru sem ætla má að skorti eðlilega hollustu eða séu skaðlegar heil- brigði manna. Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, segir að það sé löngu tímabært að íslenskur aukefnalisti sé samræmdur auk- efnalistum Evrópusambandsríkja. „Þessar hindranir á sölu M&M sælgætis snúast ekki um neytenda- vernd heldur einhveija allt aðra hluti. Við verðum að ætla að neyt- endavernd sé á jafnháu stigi í Evr- ópusambandinu og hér á landi. Eft- ir því sem næst verður komist standa vonir til að breytt reglugerð sjái dagsins ljós í byijun nóvember og við vonum að það gangi eftir.“ Steinþór segir að um þessar mundir séu þeir með einn gám af M&M sælgæti í tolli sem ekki fæst afgreiddur inn í landið. - Hvernig ætlið þið að bregðast við? „Málið er í höndum lögfræðinga okkar og einnig Mars fyrirtækis- ins.“ Rósaaldin í marmelaði MARGIR hafa verið að sulta úr berjum undanfarið. En það má líka sulta úr rauðum rósaaldin- um og einmitt núna er rétti tíminn. Að sögn Láru Jónsdótt- ur, garðyrkjufræðings hjá Blómavali, eru rauð rósaaldin ekki á mörgum rósum en þó eru þau á ígulrósum en hansarósin telst ígulrós. Auk þess eru rósa- aldin á sumum fjalla- og meyjar- rósum. í nágrannalöndunum eru rósaaldin gjarnan notuð í bæði sultur og eftirrétti og að sögn Láru eru þau sneisafull af C-vítamíni. Best er að frysta aldinin þeg- ar búið er að skera þau í tvennt því þá er auðveldara að fjar- lægja hærð fræ sem eru innan í þeim og á ekki að nota við matargerðina. - Nýlega birtist uppskrift að rósaaldinmarmelaði í vikuritinu Familien og hún fær að flj óta hér með ef lesendur vi\ja spreyta sig. Rósaaldin- og eplamarmelaói 1 kg þroskuó rósaaldin 1 kg súrepli 4 dlsykur _____________2 dl votn____________ 'Aafhýdd vanillustöng börkur gf 'Asítrónu (sem ekki hefur verió sprautuð meó eiturefnuml) ________rotvarnarefni ef vill_____ Hreinsið þroskuð rósaaldin og skrælið eplin. Fjarlægið kjarn- ann. Sjóðið vatn, sykur, vanillu- stöng, epli og rósaaldin saman í um 30 mínútur við lágan hita. Að því búnu má merja sultuna með skeið svo enn verði ávaxta- bitar í marmelaðinu. Einnig má sigta hana. Smakkið til með sykri og fjarlægið vanillustöngina. Fylgið Ieiðbeiningum um rot- varnarefni ef það er notað og setjið marmelaðið síðan á sótt- hreinsaðar krukkur. Póstur og sími Ódýrari að- gangur að alnetinu PÓSTUR og sími hefur lækkað gjald- skrá fyrir aðgang að alnetinu með mótaldi miðað við ótakmarkaða notk- un. í fréttatilkynningu frá Pósti og síma kemur fram að verðið sem var 1.890 krónur á mánuði er nú 1.495 krónur á mánuði og skráningargjald ekkert. Þeir sem nota alnetið ekki mikið vilja e.t.v. frekar fá áskrift sem er tímamæld en hún er hagstæðari ef notkun er minni en sem nemur 16,5 klst. á mánuði. Þá er áskriftar- gjaldið aðeins 374 kr. á mánuði en greiða þarf 1,12 kr. á mínútu fyrir notkunina. Skráningargjald í upphafí er 623 kr. Nýtt Súrmjólk frá Neskaupstað HJÁ Bónus er far- ið að selja hreina súrmjólk frá Nes- kaupsstað. Súr- mjólkin er í eins lítra fernum og kostar 82 krónur lítrinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.