Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ________________ERLENT_________________ Jafnaðarmenn tapa fylgi í kosningum í Hamborg Voscherau dregur sig í hlé frá stjórnmálum Bonn, Hamborg. Reuter. Reuter HENNING Voscherau, fráfarandi borgarstjóri í Hamborg, og Oskar Lafontaine, formaður þýska Jafnaðarmannaflokksins, á fréttamanna- fundi í Bonn í gær þar sem sá fyrrnefndi gerði grein fyrir þeirri ákvörðun sinni að láta af embætti borgarstjóra. HENNING Voscherau, borgar- stjóri Jafnaðarmannaflokksins (SPD) í Hamborg í Þýskalandi, sagði af sér á sunnudag eftir mikið fylgistap flokksins í kosningum til borgarstjómarinnar, sem jafn- framt er ríkisstjórn þar sem Ham- borg er eitt 16 sambandslanda Þýzkalands. Kvaðst hann ætla að hætta afskiptum af stjórnmálum, og því ekki lengur sinna stefnu- mótun Jafnaðarmannafiokksins, sem er í stjórnarandstöðu á sam- bandsþinginu í Bonn, í efnahags- og ríkisfjármálum. Jafnaðarmenn hafa haldið um stjómartaumana í Hamborg í 40 ár og þótt flokkurinn fengi flest at- kvæði þeirra flokka sem buðu fram í kosningunum á sunnudag var fylgistapið verulegt, eða úr 40,4% í 36,2%, sem er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur haft frá því lýð- ræði var endurreist í landinu eftir síðari heimsstyrjöld. Flokkur Kohls vinnur á Kristilegir demókratar (CDU), flokkur Helmuts Kohls kanslara, hlaut næstmest fylgi, eða 30,7 af hundraði og jók fylgi sitt um tæp fímm prósent. I kosningunum 1993 tapaði flokkurinn tíu af hundraði fyrra fylgis síns. Þýskir frétta- skýrendur sögðu í gær að úrslit kosninganna í Hamborg hlytu að verða SPD viðvöran, nú þegar rétt ár er til þingkosninga. SPD hefur verið að auka forskot sitt á CDU í skoðanakönnunum, og er ástæðan fyrst og fremst gremja kjósenda vegna þess að atvinnuleysi í Þýska- landi er gífurlegt. Leiðarahöfundar blaða sögðu að tilraunir SPD til að gera lög og rétt að þungamiðju kosningabaráttunn- ar í Hamborg- sem talið er að þeir ætli sér einnig að gera í bar- áttunni fyrir þingkosningarnar - hafi komið í bakið á þeim og orðið öfgasinnuðum hægriflokkum til framdráttar. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem jafnaðarmenn hafa reynt að vinna atkvæði með slagorðum hægrisinna- og þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeim hefur orðið illa á í messunni," sagði í leiðara S 'uddeutsche Zeitung. Var líklegur arftaki Waigels Sem lykilmaður í fjármála- stefnumótun Jafnaðarmanna- flokksins hafði Voscherau orðið áberandi sem helsti fulltrúi stjórn- arandstöðunnar í viðræðum við stjórn Kohls um fyrirhugaðar um- bætur stjórnarinnar á skatta- og eftirlaunakerfínu. Sagði Voscherau á fréttamannafundi í gær að því starfi gæti hann ekki sinnt áfram eftir að hann léti af embætti borg- arstjóra. Hann hafði af frétta- skýrendum verið talinn líklegur næsti fjármálaráðherra Þýska- lands. Þýska þjóðarbandalagið (DVU), sem er öfgasinnaður hægriflokkur, hlaut 4,9% fylgi og munaði því litlu að flokkurinn fengi þau fímm af hundraði sem þörf er á til þess að koma manni að. í fyrstu spám var gert ráð fyrir að flokkurinn fengi um sex prósenta fylgi. „Nasistam- ir komast að!“ sagði í stómi fyrir- sögn í blaðinu Hamburger Mor- genpost, sem fór í prentun skömmu áður en endanleg úrslit lágu fyrir. Göran Persson um hugsanlega EMU-aðild Svfþjóðar Akvörðun Breta um EMU hefði bein áhrif Brussel. Reuter. EF BRETAR skyldu ákveða að gerast þátttakendur í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, EMU, myndi sú ákvörðun hafa veruleg áhrif á þá umræðu sem fram fer um myntbandalagið í Svíþjóð, segir Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðai-. Persson lét þessi ummæli falla í gær, á meðan á heimsókn hans hjá framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins í Brassel stóð. Hann sagði að ef stjórnvöld í Lundúnum tækju slíka ákvörðun myndi það „örva hið pólitíska ferli“ í Svíþjóð. Hann tók hins vegar fram, að þetta þýddi ekki endilega að Svíar ákveddu að fylgja Bretum ef þeir skyldu einn góðan veðurdag taka ákvörðun um að ganga til liðs við EMU. Engin formleg undanþága Bretland og Svíþjóð eiga það sameiginlegt að hafa áskilið sér þann rétt að ákveða ekki fyrr en eftir að EMU hefur verið hleypt af stokkunum 1. janúar 1999 hvort þau gangi í hóp þeirra aðildarríkja Evrópusambandsins sem taka upp evróið, hinn sameiginlega evrópska gjaldmiðil. Ólíkt Bretlandi og Dan- mörku hefur Svíþjóð þó ekki form- lega undanþágu sem leyfir stjórn- völdum þar í landi að taka ákvörð- un um hvort evróið verði tekið upp í Svíþjóð eða ekki. Með ESB-aðild- arsamningnum, sem Svíar sam- þykktu 1994, skuldbundu þeir sig til að framfylgja ákvæðum Ma- astricht-sáttmálans, sem meðal annars snýst um það að öll aðildar- ríkin sem uppfylli aðildarskilyrðin gerist stofnaðilar að EMU í janúar 1999. Allt bendir til að Svíþjóð muni uppfylla hin hagrænu skilyrði fyrir EMU-aðildinni, en vegna þess hve stór hluti Svía hefur mikla fyrir- vara gegn EMU-áformunum hefur stjórn jafnaðarmanna, undir for- sæti Perssons, ákveðið að Svíþjóð muni standa utan við EMU, að minnsta kosti til að byrja með. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í síðustu viku að ólíklegt væri að Bretland tæki þátt í myntbandalaginu 1999, en því myndi vart verða stætt á því að hans mati að standa lengi utan við ef það skyldi reynast vel. Undir Svíum sjálfum komið Jaqces Santer, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, sagði á sameiginlegum fréttamannafundi með Persson í gær að það væri Svía sjálfra að ákveða hvort þeir tækju þátt í EMU eður ei. Hann bætti hins vegar við að ákvörðunin um hvaða ríki ættu að verða stofn- aðilar að EMU yrði tekin af leið- togum ESB-ríkjanna á fundi þeirra í apríl á næsta ári. Santer tók einnig skýrt fram, að aðild að Gengissamstarfi Evrópu, ERM, væri skilyrði fyrir aðild að EMU. Svíþjóð hefur ekki viljað taka þátt í ERM og er þeirrar skoðunar að stöðugt gengi frekar en formleg aðild að ERM ætti að vera aðalatriðið þegar litið væri til þess hver uppfyllti skilyrði fyrir EMU-aðild og hver ekki. ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.