Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 25

Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 25 LISTIR Lýsi hf Grantlavegi 42, Reykjawik 92 g/100 m! Tímarit Friedrich Nietzsche • TIMARIT Máls og menning- ar 3. hefti 1997 er komið út. Meg- inviðfangsefni þess er þýski heim- spekingurinn Friedrich Nietzsche (1844-1900) og kenningar hans. Fimm fræðimenn skrifa um ýmsar hliðar þessa heimspekings, þau Róbert H. Haraldsson, Kristján Árna- son, Sigríður Þorgeirsdóttir, yilhjálmur Árnason og Art- húr Björgvin Bollason. Yfir- skrift þessarar samantektar er: Heimspeki Nietzsches, háskaleg eða heilnæm? Meðal annarra greina má nefna minningargrein Gyrðis Elíassonar um Hannes Sigfússon skáld sem lést nýverið, grein eftir sama höf- und um skáldsagnahöfundinn Jó- hann Magnús Bjarnason og hug- leiðingu Jóns Karls Helgasonar um ísland og Evrópubandalagið. Frumsaminn skáldskapur skipar veglegan sess í tímaritinu því þar eru birt ný ljóð eftir Matthías Jo- hannessen, Diddu, Jón Egil Berg- þórsson, Helga Ingólfsson og Aðal- heiði Sigurbjörnsdóttur, auk smá- sögu eftir Guðberg Bergsson. Böðvar Guðmundsson birtir ádrepu um gott og vont ætterni orða, en nokkur umræða um hrein- leika íslenskunnar hefur átt sér stað í tímaritinu upp á síðkastið. Loks eru birtir ritdómar um nýjustu bækur Einars Kárasonar, Gerðar Kristnýjar og Gyrðis Elías- sonar. Ritstjóri TMM er Friðrik Rafns- son. TMM 3. heftið 1997 er 120 bls., unnið íPrentsmiðjunni Odda hf. Málverk á kápu er eftir Edvard Munch. Áskrift kóstar 3.300 kr. á ári, en tímaritið er selt í lausasölu íöllum helstu bókaverslunum. Grandavegi 42 símj: 552 8777 fax: 562 3828, heinias16ð: vvww.lysí.is „DHA-DHA! Huliðsheim- ar hafsins LEYNDARMÁLIÐ er yfirskrift sýningar Ingu Elínar Kristinsdótt- ur keramik- og glerlistakonu í Galleríi Horninu. Inga Elín er bæ- jarlistamaður Mosfellsbæjar í ár. Síðast hélt hún sýningu árið 1994 en sýninguna nú segir hún öðrum þræði vera í tilefni af fertugsaf- mæli sínu 22. september. Sýning- unni lýkur 1. október. Eftir að hafa lokið námi við Myndlista- og handíðaskólann nam Inga Elín í keramik- og glerdeild við Danmarks Design Skole. „Ég heillaðist af glerinu þegar ég var við nám í Danmörku. Ekki tókst mér þó að segja skilið við keramik- ið svo ég hef farið þá leið að blanda þessu tvennu saman.“ Verkin á sýningunni eru úr steinsteypu og gleri. Þema sýning- arinnar er sótt til hafsins, í form kuðunga og fiska. „Þetta eru skúlptúrar sem búa yfir leyndar- máli sem umgjörð glersins hylur. Síðan er hægt að hvískra um leyndarmál á Bálknum," segir Inga Elín og bendir á umfangsmikinn bekk úr steypu og gleri, sem hún segir svo þykkt að bekkurinn þoli vel að standa utan dyra. Hún vinn- ur glerið þykkt því þannig finnst henni eiginleikar efnisins njóta sín best. „Útlendingar hafa haft á orði við mig að grænn litur glersins, sem er svo áberandi í verkum mín- um þar sem ég kýs að hafa það þykkt og gróft, minni á jökul eða sæ,“ segir Inga Elín og henni finnst það geta verið hvort tveggja. INGA Elín sýnir í Galleríi Horninu. Morgunblaðið/Þorkell iPað er aldrei of snemmt ad byrja að hugsa um holfue’tuna! Vísindamenn hafa leitt sterk rök að því að fjölómettaða ómega -3 fitusýran DHA sem finnst í fiskmeti sé sannkölluð „heilafæða". DHA er í miklu magni í heila og benda líkurtil að hún gegni mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heilans og miðtaugakerfisins. Um er að ræða jákvæð áhrif sem vara allt lífið. Þessi uppgötvun hefur leitt til þess að mörg alþjóðleg lyfja- og matvælafyrirtæki leita nú leiða til að bæta DHA-fitusýrunni í framleiðslu sína. Meira DHA - minna bragð\ Foreldrar geta séð til þess að börnin fái nóg af DHA í uppvextinum því það er bæði í móðurmjólkinni og í Krakkalýsinu. Krakkalýsið er bragðlítið þorskalýsi og meðhöndlað á sérstakan hátt til að ná fram hagstæðu hlutfalli milli vítamína og DHA. A- og D-vítamín í Krakkalýsinu hafa góð áhrif á sjónina og vöxt tanna og beina. Til að styrkja varnir líkamans bættum við E-vítamíni í Krakkalýsið. Ráðlagður dagskammtur fyrir börn 1-10 ára er 10 ml eða 1 barnaskeið. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.