Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR AÐSENDAR GREINAR Glansandi fínn kammerdjass PJASS Sunnusalur Hótcl Sögu REKSINKI KVARTETTINN Midvikudagur 17. september kl. 21. ÞAÐ var gaman að hlusta á RekSinki kvartettinn á Hótel Sögu á miðvikudagskvöldið var. Kvartettinn skipa tveir úr hópi fremstu djassleikara okkar Is- lendinga: Björn Thoroddsen á gít- ar og Sigurður Flosason á altó- saxófón auk ' Finnanna Tuure Koski bassaleikara og Mikko Hassinen trommara. Nafn kvart- ettsins er sett saman úr nöfnum höfuðborganna, en ágætur kol- lega Tuure, sem naut tónleika þeirra félaga, stakk þó uppá öðru nafni: HelVík. Tónlist RekSinki leiddi okkur þó aldrei á heljar- þröm heldur var hún falleg og leikandi og góður gleðivaki. Það er dálítið einkennilegt að sitja á tónleikum í Sunnusal þegar hljóðkerfí salarins er notað og hljóðið kemur kannski úr lofthát- alara að baki manns. Stundum fannst mér einsog ég væri í bíó þar sem THX kerfíð er í gangi er ég sjá Bjössa leika fyrir framan mig en heyrði í honum að baki. Tríó Tómasar R. og Jakob Fischer léku í sama sal og var sveiflan heldur sterkari er hlustað var á þá tónleika í útvarpi en í Sunnu- sal - sama trúi ég gildi um RekS- inki kvartettinn. Sigurður og Bjöm hafa gefíð út tvo hljómdiska hvor í samvinnu við erlenda djassleikara. Seinni diskur Sigurðar, Gengið á hljóðið, kom út sl. haust og er ómissandi í hvert íslenskt djasssafn og um mánaðamótin kemur út diskur Björns: Jazzgítar, þarsem hann leikur m.a. með Philip Catharine, Doug Raney og Jacob Fischer. Lagið sem Jakob og Björn leika á disknum er Softly as in the mom- ing sunrise, sem var fyrsta lagið sem Bjöm djassaði. Þarna í Sunnusal flutti RekSinki kvartett- inn þennan Romberg ópus og hóf Tuure leikinn snyrtilega. Þeir Finnar em hinir ágætustu hljóð- færaleikarar en það vom okkar menn sem vöktu mesta hrifningu. Báðir hafa þeir mótað persónuleg- an stíl sem er auðþekktur í djass- flóru íslands og hefur borið hróður íslandsdjassins víða. Mér er minn- isstætt er ég sat og horfði á djass- þátt í NBC sjónvarpsstöðinni. Van Morrison var að syngja og svo var blásið í altósax. „Hann blæs einsog Siggi Flosa þessi,“ sagði ég við konu mína og mikið rétt. Þegar myndavélunum var beint að altó- istanum var það Sigurður Flosa- son sem blasti við. Á efnisskrá kvöldsins voru standardar og frumsamin lög, flest eftir Björn. Elst var Funk Junk, sem Siggi heyrði Bjössa leika með Stormsveitinni í gamla daga í Sunnusal, sem þá hét Átthagasal- ur. Trúlega hefur verið meira rokk í þeim flutningi þá. Nú var þetta hinn fágaðasti djömpblús. Völuspá er klassískur Bjössi og hana má finna á Jazzgítar í flutningi Björns og Doug Raneys. Af nýrri lögum má nefna 104 mílur. Þar blés Siggi fijálst og minnti á Ornette Cole- man. Colemangeggjarar, sem í salnum voru, minntust þess er Siggi og Ulf Adáker blésu When will the blues leave? (af fyrstu skífu Ornettes: Something Else) á RúRek fyrir margt löngu - þá fyrirfannst enginn Ornette þegar laglínunni sleppti. Það þarf varla að segja nokkr- um sem hlustar á íslenskan djass hve fallega þeir félagar fara með ballöður og ekki var skortur á því þetta kvöld - ég nefni aðeins túlk- un Björns á My romance og Sig- urðar á In a sentimental mood. Ljúft kvöld með íslensk-fínnsk- um kammerdjass í háum gæða- flokki. Vernharður Linnet Kynþáttahatur fyrr o g nú Nýjar bækur • GÆTTUþín á eldinum er eftir Ingileif Ógmundsdóttur og myndskreytt af Kristbjörgu Helga- dóttur. Að sögn höfundar er bókin sett saman í þeirri von að hún geti frætt börn um þær hættur sem fylgja því að fikta með eld og þar með draga úr brunaslysum á böm- um. Von höfundar er að hægt sé að minnka áhættuna því að hún telur að ekki sé alveg hægt að girða fyrir að böm fíkti með eld. Höfundurgefur bókina út. Hönnun og umbrot sá Nellý Páls- dóttir um. Oddi prentaði. Bókin er 67 síður. Ung Nordisk Musik 1997 UMRÆÐUR ungu tónskáld- anna á hátíðinni Ung Nordisk Musik 1997 verða í Tónlistar- skóla Reykjavíkur á morgun, fímmtudag, kl. 11-13. ítalska tónskáldið Luca Francesconi heldur fyrirlestur kl. 14-16. Hljómsveitartónleikar verða í Langholtskirkju kl. 20. Þar flytur Sinfóníuhljómsveit ís- lands verk eftir Ulfar Haralds- son, Earth Symphony; Eivind Buene, In a network of lines; Per Mártensson, Till-flykt; Tommi Kárkkáinen, Seven min- iatures og Luca Francesconi, Trama fyrir saxófón og hljóm- sveit. Einleikari Arno Borne- kamp. KVIKMYNDIR Háskólabíó SKUGGAR FORTÍÐAR „Ghosts from the Past“ ★ ★ >/2 Leikstjóri: Rob Reiner. Kvikmynda- taka: John Seale. Handrit: Lewis Colick. Helstu hlutverk: Alec Baldw- in, Whoopi Goldberg, James Woods, Graig T. Nelson, William H. Macy, og Susanna Thompson. 130 mín. Bandarisk. Castle Rock Entertain- ment/Columbia. 1996. SKUGGAR fortíðar fetar svip- aðar slóðir og „A Time to Kill“ og „To Kill A Mockingbird". Hvítur lögfræðingur í Suðurríkjum Bandaríkjanna ákveður að veija réttindi blökkumanna gegn ill- ræmdum kynþáttahöturum. Hann og fjölskylda hans verða fyrir aðk- asti en hann neitar að gefast upp og það þarf ekki að spyija að leiks- lokum. Fyrirsjáanleikinn er eitt stærsta vandamál myndarinnar. Eins og í „Mississippi Burning" og „Cry Freedom“ er það góði hvíti maður- inn sem bjargar svörtum frá vond- um hvítum mönnum. Leikstjórinn Rob Reiner og handritshöfundur- inn Lewis Colick hafa greinilega viljað segja þessa sönnu sögu í hjartans einlægni en tekst hvorki að skapa nægilega dramatíska spennu né hrífandi persónur. Alec Baldwin er Bobby DeLaughter sem tekur til endur- skoðunar 30 ára gamalt morðmál. Árið 1963 var jafnréttisbaráttu- maðurinn Medgar Evers skotin fyrir framan heimili sitt í Jackson í Mississippi (Myndin bar titilinn „Ghosts of Mississippi“ í Banda- ríkjunum). Klanmaðurinn Byron De la Beckwith var handtekinn fyrir morðið og öll sönnunargögn beindust gegn honum en kerfí hvítra ráðamanna sá til þess að hann var aldrei dæmdur. Ekkja Evers, Myrlie (Whoopi Goldberg), hefur barist við að halda málinu lifandi og tekst loks árið 1990 að telja DeLaughter á að sækja málið aftur. Baldwin leggur sig allan fram við að vera ljúfur og réttsýnn maður, og Goldberg bregður sér í gervi virðulegrar ekkju, sem býr yfir miklum siðferðilegum styrk, og tekst ágætlega til, en handritið gerir hann of væminn og setur hana á of mikinn stall til þess að þau virki sem sannar persónur. Samt eru þeirra persónur þær heil- steyptustu í myndinni. Aðrar per- sónur er dregnar upp á mjög ein- feldningslegan hátt og eru svo miklar „stereótýpur“ að það er vandræðalegt. Tveimur aukaleikurum tekst að yfirvinna þetta vandamál að hluta. William H. Macy í hlutverki að- stoðarmanns Delaughter við rann- sóknina nýtir að fullu það svigrúm sem persónu hans er gefið, og James Woods, sem var útnefndur til Óskarsverðlauna fyrir túlkun sína á Beckwith, skemmtir sér greinilega konunglega við að vera ýkt illur kynþáttahatari sem er svo öruggur um réttmæti gerða sinna að hann hótar Delaughter í eigin persónu. Það sem Skuggar fortíðar gerir best er að sýna kynþáttamisréttið sem enn er við lýði í Hollywood. Útgangspunktur myndarinnar er barátta svartra fyrir mannréttind- um í Bandaríkjunum en aðalstjarn- an er hvítur ieikari og svartir sjást eingöngu í mjög takmörkuðum aukahlutverkum, meira að segja Goldberg, sem ekkja Medgar Evers, er lítið annað en aukaper- sóna. Anna Sveinbjarnardóttir Mikilvægi símenntunar fyrir launafólk ÞAÐ ER almenn skoðun að þær þjóðir og þau fyrirtæki, sem best munu standa sig í alþjóðlegri sam- keppni framtíðarinn- ar, séu þær þjóðir og fyrirtæki sem hafi yfir að ráða hæfasta og best menntaða vinnu- aflinu á öllum stigum framleiðslu og þjón- ustu. Flestir fræði- menn í dag eru sam- mála um (og það ger- ist ekki oft) að einn mikilvægasti þáttur- inn í bættri samkeppn- isstöðu þjóða sé aukin menntun og þá sérstaklega verk- og tæknimenntun. Þannig hefur margoft komið fram í rannsóknum að skilvirkt og öflugt starfs- menntakerfi leiðir til aukningar í framleiðni. Meiri framleiðni Samanburðarrannsóknir sem gerðar hafa verið á framleiðni í nokkrum atvinnugreinum í Þýska- landi og Bretlandi hafa sýnt að Þeir einstaklingar og þjóðir ná lengst í sam- keppninni, segir Krist- ján Bragason, sem búa að bestri menntun. framleiðni er mun meiri í Þýska- landi en Bretlandi. Það eru væntanlega margvíslegar ástæður fyrir þessum mun, en megin ástæð- an er að stærri hluti þýsks vinnu- afls er menntaður. Þannig kom í ljós að í þeim starfsgreinum í Bret- landi þar sem starfsmenntun var öflug var munurinn á framleiðni minni. í ljósi þessara rannsókna kemur það víst fáum á óvart þegar talað er um litla framleiðni í ís- lensku atvinnulífi, enda menntun- arstig þjóðarinnar frekar lágt. Stór hluti íslensks vinnuafls, eða um 40%, hefur aðeins lokið grunn- skólaprófi. Úrelt tækni Hagvöxtur mun í auknum mæli byggjast á aukinni verkþekkingu og aðgengi fólks að möguleikum til menntunar, en á tímum örra breytinga mun þekking endast æ skemur. í ljósi síðustu áratuga og framfara í tækni og vísindum er fastlega gert ráð fyrir því að eftir tíu ár verði 80% af þeirri tækni sem stuðst er við í dag orðin úr- elt. Miðað við óbreytt ástand í menntamálum eftir tíu ár má einn- ig gera ráð fyrir að 80% af þeirri þekkingu sem þá verður notuð sé þegar orðin úrelt. Í ljósi slíkra upplýsinga er mikilvægt að leggja áherslu á að nám er ekki stundar- fyrirbæri - fólk verður að læra alla ævina. Einstaklingurinn Einstaklingurinn er mikilvæg- ur en hæfni hans verður að vera ráðandi og tengjast þörfum starf- seminnar. Kröfur á einstakling koma til með að aukast og ef hann ætlar að halda starfinu verður hann sjálfur að bera ábyrgð á símenntun sinni. Fjöldi fólks hefur ekki fengið neina menntun frá því það hætti í skóla. Margir minnast skólans sem tímabils þar sem lítið sem ekkert gekk upp. Það er því ekki óeðli- legt að margir fyllist kvíða og óöryggi þeg- ar menntun launa- fólks ber á góma. Margir kunna eflaust að velta fyrir sér: „Hvers vegna á ég að standa í því að mennta mig? Ég hef enga þörf á menntun í mínu starfi. Nám er ekkert nema stress, puð og óþarfa fjárútl- át. Ég er orðinn of gamall til að standa í að mennta mig.“ Allt eru þetta velþekktar afsakanir fyrir því að fólk sæki sér ekki við- bótarmenntun. Rannsóknir hafa hinsvegar sýnt að menntun býður upp á marga kosti fyrir launa- fólk, óháð aldri og starfi. Kostirnir Aukið atvinnuöryggi; stærstur hluti þess fólks sem er atvinnu- laust hefur litla eða enga menntun. Meiri möguleikar á fjölbreyttu og áhugaverðu starfí. Betri laun, sérstaklega þegar til lengri tíma er litið. Aukið sjálfstraust, þú uppgötvar að þú getur meira en þú hélst. Meiri áhrif, af því að aukin þekk- ing gerir þig betur til þess búin að taka þátt í umræðum um vinnu- staðinn og starfíð. Allir þessir þættir leiða til auk- innar lífsánægju. Allt eru þetta atriði sem skipta launafólk miklu máli. Það má vel vera að menntun þín sé nægjanleg fyrir starf þitt í dag, en við búum í síbreytilegum heimi. Menntun dagsins í dag er ætlað að búa okkur undir framtíð- ina, sem er okkur óþekkt. Úrval starfstengdra námskeiða Hvað get ég gert til að bæta við þekkingu mína? Þessa dagana birtast auglýsingar frá margvís- legum fræðslustofnunum og skól- um sem bjóða upp á mikið úrval af öllum tegundum af starfs- tengdum námskeiðum sem fólk getur tekið í eigin frítíma, allt frá námi í kínversku til tölvukennslu. Þá bjóða einnig margir kjara- samningar upp á að starfsfólk geti sótt sér grunnnámskeið í sinni starfsgrein sér að kostnað- arlausu í vinnutíma, sbr. fisk- vinnslunámskeið, matvælanám- skeið o.s.frv. Mörg stéttarfélög bjóða einnig upp á fjölbreytt úr- val af ódýrum námskeiðum fyrir félagsmenn sína í samvinnu við fræðsluaðila. Fyrsta skrefið Fyrsta skrefið í námsferlinum er að skoða hvaða námskeið eru í boði á áhugasviði þínu. Næsta stig getur verið að tala við full- trúa stéttarfélags þíns. Þeir eiga að geta leiðbeint þér og bent á þá möguleika sem eru fyrir hendi, sbr. námsframboð og ákvæði kja- rasamninga og samninga sem stéttarfélagið hefur við fræðslu- stofnanir. Þá geta þeir einnig aðstoðað við kostnað við þátt- töku, enda bjóða flest stéttarfélög upp á fræðslustyrki fyrir félags- menn. Þá er ekkert til fyrirstöðu að skella sér á námskeið og styrkja um leið stöðuna á vinnu- markaðinum. Höfundur er vinnumarkaðsfræð- ingur og starfsmaður Samstarfs- nefndar um starfsmenntun launa- fólks utan löggiltra iðngreina. Kristján Bragason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.