Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 29

Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 29 Fjárhagnrinn og ævilíkur aldraðra Á UNDANFÖRN- UM áratugum hefur meðalævi landsmanna aukist verulega. Þessi þróun hófst fyrir al- vöru nokkru fyrir miðja öldina og varð samfara bættum að- búnaði, efnahag og að einhverju leyti vegna bættrar heilbrigðis- þjónustu. Mestu mun- aði um bættan aðbún- að barna sem leiddi til verulegrar mínnkunar á ungbarnadauða. Síð- ustu áratugi virðast betri lífsvenjur og fyrirbyggjandi aðgerð- ir hafa leitt til þess að ævilíkur miðaldra fólks hafa aukist greini- lega á Norðurlöndum, ef frá er skil- in Danmörk. Ævilíkur þeirra sem komnir eru á lífeyrisaldur hafa einnig aukist síðustu áratugi en þó ekki í sama mæli og hinna yngri. Athygli vekur að á sama tíma og ævilíkur yngra og miðaldra fólks hafa aukist álíka mikið á íslandi og í nágrannalöndunum hafa ævilíkur aldraðra aukist minna ef miðað er við Noreg, Svíþjóð og Finnland. ' Traustur fjárhagur er heilsuvernd En það er ekki nægjanlegt að ná háum aldri. Ekki er síður mikil- vægt að geta lifað sómasamlega og búa við fjárhagslegt öryggi. Aldraðir, sem flestir eru hraustir, hafa lakara mótstöðuafl ef eitthvað bjátar á og þeir hafa ekki sömu möguleika að bregðast við áföllum og þeir sem yngri eru. Þeir geta til dæmis sjaldnast brugðist við fjár- hagslegu áfalli og tekjumissi með aukinni vinnu. Góður fjárhagur er eitt sterkasta aflið til vemdar heilsunni þótt vitanlega komi margt annað til. Getur verið að minni aukning á ævilíkum aldraðra á íslandi en í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi síðustu 15 ár stafi af lakari kjörum þeirra? Enn er langt í land Mikilvægi þess að tryggja afkomu aidr- aðra hefur lengi verið ljóst og því var fyrr á öldinni víða sett á lag- girnar almannatrygg- ingakerfi sem meðal annars var ætlað til þess að veita öldruðum vissan fjárhagslegan grundvöll. Þetta fyrirkomulag er Minni aukning hefur orðið á ævilíkum aldr- ---------3------------------ aðra á Islandi en í Nor- egi, Svíþjóð og Finn- landi síðustu 15 árin. Jón Snædal spyr hvort lakari kjör aldraðra hér en þar séu skýringin. gegnumstreymiskerfi, þ.e. útgjöldin vegna þessa eru á hveijum tíma greidd með skattfé. Það er því við- kvæmt fyrir efnahagsumhverfinu og því verður auðveldlega breytt ef svo ber undir. Til viðbótar gegnumstreymiskerf- inu hefur verið sett á laggirnar ann- að kerfí sem þjónar sama tilgangi, Jón Snædal Á tölvunarfræðin framtíð á Islandi? STJÓRN félags tölvunarfræðinga hef- ur af þvi þungar áhyggjur hvert menntastefna hins op- inbera er að leiða ís- lensku þjóðina. Undan- farið hefur verið um það rætt hversu illa gengur að fá hæft fólk til starfa við tölvunar- fræðiskor. Þetta er reyndar ekkert nýtt, sama á við um margar aðrar deildir háskól- ans, svo sem lækna- deild. Hins vegar hefur verið áberandi að valdamenn þjóðarinnar hafa ekki komið nærri þessari um- ræðu. Ekkert hefur heyrst til menntamálaráðherra, forsætisráð- herra, þingmanna eða annarra sem skoðun ættu að hafa á þessu máli. Tölvunarfræði hefur verið kennd á íslandi í 20 ár. Uppbygging grein- arinnar hefur hvílt á herðum fá- einna eldhuga undir fararstjórn Odds Benediktssonar prófessors. Þrátt fyrir þröngan kost hefur tekist að byggja upp góða deild og hafa nemendur úr tölvunarfræði háskól- ans átt greiðan aðgang að bestu háskólum heims til framhalds- náms. Hafa sumir þeirra jafnvel snúið aftur heim og tekið að sér kennslu við háskól- ann af áhuga frekar en í ábataskyni. Nú horfir svo við að deildin er í sárum. Okk- ar ágætu lærifeður eru margir hveijir farnir á önnur mið, enda horfa þeir upp á ófaglærða unglinga með tölvudellu fá betur greitt fyrir sinn snúð heldur en ríkinu fínnst hæfa að greiða prófessorum við Háskóla íslands. Er ekki kominn tími til að gera upp við sig, hvað við viljum gera í atvinnu- og menntamálum þjóðar- innar? Ef við viljum halda áfram að vera hráefnisframleiðendur, þá Helga Waage lífeyrissjóðakerfið. Það felur í sér söfnun ijár viðkomandi einstaklinga og atvinnurekenda þeirra til síðari nota og er því í eðli sínu annarrar gerðar en almannatiyggingakerfíð. Það er að mestu varið afskiptum stjórnmálamanna, en þdir geta þó haft áhrif á þann lagagrundvöll sem kerfíð hvílir á. Þeir eru æ fleiri sem njóta góðs af þessu fyrirkomulagi þótt enn sé langt í land með að það nýtist öllum ellilífeyrisþegum og það mun líða langur tími þar til þetta kerfí nýtist að fullu. Hiutfall aldraðra vaxandi Um víða veröld hafa menn verið að skapa eldri borgurum fjárhags- grundvöll en það er með misjöfnum hætti hvernig það er gert. í ná- grannalöndum okkar, einkum í Evr- ópu, hefur hlutfall aldraðra aukist mjög síðustu áratugi og í saman- burði við flest þróuð lönd er ís- lenska þjóðin enn ung að þessu leyti. Hlutfall aldraðra af þjóðar- heildinni mun þó augljóslega vaxa hér og verða svipað og í grannlönd- um á næstu 2-3 áratugum. Það er í þessu ljósi sem Lands- samband eldri borgara og Öldrunar- ráð Islands standa sameiginlega að ráðstefnu fimmtudaginn 25. þessa mánaðar. Fengnir verða erlendir fræðimenn í öldrunarmálum sem og virtir hagfræðingar til að ræða reynslu annarra þjóða í þeirri við- leitni að tryggja eldri borgurum sem bezta afkomu. Einnig verður sagt frá uppbyggingu hins íslenzka líf- eyrissjóðakerfis. Ennfremur verður rætt um hvernig hin fjárfreka öldr- unarþjónusta er fjármögnuð vestan hafs og austan og hvernig lífeyris- sjóðir og frjálsar tryggingar koma að því dæmi. Vonandi koma fram upplýsingar og viðhorf sem geta nýzt í þeirri umræðu sem framund- an er hér á landi um lífeyrismál. ' Health Statistics in the Nordic Countries. Höfundur er yfirlæknir á öldrunarlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur og formaður Öldrunarráðs íslands. er sjálfsagt og eðlilegt að kosta hundruðum milljóna í virkjanir, stóriðjur og togara. En það ætti þá að marka þá stefnu skýrt, þann- ig að skólakerfið sé ekki með þess- ar sífelldu væntingar um fjármagn í greinar sem engu máli skipta. Ætli íslendingar hins vegar að láta að sér kveða í heimi þar sem mannauður er dýrmætasta auðlind- in, þar sem velmegun byggir á menntun og hæfni þegnanna, verð- Stjórn félags tölvunar- fræðinga hefur af því þungar áhyggjur, segir Helga Waage, hvert menntastefna hins opin- bera er að leiða íslensku þjóðina. ur að styrkja menntakerfið allt frá neðstu bekkjum grunnskóla og upp úr. Góður háskóli þrífst ekki nema vel sé hugað að undirstöðunni og vel hlúð að nemendum á öllum skólastigum. í slíkum þjóðfélögum er litið með virðingu til kennara. Höfundur er formaður félags tölvunarfræðinga. Kostnaður við listasafn stefnir í 700 milljónir NÚ ÆTLAR R-list- inn að byggja listasafn í Hafnarhúsinu. Þetta á að vera glæsilegt lista- safn og ekkert smáhýsi eða u.þ.b. 3.500 fer- metrar að stærð. 12. febrúar 1996 skilaði starfshópur sem Tjallaði um málið nefndaráliti þar sem gert var ráð fyrir að heildarstærð listasafns í Hafnarhúsi yrði nálægt 2.700 fer- metrar að stærð og þar af fengi Errósafn 785 fermetra til ráðstöf- unar. Heildarkostnaður var þá áætlaður á nú- virði 467 milljónir króna. Ennfrem- ur var um það full samstaða í starfs- hópnum að í suðurálmu á 1. hæð (785 ferm.) við Tryggvagötu yrði gert ráð fyrir verslun og þjónustu í þeim tilgangi að stuðla að eflingu þessarar starfsemi í miðborginni. í Áætlanagerð R-listans í þessu máli, segir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálms- meiri og dýrari fram- kvæmd en þær tillögur sem kynntar voru borgarráði í febrúar og mars 1996. Þessi forsögn var hvorki rædd né samþykkt í borgarráði. Áætlana- gerð R-listans í þessu máli er því á algjörum brauðfótum og hefur farið í gegnum borgar- kerfið án þess að borg- arráð og borgarstjórn hafi fjallað um málið með eðlilegum hætti. Upphaflega átti ein- ungis að koma Er- rósafni fyrir í Hafnar- húsinu en tillagan gerir ráð fyrir því að það rúmist í tæpl. 800 fer- metrum. Síðan var ráðgert að bæta við 1800 fermetrum fyrir sýningar- sali, listaverkageymslu o.fl. Nú liggur hins vegar fyrir að innrétta samtals 2.700 fermetra undir aðra listastarfsemi en Errósafn, sem er meira rými en til staðar er á Kjarv- alsstöðum. Rekstrarkostnaður vegna þessa húsnæðis og fyrirhug- aðrar starfsemi þar mun nema tug- um milljóna árlega. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson son, er á algjörum Kapphlaup brauðfótum. nefndarálitinu var lagttil að samráð yrði haft við Þróunarfélag Reykja- vikur og Listasafn Reykjavíkur um væntanlega starfsemi í þessu rými, meðal annars við gerð verkefnislýs- ingar í lokaðri samkeppni. Ótrúleg vinnubrögð Allar áætlanir R-listans við bygg- ingu nýs listasafns í Hafnarhúsi miðast við að hægt verði að nýta húsið í tengslum við listahátíð í Reykjavík í maí 1998 eða skömmu fyrir næstu borgarstjórnarkosning- ar. Þessi staðreynd- gerir það að verkum að framkvæmdin verður dýrari því ekki er langur tími til stefnu eða rúmlega sjö mánuðir. Nefndarálit starfshópsins var lagt tvívegis fyrir borgarráð, 20. febrúar og 12. mars 1996, en á þessum fundum tók borgarráð enga formlega afstöðu til málsins og R-listinn frestaði afgreiðslu þess. Ári síðar eða 11. febrúar sl. skipaði borgarráð þriggja manna bygging- arnefnd til að hafa umsjón með forsögn, hönnun og byggingafram- kvæmdum við Hafnarhúsið. For- sögn um listasafn í Hafnarhúsinu og tillögur um útfærslu og fram- kvæmdir sýna að ekkert tillit var tekið til þess mikilvæga atriðis í nefndarálitinu að nýta 1. hæð Hafn- arhússins sem snýr að Tryggvagötu undir verslun og þjónustu. Ekki var haft samráð við Þróunarfélag Reykjavíkur eða félaginu gefinn kostur á að tjá sig um málið. Þess í stað var listasafnið stækkað um mörg hundruð fermetra og kostnað- ur aukinn um tæplega 200 milljón- ir króna. Við kynningu málsins nýlega í hafnarstjórn Reykjavíkur kom einnig í ljós að lítið sem ekk- ert samráð hafði verið haft við embætti hafnarstjóra vegna kostn- aðarþátttöku hafnarsjóðs í breyt- ingu á húsnæðinu sem gæti numið tugum milljóna króna. Forsögn ekki samþykkt Ljóst er að sú forsögn sem arki- tektar unnu eftir við gerð tillagna um Listasafn Reykjavíkur í Hafnar- húsinu gerði ráð fyrir mun viða- Forgangsröðun R-listans Athyglisvert er að lesa greinar margra frambjóðenda R-listans fyr- ir síðustu borgarstjórnarkosningar í maí 1994 þar sem þeir leggja áherslu á mikilvægi forgangsröðun- ar í framkvæmdum hjá Reykjavík- urborg. í því sambandi vísuðu þeir sérstaklega til framkvæmda við leikskóla, grunnskóla og stofnanir í þágu aldraðra. í fjárhagsáætlun Reykjavikur vegna ársins 1997 var samþykkt 60 milljón kr. fjárveiting til hönnunar- og byijunarfram- kvæmda vegna starfsemi Lista- safns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Þessi sama ijárhagsáætlun gerði ráð fyrir 63 millj. kr. til fram- kvæmda vegna stofnana aldraðra, m.a. hjúkrunarheimilis. Áætluð út- koma er hins vegar 43 millj. kr. og aldrei fleiri aldraðir einstaklingar, sem metnir eru í mjög brýnni þörf, á biðlista eftir vistrými á hjúkrunar- heimili í Reykjavík. Ef ég þekki ýmsa borgarfulltrúa R-listans rétt munu þeir á næstunni skrifa grein- ar í fjölmiðla og benda íbúum borg- arinnar á hvernig hægt væri að ráðstafa 700 milljónum króna betur til að byggja leikskóla, grunnskóla og stofnanir í þágu aldraðra heldur en að byggja listasafn í Hafnarhús- inu. Höfundur er borgarfulltrúi Sjdlfstæðisflokks. NYJA BILAHOLLIN, FUNAHOFÐA 1. SIMI 567 2277 Toyota Landcruiser Dx dísel árg. '97, 10 þús. km„ drappl., sjálfsk., álfelgur, skíðab. Verð 3.300.000 stgr. Áhv. bílalán. Musso Sang Yong 602 EL dísel árg. '97 ek. 10 þús. km., dökk- grænn/grár, sjálfsk. 33" dekk, ál- H felgur, brettak., l/aftan, skíðab. Verð 3.500.000. Dodge Caravan 2,4I árg. '97, ek. 14 þús. km., vinrauður, 7 manna, sjálfsk., airbag. Verð 2.590.000. Tiskubíllinn í ár. Grand Cherokee Laredo 4,0I árg. '93, ek. 124 þús. km., vínrauður, sjálfsk., álfelgur. Verð 2.200.000. Áhv. bílalán. Einnig fleiri á staðn- um bæði Laredo og Ltd. '94-'96. Subaru Legacy 2.0 árg. '93, ek. 61 þús. km., dökkgrænn, sjálfsk., álfelgur, skiðab. Verð 1.400.000. Toyota Carina langbakur árg. '93, ek. 59 þús. km„ dökk- grænn, sjálfsk., rafm. í öllu. 3 Verð 1.250.000. SKOÐAÐU HEIMASÍÐU OKKAR: http://www.treknet.is/nyjabh/. skráning í netf: nyjabh@treknet.is . Höfum kaupendur að MMC Pajero ’ árg. '96-'97 2,5/2,8 dísel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.