Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 31

Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 31
30 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SAMNINGAR LEIK- SKÓLAKENNARA AELLEFTU stundu tókust samningar milli leikskóla- kennara og sveitarfélaga og yfirvofandi verkfalli í leikskólum hefur verið frestað. Víst er, að fjölskyldum, sem eiga börn á leikskólum, létti mikið við tíðindin, því verk- fall hefði haft í för með sér mikla röskun á högum þeirra flestra. Vafalaust hefði verkfall einnig haft áhrif á rekstur ýmissa fyrirtækja og stofnana, en nú geta foreldrar stund- að vinnu sína án truflunar. Samningar tókust eftir 42ja klukkustunda sáttafund, en honum lauk með samþykkt beggja aðila á svonefndri innan- hússtillögu sáttasemjara ríkisins, Þóris Einarssonar. Sam- komulagið felur í sér 26-27% launahækkun á samningstím- anum, sem er mun meiri hækkun, en launþegafélög á al- mennum vinnumarkaði sömdu um fyrr á þessu ári. Á móti kemur, að samningstíminn er lengri eða út árið 2000. Tal- ið er að launakostnaður sveitarfélaga vegna reksturs leik- skóla hækki um 140 til 150 milljónir króna á árinu 1998. Þegar samningurinn er að fullu kominn til framkvæmda í árslok árið 2000 nemur kostnaðaraukinn um 300 milljónum króna á ári fyrir sveitarfélögin. Hækkun launaliðar samningsins er að meðaltali 7% frá 1. september sl., 4% í janúar 1998 og 2% í desember það ár. Á árinu 1999 verða síðan gerðar breytingar á röðun í launaflokka, sem fela í sér hækkun um einn launaflokk fyrir þá, sem vinna að stjórnunarstörfum í leikskólum. Með þessum samningum er friður tryggður í rekstri leik- skólanna næstu þrjú árin. Samningurinn er gerður í ljósi þess, að sveitarfélögin viðurkenndu mikilvægi starfa leik- skólakennara sem uppeldisstéttar í þjóðfélaginu, mikilvægi umönnunar barna. Vonir standa til, að lausn þessarar deilu geti greitt fyrir samningum við grunnskólakennara. Það er fagnaðarefni, að leikaskólakennarar og sveitarfé- lögin hafa náð samkomulagi og firrt heimilin erfiðleikum, sem af verkfalli hefði leitt. Að ógleymdum áhrifum verk- falls á þá, sem sízt skyldi, börnin, sem okkur ber skylda til að veita vernd, öryggi og skjól. Samningana á nú eftir að bera formlega undir samþykki sveitarfélaganna og leikskólakennara og mun það taka nokkrar vikur. Miðað við ummæli beggja deiluaðila má gera ráð fyrir því, að samningarnir verði samþykktir. Sátta- semjari ríkisins hefur boðað sáttafund í deilu grunnskóla- kennara og sveitarfélaga nk. fimmtudag og er óskandi, að skriður komist þá loks á viðræðurnar. SAMSTAÐA EFLIST Á NÝ KOSNINGABANDALAGIÐ Samstaða er með pálmann í höndunum eftir þingkosningarnar í Póllandi um helgina og hefur komið á óvart hvað sigur þess á flokki fyrrverandi kommúnista, Lýðræðislega vinstrabandalaginu, var afgerandi. Það kom mörgum í opna skjöldu þegar fyrr- verandi kommúnistar náðu völdum fyrir fjórum árum, en nú hafa pólskir kjósendur snúið við þeim baki. Samstaða er reist á b.rotum úr hreyfingunni, sem steypti kommúnistum fyrir átta árum, og sagði leiðtogi hennar, Marian Krzaklewski, að nú yrði hafist handa við að leið- rétta mistök undanfarinna fjögurra ára. Pólskir stjórnmálamenn hafa lýst yfir furðu á því að kommúnistar skyldu ekki fá meira fylgi, sérstaklega í ljósi þess að hvergi í Austur-Evrópu hefur hagvöxtur verið jafn mikill undanfarið. Þá mistókst þeim einnig að færa sér í nyt að Alexander Kwasniewski, núverandi forseti og fyrr- verandi kommúnisti, nýtur um þessar mundir 60% fylgis samkvæmt skoðanakönnunum. Kosningabandalag Samstöðu fékk 33,9% atkvæða í kosn- ingunum og kommúnistarnir fyrrverandi 26,8%. Sigur Samstöðu veitir Lech Walesa, sem beið lægri hlut fyrir Kwasniewski í forsetakosningum 1995, tækifæri til að láta að sér kveða í pólskum stjórnmálum á ný. Til þess að Samstaða geti myndað stjórn þarf að ganga til samstarfs við Frelsissambandið, sem vegnaði mun betur nú en í kosningunum fyrir fjórum árum. Kwasniewski hef- ur þegar reynt að reka fleyg milli Samstöðu og Frelsissam- bandsins en honum virðist hins vegar ekki ætla að verða kápan úr því klæðinu og hyggst Samstaða hefja viðræður við Frelsissambandið síðar í þessari viku. Skipulag miðhálendis til umræðu \ Bdungarvik : ' v ■ Æá k Mfcíar- b»r í Súísivíkur);:. : / Ameshreppur 50 km Vestmannaeyjar ■ ;> Mörk sveitarfélaga á íslandi eins og þau voru dregin í maí 1997 Kort þetta byggir að stofni til á drögum að skiptingu landsins í sveitarfélög sem Skipulag ríkisins og Landmælingar íslands gáfu út sem handrit I febrúar 1990. Víða inn til landsins eru mörk óviss og jafnvel óþekkt. Tekist á um stjórnsýslu Miðhálendið er nær helminffur Islands o g því eru eðlilega skiptar skoðanir um hvemig stjómsýslu o g skipulagsmálum þar á að vera háttað. Guðmundur Sv. Hermannsson fylgd- ist með ráðstefnu um skipulag miðhálendisins. Andrei Kozyrev um fiskveiðideilu íslendinga, Norðmanna og Rússa Engin lausn nema allir þrír taki á vandanum Morgunblaðið/Ámi Sæberg ANDREI Kozyrev (til hægri), fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands, ræðir við Jón Hákon Magnússon. TILLAGA að svæðisskipu- lagi miðhálendisins hefur síðan í júní legið frammi víðs vegar um land og geta allir landsmenn gert athuga- semdir við tillöguna til 10. október. Hefur verið búist við að endanleg tillaga gæti legið fyrir á næstu mánuðum en umhverfisráðherra þarf að staðfesta skipulagið áður en það tekur gildi. Þótt málið sé komið svona langt, hefur opinber umræða um það verið frekar lítil til þessa. Úr því var reynt að bæta með ráðstefnu, sem Félag skipulagsfræðinga og verkfræði- deild HI héldu á laugardag um fram- tíðarskipulag miðhálendisins þar sem tillöguhöfundar og ýmsir hags- mupaaðilar skiptust á skoðunum. Á ráðstefnunni varð töluverð um- ræða um stjórnsýslu á miðhálendinu og urðu ýmsir til að gagnrýna að um 40 sveitarfélög, þar sem búa aðeins um 4% landsmanna, hefði verið fengið vald yfír landssvæði sem nær yfir um 40% flatarmáls íslands. Sagði Þorkell Helgason orkumála- stjóri þetta minna á annað umdeilt mál, þar sem sameign þjóðarinnar hefði verið færð í hendur fámenns hóps. Hann spurði hvort mætti rekja þróunina í þessum tveimur málum til þess þriðja, ójafns atkvæðisréttar landsmanna. Andstaða við stjórnsýslusvæði Til að skýra þetta þarf að rekja aðdraganda svæðisskipulagstillög- unnar. Skipulagsyfirvöld hafa frá upphafi þessa áratugar íhugað að vinna slíkt skipulag og í því skyni lagði Eiður Guðnason, þáverandi umhverfisráðherra, fram lagafrum- varp á Alþingi um að hálendið yrði gert að einu stjórnsýslusvæði með sjálfstæðri stjórn. Þetta frumvarp mætti mikilli andstöðu sveitarfélaga og landsbyggðarþingmanna og dag- aði því uppi. Þá var skoðað hvaða úrræði væru fær samkvæmt gildandi skipulags- lögum. Lögin heimila sveitarfélögum að mynda samvinnunefndir um gerð svæðisskipulags fyrir land sem þau hafa lögsögu yfir. Um 40 sveitarfélög liggja að miðhálendinu og samvinnu- nefnd þeirra þótti of stór og þung í vöfum. Því var árið 1993 bætt bráða- birgðaákvæði í skipulagslög sem gerði þeim 13 héraðsnefndum, sem eiga hlut að málefnum miðhálendis- ins, kleift að mynda sérstaka sam- vinnunefnd til að gera tillögu að skipulagi svæðisins. Þessi samvinnunefnd var skipuð árið 1994. Nefndin taldi nauðsynlegt að stjórnsýslumörk sveitarfélaganna á miðhálendinu yrðu skýr og var skipuð nefnd ráðuneyta til að gera tillögur um framlengingu stjórn- sýslumarka sveitarfélaganna 40 á miðhálendinu. Til að treysta þessi mörk lagði Páll Pétursson félagsmálaráðherra fram lagafrumvarp á síðasta þingi um að allt landið skiptist í staðbund- in sveitarfélög en ekki aðeins byggð- in, eins og núverandi lög segja til um. Þetta frumvarp var ekki afgreitt en úrskurðarnefndin skilaði í maí sl. tillögum sínum um stjórnsýslumörk á hálendinu. Stefán Skaftason, sem situr í sam- vinnunefndinni, sagði á áðumefndri ráðstefnu að framlenging stjómsýsl- unnar hefði verið forsenda þess að tókst að ná samkomulagi við sveitar- félögin um mörk miðhálendisins sem em í aðalatriðum dregin milli heima- landa og afrétta. Ef átt hefði að draga þau mörk fyrir væntanlegan hálendis- hrepp, hefði skipulagsvinnan seint komist af stað enda ekki verið unnin af núverandi samvinnunefnd og allar líkur á að málið væri enn í höndum Alþingis Stefán Thors, skipulagsstjóri rík- isins, sagði á ráðstefnunni að vissu- lega hefði verið hægt að fara þá leið að gera nýtingaráætlun til langs tíma, marka stefnu í landnotkun og landnýtingu sem næði til landsins alls, taka ákvarðanir um stjórnsýslu- lega skiptingu alls landsins og skipa loks nefnd að fengnum tilnefningum frá ráðuneytunum og sveitarfélögum til að gera tillögu að svæðisskipulagi miðhálendisins. En þannig gerðust hlutirnir ekki og ef bíða hefði átt þar til allir hlutir væru komnir á hreint væri hætt við að erfiðara hefði verið að vinda ofan af því sem þá þegar væri búið að gera í landnýtingarefn- um. Ósamræmanleg frumvörp Á ráðstefnunni sagði Gunnar G. Schram lagaprófessor að frumvarp félagsmálaráðherra þýddi að sveit- arfélögunum 40 væri fengið allt ákvörðunarvald og réttur yfir mið- hálendinu og þar af leiðandi þeim auðlindum sem þar eru. Það stang- aðist algerlega á við frumvarp um þjóðlendur sem forsætisráðherra lagði fram á síðasta þingi, en þar væri forsætisráðherra falið úrslita- vald í málefnum þjóðlendna, þ.e. svæ'ða utan eignarlanda. Nokkrir ráðstefnugestir tóku und- ir þessa skoðun, þar á meðal Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokks, sem lýsti einnig and- stöðu við frumvarp félagsmálaráð- herra, flokksbróður síns. Siv sagði að mjög óæskilegt væri að skipta miðhálendinu upp milli 40 sveitarfélaga; það væri þunglamalegt og byði heim vandræðum og miklu einfaldara væri hafa landið eitt stjórnsýslusvæði. Stangast ekki á Hjá öðrum, m.a. þingmönnunum Kristjáni Pálssyni, Sjálfstæðisflokki, og Olafi Erni Haraldssyni, Fram- sóknarflokki, kom hins vegar fram sú skoðun að þessi frumvörp tvö væru ekki ósamrýmanleg þar sem annað fjaltaði um eignarhald á há- lendinu og hitt um stjórnsýslumörk. Ólafur sagði ljóst að erfitt væri að ná góðri sátt um að 96% lands- manna ættu enga aðild að skipulag- inu nema með umsagnarrétti og því hlytu hugmyndir um sérstakt stjórn- sýsluumdæmi í miðju landsins að vera til skoðunar þegar teknar væru ákvarðanir um stjórnsýslufyrirkomu- lagið. Annar möguleiki væri að sveit- arfélögin mættust inni í miðju lands- ins, en fengju aukna aðstoð og að- hald frá ríkisvaldinu til að standa við markmið skipulags hálendisins. Mismunandi hagsmunir Það eru einnig skiptar skoðanir um skipulagstillöguna sjálfa og ýms- ir sem eiga hagsmuna að gæta á hálendinu, svo sem fulltrúar orku- og ferðamála, telja að tillagan taki ekki nægilegt tillit til þeirra. Fram kom hjá ýmsum á ráðstefnunni að nauðsynlegt væri að lengja umsagn- arfrestinn um skipulagstillöguna, sem á að renna út 10. október, og hefur raunar komið fram formleg ósk frá Ferðamálaráði um lengri frest. Aðrir vildu ganga lengra og leggja tillögurnar nánast í salt. Þorkell Helgason lagði til að skipulagstillög- urnar yrðu endurskoðaðar þannig að frestað yrði að taka afstöðu til ann- arra svæða en þar sem þegar Iiggja fyrir samþykkt not eða verndar- svæði. Jafnframt yrði áfram unnið að málinu, af fleirum en nú, og höfð yrðu í heiðri sjónarmið og stefnu- mörkun stjórnvalda um uppbyggingu atvinnulífs, sem m.a. hlytu að kalla á nýtingu auðlinda hálendisins. Fulltrúar náttúruverndarmála eru hins vegar ánægðari með tillöguna og sagði Aðalheiður Jóhannsdóttir, forstjóri Náttúruverndar ríkisins, að það sem skipti mestu máli væri að samþykkt skipulag fyrir miðhálendi íslands myndi endurspegla framtíð- arstefnumörkun sveitarfélaga og rík- is í náttúruverndarmálum á skipu- lagssvæðinu, og til langs tíma litið væri fátt sem gæti styrkt almenna náttúruvernd á íslandi betur. Andrei Kozyrev, fyrrver- andi utanríkisráðherra Rússlands, flutti í gær fyrirlestur um öryggis- mál í heiminum og lagði í samtali við Karl Blöndal áherslu á, að hann vildi að þríhliða við- ræður íslendinga, Norð- manna og Rússa hæfust að nýju svo þokast mætti í átt að lausn á Smugu- deilunni. ANDREI Kozyrev, fyrrver- andi utanríkisráðherra Rússlands, kvaðst í fyrir- lestri, sem hann hélt á Hótel Sögu á vegum Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs að viðstöddum 110 manns í gær, hafa mikinn hug á því að efla samstarf og samskipti í norðri og þá sérstaklega milli íslendinga og Rússa. Kozyrev átti í gær stuttan fund með Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráðherra og sagði í samtali við Morgunblaðið síð- degis að sér væri umhugað um að efla samstarf við íslendinga í sjávarút- vegsmálum og sérstaklega hefði hann reynt að sjá til þess að íslendingum, Norðmönnum og Rússum yrði ágengt í þríhliða viðræðum um Smugudeiluna. „Nú verður mynduð ný stjórn í Noregi þannig að við getum gert okk- ur vonir um að þeir hef|i að nýju þrí- hliða viðræður," sagði Kozyrev, sem nú er þingmaður fyrir Múrmansk á Kólaskaga, og lætur því sjávarútvegs- mál til sín taka. íslensk og rússnesk stjórnvöld gerðu í ágúst samning um samstarf á sviði sjávarútvegsmála, sem meðal annars hefur verið haldið fram að styrki stöðu íslands gagnvart Norðmönnum í Smugumálinu. Norð- menn hafi haft nánari tengsl við Rússa en íslendingar, en þessi samningur gæti breytt því. Kozyrev kvaðst ekki vilja segja að Norðmenn hefðu reynt að nota stöðu sína til að reka fleyg á milli íslendinga og Rússa. „Þetta er flókið mál,“ sagði hann. „Stundum virðist rússneskum stjórn- völdum sem Norðmenn grípi til ein- hliða aðgerða og stundum virðist þeim sem íslendingar grípi til einhliða að- gerða. Það er nokkuð, sem þyrfti að forðast. Allir þrír aðiljar þurfa að taka á vandanum.“ Fyrirlestur Kozyrevs íjallaði um öryggismál í Evrópu í kjölfar kalda stríðsins. Hann hóf mál sitt á því að vísa til leiðtogafundar Ronalds Reag- ans Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga í Reykjavík árið 1986. Kozyrev starfaði á þeim tíma í sovéska utanríkisráðuneytinu og sagði hann að þetta upphaf hefði lofað góðu, en hann hefði verið meðal þeirra, sem höfðu efasemdir um fram- haldið. Á næstu árum hefði gengið á ýmsu, en ljóst væri að með Gorbatsjov hefði hafist nýtt skeið í alþjóðlegum samskiptum og í sovéskum innanríkis- málum. Ekki aftur kommúnismi Smátt og smátt hefðu loforð Gorb- atsjovs haft meiri áhrif og leitt til byltingarkenndra breytinga. Við hrun Sovétríkjanna hefði skapast tækifæri til að koma á breyttri skipan heims- mála og þeirri þróun væri hvergi nærri lokið. En þótt aðeins væri hægt að ganga útfrá núverandi straumum og tilhneigingum hefðu umskiptin frá kommúnisma til kapítalisma þegar átt sér stað að miklu leyti. Þetta kynnu að virðast vera ýkjur, en kosningarnar á síðasta ári hefðu sýnt að Rússar muni ekki nota atkvæði sitt tii að korna kommúnistum til valda. „Ég sit hjá kommúnistum á þingi,“ sagði Kozyrev. „Flokkurinn er enn til og notar frelsið, sem hann neitaði öðrum um, til að koma skoðunum sín- um á framfæri. Hann kann að vera sterkur, en ég er þeirrar hyggju að þessari þróun verði ekki snúið við.“ Hann sagði að ástæðan fyrir því að margir hefðu greitt kommúnistum atkvæði væri sú að almenningur væri að láta í ljósi óánægju með félagsleg- an kostnað af umbótum og áhrif þeirra á lífsskilyrði. Léleg lífskjör væru reyndar afleiðing af mistökum sovéska hagkerfisins, en margir væru ríkinu reiðir, sérstaklega vegna mistaka, sem hefðu orðið í umbótum. „Við það hefur myndast tómarúm í forustunni og lýðskrumarar og öfga- fullir þjóðemissinnar hafa ekki verið seinir að fylla það,“ sagði Kozyrev. „Rússar vita hins vegar hve óskilvirkt lífið var undir stjóm kommúnista.“ Máli sínu til stuðnings rifjaði hann upp gamlan brandara um það þegar Leoníd Brezhnev lést og var sagt að hann ætti aðeins kost á vist í víti. Hann gæti hins vegar valið milli sósíal- ísks vítis og kapítalísks vítis þar sem hann hefði verið formaður sovéska kommúnistaflokksins. Hann svaraði hiklaust að hann ætlaði í sósíalíska vítið. Þegar Brezhnev var spurður hvort hann væri handviss, honum gæfist ekki kostur á að skipta um skoðun, var hann ákveðinn. Var hann þá spurður hvers vegna og svaraði: „Undir sósíalisma er alltaf skortur á eldsneyti." Lýðræði og einkavæðing Kozyrev sagði að þróuninni í Rúss- landi yrði ekki snúið við af nokkmm ástæðum. Lýðræðið væri að festast í sessi. Nú hefðu verið haldnar tvennar þingkosningar og tvennar forseta- kosningar. Hefð væri að myndast kringum stjórnlagadómstólinn. Rússar hefðu samþykkt stjómarskrá í at- kvæðagreiðslu. Þá væm fjölmiðlar fullkomlega fijálsir. Breytingar í efna- hagsmálum væra ekki síður afger- andi. í valdatíð Stalíns hefðu milljónir manna verið myrtar fyrir að láta sig dreyma um frjálst framtak. Nú hefðu 70% af ríkisfyrirtækjum verið einka- vædd. Slíkt ætti sér ekki fordæmi í sögunni og einkavæðing væri nú meiri en á Ítalíu. Kozyrev sagði að ýmis vandkvæði hefðu komið fram við einkavæðingu og umbætur, en þeir, sem nú ættu að stjóma þeim, þar á meðal Anatolí Tsjúbajs og Borís Nemtsov, ættu að geta bundið enda á stöðnunina. Spillt fámennissljórn? „Spurningin, sem raunvemlega blasir við Rússum, er ekki hvort snúið verði aftur til kommúnisma, heldur hvaða mynd kapítalisminn taki á sig,“ sagði Kozyrev. „Hættan er sú að upp rísi fámennisstjórn með tilheyrandi spillingu í öllu stjómkerfinu." Sagði hann að slíkt gæti leitt til þess að drægi úr skilvirkni og félags- legur kostnaður yrði mikill. Hinn kost- urinn væri að við tæki ftjálslyndara og gagnsærra kerfi. „Um það snúast umbæturnar, sem nú er verið að vinna að,“ sagði þingmaðurinn. „Ég mundi segja að það væri ástæða til hóflegrar bjartsýni.“ Valdahlutföll hafa breyst mjög í heiminum í kjölfar kalda stríðsins. Kozyrev sagði að þeim breytingum, sem orðið hefðu í alþjóðasamskiptum, yrði ekki heldur snúið við. „Það mun aldrei verða sama ógnun af Rússlandi á alþjóðavettvangi og var af Sovétríkj- unum,“ sagði Kozyrev. Hann kvaðst hins vegar vera þeirrar hyggju að við hrun Sovétríkjanna hefði skapast ein- stakt tækifæri til að koma á nýrri skipan mála í Evrópu. Kozyrev var fyrsti utanríkisráð- herra Rússlands. Hann tók til starfa í október 1990 og sat fram í janúar 1996. Hann var því utanríkisráðherra á því tímabili, sem hann ræðir hér um, árin 1991 til 1993. Glatað teekifæri? „Margir stjórnmálamenn færðu rök að því að grípa ætti þetta einstæða tækifæri til að sýna nýtt viðhorf, sem væri sambærilegt við það, sem gerðist í lok heimsstyijaldarinnar síðari þegar Bandaríkjamenn voru nógu hugrakkir til að leggja fram áætlun og fjármagn til að hjálpa Vestur-Evrópu að ná sér á strik eftir eyðileggingu stríðsins," sagði hann í fyrirlestrinum. „Því miður var tækifærið ekki gripið. Að hluta til má kenna Rússum um, en Vestur- lönd sýndu ekki heldur hugrekki. Það skorti forustu. Það voru forsetaskipti í Bandaríkjunum, sameining Þýska- lands var í gangi og Evrópusamband- ið átti fullt í fangi með nýtt skref í átt að samruna." Kozyrev sagði að engu að síður hefði talsverður árangur náðst og þró- unin væri í rétta átt. Árangurinn væri hins vegar af hóflega taginu. Þegar tækifærið glataðist hefði sú leið verið valin að notast við þær stofnanir, sem fyrir vom, til að laga sig að breyttri heimsmynd. Þess vegna hefði deilan um stækkun Atlantshafsbandalagsins sprottið upp. Þegar Kozyrev svaraði spurningum að fyrirlestrinum loknum gaf hann í skyn að stækkun NATO hefði verið ástæðan fyrir því að hann hvarf úr embætti utanríkisráðherra. Hann hefði ekki viljað ýkja það hvaða afleiðingar' stækkun NATO gæti haft og hann hefði sagt þá skoðun sína. „Það er ein ástæðan fyrir því að ég hætti að vera utanríkisráðherra," sagði hann og bætti við að rússneskum almenningi stæði sennilega á sama, en innan Kremlar og í næsta nágrenni hefði verið ákveðið að grípa til ýkjukennds áróðurs gegn stækkun NATO, að hluta til í því skyni að beina athyglinni frá því að umbætur gengju ekki sem skyldi. Kozyrev hafði starfað í utanríkis- þjónustunni um árabil þegar hann varð utanríkisráðherra. Hann gerði sér þegar far um að bæta samskiptin við Vesturlönd og fékk viðurnefnið „Herra já“, en Andrei Gromyko, forveri hans,,- hafði verið kallaður „Herra nei“. Það hitnaði vemlega undir Kozyrev þegar þjóðernissinnar juku fylgi sitt í þing- kosningum árið 1993. Var þá oft veist að honum fyrir linkind gagnvart Vest- urlöndum. Kozyrev kvaðst telja að oft væri horft fram hjá jákvæðu hliðunum. Oft væri horft fram hjá afrekum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Ástæðan væri sú að of miklar vonir hefðu verið bundnar við að ÖSE gæti leyst flókin vandamál, en menn yrðu að átta sig á að líkt og Sameinuðu þjóðimar yrðu slíkar stofnanir aldrei öflugri en aðildarríkin. Kozyrev nefndi einnig svæðisbundið samstarf þegar hann talaði um já-w kvæða þróun eftir lok kalda stríðsins. Nefndi hann bæði Barentshafsráðið og Eystrasaltsráðið, sem íslendingar eiga aðild að. í Múrmansk ríkti mikil ánægja með Barentsráðið og Eystra- saltsráðið stæði að verkefnum, sem væri fagnað í Rússlandi. Hann sagði einnig að ekki mætti horfa fram hjá því að tekist hefði að stöðva átökin í gömlu Júgóslavíu. Fyrr á þessari öld hefði Balkanskaginn ver- ið uppspretta átaka en þegar 20. öldin væri að líða undir lok hefðu valdaþjóð- irnar haft hugrekki og vilja til að grípa í taumana, stöðva stríðið og reyna a<) koma á nýrri skipan. „Svo gæti farið að Balkanskaginn verði ekki upphaf átaka heldur for- dæmi um alþjóðlega og evrópska sam- vinnu,“ sagði Kozyrev. „Það eru mörg mál og flókin, sem blasa við okkur, en það eru miklar líkur á því að sam- eiginlega getum við leyst þau.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.