Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 34

Morgunblaðið - 23.09.1997, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Þjóðarátak um bætta grunnmenntun HVERNIG má það eiginlega vera eftir umræðurnar um menntamál í kjölfar alþjóðlegs samanburð- ar á árangri í raun- greinum á sl. ári að yfirvofandi eru verk- föll og uppsagnir kennara og á seinustu stundu tókst að af- stýra verkfalli leik- skólakennara? Þessi spurning er mér mjög áleitin sem stjórnmála- manni og háskóla- kennara í uppeldis- fræðum. Eftir áraraðir af erfiðri kjarabaráttu, sem skilað hefur takmörkuðum árangri í bættum kjörum, fengu kennarar aldeilis að heyra það þeg- ar niðurstöður áðurnefndrar rann- -’csóknar voru kynntar: Þið eruð alls ekki nógu góðir fagmenn. Þið styðj- ist við rangar kenningar og kennið ekki nóg af raungreinum. Lítið var hlustað þó að kennarar bentu á ónógt framlag til námsgagnagerð- ar, niðurskurð til kennaramenntun- ar (4. árið enn ókomið til B.Ed. gráðu), stuttan skólatíma og síðast en ekki síst á erfiðleikana við að halda fyrsta flokks kennurum Ég legg til, segir Guðný Guðbjörnsdóttir, að ríki og sveitarfélög sam- þykki aukin fjárframlög til að hækka laun og bæta aðbúnað kennara og leikskólakennara. vegna lágra launa. Til að hafa sæmileg kjör hafa kennarar þurft mikla yfirvinnu, sem nú verður erfiðara að fá vegna einsetningar grunnskólanna. Á sama tíma urðu þær raddir háværar meðal foreldra að mennt- un bama þeirra væri grundvallaratriði sem yrði að vera fyrsta flokks. Þessar raddir styrkjast nú. Fyrir skömmu benti tals- maður Barnaheilla réttilega á að gera megi ráð fyrir að óánægja kennara með kjör sín smitist yfir á skólastarfið og á líðan barnanna okkar í skól- um og leikskólum landsins. Mín tilfinning er sú eftir fjöldamörg samtöl við áhyggju- fulla foreldra að nú sé komið nóg, fólk vilji leggja sitt af mörkum til að fá fyrsta flokks grunnmenntun og fyrsta flokks kennara, sem geti einbeitt sér að því að mennta börn- in með fagmennskuna í fyrirrúmi. Réttur barna til ókeypis grunnmenntunar í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem ísland hefur stað- fest, er viðurkenndur réttur barna til menntunar og aðildarríki skuld- binda sig til að koma á ókeypis skólaskyldu fyrir öll börn (28. grein). Núgildandi grunnskólalög eru frá árinu 1995, en þar segir í fyrstu grein, að sveitarfélögum sé skylt að halda skóla fyrir öll börn frá 6-16 ára. í 7. grein sömu laga er undanþáguheimild frá því að sækja grunnskóla til þeirra barna sem sækja viðurkennda einkaskóla. Ef ekki verður gert stórátak nú til að efla íslenska grunnskólann, má alveg eins búast við að þeir sem eiga nóga peninga stofni einka- skóla fyrir sín börn. Það er þekkt leið til að eyðileggja almennings- stofnanir að svelta þær svo pen- ingalega, að fólk sem er aflögu- fært sættir sig við að greiða fyrir mun betri þjónustu. Dæmi um slíkt má bæði finna úr heilbrigðis- og fjölmiðlageiranum og nú er komið að skólanum. Eg skora á foreldra að standa vörð um grunnskólann, Guðný Guðbjörnsdóttir að sameinast um að leggja meiri skattpeninga í bættan grunnskóla. Að öðrum kosti verða hér fyrsta flokks skólar fyrir þá sem eru efn- aðir og annars flokks skólar fyrir aðra. Var það þannig menntakerfi sem forsætisráðherra átti við í ræðu sinni á 80 ára afmæli Versl- unarráðsins, og Morgunblaðið slær upp í fyrirsögn 18. september: Markaðsbúskapur efldur og menntakerfið bætt. Sameinað átak foreldra, sveitarstjórna og ríkisvalds Nú hagar þannig til að kennarar eru að semja við sveitarfélögin í fyrsta sinn eftir að grunnskólinn fluttist yfir til sveitarfélaganna. Leikskólakennarar voru einnig að semja við sveitarfélögin. Þó að segja megi að ríkisvaldið sé þar með ekki aðili að þessum kjaradeil- um þá er það að mínu mati ekki réttmætt, því um er að ræða upp- safnaðan vanda langt aftur í tím- ann. Eg vil því gera að mínum orð fjölmargra foreldra sem segja ein- faldlega: Hingað og ekki lengra, ég vil borga meira fyrir að fá betri skóla fyrir börnin mín. Þó að kjara- mál séu ávallt viðkvæm og ein stétt vilji taka mið af annarri tel ég að nú sé að nást þjóðarsátt um það að kjör kennara og leikskólakenn- ara séu óviðunandi og úr því verði að bæta. Því legg ég einfaldlega til að ríki og sveitarfélög sameinist um að gera átak í grunnmenntun þjóðarinnar með því að samþykkja aukin fjárframlög til að hækka laun kennara og leikskólakennara og bæta allan aðbúnað, bækur og önn- ur námsgögn þannig að um muni. Til að fylgja eftir þessari kröfu væri æskilegt að foreldrar létu sveitarstjórnarmenn út um allt land og ríkisvaldið heyra þessar raddir, með undirskriftum, greinaskrifum eða samtölum. Þetta mál er allt of mikilvægt til að verða bitbein á milli ríkisvalds og sveitarfélaga, eða stjórna og stjómarandstöðu á hveijum stað. Þetta er að mínu mati ein vænlegasta leiðin til að komast út úr þeirri úlfakreppu sem nú vofir yfir og var í þann mund að lama tvö heil skólastig í landinu svo og vinnustaði smábarnafor- eldra, þegar samdist við leikskóla- kennara. Oft hefur verið þörf fyrir sameinað átak um þjóðþrifamál en nú er nauðsyn. Hugsjónin um jafn- rétti allra íslenskra barna til fyrsta flokks grunnmenntunar er í veði. Höfundur er þingkona Kvennalistans. SUNNUDAGINN 7. september s.l. birt- ist grein í Morgun- blaðinu eftir Kristínu Ástgeirsdóttur, þing- konu Kvennalistans og eina af stofnendum hans. Kristín minnist þar á aðdraganda og ástæður fyrir stofnun Kvennalista og Kvennaframboðs. Ég tel að íslensk kvenna- barátta standi í ómældri þakkarskuld við þær konur sem þar áttu hlut að máli. Tilefni greinar Kristínar er spurningin um hvort kvennalistakonur geti átt viðræð- ur við A-flokkana um stjórnmála- samstarf. Eins og kunnugt er hafa slíkar viðræður verið á dag- skrá um tíma en þær miða meðal annars að því að endurskoða upp- byggingu stjórnmálasamtaka sem hlut eiga að máli. Hún telur að ekki komi til greina að slíkar umræður geti farið fram í nafni Kvennalistans. Hún segir líka að Sitthvað í aðferðafræði Kvennalistans, segir Hulda Björg Sigurð- ardóttir, gengur ekki upp í nútímasamfélagi. Kvennalistinn sé alltof merkileg hreyfing til þess að klofna vegna afstöðu til krataflokka. Ég er sammála Kristínu um að Kvennalistinn sé mjög merki- leg hreyfing og hafi áorkað tals- verðu - jafnvel miklu - í stjórn- málastarfi og hugarfarslega hér á landi. Það hefur þó ekki dugað til þess að standa jafnfætis Norð- urlöndunum þar sem þverpólitísk- ar kvennahreyfingar þrýstu á stjórnmálaflokka um að auka hlut kvenna. Þátttaka kvenna í stjórn- sýslu á Norðurlöndum er mun meiri en hér. Það hefur aftur þýtt félagslegar aðgerðir sem bætt hafa borgara- lega stöðu kvenna með því að létta af þeim að hluta samfé- lagslegri kröfu um ólaunað og nafnlaust vinnuframlag í formi ýmiss konar þjón- ustu- og umönnunar- starfa. Réttindabaráttu kvenna er ólokið og þess vegna er fylgi Kvennalistans mér áhyggjuefni eins og Kristinu. Auk ástæðna fyrir fylgi- stapi, sem hún nefnir, tel ég að sitt hvað í aðferðafræði Kvennalistans gangi ekki upp í nútímasamfélagi. Hafi beinlínis hindrað konur í að tjá sig, bæði inná við og útá við og jafnvel hindrað þær í að taka þátt í starfi samtakanna. Af sömu ástæðu hefur ekki fengist nein niðurstaða um skoðanaágreining, sem hefur verið til staðar um ýmis mál. Samkvæmt stefnuskrá Kvenna- listans er hann stjórnmálaafl og hlýtur því að þreifa fyrir sér um vænlegar leiðir til þess að komast að stjórnborðinu og afla sér fylgis til þess. Það er ekki verið að tala um að kasta stefnumálum fyrir róða. Kvennalistinn getur tæplega búist við að geta staðið óbreyttur í þeim hugmyndafræðilegu hrær- ingum sem ganga yfir í okkar heimshluta. Venjuleg lýðræðisleg aðferð í stjórnmálum sem og í mannlegum samskiptum hefur verið að tala saman. Með stefnuskrá Kvennalistans sem grundvöll eiga Kvennalista- konur að geta átt viðræður um málefnasamstarf eða möguleika á því við fulltrúa annarra stjórn- málasamtaka án þess að það þurfi að valda ágreiningi. Höfundur starfar í Hópi Kvennalistakvenna sem styður þær viðræður um málefnasamstarf stjórnmálaafia sem nú fara fram. Kvennalistinn og stjórnmálin Hulda Björg Sigurðardóttir SNYRTISTOFAN GUERLAIN REYKjAVÍK J.ASiy«DSSONHF. Skípholti 33,105 teykjoá, sími 533 3535. IP JAMES BURN 'international Efni og tæki fyrir UJÍIw járngorma innbindingu. Viðskiptaferðalög til útlanda eru hagstæð FYRIR skömmu var fjallað um það í fjöl- miðlum að myndfundir gætu komið að nokkru leyti í staðinn fyrir ferðalög íslendinga á fundi erlendis. Tómas Ingi Olrich alþing- ismaður kynnti athygl- isverða tilraun á mynd- sambandi við nefndar- fund hjá Evrópuþing- inu. Vafalítið hitti Tómas Ingi naglann á höfuðið þegar hann benti á kosti þess að nota myndsamband til að fylgjast með málum og til að geta nýtt þátt- töku sérfræðinga. Vaxandi alþjóð- legt samstarf kallar einfaldlega á fjölbreyttar aðferðir við að sinna því. í þessari umræðu nefndu fjöl- miðlar oft sem dæmi að það gæti kostað 200 þúsund krónur og þriggja daga vinnutap að sækja stuttan fund í útlöndum og því væri myndfundur ódýr lausn. Sam- kvæmt reynslu okkar hjá Úrvali- Útsýn er slíkur tilkostnaður við þriggja daga viðskipta- ferðalag frekar undan- tekning en regla. Að skilgreina slíkar ferðir sem vinnutap er auk þess að mínu mati var- hugaverð framsetning þar sem álykta má að ferðalangar geti nýtt slíkar ferðir til annarra beinna og óbeinna fundahalda og fræðslu. Stuttar og ódýrar viðskiptaferðir Staðreyndin er sú að þeim fjölgar sífellt sem fara í stuttar og ódýrar viðskiptaferðir til út- landa en fá eigi að síður góðan tíma til að sinna erindum sín- um. Kostnaður af viðskiptaferðum hefur lækkað verulega með tilkomu nýrra viðskiptafargjalda hjá Flug- leiðum. Þeir sem fara til helstu nágranna- borga okkar í Evrópu nýta sér í auknum mæli svokallað „Heim í kvöld" fargjald sem gildir á Saga Business Class. Þá er farið utan að morgni og komið heim að kvöldi. Þetta eru hagstæðustu viðskiptafar- gjöldin og kosta í kringum 60 þús- und krónur. Nýtanlegur tími í út- löndum er oft í kringum 6 tímar. Fyrir tveimur árum lækkuðu Flugleiðir fargjöld á Saga Business Þó að myndfundir séu góður kostur, segir Goði Sveinsson, þá koma þeir ekki í staðinn fifrír viðskiptaferðalög. Class með svokölluðu Saga 2 far- gjaldi. Það er með lengri bókunarfyr- irvara en venjulegt Saga Business Class fargjald, en hefur að öðru leyti svipaða kosti. Stór hluti þeirra sem bóka viðskiptaferðir hjá Úrvali- Útsýn ferðast á Saga 2. Þetta far- gjald hefur gert fólki kleift að fara í stuttar viðskiptaferðir, eins til tveggja daga, fyrir lítinn tilkostnað, yfirleitt innan við 100 þúsund krón- ur með gistingu og fæði. Tíminn er líka dýrmætur Aukin tíðni flugferða, nýir áfangastaðir hjá Flugleiðum og til- Goði Sveinsson koma annarra flugfélaga sem hing- að fljúga hefur leitt til þess að fólk á viðskiptaferðalögum getur nú nýtt tíma sinn miklu betur en áður. Með góðri skipulagningu tapast lít- ill vinnutími í ferðalög. Fyrir marga skiptir tíminn ekki síður máli en kostnaðurinn. Mikilvægi reyndra og vel menntaðra fargjaldasérfræð- inga eins og t.d. hjá Úrvali-Útsýn hefur því aukist jafnt og þétt, enda auðvelt fyrir leikmann að villast í frumskógi fargjalda og annars ferðakostnaðar þar sem segja má að forsendur breytist nú frá degi til dags. Þessi lækkun kostnaðar í viðskiptaferðalögum er mikilvæg, hvort sem er í vaxandi alþjóðasam- starfi íslendinga eða sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði. Öhætt er að fullyrða að aukin ferða- tíðni og lægri viðskiptafargjöld hafi valdið straumhvörfum hvað þetta varðar. Notkun myndfundabúnaðar er síðan kærkomin viðbót sem vænt- anlega verður notuð í vaxandi mæli í framtíðinni, en þá ekki síst til að gera fleiri aðilum en í dag kleift að koma að málum án verulegs aukakostnaðar. Fátt mun þó koma í staðinn fyrir mannleg samskipti í viðskiptum og alþjóðasamstarfi. Höfum einnig í huga að þessi mann- legu samskipti kalla á ferðalög út- lendinga hingað til lands, með þeim tekjum og landkynningu sem það skapar. Höfundur er sölu- og markaðsstjðri Úrvals-Útsýnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.