Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 23.09.1997, Qupperneq 37
GTGA.THMUOÍTOM MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍÖJÍÍDÁtíljK tó'rSÉPÍÉtóBER ‘i99?" 37 ° MINNINGAR hans sem eins af traustustu félög- um_ stúkunnar. Óskar var einnig sérlega skemmtilegur á stundum gleðinn- ar, tók þátt í öllum skemmtikvöld- um og ferðalögum, sem farin voru á vegum stúkunnar, bæði innan- lands og til annarra landa ásamt sinni elskulegu og fallegu eigin- konu, Jónu Ágústsdóttur, sem alls staðar geislar af gleði og hlýja, en um leið hógværð og ljúf festa. Ég og mín kona ásamt fleiri félögum í stúkunni vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga mörg og sérlega skemmtileg kvöld á því yndislega fallega heimili, er þau hjón höfðu byggt sér. Þau kvöld verða aldrei fullþökkuð, en skilja eftir minning- ar, sem aldrei gleymast. Með Óskari er genginn einhver traustasti og áhugasamasti félagi stúkunnar okkar nr. 11, Þorgeir, um öll þau mál er lutu að mannúð og mannkærleika. Ég votta eiginkonu hans og fjöl- skyldu allri mína dýpstu samúð. Megi guðs blessun fylgja þeim öll- um um ókomin ár, svo og minning- unni um góðan dreng. Jón Hannesson. Látinn er í Reykjavík heiðurs- maðurinn Óskar Sveinbjörnsson, löngum kenndur við fyrirtæki sitt, Korkiðjuna, sem hann stofnaði og rak af hagsýni og myndarskap, allan sinn starfsaldur. Nýlega orð- inn áttatíu og tveggja ára varð hann að láta í minni pokann fyrir hinum illvíga vágesti krabbamein- inu eins og fleiri. Ætla mætti að sálmaskáldið Hallgrímur Péturs- son hefði haft í huga mann eins og Óskar, þegar hann orti „Lítillát- ur, ljúfur, kátur. leik þér ei úr máta, en varast spjátur, hæðni, hlátur, heimskir menn sig státa.“ Með Óskari er genginn einstak- ur öðlingur, sem allir er honum kynntust vildu nálægt vera og eiga að vini. Hann var hár vexti, bein- vaxinn og samsvaraði sér vel með dökkt hár á yngri árum, upplits- djarfur, laglegur og bauð af sér einkar hlýjan þokka. Hann var dagfarsprúður, yfirlætislaus, hreinskiptinn, stálheiðarlegur en tranaði sér lítt fram. Óskar var einn í hópi þeirra stólpa og góðu drengja, sem í upp- hafi vega lögðu Tryggingu hf. lið og dugði henni til æviloka. Á sínum langa og happadijúga ferli hjá fé- laginu hlutu að hlaðast á hann trúnaðarstörf fyrir félagið og sem menntaður húsasmíðameistari varð hann bæði aðalráðgjafi og eftirlítsmaður með öllum bygg- ingaframkvæmdum félagsins alla tíð. Hann sat í stjóm Tryggingar hf. í rúm þijátíu ár, lengur en nokkur annar og var fulltrúi trygg- ingataka í stjórninni öll þau ár, sem þær reglur giltu. Óskar var náttúrubarn, og hafði mikið yndi af útiveru hverskonar, einkum þó laxveiði, enda bráðfísk- inn veiðimaður. Þau hjónin stund- uðu ferðalög af kappi bæði innan- lands og utan og eftir að brauðst- ritinu lauk fóm þau utan tvisvar á ári, árum saman. Báðum til mik- illar gleði og ánægju og á sá sem hér stýrir penna ófáar ljúfar minn- ingar frá nokkrum þeirra ferða. Hið gamla spakmæli „Hver er sinnar gæfu smiður“ sannaðist rækilega í einkalífí Óskars, Jóna, hans góða kona, synimir Svein- björn og Ásgeir og þeirra fjölskyld- ur voru öll mjög samhent og elsk hvert að öðru, því er söknuður þeirra mikill. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti eftir íjömtíu ára samstarf sem aldrei bar skugga á og fyrir það að hafa fengið að kynn- ast honum og eiga að vini, því hver sá er það fékk var ríkari af. Við hjónin sendum Jónu og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð veri minning Óskars Sveinbjörnssonar. Ágúst Karlsson. „Fagra haust, þá fold ég kveð, faðmi vef mig þínum. Bleikra laufa láttu beð að tegstað verða mínum“. (St.Th.) Ég var staddur í öðrum lands- hluta þegar mér barst til eyrna andlátsfregn Óskars. Ekki kom það mér að óvörum, því ég vissi hvert stefndi. Ég hafði séð hann heima hjá sér skömmu áður. Lík- amlegt þrek var að þrotum komið, en hugsunin skýr og hann veitti því fulla athygli sem við spjölluðum saman. Bliknuð lauf og sölnuð grös falla til foldar en haustgyðjan hefur tek- ið hann í arma sína og flutt anda og sál á æðra svið. Kynni okkar voru ekki löng, að- eins fímm og hálft ár eftir að við fluttum hingað á Sléttuveginn. Fljótt varð ég þess var að skoðanir okkar lágu saman á mörgum svið- um. Vorum skoðanabræður í sama stjórnmálaflokki og báðir Odd- fellowar, en í sitthvorri stúkunni. Ég tel það mér til ávinnings að hafa kynnst Óskari og eignast vin- áttu hans. Við áttum samleið með að vinna að hagsmunamálum húsfélagsins, hagræða rekstri, ávaxta fjármuni og sjá til þess eftir bestu getu að húsfélagar nytu þess sem best sem þeir lögðu hús- félaginu til. Hann hafði góða inn- sýn í fjármál og hvernig þeim yrði best varið, enda athafna- og fram- kvæmdamaður. Hann rak fyrir- tæki til margra ára sem voru þekkt fyrir vandaða vöru og góða þjón- ustu. Hann mat lýðræði og frjálst framtak mikils. Vildi láta þá ein- staklinga njóta hæfileika sinna sem höfðu getu og burði til að sýna það í verki hvað í þeim bjó. Öll höft á frelsi og framkvæmdum voru honum þvert um geð, ef hann sá að dugnaður og fyrirhyggja voru annars vegar. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sín og bar virðingu fyrir verkum annarra ef þau voru vel af hendi leyst. í daglegri um- gengni var hann fyrirferðarlítill, en hollráður, athugull og fastur fyrir ef honum fannst að mætti betur gera. Það var hlýtt og bjart í skjóli þeirra heiðurshjóna, Óskars og Jónu. Fallegt og snyrtilegt heimili heillaði hugann. Dæmigerður sam- nefnari fyrir þau bæði. Hann var hvatamaður að góðu félagsstarfi, naut sín vel í góðvinahópi, hófsam- ur og átti gott með að slá á létta strengi. Sýndarmennska og stæri- læti voru eiginleikar sem honum voru þvert um geð, en dugnað, hagsýni og trygglyndi mat hann mikils. Kynnum mínum af honum get ég lýst á þann einfalda hátt, að hann var drengur góður og sá er vinur sem til vamms segir. Hann var sterkur hlekkur í þeirri keðju sem húsfélagið okkar samanstend- ur af, en maður kemur í manns stað og vona ég að góðir komi og fylli í vandfyllt skarð. í gær voru jafndægur að hausti, dagurinn styttist, nóttin lengist og haustnæturnar fara að verða lang- ar. En það er bjart yfír minningu þessa heiðursmanns, glæður sem ekki kulna og við þær er gott að oma sér þegar myrkur og kuldi hrekur bliknuð lauf um fréðinn svörð. Fyrir hönd húsfélagsins þakka ég traust og góð kynni, og vel unnin störf í okkar þágu. Eiginkonu, sonum og fjölskyld- um flyt ég samúðarkveðjur. Megi minningin um látinn ástvin verða söknuðinum sterkari. Leiðir skilj- ast en lífið heldur áfram handan við gröf og dauða. Sú er trú vor, vinur minn. Jakob Þorsteinsson. Líflð breytist þegar maður missir nákominn ættingja, ættingja sem manni fannst alltaf gott að koma til, tala við, fínna hlýjuna og ylinn frá. Einhvern veginn finnst manni alltaf að þeir sem við elskum, treystum og getum ávallt leitað til verði alltaf til staðar, þegar maður þarfnast þeirra. En nú er stóllinn, sem þú ávallt sast í, tómur og við getum ekki lengur falið hendur okkar í stórum höndum þtnum. Við lokum augunum, hugsum til baka, við sjáum þig, heyrum í þér, en þú ert ekki hér, þú ert farinn yflr móðuna miklu. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allan þann tíma og alla þá ást sem þú gafst okkur. Þú varst ávallt til staðar fyrir okkur, ef við þurftum að leita aðstoðar og alltaf varstu reiðubúinn til að hjálpa okkur, leið- beina okkur hvað best væri að gera. Þú lést okkur alltaf fmna það að við gætum gert það sem við vildum, þú virtir alltaf okkar skoðanir og gjörðir. Elsku afí, þín verður sárt saknað en í huga okkar og hjarta geymum við góðar minningar um þig. Elsku amma, Guð blessi þig og styðji þig í gegnum þessa erfiðu tíma. Elvar og Jóna. + Elskuleg móðir mín, amma og langamma, SIGRÍÐUR KRISTÍN SUMARLIÐADÓTTIR, Suðurgötu 12, Keflavík, er andaðist hinn 17. september sl. á Sjúkrahúsi Keflavíkur, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 26. september nk. kl. 13.30. F.h. aðstandenda, Þórður Þórðarson. Lokað Útlendingaeftirlitið verður lokað milli kl. 10 og 12 í dag vegna jarðarfarar KARLS JÓHANNSSONAR. Útlendingaeftirlitið. + Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, móðir, tengdamóðir og amma, ANNA MARÍA EINARSDÓTTIR, Heiðarhjalla 43, Kópavogi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 11. september. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kærar þakkir viljum við færa hjúkrunarfræðingum Karitasar, starfsfólki sjúkradeilda A7, A4 og Grensásdeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur og starfsfólki heimilishjálpar Kópavogs. Bolli Magnússon, Ásta Magnúsdóttir, Einar Einarsson, Ásta Bolladóttir, Ralph Ottey, Magnús Bollason, Elín Eiríksdóttir, Bolli Magnússon yngri. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, SIGURÐUR JÓNSSON, Hjallbraut 33, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 20. september. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 26. september kl. 15.00. % Björgvin Sigurðsson, Aðalheiður Einarsdóttir, Grétar Þorleifsson, Sigurður Már Sigurðsson, Sigurlín Sigurðardóttir, Þorleifur Sigurðsson, Margrét Vilbergsdóttir, Hrönn Sigurjónsdóttir, Björgvin Högnason, Lillý Jónsson, Auður Adolfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, VALTÝR HÁKONARSON, Sléttuvegi 15, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 25. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag (slands. Ingunn Eyjólfsdóttir, Elfsabet og Gísli Skúiason, Kristín og Þórður D. Bergmann, Margrét og Henrik Zachariassen, Anna Maria og Tomasz R. Tomczyk og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRT GUÐBJARTSDÓTTIR, frá Einlandi, Vestmannaeyjum, Lönguhlið 3, Reykjavík, lést á Landakoti laugardaginn 20. september. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 26. september kl. 13.30. Bjarni Herjólfsson, Guðbjartur Herjólfsson, Guðjón Herjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Unnur Ketilsdóttir, Birna Bogadóttir, + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN I. ZÓFONIASSON, frá Núpí, Dýrafirði, sfðast til heimilis að Kópavogsbraut 1A, Kópavogi, lést 19. september á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Ólöf S. Jónsdóttir, Stefán Lárusson, Einar Jónsson, Soffía Guðrún Ágústsdóttir, Sigurður B. Jónsson, Sólrún Hafsteinsdóttir, Biynjólfur Jónsson, Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.