Morgunblaðið - 23.09.1997, Side 38

Morgunblaðið - 23.09.1997, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ v 38 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 KARL JÓHANNSSON + Karl Jóhanns- son fæddist 7. nóvember 1923 á Reykjum í Hrúta- firði. Hann lést 16. september síðast- liðinn. Faðir hans var Jóhann Pétur Jónsson, kaupmað- ur á Siglufirði. Móðir hans var Ragna Pétursdótt- ir, gullsmiður. Hann varð stúdent frá Menntaskólan- um á Akureyri 1943. Fyrri eigin- kona hans var Unnur G. Thor- oddsen lyfjafræðingur, þau slitu samvistir. Þeirra börn eru Ragna, verkfræðingur hjá Orkustofnun, og Guðmundur, kerfisfræðingur í Reykjavík. Seinni kona hans er Aldís Haf- Hann átti til vestfirzkra að telja í annan kynbóginn. Það sýndi sig oft - ótaloft. Bekkjarbróðir, félagi, gleðibróðir, hollvinur. Það er sárt að missa slík- an, ekki sízt með voveiflegum hætti. Karl Jóhannsson var ótrúlega vel gerður maður. Hann var einn þeirra, sem gat skarað fram úr í þeim grein- um, eða öllu heldur í þeim viðfangs- efnum, sem hann tók sér fyrir hend- ur. Það var makalaust. Enginn skóla- eða bekkjarfélagi í MA náði slíkum tökum á enskri tungu og Karl. Hann var snemma bráðger, varð skjótar harðnað karlmenni en flestir honum samtíða. í fjórða bekk í MA (náttúrulega í máladeild), þá 16 ára gamall, varð hann túlkur hjá brezku liðsforingjunum á Þelamörk- inni. Brezka setuliðið varð snar þátt- ur í lífi fóiks á Akureyri, skapaði vinnu og hafði ýmis áhrif. Sambúðin var friðsamleg, án teljandi óhappa. Karl virtist fljótt skilja brezkan hugsunarhátt. Talaði ensku og skrif- aði hana eins og menntaður Breti, skynjaði blæbrigðin eins og svo margt annað. Þessi skynjun eða til- finning kom berlega fram í mörgu, t.a.m. í spilamennsku. Það var unun að spila við hann brids. Þar stóðu honum fáir á sporði. Því miður fékk sá er þetta skrifar ekki færi á að spila við hann billjard. í þeirri list- grein ku hann hafa verið frábær. Hins vegar skenkti hann mér at- vinnumannsbilljardkjuða á silfurfati fyrir örfáum árum. Þetta var mikil vinargjöf. Þetta var svipað því og að hafa eignazt gæðing eða góð- hest. Þessi umgetni billjardkjuði hafði verið keyptur í heimsfrægri billjardbúð í London, þar sem ein- liðadóttir afgreiðslu- maður. Þau áttu þrjá syni; Hafliði Alfreð, sjómaður á Fiateyri, Ragnar, framkvæmdasljóri í Reykjavík, og Þor- steinn, sjómaður í Reykjavík. Þá eign- aðist Karl einn son, Magnús, með Sig- ríði Sigurðardóttur. Hann var skrif- stofumaður _ í Landsbanka Islands i Reykjavík 1944- 1945 og hefur starf- að í Utlendingaeftirlitinu í Reykjavík síðan 1. október 1945 og gegnt starfi lögreglufulltrúa þar síðustu árin. Útför Karis fer fram frá Dómkirkjunni i dag og hefst athöfnin klukkan 10.30 ungis það bezta er tilheyrir íþrótt- inni er á boðstólum. Karl þótti stórglæsilegur maður, gekk í augun á kvenfólki. Hins veg- ar var hann sjentilmaður fram í fing- urgóma. Þrátt fyrir skemmtilega vil- limennsku í vestfirzka geninu - blóðinu - var hann háttvís og fínn í sér, blessaður karlinn. Hann var afar vel að manni. Sýndi það ekki oft, nær aldrei, nema í úthaldi við heimsins lystisemdir. Forfeður Karls voru sæúlfar, harðir sjósóknarar við ísafjarðardjúp, enda var Karl með hraustari mönnum. Karl starfaði sem háttsettur emb- ættismaður í Útlendingaeftirliti ís- lenzka ríkisins. Þar naut hann trausts í fyllsta mæli. Þar voru hon- um iðulega falin vandasömustu verkefnin sem hann leysti með glæsibrag og hetjulund. Guð blessi þig, vinur, og þakka þér fyrir samfylgdina. Steingrímur St.Th. Sigurðsson. Þetta er bjargvætturinn minn, sagðir þú og klappaðir mér ástúðlega en örlítið hikandi á öxlina. Ég man hvað ég varð hégómlega montin yfir þessum orðum þínum fyrir framan vini okkar og „bjargvætti". Við höfð- um heimsótt ykkur Dídu, nokkur úr M-hópnum, þegar við vissum að ykkur leið illa, þú sýndir þakklæti þitt á þennan hátt. Kallaðir okkur bjargvættina þína, sitt á hvað. Við metum það við þig, elsku Kalli, við börðumst um stund við sameiginlegan óvin, sem allt of oft glottir sigurglotti til okkar sem eftir stöndum. Þú varðst líka reiður við íTV + Útför móður okkar og tengdamóður, FRIEDE PÁLSDÓTTUR BRIEM, Bergstaðastræti 69, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 24. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Margrétarsjóð Zontaklúbbs Reykjavíkur. Minningarspjöld í símum: 564 1102/565 0933. Fyrir hönd aðstandenda, Eggert Ásgeirsson, Sigríður Dagbjartsdóttir, Páll Ásgeirsson, Lára Ingólfsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát BJARNA S. BJARNASONAR, Álfhólsvegi 47, Kópavogi. m m Eiginkona, börn og barnabörn. MINNINGAR okkur stundum, þegar við ýttum við þér en við vonum að þú hafir skynj- að að það var gert af væntumþykju til ykkar hjónanna. Þú þoldir ekki að standa í biðröð, þess vegna komst þú ekki lengi vel í föstudagskaffið en þegar við sögð- um þér full sjálfstrausts að það væri þess virði að standa í biðröð til að fá bata, lést þú þig hafa það eins og við hin. Sjálfur hrokagikkurinn! Svo hættir þú að koma og þá viss- um við að þú varst að tala annað mál en við hin og hugsuðum við þá einkar hlýtt til ykkar, því við vitum að það er ekki sjálfsagður hlutur fyrir sjúkling að ná bata. Þvert á móti, í okkar tilfelli þarf oftast kraftaverk til. Svo komst þú við í kaffmu af og til. Þú varst að reyna. Við ætlum að vera í biðröðinni áfram. Jafnvel þó við þurfum þess ekki sem fastagestir á kaffihúsinu. Svona til að minna okkur á. Við munum hugsa til þín. Að leiðarlokum kveðjum við þig með bæninni góðu: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. M-hópurinn. Kæri Karl. Við munum aldrei gleyma því þegar við hittum þig fyrst fyrir 7 árum. Strax frá byijun leist þú á okkur sem manneskjur en ekki bara tölur í þeim fjölda útlend- inga sem koma til íslands á ári hverju. Þú varst fyrsti Islending- urinn sem við hitttum og sá fyrsti til þess að kynna okkur Island. Við sáum þig sem ímynd allra íslend- inga. Þú varst góðhjartaður, um- hyggjusamur og hreinskiiinn. Þú veittir okkur svo oft góð ráð. Þú varst svo lífsglaður og sagðir svo oft: „Af hveiju get ég ekki verið 25 árum yngri núna?“ En þú varst ávallt ungur í anda og stundaðir íþróttir eins og ungur væri. Þú varst alltaf ungur í okkar augum. Við söknum þín mjög mikið. Við erum þér og konu þinni, Aldísi, innilega þakklát fyrir þann yndislega tíma sem við áttum saman þar sem að við ræddum iífið á íslandi og lífið almennt. Nú höfum við misst góðan vin og Aldís hefur misst sinn elskaða eiginmann og félaga. Við vonum að hún búi yfir innri styrk til þess að komast yfir þennan mikla missi. Fyrir fjögur hundruð árum var ég á lífi? Eftir fjögur hundruð ár verð ég á lífi? í fornum skugga, í húmi nætur, ég staðar nam. Er ég hetjan hrygga? Með þrumu, hugsun minni heill kastali hrundi. Með herpingi, úr barka mínum kom ekkert hljóð. (Tanya Dimitrova.) Kæri Karl, við gleymum þér aldr- ei og geymum minningarnar um þig um alla ævi. Þínir vinir, Tanya Dimitrova og Borislav Petkov. Fyrir réttum 22 árum kvaddi ég, að sinni, nokkra samstarfsmenn mína að loknu sumarstarfi og hélt í skólann. Einn þessara frábæru samstarfsmanna tók af mér loforð um að líta við endrum og sinnum veturinn eftir „í súpu og brauð- sneið“. Af föðurlegri umhyggju var honum umhugað að missa ekki sjón- ar á þessum unga, óharðnaða nýliða sínum og gaf jafnframt til kynna möguleika á endurráðningu sumarið eftir. Viðburðarríkt og spennandi sumarstarf var á enda. Ein suma- rönn í háskóla lífsins, en þar var Karl Jóhannsson einn af rektorun- um. Þennan haustdag óraði mig ekki fyrir, að ég yrði einn af nemend- um hans í 22 ár. Kalli nefnilega útskrifaði mig aldrei. Kynni okkar voru bara rétt að byija. Þeim lauk við hörmulegt fráfall hans 16. sept- ember s.l., enda þótt vináttu hans og alúðar gæti um ókomna tíð. Það lýsir vel Kalla að taka að sér ,júníorinn“, eins og hann orðaði það. Hann hafði næmt auga og eyra fyrir ungviðinu. Hann vissi nákvæm- lega hvað beið þess og var tilbúinn að leiðbeina við hvert fótmál. Kennsluaðferðimar visku, þol- inmæði og umhyggju, vafði hann í hárfínum húmor sínum, þar sem stríðnin var í mátulegu hlutfalli til að krydda kennslustundina, svo að hún yrði ógleymanleg. Þegar ég kynntist Kalla, fyrsta sumarið mitt í Útlendingaeftirlitinu, hafði hann þegar starfað þar frá stríðslokum. Starf sitt hafði Kalli bókstaflega á hraðbergi. Hann gjörkunni það. Ekki skipti máli, hvort verkið þyrfti að leysa á ensku eða íslensku, skriflega eða munn- lega, tungurnar voru honum jafn- tamar. Enda tók við hjá mér „fram- haldsnám" í ensku, sem stóð þar til hans naut ekki lengur við. Mér er minnisstæð rithönd Kalla, en hann var jafnframt óumdeildur sérfræð- ingur embættisins í erlendum bréfa- skiptum. Jafnframt því að bera vitni sérstæðri snyrtimennsku hans og fágun í hvívetna, gat þar að líta fagurlega ritað hugverk heims- mannsins. Kalli var sannkallaður heimsmaður. Hann var prótókoll- meistari fyrstu utanlandsferða óf- árra ungra manna, sem hófu störf við hlið hans. Kalli vissi þó, að ekki tjóaði að troða okkur yngri mönnun- um í „úniform" sitt: smekklegjakka- föt, stífburstaða skó, frakka og hatt. Þannig klæddan muna ófáir Kalla. Hávaxinn, fjallmyndarlegur, fagur- eygður og með skarpa andlits- drætti, birtist hann ófáum ferða- manninum við heimkomu á Reykja- víkurflugvelli í gamla daga. Kurteis, svo að bar af, ljúfmannlegur og hjálplegur öllum í að greiða götu allra, hárra sem lágra. Kalli var húmanisti. Starf sitt rækti hann í anda mannúðar, einkum gagnvart lítilmagnanum og smælingjanum, eins og höfðingjum sæmir. Þegar lengra var komið í lækna- náminu kynntist ég því sem á ensku nefnist „bedside manners". Þar var Kalli þó á undan í námsuppeldi mínu, því fáir stóðu honum á sporði í við- talstækni við til að mynda geðsjúka útlendinga, sem hingað rak á fjörur og þurftu fylgd til heimalandsins. Þegar Kalli var annars vegar, gat að líta kennslubókardæmi um „bedside manners“. Kurteisi, fáguð framkoma og næmi á mannlegan breyskleika og þjáningu var aðal Kalla í samskiptum við skjólstæð- inga sína og samferðamenn. Þessir eiginleikar Kalla hafa jafnframt reynst eitthvert besta vegarnesti mitt í námi og starfí, fyrr og síðar. Kalli ákvað að leggja ekki stund á langskólanám eftir stúdentspróf í eiginlegum skilningi. Engu að síður var hann einhver best menntaði maður sem ég hef kynnst. Einkum var það orðlistin, sem var honum töm. Jafnframt því var hann víðles- inn á ótrúlegustu sviðum. Læknavís- indin voru honum einkar hugstæð, og gáfu honum tilefni til sífelldra heilaþrota, einkum um óleystar gát- ur. Ég held ég hafi við fáa menn rætt jafnmikið um læknisfræði en einmitt Kalla. Ósjaldan gaukaði hann að mér lesefni um sameiginleg áhugamál okkar á þessu sviði. Var þar Kalli iðulega á undan mér að nema fréttir af nýjungum og afrek- um. Kalli hafði nefnilega dálæti á snilligáfunni, hveiju nafni sem nefn- ist. Nú á fyrir mér að liggja að lesa bókina um einn uppáhaldssnilling hans, Leonardo da Vinci, sem hann gaf mér nýlega af alkunnri rausn sinn. Bókina verð ég þó að lesa án leiðsagnar hans og athugasemda, sem sárt verður saknað. Eitt mikilvægasta og fegursta táknið um vináttu og kærleika Kalla, er umhyggjan sem hann hefur borið fyrir okkur hjónunum báðum og dætrum okkar. Eiginkonu mína, Björgu, og dætur okkar, þær Árnýju Björku og Maríu, kallaði hann ávallt „telpurnar sínar“ og kom fram við þær sem slíkar. Hlýjan sem frá hon- um stafaði í garð okkar allra og umhyggjan sem hann bar fyrir vel- ferð okkar, var einstök. Honum var vel kunnugt um það, hversu ófor- betranlegir sælkerar „telpurnar hans“ eru, og varla leið sú heim- sókn, að Kalli drægi ekki úr pússi sínu það súkkulaði eða annað góð- gæti sem hann vissi að þær voru sólgnastar í. Alltaf hélt hann þessum gjöfum áfram, þrátt fyrir það að vera sí og æ áminntur um að hann sjálfur og komur hans væru sannar- lega nægilegt gleðiefni - ekki þyrfti sælgætið til. En slík orð komu ekki að neinu haldi, því eitt helsta áhuga- mál Kalla var að gleðja aðra. Ánægj- an skein úr andliti hans þegar „telp- urnar hans“ knúsuðu hann og tóku til við að bryðja góðgætið. Oft höfum við hjónin rætt um, að það væri rétt eins og við værum börn og bamaböm Kalla og Aldísar, eiginkonu hans, svo einstök hafa þau bæði verið í okkar garð. Lýsing á mannkærleika Kalla á sannarlega sömuleiðis við um Dídu - sem alltaf stóð við hlið hans í stríðum straumum lífsins. Slíkir lífsfömnautar eru ekki á hveiju strái, og það var Kalla ljóst. Viljum við fjölskyldan þakka þeim báðum einstaka vináttu og biðja góðan Guð að styrkja Dídu og börn- in í sorg þeirra. Megi Guð sömuleið- is ávallt vaka yfir Kalla okkar og leiða hann í landi Ijóss og friðar. Sigurður Örn Hektorsson, Björg Rúnarsdóttir, Árný Björk og María. t Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, mágkonu og frænku, MÍNERVU JÓNSDÓTTUR, íþróttakennara. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Karitasar. Bergþór Jónsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Ragnar Jónsson, Guðrún B. Madsen. og fjölskyldur. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ÖLVEIGAR ÁGÚSTSDÓTTUR frá Miðhúsum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Skagfirðinga. Jóhannes Sigmundsson, Halldóra Magnúsdóttir, Sigmundur Jóhannesson, Sigurveig Jóhannesdóttir, Pétur Hrólfsson, Magnús Jóhannesson, Sigrún Arnardóttir, Sæunn Jóhannesdóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.