Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 39

Morgunblaðið - 23.09.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 39* DAGMAR LÚÐVÍKSDÓTTIR + Dagmar Lúð- víksdóttir fædd- ist á Neskaupstað 26. desember 1905. Hún andaðist á Landspítalanum 14. september síðast- Iiðinn. Foreldrar hennar voru Ingi- björg Þorláksdóttir f. 13. nóv. 1875 í Þórukoti á Álfta- nesi, d. 25. nóv. 1956, og Lúðvík Sigurður Sigurðs- son, útgerðarmað- ur og kaupmaður, f. 10. ágúst 1866, í Sjólyst á Ejúpavogi, d. 20. jan. 1941 á Neskaupstað. Dagmar var sjö- unda af ellefu systkinum, en þau voru auk hennar: Lovísa, f. 1897, Þuríður Karólína, f. 1899, Gunnbjörg, f. 1900, Þor- lákur Björgvin, f. 1901, Sigríð- ur, f. 1903, Sigurður, f. 1904, Bjarni, f. 1907, Karl, f. 1908, Margrét, f. 1911, og Georg, f. 1913. Karl lifir nú einn þeirra systkina. Dagmar giftist 30. maí 1931 Gizuri Bergsteinssyni, f. 18. apríl 1902, síðar hæstaréttardóm- ara. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: Lúðvík, f. 6. marz 1932, hæsta- réttarlögmaður, hann er kvæntur Valgerði Einars- dóttur, Bergsteinn, f. 29. nóv. 1936, brunamála- sljóri, hann er kvæntur Mörtu Bergman, Sigurður, f. 2. marz 1939, sýslumaður, hann er kvæntur Guðrúnu Þóru Magn- úsdóttur, og Sigríður, f. 2. sept. 1942, meinatæknir. Dagmar verður jarðsungin í dag frá Dómkirkjunni og hefst athöfnin klukkan 13.30. Dagmar Lúðvíksdóttir amma mín, er nú fallin frá á nítugasta og öðru aldursári. Hún missti eigin- mann sinn Gizur Bergsteinsson fyrr á þessu ári og saknaði hans sárt. Fyrir fjölskylduna er erfitt að horfa á eftir þeim báðum með svo stuttu millibili, enda voru þau bæði miklir persónuleikar og tóku með áhuga þátt í daglegu lífi barna sinna og barnabarna. Er ég hugsa til ömmu, dettur mér fyrst í hug vandvirknin og útsjónarsemin sem hún sýndi í öll- um verkum sínum. Heima í Nes- kaupstað hafði henni snemma verið kennt að nýta tímann vel og láta sér ekki verk úr hendi falla. Foreldrar ömmu voru þau Lúðvík Sigurður Sigurðsson útgerðarmað- ur og kaupmaður í Neskaupstað og Ingibjörg Þorláksdóttir eigin- kona hans. Lúðvík hófst úr fátækt til góðra efna og fór það orð af honum að hann væri glaðsinna ráð- deildarmaður og Ingibjörg var þekkt fyrir dugnað og stjórnsemi. Þau eignuðust 11 börn. Saman ráku þau útgerð margra báta og síðar vélknúinna fiskiskipa og stunduðu einnig búskap í sveitinni inn af firðinum. í Lúðvíkshúsi í Neskaupstað, sem ennþá stendur sem nýtt, bjó ekki aðeins fjölskyld- an sem stækkaði fljótt heldur einn- ig margt annað fólk sem vann að útveginum. í þessu umhverfi erils og at- hafnasemi við öflun lífsbjargar ólst amma mín upp og lærðu hún og systkini hennar snemma að vinna að útvegi og fiskverkun. Þótt amma væri falleg, fíngerð og grannvaxin stúlka, hafði hún mikið af kappi og dugnaði móður sinnar og má segja að hún hafi verið mikill kven- skörungur. Alla ævi var það megin- einkenni ömmu minnar hversu gaman hún hafði af vinnu og at- hafnasemi og hélt það henni síungri og kvikri í hreyfingum þar til heils- unni tók að hraka undir það síðasta. Foreldrar Dagmarar ömmu vildu afla henni sem bestrar menntunar. Hún fékk því tækifæri til að stunda nám í Kvennaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan prófi með frábærum árangri. Að því loknu hélt hún til Danmerkur þar sem hún var við nám í húsmæðraskólanum í Soro. Eftir það hélt hún til Englands þar sem hún starfaði í nokkra mánuði. í Reykjavík kynntist amma eiginmanni sínum, Gizuri Berg- steinssyni sem síðar varð hæsta- réttardómari. Hjónaband þeirra varð einstaklega farsælt og kær- leiksríkt enda voru þau ávallt já- kvæð í viðureign sinni við hvern þann vanda sem að höndum bar. Afi minn hafði mikla unun af bók- um sem og fræðigrein sinni. Hann fól því Dagmar ömmu alla stjóm heimilisins, enda vissi hann að þannig yrði það rekið af ráðdeild og hagsýni. Hún bjó honum og börnum þeirra fallegt heimili þar sem regla var á hverjum hlut og börnin fundu óhagganlegt öryggi. Bæði voru afi og amma alla tíð svo heilsugóð að þau gátu fram í háa elli búið heima hjá sér og það var ekki fyrr en síðustu misserin sem amma gat ekki sjálf annast húsverkin. Þá nutu þau aðstoðar og umhyggju dóttur sinnar Sigríðar sem bjó hjá þeim. Það setti strik í reikninginn að Dagmar amma varð fyrir alvarlegu slysi þegar hún lenti fyrir bíl 85 ára gömul. Hún náði sér þó að verulegu leyti aftur og hafði hjúkrunarfólk á orði, þegar hún kom úr endurhæfingu inn á Grensásdeild, að það liti út fyrir að hún hefði ekki gert annað en að stunda leikfimi alla sína daga. Andleg orka hennar var þó ekki minni en líkamleg því að hún las geysimikið fram á síðustu ár. Hún var í bókaklúbbum og var vel að sér í fagurbókmenntum. Einnig hafði hún áhuga á fræðilegum bók- um og er mér minnisstætt þegar hún las stóru Sálfræðibókina sem gefin var út 1993 spjaldanna á milli og gaf mér hana að því loknu, því hún taldi að hún gæti komið mér að góðum notum við uppeldi Sigurðar Loga sonar míns. Dagmar amma mín var hvunn- dagshetja, sem sneri öllu því sem neikvætt var við, svo að það varð jákvætt. í hennar návist mátti eng- um hallmæla og aldrei heyrði ég hana segja styggðaryrði um nokk- urn mann. Hún uppskar að lokum hamingjuríkt líf sem hún Iofaði að leiðarlokum. Blessuð sé minning hennar. Dagmar Sigurðardóttir. Fallin er frá mikil mannkosta- kona, tengdamóðir mín Dagmar Lúðvíksdóttir. Hún fæddist og ólst upp í Lúðvíkshúsi í Neskaupstað í stórum og glaðværum systkina- hópi. Systkinin voru fædd ellefu en tvær systur létust ungar að árum, önnur í frumbernsku. Eins og gefur að skilja var mikið umleik- is á heimilinu, því fyrir utan þenn- an stóra systkinahóp var þar einnig margt vinnufólk, þvi heimilisfaðir- inn, Lúðvík Sigurðsson, gerði út eigin bát og verkaði allan afla báts- ins jafnframt því að vera með tals- verðan búskap. Það var því margt um manninn í Lúðvíkshúsi og oft glatt á hjalla. Ingibjörg húsmóðirin á heimilinu var stjórnsöm með af- brigðum enda veitti ekki af, þar sem ekki var óalgengt að um 20 manns væri í heimili. Lúðvík var ljúfur og greip oft til harmonik- kunnar á kvöldin að loknum löng- um vinnudegi. í þessu umhverfi ólst Dagmar tengdamóðir mín upp. Það má með sanni segja að Dag- mar Lúðvíksdóttir tók í arf bæði stjórnsemi og glaðlyndi. Hún hafði unun af tónlist og hér áður fyrr þegar systkinin hittust var oft sest við píanóið og sungið og þá ekki síst lög Inga T. Lárussonar, sem ættaður var frá Norðfirði. Dagmar var góðum gáfum gædd sem hún notfærði sér vel. Hún vildi mennta sig og foreldrar hennar styrktu hana til þess. Ung að árum hleypti hún heimdraganum og fór suður til Reykjavíkur í Kvennaskól- ann. Þar sóttist henni námið vel. Var haft á orði að handavinna hennar væri svo frábær að ótrúlegt væri að unglingsstúlkan austan af fjörðum gerði slíka handavinnu. Má segja að allt hafi leikið í höndunum á henni. Jafnframt því stóð hún sig með j)rýði í öllum bóklegum greinum. Ur Kvennaskó- lanum lá leið hennar til Danmerkur á hússtjórnarskólann í Soro. Henni líkaði mjög vel í Danmörku og alla tíð síðan las hún mikið á dönsku og fylgdist vel með öllu þar. Dagm- ar lét ekki þar við sitja. Hún fór beint af Soro til Englands. Ætlunin var fyrst og fremst að ná góðum tökum á ensku og einnig að kynn- ast landi og þjóð. Má segja að hún hafi viljað afla sér allrar þeirrar menntunar sem kostur var á. Þegar heim kom réð hún sig á skrifstofu Lögreglustjórans í Reykjavík. Þar starfaði hún við skrifstofustörf þar til hún gifti sig hinn 30. maí 1931 Gizuri Berg- steinssyni sem þá var fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu. Ég var aðeins 17 ára þegar ég kom fyrst inn á hið fallega heimili tengdaforeldra minna á Neshaga 6. Heimilið sýndi smekkvísi og myndarskap tengdamóður minnar. Hvert sem litið var sást hin frábæra handavinna hennar og það var auð- séð að þama var húsmóðir sem kunni vel til verka. Samt var það annað sem mér fannst fyrst og fremst einkenna Dagmar en það er að heimili, eiginmaður og íjölskyld- an öll var það sem skipti mestu máli í hennar lífi. Hún var góð eigin- kona og góð móðir. Þau hjónin báru gagnkvæma virðingu og traust hvort til annars. Dagmar gætti þess jafnan að Gizur hefði gott næði til lesturs og skrifta. Gizur var þá orð- in hæstaréttardómari. Dómarar voru þá aðeins 5 svo mikið álag var á hveijum og einum. Dagmar hafði góðan skilning á því. Gizur sat í sínu bókaherbergi og vann á milli þess sem hann fór í gönguferðir. Hún gætti þess einnig að vera til staðar meðan börnin voru í skóla. Alltaf var tilbúinn matur eða kaffi fyrir alla sem að garði komu. Heim- ilið var skjól fjölskyldunnar. Staður þar sem fjölskyldan átti sitt at- hvarf. Þegar barnabörnin fæddust mætti þeim sama ástríkið og gæðin. Einnig þau vildi hún hvetja til dáða. Dagmar tengdamóðir mín var bæði stórlynd og einnig óvenju við- kvæm kona. Hún gerði sér ekki mannamun. Allir voru jafnir fyrir henni. Jafnt háir sem lágir, ríkir sem fátækir. Við áttum samleið í 45 ár. Mér var hún sem bezta móðir. Ég vildi gjarnan geta tileinkað mér þá still- ingu og rósemi sem hún hafði til að þera. Ég á minningarnar fyrir mig og geymi þær vel. Tengdaforeldrar mínir urðu bæði háöldruð en héldu sér mjög vel til hins síðasta. Dóttir þeirra Sigríður hélt heimili með þeim og var þeim ómetanlegur styrkur. Ég hef ekki orðið vitni að fallegra sambandi á milli mæðgna en var á milli Dagmarar og Sigríð- ar mágkonu minnar. Ég vil þakka tengdamömmu minni fyrir sam- fylgdina. Ég kveð með þessum orð- um séra Sveins Víkings: Óttast ei, sú hönd er mild og hlý sem hvarmi þreyttum lokar hinzta sinn. Þá nóttin dvínar dagur rís við ský og dauðinn, lífsins þjónn, er vinur þinn. Já dauðinn, hann er Drottins hinzta gjöf til dauðlegra manna sem ferðast hér á jörð og fegra líf þín biður bak við gröf, því ber að kveðja hér með þakkargjörð. Valgerður Einarsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og tengdasonur; ÞORSTEINN JÓNSSON, skipstjóri, Aðalstræti 127, Patreksfirði, sem lést á gjörgæslu Landspítalans 19. september síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 27. september kl. 14.00. Hrönn Árnadóttir, Alda, Rúnar Geir, Elsa Lára, Saga Hrönn, Alda og Árni. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, HREINN SVAVARSSON, Austurbrún 6, Reykjavík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 20. september. Margrét Hreinsdóttir, Jónas Þór Hreinsson, Júlía Hreinsdóttir, Arnþór Hreinsson, Daði Hreinsson, Karl Smári Hreinsson og Stefán Steingrímsson, Marta Hallgrfmsdóttir, Lena Bernhoj, barnabörn. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGIJÓNASSON frá Völlum, Stigahlfð 14, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. september kl. 13.30. Eyrún Guðmundsdóttir, Bragi Helgason, Kristín Þorsteinsdóttir, Sigurveig Helgadóttir, Ari Stefánsson, Guðrún Helgadóttir, Hilmar Jóhannsson, Steinunn Helgadóttir, Kristinn Jörundsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, HULDA GUÐNÝ BENEDIKTSDÓTTIR, Baldurshaga, Akureyri, sem lést 17. september, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 25. september kl. 13.30. Guðrún Benediktsdóttir, , \ Barni Benediktsson, Erna Guðjónsdóttir, Ebba Eggertsdóttir, Helgi Már Barðason, Anna G. Barðadóttir, Benedikt Barðason og fjölskyldur. Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 I < • O jl ™ || Hom LOFTUEIÐIR o I C I l A K O A I R H O T I l *. Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.