Morgunblaðið - 23.09.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 41*
_______MIMIMINGAR
! JANP. SYSE
+ Jan P. Syse var
fæddur 25. nóv-
ember 1930 í Nött-
eröy. Hann lauk
lagaprófi og var á
námsárum formað-
ur norsku stúdenta-
samtakanna og
samtaka _ hægri
stúdenta. Átti um
k skeið sæti í borgar-
stjórn Óslóborgar.
Hann gegndi emb-
ætti iðnaðarráð-
herra 1983-1985 og
var forsætisráð-
herra frá 16. októ-
ber 1989 til 3. nóv-
ember 1990. Jan P. Syse skrif-
aði tvær bækur og fjölda blaða-
greina. Hann var varaþingmað-
ur 1965 til 1973 og þingmaður
| frá 1973 þar tii í ár. Nær allan
þingferil sinn tók hann virkan
þátt í norrænu samstarfi. Eftir-
lifandi kona hans er Else Syse
lektor. Þeim varð tveggja barna
auðið.
Útför Jans P. Syses er gerð
frá Uranienborgarkirkju í Osló
í dag á vegum norska ríkisins.
í síðustu viku lést í Noregi iangt
um aldur fram Jan P. Syse fyrrum
I forsætisráðherra. Hann varð aðeins
66 ára gamall en hafði í meira en
aldarfjórðung átt sæti á Stórþinginu
og tekið virkan þátt stjórnmálum frá
því í háskóla.
í starfi Norðurlandaráðs bindast
menn vináttuböndum. Þau bönd
liggja ekki eftir flokkslínum. Leiðir
okkar Jans P. Syse lágu saman í
næstum áratug í Norðurlandaráði.
' Með okkur tókst góður vinskapur.
; Ekki er langt síðan hann og Else
I kona hans voru í heiðurssætum í
' kvöldverðarboði í íslenska sendi-
herrabústaðnum í Ósló. Það var
ánægjulegt og eftirminnilegt kvöld
þar sem Jan P. Syse lék á als oddi.
Hann var vinur íslands og íslendinga
og tók nærri sér þann
ágreining sem var um
fískveiðimál milli þjóð-
anna.
Syse var með allra
skemmtilegustu tæki-
færisræðumönnum,
kímnigáfan einstök,
orðheppinn og hnytt-
inn. Allt var það
græskulaust. Einhveiju
sinni sat sá er þetta rit-
ar ásamt Syse og
finnskum þingmanni
yfir kaffibolla í fundar-
hléi á ráðstefnu í Hels-
inki ásamt tveimur
þingmönnum frá Hol-
landi. Þeir spurðu hvaða flokkum
við fylgdum. Finninn sagði strax:
Ég er íhaldsmaður. Syse sagði: Ég
er líka íhaldsmaður. Sá sem þetta
ritar sagði: Ég er jafnaðarmaður.
En lítur út eins og íhaldsmaður,
bætti Syse samstundis við.
Þegar Syse var forsætisráðherra
mátti hann þola gjörningaveður og
nornaveiðar norskra fjölmiðla út af
smávægilegum vanrækslusyndum í
einkabókhaldi. Allir viðurkenna nú
að þar fóru fjölmiðlar offari og urðu
sér til ævarandi skammar. „Sjaldan
hefur verið jafngrimmt glefsað og
djöflast út af jafnlitlu," skrifaði rit-
stjóri Arbeiderbladet í minningarorð-
um um Syse á dögunum og bar jafn-
framt fram þá ósk að slíkt ætti aldr-
ei eftir að endurtaka sig í norskum
fjölmiðlum.
Jan P. Syse var einn af leiðtogum
norskra stjórnmála undanfarna ára-
tugi. Hans verður minnst sem frá-
bærs ræðumanns, leiðtoga og sátta-
semjara. Með honum er horfinn af
vettvangi einstaklega vænn maður
og hlýr, heilsteyptur og heiðarlegur.
Þannig mun hann lifa í minningunni
um ánægjulegt samstarf. íslenskir
vinir hans senda Else konu hans og
afkomendum þeirra samúðarkveðj-
ur.
Eiður Guðnason.
ODDFRIÐUR RAGN-
HEIÐUR JÓNSDÓTTIR
+ Oddfríður
Ragnheiður
Jónsdóttir fæddist
25. júní 1913 á Efri-
Núpi í Fremri-
Torfustaðarhreppi í
Miðfirði. Hún Iést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 12. september
síðastliðinn. For-
* eldrar hennar voru
Jón Guðmundsson,
bóndi á Litlu-Þverá
í Fremri-Torfu-
staðarhreppi í Mið-
firði, V-Húnavatns-
sýslu, og Jóhanna
Margrét Sveinsdótt-
ir, ljósmóðir frá Gunnfríðar-
stöðum í Svínavatnshreppi í A-
Húnavatnssýslu. Hún átti fjögur
systkini sem öll eru látin. Odd-
fríður giftist 15.11.
1930 Axel Guð-
mundssyni, f. 15.6.
1905, í Knarrarhöfn
á Fellströnd í
Hvammsvík, Dala-
sýslu, d. 1.1. 1971.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Hann-
esson, póstur og
bóndi, og Þórdís
ívarsdóttir, bæði
ættuð úr Dalasýslu.
Þau áttu þrjá syni,
Jón Guðmund, skip-
stjóra, hann er lát-
inn, Arnar og Þóri
Jóhann. Barnabörn-
in eru níu og barnabarnabömin
eru sjö.
Útförin fór fram 22. septem-
ber sl.
Með fáeinum línum langar mig
að minnast föðursystur minnar og
þakka fyrir samverustundirnar sem
við áttum saman. Á kveðjustund leit-
ar hugurinn til baka þegar ég sit
nú og hugsa um þig og koma upp
i huga minn allar góðu minningarn-
| ar sem ég á um þig. Mér hlýnar um
hjartaræturnar þegar ég hugsa um
hversu vel þú reyndist mér alltaf.
► Ég var aðeins árs gömul þegar ég
kom fyrst til þín og mömmu þinnar
í heimsókn. Þá bjugguð þið á Fram-
nesveginum, það var lítið og fallegt
hús, þú bjóst manni þínum og börn-
um gott og smekklegt heimili. Það
var alltaf gaman að koma og heim-
sækja þig. Þú hafðir alltaf tíma til
að tala við okkur krakkana, tilbúin
að spila á spil með okkur eða segja
okkur sögur.
. Fríða var í eðlisfari róleg og elsku-
leg, hún var af þeirri kynslóð sem
lærði að meta ýmsa hluti sem okkar
kynslóð telur sjálfsagða. Hin síðustu
ár hefur hún dvalið á elliheimilinu
Grund. Þar hefur henni verið hjúkrað
af mannlegri hlýju og ástúð. Að leið-
arlokum vil ég þakka Fríðu alla
tryggð og vináttu í minn garð.
Ég sendi fjölskyldu hennar inni-
legar samúðarkveðjur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Jóhanna Sigmundsdóttir.
Jóhann Hjartarson
hlaut 5 '/2 vinning. Úrslit urðu
annars sem hér segir:
1. Hrannar Baldursson 8 Vt v.
2. Jóhann H. Ragnarsson 6 ’/* v.
3. Baldur H. Möller 6 v. (41,0 st.)
4. Sigurður P. Steindórsson 6 v. (40,5
st.)
5. Halldór Pálsson 6 v. (38,5 st.)
6. -7. Andri H. Kristinsson, Ómar Þór
Ómarsson 5'/! v.
8.-10. Baldvin Jóhannesson, Bjarni
Magnússon og Hjörtur Daðason 5 v.
Bestum árangri 14 ára ogyngri
náðu eftirtaldir skákmenn:
Sigurður Páll Steindórsson
Andri H. Kristinsson
Ómar Þór Ómarson
Kristján Freyr Kristjánsson
Taflfélag Reykjavíkur héit mót-
ið að þessu sinni. Skákstjóri var
Ríkharður Sveinsson.
Hafnarfjarðarmót í tvískák
Skákfélag Hafnarfjarðar ætl-
ar að efna til Meistaramóts
Hafnarfjarðar í tvískák á föstu-
daginn. Þetta er líklega fyrsta
opinbera tvískákmótið sem hald-
ið er hér á landi, en tvískák er
afbrigði af skák sem hefur notið
nokkurra vinsælda meðal ungra
skákmanna. Margir skákkennar-
ar hafa löngum litið greinina
hornauga, ekki að ástæðulausu.
Tvískák fer fram á tveimur borð-
um samtimis og er þetta því liða-
keppni þar sem hvort lið er skip-
að tveimur skákmönnum. Liðs-
menn sitja hlið við hlið, hvor við
sitt borð og hefur annar hvítt
en hinn svart. Þegar annar hvor
drepur mann hjá andstæðingn-
um má hann rétta félaga sínum
manninn og sá má bæta honum
í eigin lið. Þetta er því gjörólíkt
venjulegri skák. Farið verður
yfir keppnisreglur á skákstað
áður en mótið hefst.
Tvískákmótið verður haldið
föstudaginn 26. september og fíf
hefst klukkan 20. Tefldar verða
9 umferðir, auk úrslita sem 4
efstu liðin taka þátt í. Umhugs-
unartími verður 5 mínútur. Pen-
ingaverðlaun verða fyrir 3 efstu
sætin, en þátttökugjald er 1.000
krónur á lið.
Mótið er haldið hjá Skákfélagi
Hafnarfjarðar í Dvergshúsi, á
horni Suðurgötu og Lækjargötu.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
SKAKÞING ISLANDS Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð:
1 Jóhann Hjartarson 2.605 1 1 1 1 1/2 1/2 1 1 1 1 91/2 1.
2 Hannes Hlífar Stefánss. 2.545 v\ 0 1 1 1 1 1 1/2 1 1 1 9 2.
3 Jón Viktor Gunnarsson 2.315 0 1 0 1/2 1 1 1/2 1/2 1 1 1 71/2 3.-4.
4 Þröstur Þórhallsson 2.510 0 0 1 1 1 1 1 1 0 1 1 71/2 3.-4.
5 Jón Garðar Viðarsson 2.380 0 0 1/2 0 1 1 1 1 1 1/2 1 7 5.
6 Sævar Bjarnason 2.265 0 0 0 0 0 1/2 1 1 1 1 1 5!4 6.
7 Þorsteinn Þorsteinsson 2.305 1/2 0 0 0 0 1/2 0 1 1 1 1 5 7.
8 Bragi Þorfinnsson 2.215 1/2 0 1/2 0 0 0 1 0 1 1 1/2 41/2 8.-9.
9 Arnar Þorsteinsson 2.285 0 1/2 1/2 0 0 0 0 1 1/2 1 1 41/2 8.-9.
10 Rúnar Sigurpálsson 2.275 0 0 0 1 0 0 0 0 1/2 1/2 1 3 10.
11 Gylfi Þórhallsson 2.330 0 0 0 0 1/2 0 0 0 0 /2 0 11/2 11.-12
12 Áskell örn Kárason 2.305 0 0 0 0 0 0 0 1/2 0 0 1 11/2 11.-12
Jóhann Íslandsmeístari
í fimmta sinn
Alþýðuhúsið
á Akurcyri,
9. — 20. scpt.
SKÁKÞING ÍSLANDS,
LANDSLIÐSFLOKKUR
Jóhann Hjarfcirson tryggði sér ís-
landsmeistaratitilinn i skák á
sunnudaginn.
JÓHANN gat leyft sér að
semja um jafntefli í skák sinni
við Þorstein Þorsteinsson í síð-
ustu umferð, en Hannes Hlífar
Stefánsson vann Gylfa Þórhalls-
son og minnkaði bilið á milli
þeirra Jóhanns niður í hálfan
vinning. Þröstur Þórhallsson
vann Jón Viktor Gunnarsson og
náði að deila með honum þriðja
sætinu. Um einstök úrslit vísast
til meðfylgjandi töflu.
Það reyndist vera sigur Jóns
Viktors Gunnarssonar á Hannesi
Hlífari sem réð úrslitum á mót-
inu. Skákin var mjög vel tefld
af hálfu Jóns Viktors og birtist
hér í skákþættinum á laugardag-
inn var. Þegar Jóhann hélt síðan
jöfnu gegn Hannesi í 9. umferð
voru úrslitin nokkurn veginn ráð-
in. Sigur Jóhanns virðist mjög
verðskuldaður eftir skákunum
að dæma. Stundum þurftu þeir
Hannes að teygja sig býsna langt
eftir vinningunum, enda varð
strax í upphafi ljóst að mjög
hátt vinningshlutfall myndi
þurfa til sigurs á mótinu.
Þröstur Þórhallsson náði ekki
sínu besta, en einna ánægjuleg-
ustu tíðindin á mótinu eru tveir
áfangar sem náðust að alþjóðleg-
um meistaratitli. Þeim náðu þeir
Jón Viktor Gunnarsson, 17 ára,
sem hreppti sinn fyrsta áfanga,
og Jón Garðar Viðarsson, sem
náði sínum öðrum áfanga. Það
er líklegt að stutt verði í titilinn
hjá þeim báðum.
Mótið fór mjög vel fram, enda
Skákfélag Akureyrar orðið þaul-
vant slíku mótahaldi. Því lauk
síðan með glæsilegu lokahófi á
Fiðlaranum. Þar fékk Jóhann
afhentan farandbikarinn sem
Guðmundur Arason, fyrrverandi
forseti Skáksambandsins, gaf.
Atskákmót
Reykjavíkur 1997
Atskákmót Reykjavíkur fór
fram um síðustu helgi, 20.-21.
september. Hrannar Baldursson
varð atskákmeistari Reykjavíkur
1997. Hlaut hann 8'A vinning
úr 9 skákum. Sigurður Páll
Steindórsson náði bestum ár-
angri 14 ára og yngri en hann
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
• • *
• • • •
• •
• •
sœtir sofar
HUSGAGNALAGERINN
«
• Smiðjuvegi,9 • Simi 564 1475 *