Morgunblaðið - 23.09.1997, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
GRAM Á GjAFVERÐI
KÆLISKÁPUR
GERÐ KF-265
H: 146,5 cm.
B: 55,0 cm.
D: 60,1 cm.
Kælir: 197 1.
Frystir: 55 I.
TILBOÐ
Aðeins kr.
54.990,- stgr.
BIÓÐUM 20 GERÐIR GRAM KÆLISKÁPA
/rdnix
HÁTÚNI6A REYKJAVfK SÍMI 552 4420
Blússur
fallegt
úrval
Glugginn
Lausavesi 60 sími 551 2854.
Fedra, 8+1+1, hr, 189,000,-
Fedra hwnsófi, Kr. 119.000,-
Brekka, 8+1+1, Kr. 188.000,-
Brekka hornsófi, Kr. 188.000,-
Alda með rIðl, 8+M, Kr. 162.000,-
Aída hornsófi, Kr. 189.000,-
Sara, 8+1+1, Kr. 179.000,-
Sara hornsófi, Kr. 157.000,-
ÍDAG
Hlutavelta
SÖLUBÖRN. Þessir krakkar héidu tombólu og söfnuðu
til styrktar Sophiu Hansen og „Börnin heim“ kr. 8.610.
Þeir heita talið f.v.: Sveinn, Kristbjörg, Ragnheiður,
Klara, Anna og Alexandra.
SÖLUBÖRN. Þessar stúlkur söfnuðu með tombólu til
styrktar Rauða kross íslands kr. 8.529 kr. Þeir heita
Steinunn Birgisdóttir og Kamma Thordarson.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góður þáttur á
rástvö
ÖÐRUVÍSI mér áður
brá: Fyrir tilviljun hlutaði
ég á þátt Markúsar Arn-
ar Antonssonar síðdegis
á rás 2 laugardaginn 20.
september sl. Ég átti ekki
von á að á þessari rás
væri efni sem ég hefði
áhuga á. En það fór á
annan veg. Mér fannst
þáttur Markúsar Arnar
Antonssonar sérstaklega
athyglisverður og
skemmtilegur, saman fór
léttur, iýrískur og vel
saminn texti og tónlist
til frekari undirstrikunar.
Ég er áreiðanlega ekki
sá eini sem hef haft
ánægju af þætti Markús-
ar Arnar, en oftast heyr-
ist ekkert þegar vel til
tekst. Ég vek jafnframt
athygli á að það mun lík-
lega fáheyrt að útvarps-
stjóri á Norðurlöndum
komi persónulega fram
með þessum hætti og
fínnst mér þessi þáttur
Markúsar Arnar ágætt
dæmi um hvernig snöfur-
mannlegt framtak ein-
staklings (og stjórn-
anda) getur lyft efni
heillar útvarpsrásar, á
niðurleið, upp úr öldud-
alnum. Vonandi fara
fleiri dagskrárgerðar-
menn að dæmi Markúsar
Arnar - eftir höfðinu
ættu limirnir að dansa!
Leó M. Jónsson,
Höfnum.
Tapað/fundið
Útprjónuð peysa
týndist
HANDPRJÓNUÐ, út-
pijónuð aprikósulituð
peysa týndist á Hafnar-
fjarðarsvæðinu í ágúst.
Þeir sem hafa orðið varir
við peysuna hringi í síma
565-3389.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
LÍTILL kettiingur fæst
gefíns. Uppl. í síma
555-2220.
COSPER
SKAK
Umsjón Margelr
Pétursson
STAÐAN kom upp á stóru
opnu skákmóti sem fram
fór í Beijing í Kína
í ágúst. Heima-
maðurinn Liang
Jinrong (2425)
var með hvítt, en
Eistinn Lembit
011 (2645) hafði
svart og átti leik:
18. - Rxf2! 19.
De2 (Eða 19.
Kxf2 - Re4+ 20.
Ke3 - d4+! 21.
Bxd4 - Dg5+ 22.
Ke2 - Dxg2+ 23.
Ke3 - Df2 mát)
19. - R6g4 20.
Rf3 Hxf3! 21.
Dxf3 (21. gxf3 - Rh3+ 22.
Kfl - Dh4 er einnig von-
laust) 21. - Db6! (Hvítur
á nú ekkert svar við frá-
skák með riddaranum á f2)
22. Df4 - Rh3++ og hvít-
ur gafst upp. Drottningin
fellur óbætt.
SVARTUR leikur og vinnur.
ÉG fékk bara eitt svar við auglýsingunni í einkamála-
dálkinum og það var frá manninum þínum.
Víkveiji skrifar...
BLAÐAMENN eiga þess ekki
oft kost að gera heimilisinn-
kaupin um miðjan dag, þegar hvað
minnst er að gera í stórmörkuðun-
um. Svo brá við nú fyrir skömmu
að Víkveiji hafði tíma til innkaupa
upp úr kl. þtjú í eftirmiðdaginn og
brá hann sér í verslun Hagkaups í
Hólagarði í efra Breiðholti. Víkveiji
var hæstánægður þar sem hann
sprangaði um nánast tóma verslun-
ina með innkaupakerruna og fyllti
hana af nauðþurftum heimilisins.
Þegar hann svo tók stefnuna á af-
greiðslukassa, kárnaði gamanaið.
Greinilegt var, að aðeins tveir af-
greiðslukassar af átta eða níu voru
opnir, því hjá þessum tveimur köss-
um voru biðraðir viðskiptavina, sex
til sjö manns í hvorri röð, en engin
afgreiðslustúlka var sjáanleg.
xxx
VÍKVERJI tók sér stöðu í ann-
arri röðinni og gerði eins og
fleiri viðskiptavinir, skimaði eftir
afgreiðslufólki. Loks bar að ungan
pilt, sem klæddur var í græna Hag-
kaupspeysu. Hann var spurður
hvort enginn væri að afgreiða og
hann brá sér inn í afdrep starfs-
manna, til þess að kanna hveiju
þetta sætti. Kom við svo búið með
eftirfarandi svör: Þær sem eru á
þessum tveimur kössum, sem eru
opnir núna, eru báðar að athuga
með debetkort viðskiptavina. Allir
aðrir eru í kaffi og koma bara þeg-
ar kaffitíminn er búinn.
Svona svör og þjónusta eru þeirr-
ar gerðar, að Víkveiji getur ekki
orða bundist. Er ekki Hagkaup
einkafyrirtæki, með þjónustu við
viðskiptavini sína að leiðarljósi? Er
það ekki léleg verkstjórn og skipu-
lagning að láta alla starfsmenn sína
utan tvo í stórmarkaði, eins og
Hagkaup er, fara í kaffi á sama
tíma? Væri nú ekki reynandi, þegar
á daginn kemur að biðraðir hafa
myndast við afgreiðslukassa, vegna
þess að allir eru í kaffi á sama tíma,
að sýna sveigjanleika, bijóta upp
kaffitímann, vippa sér inn fyrir af-
greiðsluborðið og gera kúnnann
ánægðan?!!! Víkveija er bara spurn.
AÐ var augsýnilega gaman að
vera Vestmanneyingur í Vest-
mannaeyjum á sunnudag, þegar
ÍBV tryggði sér íslandsmeistaratit-
ilinn í knattspyrnu með glæsibrag.
Víkveiji fylgdist með leiknum í sjón-
varpinu og þótt það sé aldrei það
sama, að horfa á beina útsendingu
og að vera á vellinum, fannst Vík-
veija sem stemmningin, leikgleðin,
sigurgleðin og ómældur fögnuður
áhorfenda skilaði sér vel heim í
stofu. Það er ósköp skiljanlegt að
Vestmanneyingar fagni íslands-
meistaratitlinum nú, 18 árum eftir
að þeir tryggðu sér hann í fyrsta
sinn.
xxx
EKKI var fögnuðurinn minni hjá
meistarflokki karla í ÍR á
laugardag, þegar liðið tryggði sér
sæti í efstu deild knattspyrnunnar,
í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það
verður skemmtilegt að fylgjast með
ÍR-ingum næsta sumar og sjá
hvernig þeim vegnar meðal bestu
knattspyrnuliða landsins.