Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 51
FÓLK í FRÉTTUM
Stutt
Stjórn Minningarsjóðs
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Námsstyrkir í verkfræði og raunvísindum.
Stjóm sjóðsins auglýsir hér með eftir styrkumsóknum vegna náms á skólaárinu 1997-
98. Styrkimir em tetlaðir nemendum í verkfræði- og raunvísindagreinum og hafa
þeir einkum verið veittir nemendum i framhaldsnámi.
Umsóknareyðublöð fást hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Neshaga 16,
og ber að skila umsóknum þangað. Með umsókn skal fylgja ítarleg
fjárhagsáætlun, staðfest yfirlit um námsárangur og önnur þau gögn, sem
umsækjandi telur að komið geti að gagni við mat umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. september.
Stefnt er að því að tilkynna úthlutun í nóvember.
BÍÓIN í BORGINNI
Bréf Lennons selt á uppboði
►BRÉF Bítilsins John Lennons
til Cynthiu eiginkonu hans var
selt í vikunni á uppboði fyrir
tæpar tvær milljónir króna. í
bréfinu lýsir Lennon áhyggjum
sínum yfir því hve litla athygli
hann hafi veitt syni sinum Julian.
„Ég sakna hans meira en ég hef
nokkru sinni gert áður. Ég held
að tilfinningar mínar sem föður
hafi komið seint,“ skrifaði Lenn-
on til eiginkonu sinnar þegar
hann var á tónleikaferðalagi í
Hollywood með Bítlunum árið
1965. „Ég sakna hans sem per-
sónu núna, þú veist hvað ég
meina, hann er ekki lengur
„barnið“ eða „barnið mitt“ held-
ur er hann lifandi hluti af mér
núna. Þú veist, hann er Julian
og ég get ekki beðið eftir því að
hitta hann.“ Bréfið endaði með
þessum orðum: „Ég ætla að
hætta núna því ég verð svo niður-
dreginn að hugsa um hversu
hugsunarlaus óþverri ég virðist
vera ... Mig langar að fara að
gráta."
Sæbjörn Valdimarsson / Arnaidur Indriðason
/ Anna Sveinbjarnardóttir
SEAN Penn og Robin
Wright Penn.
Vinna vel
saman
ÞAÐ var engum vandkvæðum
háð fyrir Robin Wright að leika
á móti eiginmanni sínum, Sean
Penn, I myndinni „She’s So Lo-
vely“. „Við áttum að leika bijál-
æðislega ástfangið fólk og við
erum það,“ sagði Robin. „Við
kynntumst fyrst þegar við lékum
saman í mynd en núna eigum við
tvö börn. Það hefur gengið á
ýmsu í sambandinu og við þekkj-
um hvort annað vel eftir átta ár.“
Það er ekki alltaf auðvelt að
vera frú Penn eins og Robin
komst að þegar þau hjón fóru
með dótturina Dylan í Disney-
land. „Við þurftum að fá fylgd í
gegnum svæðið til að veijast öU-
um aðdáendunum sem gripu i
Sean og vildu eiginhandaráritun.
Við fengum þó engan forgang
því ég vil alls ekki að dóttir mín
haldi að þótt pabbi liennar sé
Sean Penn fái hún að troðast
fram fyrir aðra,“ sagði Robin sem
er fræg fyrir að forðast fjölmiðla
og sviðsljósið.
BÍÓBORGIN
Face/Off *tc*y2
Slíkur er atgangurinn í nýjasta
trylli Woos að hann ætti að vera
auðkenndur háspenna/lífshætta.
Góð saga til grundvallar æsilegri
og frumlegri atburðarás frá upp-
hafi til enda. Vel leikin, forvitnileg-
ir aukaleikarar, mögnuð framvinda
en ekki laus við væmni undir lokin
sem eru langdregin og nánast eini
ljóðurinn á frábærri en ofbeldis-
fullri skemmtun,
Hefðarfrúin og umrenningur-
inn ***
Hugljúf teiknimynd frá Disney um
rómantískt hundalíf. Prýðileg af-
þreying fyrir alla fjölskylduna sem
ber aldurinn vel, var frumsýnd
árið 1955.
Grosse Pointe Biank * * *'/i
Þétt og vönduð skemmtun í dekkri
kantinum þar sem söguhetjan
(Cusack) er leigumorðiingi sem
heldur til heimaborgarinnar til að
hitta æskuástina sína og dæla blýi
í nýjasta fórnarlambið. Yndislega
kaldhæðin, vel leikin og skrifuð. í
hæsta máta óvenjuleg enda gerð
af frumlegri hugsun sem er fágæt
í Hoilywood.
Batman og Robin *
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Yktir endurfundir *
Ýkt og klúðursleg gamanmynd.
Lisa Kudrow og Mira Sorvino eru
mjög mistækar.
SAMBÍÓIN, ÁLFA-
BAKKA
Breakdown ***
Pottþétt spennumynd í flesta staði
með óslitinni afbragðs framvindu,
fagmannlegu yfirbragði, fínum leik
og mikilfenglegu umhverfi.
Face/Off ***'A
Sjá Bíóborgina.
Hefðarfrúin og umrenningur-
inn ★★★ Sjá Bfóborgina.
Blossi ***
Blossi er köld mynd. Hún er gerð
úr mörgum sterkum þáttum en
snertir áhorfanda mjög lítið. Mynd-
in er eigi að síður áhugavert fram-
lag til íslenskrar kvikmyndagerðar.
Addicted to Love * *'/2
Óvenjuleg og öðruvísi ástarsaga
sem á sínar góðu, gamansömu
stundir.
Bngu að tapa * *
Tim Robbins og Martin Lawrence
tekst að skemmta áhorfendum
ágætlega í ófrumlegri gamanmynd
um vinskap ólíkra félaga.
Speed 2 * *
Framhaldið kemst ekki með stefnið
þar sem Speed hafði stuðarana.
Batman & Robin ★
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
fjórða innlegginu um ævintýri
hans. Eini leikarinn sem virkilega
nýtur sín er Uma Thurman sem
náttúruvemdarsinni. George Clo-
oney er hreint út sagt vonlaus í
aðalhlutverkinu.
Menn í svörtu ★ ★ ★ 'A
Sumarhasar sem stendur við öll
loforð um grín og geimverur.
Smith og Jones eru svalir og töff
og D’Onofrio fer skelfilegum ham-
förum.
Frumskógafjör **
Endurgerð á franskri gamanmynd
sem hefði heppnast ef hún hefði
verið um allt annað en lítinn indj-
ánastrák í heimsókn í stórborginni.
HÁSKÓLABÍÓ
Morðsaga
Rykið dustað af tvítugri morðsögu
sem er að líkindum minnisstæðari
fyrir stöðu sína í íslenskri kvik-
myndasögu (síðasta einstaklings-
framtakið á undan Kvikmyndasjóði
og „vorinu") en innihald og efni-
stök. Hefur elst skemmtilega og
gaman að virða fyrir sér svipi fort-
íðar.
Aðeins steipa ***
Skemmtileg mynd um ævi danska
Ég held að tilfinningar
mínar sem föður hafi
komið seint,“ skrifaði
Lennon til eiginkonu
sinnar.
rithöfundarins Lise Nörregárd,
höfundar Matador
Þegar við vorum kóngar
Frábær heimildarmynd um heims-
meistarakeppnina í hnefaleikum í
Zaír '74 milli Foremans og Alis.
Gamla „fiðrildið“ í essinu sínu.
Skuggar fortíðar * *
Myndin er byggð á raunveruleg-
um atburðum og aðstandendur
hennar vilja greinilega fjalla um
kynþáttamisrétti í Suðurríkjum
Bandaríkjanna af hjartans ein-
lægni en tekst hvorki að skapa
dramatíska spennu né hrífandi
persónur.
Bean ***
Ágætlega hefur tekist að flytja
Bean af skjánum á tjaldið. Rowan
Atkinson er stórkostlegur
kómiker, Herra Bean einstakt
sköpunarverk.
Horfinn heimur **'/%
Steven Spielberg býður uppá
endurtekið efni. Það nýjasta í
tæknibrellum og nokkrir brand-
arar ná ekki að breiða yfír alger-
an skort á skemmtilegri frásögn
KRINGLUBÍÓ
Brúðkaup besta vinar
míns ***
Ástralinn J.P. Hogan heldur
áfram að hugleiða gildi gift-
inga í lífi nútímakvenna.
Þægileg grínmynd sem
leyfir Juliu Roberts að
skína í hlutverki óskamm-
feilins og eigingjarns
matargagnrýnanda.
Hefðarfrúin og um-
renningurinn ***
Sjá Bíóborgina.
Addicted to Love
* *Vi
Sjá Sambóin, Álfabakka.
Face/Off ***'/i
Sjá Bfóborgina.
Batman & Robin *
Sjá Sambíóin, Álfa-
bakka.
LAUGARÁS-
BÍÓ
Spawn **
Heilarýr, flott útlítandi
brellumynd sem sækir mikið í
skuggaheim Tim Burtons.
The Shadow Conspiracy Vi
Óspennandi samsæristryllir
með meðaljónunum Charlie Sheen
og Lindu Hamilton. Nær aldrei að
skapa hraða og spennu þó mikið
sé hlaupið um og skotið á mann
og annan.
Trufluð veröld **'/i
Lynch fetar troðnar slóðir í nýjustu
mynd sinni um týndar sálir í leit
að einhvers konar sannleika.
REGNBOGINN
Breakdown ***
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
The Spitfire Grill **
Ósköp hefðbundin en ágætlega
leikin grátópera sem féll í kramið
hjá áhorfendum á Sundance kvik-
myndahátíðinni.
Tvíeykið **
Vöðvabúnt leika við tær og fingur
í hressilegri B-mynd.
Ótrúlegur dagur * *
Michelle Pfeiffer leikur vel og Ge-
orge Clooney er sætur í þessari
ósköp snyrtiíegu mynd.
STJÖRNUBÍÓ
Brúðkaup besta vinar míns
*** Sjá Kringlubíó.
Lífsháski *'/i
Lítt vitrænn og fyrirsjáanlegur
ofsóknartryllir.
Menn í svörtu * * *'/i
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Endurkoma
Kim
Basinger
LEIKKONAN Kim Basinger
mætti í fylgd föður síns,
Don Basinger, á frumsýningu
nýjustu myndar sinnar „L.A.
Confidential" í Hollywood á
dögunum. Myndin gerist á
sjötta áratugnum og fjallar um
spillingu innan lögreglunnar.
Þetta er fyrsta mynd leikkon-
unnar í nokkurn tíma síðan hún
eignaðist dótturina Ireland með
leikaranum Alec Baldwin.
Basinger sagði í viðtali við
tímaritið Detour að við tökur á
„L.A. ConfidentiaT’ hefði hún
í fysta skiptið í langan tíma
notið þess að leika. Gamli
tíminn eigi mjög vel við hana
og stundum fínnist henni eins
og hún hafí fæðst á vitlaus-
um tíma. Gagnrýnendur
hafa sagt myndina vera
endurkomu Basinger en
sjálf segir hún slíkt tal vera
orðum aukið. Hún hafí
eignast barn og nú sé hún
aftur farin að vinna. Svo
einfalt sé það.
KIM Basinger kemur til
frumsýningarinnar með
föður sínum Don.